Morgunblaðið - 11.12.1997, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER1997 35
LISTIR
Hugnrinn reikar víða
TONLIST
Illjómdiskar
HEYRÐI ÉGí HAMRINUM
Lög Ingibjargar Sigurðardóttur,
Bjálmholti í Rangárvallasýslu. 75
ára yfirlit í flutningi einsöngvara
og kóra. Flytjendur: Sigurveig
Hjaltested, Signý Sæmundsdóttir,
Loftur Erlingsson, Hulda Björk
Garðarsdóttir, Eyrún Jónasdóttir,
Ólafur E. Rúnarsson, Benedikt Ing-
ólfsson, Hannes Birgir Hannesson
og Helga Dögg Sigurðardóttir. Sam-
kór Rangæinga, Kvennakórinn Ljós-
brá, Nafnlausi sönghópurinn, Karla-
kór Rangæinga, Kvennakór Hafnar-
fjarðar, Kvartettinn Viri Cantantes,
Barnakór Oddakirkju og Nemenda-
kór Laugalandsskóla. Upptökur
fóru fram árið 1997, aðallega í Fella-
og Hólakirkju í Rvík, einnig í Víði-
staðakirkju í Hafnarf. og félags-
heimilinu Arnesi í Gnúpveijahr.
Hljóðupptaka: Studio Stemma. Upp-
tökusljóri: Sigurður Rúnar Jónsson.
Útgefandi: Jón Þórðarson.
Dreifing: JAPIS.
INGIBJÖRG Kristín Sigurðar-
dóttir frá Bjálmholti í Holtum hefur
í meira en „mannsaldur" stundað
sönglagasmíð, en farið hljótt með
það - kveðst aldrei hafa verið tón-
skáld. Hvað sem því líður er hér
kominn hljómdiskur með á fjórða
tug laga eftir hana, „75 ára yfirlit“
frá árunum 1922-97, flutt af
Signýju Sæmundsdóttur, Lofti Erl-
ingssyni, Sigurveigu Hjaltested og
„nokkrum upprennandi stórsöngv-
urum, fjórum stórum kórum og
minni sönghópum", eins og þar
stendur, ásamt ónefndum kórstjór-
um og undirleikurum. Að útgáfunni
stendur Jón Þórðarson, fréttamað-
ur á Fosshólum (Hellu), með aðstoð
Guðjóns Halldórs Óskarssonar org-
anista, píanóleikara og kórstjóra
frá Miðtúni í Hvolhreppi, o.fl. góðra
manna og kvenna og annarra aðila.
Ingibjörg telur sig ekki vera tón-
skáld, en hefur samið lög frá því
um fermingu, kannski lengur -
„þegar um sex ára aldur veittu
systkini hennar, og eflaust fleiri,
því athygli að hún raulaði lög sem
aðrir könnuðust ekki við. Vafalaust
hefur hún samið þau sjálf, hvort
sem hún gerði sér fulla grein fyrir
því eða ekki“. Hún lærði að leika
á orgel (harmonium) hjá Isólfi Páls-
syni tónskáldi frá Stokkseyri og
Margréti, dóttur hans.
Þessi hljómdiskur inniheldur
mörg elskuleg lög, en (auðvitað)
dálítið keimlík, enda varla unnin
til hlítar (útsett). Örfá laganna
hafa áður komið fyrir augu og eyru
almennings, oftast að tilstuðlan dr.
Hallgríms Helgasonar, en hann
útsetti mörg af lögum Ingibjargar
og gaf út með öðrum verkum á
nótnaheftum.
Þessi útgáfa er þakkarvert
framtak, vafalaust kærkomin
mörgum.
Oddur Björnsson
Antti Tuuri
hlaut Finlandia
-verðlaunin
RITHÖFUNDURINN Antti Tuuri
hefur hlotið Finlandia-verðlaunin,
kunnustu bókmenntaverðlaun Finn-
lands, fyrir sjötta
bindi ritverks
sem í heild sinni
nefnist Po-
hjanmaa. Verkið
segir frá þremur
kynslóðum ætt-
arinnar Hakala.
Verðlaunabókin
heitir Laukeuden
kutsu sem þýða má Flatlendið kall-
ar.
Antti Tuuri (f. 1944) fékk Bók-
menntaverðlaun Norðurlandaráðs
1985 fyrir fyrsta bindi þessa rit-
verks. Nokkrar bóka Tuuris hafa
verið þýddar á ísjensku. Hann hefur
oft komið til íslands og þekkir
marga íslendinga. Auk sagnagerð-
arinnar hefur hann að undanförnu
þýtt íslendingasögur á finnsku.
Jólaskórnir frá
VlVALDI
l'INESTRA DLI.LA VIA l’RINCII’ALL
Kringlunni 12, sími 568 6062,
Skemmuvegi 32L, sími 557 5777
Alvöru ieppi á verði jepplings
IVITARA 1998
Suzuki Vitara er ekta jeppi.
Hann er með háu og lágu
drifi, sterkbyggður á grind,
upphækkanlegur, með feiki-
lega stöðuga fjöðrun
og
• VERÐ: JLX 3-D. 1.675.000 KR., JLX 5-D. 1.940.000 KR.,
DIESEL 5-D 2.180.000 KR.,V6 2.390.000 KR.
• Snar í viðbragði, hljóðlátur, lipur í akstri
- og ekki bensínhákur.
• Gott pláss - mikill staðalbúnaður.
Komdu og sestu innl
Sjádu plássið og alúðina við smáatriði.
Vitara er vinscelasti jeppinn á Islandi.
Og skyldi engan undra.
SUZUKl
AFL OG
ÖRYGCI
SUZUKI BÍLAR HF
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11.
Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Keflavik: BG bilakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrismýri 5, sími 482 37 00.
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.