Morgunblaðið - 11.12.1997, Síða 32
32 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Danskir læknar þróa heppilegri aðferð við glasafrjóvgun
Staðfesting á minnk-
andi frjósemi karla
Kaupmannahöfn. Morgfunblaðið.
FYRRI áhyggjur af minnkandi frjó-
semi og lélegra sæði karlmanna hafa
verið staðfestar í nýjum rannsóknum
í kjölfar rannsókna Niels Erik
Skakkebæks á Ríkisspítalanum í
Kaupmannahöfn. En danskir læknar
hafa einnig þróað aðferð til að þroska
egg til glasaftjóvgunar utan legs, svo
ekki þarf að gefa móðurinni stóra
hormónaskammta, sem hingað til hafa
fylgt meðferðinni og iðulega haft í fór
með sér miklar aukaverkanir.
Þegar Skakkebæk sýndi fram á
það 1992 að sæði karla hefði versn-
að mjög undanfarna hálfa öld, voru
ekki allir starfsbræður hans trúaðir
á að rannsóknin gæfí rétta mynd
og heldur ekki að lélegra sæði orsak-
aðist af efnamengun.
Síðan hafa margar rannsóknir
verið framkvæmdar á þessu sviði og
nú síðast verið birtar niðurstöður
bandarískrar rannsóknar, þar sem
hugmyndin var í upphafi sú að niður-
staða Skakkebæks gæfi ekki rétta
mynd. Líkt og í rannsókn
Skakkebæks er niðurstaðan þar að
orsakanna sé líklegast að leita í
umhverfisþáttum og þá einkum í
mengun frá efnum eins og skordýra-
eitri og plastefnum. Astæðan væri
þá að efnin hegða sér eins og kven-
kynshormónar og vinna gegn karl-
kynshormónum á fósturstigi.
Afleiðingin er að kynfæri karla
þroskast verr en áður, sæðisfram-
leiðsla þeirra verður lélegri en áður
og minni og körlum er hættara við
krabbameini í eistum, þar sem slíkt
krabbamein býr einkum um sig í illa
þroskuðum eistum.
En konur, sem eiga erfitt með að
verða þungaðar hafa hins vegar
ástæðu til að gleðjast, því danskir
læknar á Herlev sjúkrahúsinu hafa
þróað aðferð, sem gerir þeim ekki
aðeins kleift að fijóvga egg, heldur
líka að þroska þau, áður en þau eru
fijóvguð. Hingað til hefur þurft að
HLUTAB RÉFAS J ÓÐURINN
AUÐLINDHF.
Auðlindarbréf keypt 18/11 '96
Kaupverð (hámark sem nýttist til skattafrádráttar) 260.000
Gengishagnaður (umfram arö og þóknun) 14.786
10% arður (greiddur út (júlí ‘97) 12.322
Skattafsláttur (endurgreiddur í ágúst '97) 85.030
Eign um mánaðamót nóv./des. 1997 372.138
Síöastliðin sjö ár hefur Hlutabréfasjóðurinn Auðlind hf. skilað bestu
ávöxtun sambærilegra sjóða á Islandi. Sjóðurinn einkennist af virkri
stýringu á innlendu hlutabréfasafni og umtalsveröri eign I erlendum
verðbréfum. Ávallt er leitast við að draga úr sveiflum á gengi og
minnka áhættuna. Arið 1997 héldu eigendur Auðlindabréfa áfram að
njóta betri ávöxtunar en þeir sem bundu fé í öðrum hlutabréfasjóöum.
Tryggðu þér skattafslátt með því að kaupa Auðlindarbréf fyrir áramót
og sjáðu góðærið í hendi þér!
Boðgreiðslur VISA/EURO -afgreiðsla með einu slmtali.
n
SPARISJÓÐIRNIR
KAUPI’ING HF
„Þetta byrjaði
allt þegar ég
keypti hlutabréf
í Auðlind..."
Ég gafst upp á að bíða eftir góðærinu.
Fyrir jóiin í fyrra keypti ég hlutabréf í
Auðlind og þá fór ég loksins að sjá
breytingar. Auðlindarbréfin gáfu arð, veittu
skattafslátt og hækkuðu í verði.
Á einu ári sá ég eignina aukast um 43%!
Eftir að ég eignaðist Auðlindarbréfin hef
ég meira á milli handa og mér er sem ég
sjái mig eftir nokkur ár ef vöxturinn heldur
Sölustaðir: Sparisjóðirnir um land allt. Kaupþing Norðurlands hf. Kaupvangsstræti 4, slmi 462 4700. Kaupþing hf. Ármúla 13A, slmi 515 1500
svona áfram!
gefa konum stóra hormónaskammta
til að þroska egg, sem síðan eru
glasaftjóvguð, en með nýju aðferð-
inni sleppur konan við hormónameð-
ferðina því eggin eru þroskuð og
ftjóvguð í glasi.
Aðferðin hefur verið reynd og gef-
ur góða raun, utan hvað það hefur
verið vandkvæðum bundið að fá egg-
ið til að taka sér bólfestu í legi kon-
unnar. Rannsóknir standa yfir og það
er enn nokkuð í að aðferðin verði
fullreynd og hægt að sækja um leyfi
til að taka hana í notkun.
Þróun aðferðarinnar hefur verið
með fullu leyfi danskra heilbrigðisyf-
irvalda, en meðal þingmanna hafa
komið upp raddir um hvort hún sam-
ræmist siðalögmáium.
Sló vopn úr
höndum
ræningja
Sao Paulo. Reuters.
BRASILÍUMAÐUR á eftirlaunum
gerði sér lítið fyrir og sló vopn úr
höndum ræningja sem höfðu hald-
ið honum í gíslingu í tvo klukku-
tíma. Kvaðst eftirlaunaþeginn hafa
lent í margfalt verri aðstæðum en
hann var um árabil höfuðsmaður
í brasilíska hernum og hlaut æðstu
heiðursmerki hersins fyrir fram-
göngu sína í heimsstyrjöldinni síð-
ari.
Höfuðsmaðurinn fyrrverandi er
orðinn 82 ára og lélegur til heil-
sunnar. Hann var á náttfötum og
inniskóm er tveir vopnaðir menn
réðust inn á heimili hans og tóku
hann í gíslingu. Ræningjarnir
reyndust á flótta undan lögreglu
og drógu höfuðsmanninn út á götu
þar sem þeir héldu byssu að höfði
hans.
Þeir gerðu hins vegar ekki ráð
fyrir að gamli maðurinn væri eins
snar í snúningum og raunin varð
á, því hann notfærði sér augna-
bliks aðgæsluleysi ræningjann og
sló vopnin úr höndum þeirra.
Frábært
verð
kr. 2.990
Kringlunni 12, sími 568 6062,
Skemmuvegi 32L, slmi 557 5777
DESCAMPS'
Mihimia
CLUCCA TJOLD
Síðumúla 35 ♦ Simi 568 0333.