Morgunblaðið - 11.12.1997, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
'
LANDIÐ
Nýjar íbúðir fyrir aldraða
vígðar í Stykkishólmi
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
NYJAR þjónustuíbúðir aldraðra í Stykkishólmi.
Stykkishólmi - Nýjar
þjónustuíbúðir fyrir
aldraða voru vígðar
laugardaginn 6. desem-
ber sl. Hér er um að
ræða 7 íbúðir og félags-
aðstöðu fyrir eldri
borgara í Stykkishólmi.
Ibúðirnar eru í tveimur
stærðum, 60 fm og 70
fm. Það var Stykkis-
hólmsbær sem hafði
forgöngu um þessa
framkvæmd. Nýja
teiknistofan hf. var
fengin til að teikna hús-
ið sem er samfast við
dvalarheimili aldraðra
hér í bæ. Arkitekt
hússins er Gunnar
Guðnason.
Fyrsta skóflustungan var tekin
um miðjan júlí á síðasta ári og tók
bygging hússins aðeins 17 mánuði
og því hefur verkið gengið mjög
vel. Verktaki byggingarinnar var
Trésmiðjan Nes hf. í Stykkishólmi.
Hún fékk til liðs við sig undirverk-
taka sem flestir voru heimamenn.
Ibúðimar og félagsaðstaðan eru
fullfrágengnar og eins er um lóðina.
Heildarkostnaður við
bygginguna er um 75
milljónir króna. Búið er
að selja allar íbúðirnar
sjö og sýnir það að þörf
var fyrir þessa fram-
kvæmd.
Vígsluathöfnin var
hátíðleg. Sóknarprest-
urinn Gunnar Eiríkur
Hauksson flutti bless-
un, kirkjukór Stykkis-
hólmskirkju söng,
ávörp voru flutt og
gjafir bárust. Bæjar-
stjóri afhenti nýjum
eigendum húslyídana
og óskaði þeim alls
góðs á nýjum stað. Að
lokum var boðið upp á
kaffiveitingar. Sumir
nýju íbúanna eru fluttir inn en aðrir
koma á næstu vikum. Þegar allir
eru fluttir inn búa yfir 40 manns á
dvalarheimilinu og í þjónustuíbúð-
unum.
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
RAGNA Gunnarsdóttir og Guðmundur Árnason,
eigendur Baldvins og Þorvaldar.
Nýir eigendur að
söðlasmíðaverkstæði
Selfossi - Guðmundur Ámason og
Ragna Gunnarsdóttir hafa tekið við
rekstri söðlasmíðaverkstæðisins
Baldvin og Þorvaldur. Baldvin og
Þorvaldur er elsta söðlasmíðaverk-
stæði landsins og hefur verið starf-
rækt í 70 ár. í dag er verkstæðið til
húsa á Austurvegi 21 á Selfossi.
Að sögn Guðmundar, sem er
söðlasmíðameistari að mennt, segir
það ætlunina að auka vömúrval í
fatnaði og vömm fyrir hestamenn
og hafa fagmennsku að leiðarljósi í
framleiðslu og viðgerðum.
BORÐSTOFUHÚSGÖGN
Stórkostlegt úrval af borðstofuhúsgögnum
— Verð við allra hæfi -
KOMMÓÐUR - NÁTTBORÐ
Mikið úrval af kommóðum. Tilvalin
náttborð við amerísk rúm. Verð frá 8.500.
Einnig mikið úrval af borðum, hornskápum, rókókóstólum o.fl.
IdHHHBEII
® HÚSGAGNAVERSLUN 9B
Jo man. ^ ____ , _ ^ jo mon.
Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 565 4100
Morgunblaðið/Amór
ÞAÐ var glatt á hjalla í Samkomuhúsinu sl. þriðjudagskvöld. Það eru Sigrún á Nýjalandi og Stína í Réttum
(Kristín Magnúsdóttir) sem eru að segja frá ævintýrum sfnum í Barcelona fyrr á árinu.
Engin ellimörk á áttræðri Gefn
Garði - Kvenfélagið Gefn átti 80
ára afmæli sl. þriðjudag og af því
tilefni héldu konurnar veglega af-
mælishátíð í Samkomuhúsinu þang-
að sem boðið var gestum og velunn-
urum félagsins. A annað hundrað
manns mættu og að venju þar sem
kvenfélagskonurnar koma saman
var glens og gaman.
Sigrún Oddsdóttir á Nýjalandi,
sem stýrði félaginu á þriðja áratug
rakti sögu félagsins. Þá kom nú-
tímakonan með sinn GSM-síma og
gustaði mikið af henni. Ómar Jó-
hannsson flutti langan brag um
kvenfélagið og ungar stúlkur, þær
Kristín Erla Oiafsdóttir, Dóra Sig-
rún Hjálmarsdóttir og Guðbjörg Jó-
hannesdóttir, fluttu jólalög.
A skemmtuninni voru átta konur
heiðraðar fyrir fórnfús og vel unnin
störf fyrir félagið. Þá voru mörg
ávörp flutt og félagið fékk mikið af
gjöfum.
Utskálakirkja hefir frá upphafi
verið óskabarn félagsins og eru þær
orðnar ófáar gjafimar sem kvenfé-
lagið Gefn hefir fært kirkjunni.
Gefn hefir víða komið við á löngum
starfsferli og má t.d. nefna að félag-
ið gaf 250 kr. í vegasjóð 1922. Þá má
og nefna að félagið rak leikskólann
Gefnarborg í ein 15 ár og unnu kon-
umar mörg handtökin þar í sjálf-
boðavinnu.
Kvenfélagið Gefn hefir gert tvo
menn að heiðursfélögum í þessi 80
ár. Þeir em Jóhann Jónsson og
Bjöm Finnbogason en þeir em báð-
ir látnir.
Núverandi formaður félagsins er
Þómý Jóhannsdóttir.
17
ÍDDffifflP lífe
Skartgripir
^nýjar bækur Tnýjar bækur Leikföng
' ■ Fatnaour
3 gamlar fríar med Qjafavara
fsfuplq Matvæli
lljýplíj3 ®gj
Kr.
900
1 gömul frítt med
^nýjar bækur
Kr.
1400 Geisladískar
Antikmunir
hvergi lægra verð
en í Kolnportinu
Kr.
1900 baokur
'k
5 gamlar fríar med
frá kr. 100,-
Sælgæti
Bækur
Skór
..og margt fleira
IOLA
J MARKAÐUR
ai dlfia
i
i
!
I
i
i
i
I
i
i
\
I
i
\
i
i
i
l
i
I
I
i