Morgunblaðið - 11.12.1997, Page 31
HÉ8 & NÚ AUGLÝSINGASTOFA / SÍA
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997 31
ÍSLENSKI FJÁRSJÓÐURINN
HÆSTA ÁVÖXTUN ÍSLENSKRA
HLUTABRÉFASJÓÐA
ÍSLENSKI FJÁRSJÓÐURINN skilaði hluthöfum sínum hæstu ávöxtun
hlutabréfasjóða síðastliðin tvö ár, 46%.
ÍSLENSKI FJÁRSJÓÐURINN er íyrsti sérhæföi hlutabréfasjóðurinn á
Islandi og fjárfestir eingöngu í íslenskum íyrirtækjum sem eiga mikla
vaxtarmöguleika. Mörg þeirra eru í sterkri sókn erlendis. Fyrirtækin eru
að stærstum hluta í sjávarútvegi og greinum tengdum honum en einnig
í iðnaði, hugbúnaðarútflutningi, tölvufyrirtækjum og lyfjaframleiðslu.
Hjón sem keyptu hlutabréf í ÍSLENSKA FJÁRSJÓÐNUM fyrir
259.800 kr. í des. 1995 tryggðu sér 87.169 kr. skattaafslátt sem þau
fengu endurgreiddan 1. ágúst 1996.
Vegna góðs gengis sjóðsins sl. tvö ár fengu þau auk þess 42.063 kr.
í arð og 53% ávöxtun ef skattaafslátturinn er talinn með. Þetta þýðir
að á tveimur árum eru 259.800 kr. orðnar að 606.768 kr.
Eitt símtal er allt sem þarf
Hægt er að afgreiða öll kaup á hlutabréfum í hlutabréfasjóðum
Landsbréfa í gegnum síma.
Komdu eða hringdu í ráðgjafa okkar hjá Landsbréfum eða
Landsbankanum. Þú getur einnig keypt hlutabréf í
Kauphöll Landsbréfa á vefnum, slóðin er: kaupholl.landsbref.is
Samanburður ÍSLENSKA FJÁRSJÓÐSINS og
þingvísitölu hlutabréfasjóða frá stofnun hans.
Þú getur dreift greiðslunum
Þú getur valið þá greiðsluaðferð sem hentar þér. Landsbréf býður þér
að láta skuldfæra greiðslurnar mánaðarlega á tékkareikning
í Landsbanka Islands eða í Símabankanum, eöa nýta þér boðgreiðslu-
þjónustu EURO og VISA.
ÁBENDING FRÁ LANDSBRÉFUM:
Ávöxtun í fortíð þarf ckki að gcfa vísbcndingu um ávöxtun í framtíð
SUÐURLANDSBRAUT 2 4, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 535 2000,
^ LANDSBREF HF.
BRÉFASÍMI 535 2001, VEFSÍÐA www.landsbref.is