Morgunblaðið - 11.12.1997, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997 39
LISTIR
STJÓRN Sparisjóðs Vestmannaeyja og sparisjóðsstjórinn ásamt þeim sem tóku á móti stjrkjum úr
styrktarsjóðnum. F.v. Þór Vilhjálmsson, Skæringur Georgsson, Arnar Sigurmundsson, Olafur Týr
Guðjónsson, Ólafur Hreinn Sigurjónsson, skólameistari framhaldsskólans, Sigurður Símonarson, for-
stöðumaður listaskólans, Ragnar Óskarsson, Benedikt Ragnarsson og Gísli Geir Guðlaugsson.
Uthlutað úr Styrktar- og menn-
ingarsjóði Sparisjóðsins í Eyjum
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
ÚTHLUTAÐ var úr
Styrktar- og menning-
arsjóði Sparisjóðs Vest-
mannaeyja fyrir
skömmu. Þetta er í tí-
unda skipti sem úthlut-
að er úr sjóðnum sem
stofnaður var árið
1988, til minningar um
Þorstein Þ. Víglunds-
son, fyrrverandi spari-
sjóðsstjóra.
Arnar Sigurmunds-
son, formaður stjórnar
Sparisjóðsins, flutti
ávarp, er úthlutað var
úr sjóðnum. Arnar
gerði grein fyrir styrk-
veitingum úr sjóðnum
en þrír aðilar hlutu
styrk að þessu sinni.
Listaskóli Vestmannaeyja, sem
tók til starfa í haust, hlaut styrk
til kaupa á kennslutækjum sem
styrk til fjármögnunn-
ar á kaupum vélarúms-
hermis, sem keyptur
var fyrir skömmu til
kennsiu á vélstjórnar-
braut í skólanum. Ólaf-
ur Týr Guðjónsson,
kennari, sem hefur á
undanförnum árum
unnið að Örnefnabók
fyrir Vestmannaeyjar,
hlaut styrk til útgáfu á
Örnefnabókinni en
áætlað er að bókin
komi út á næsta ári.
Að loknu ávarpi Arn-
ar afhenti Benedikt
Ragnarsson, spari-
sjóðsstjóri, forstöðu-
manni Listaskólans,
skólameistara Fram-
haldsskólans og Ólafi Tý styrk-
ina.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jóasson
BENEDIKT Ragnarsson, sparisjóðsstjóri, af-
hendir Ólafi Tý styrkinn.
nýtast munu i samkomu- og
kennslusal skólans. Framhalds-
skólinn í Vestmannaeyjum hlaut
„Lífið er djók“
BÆKUR
L j óð
MEÐ ÓSK UM BJARTA
FRAMTÍÐ
eftir Sverri Stormsker, Fjölvaút-
gáfan 1997 - 208 bls.
ÞAÐ eru takmörk fyrir því hve
fyndni getur verið fyndin. Við fáum
stundum alveg nóg af galskapnum.
Það eru líka ákveðin mörk sem segja
okkur að kaldhæðni sé ekki lengur
hæðni heldur illkvittni.
Sverrir Stormsker er
landsþekkt meinhorn
og ný bók hans Með ósk
um bjarta framtíð ein-
kennist auðvitað af
flestu öðru en fram-
tíðaróskum. Hún er
þvert á móti uppfull af
háðsglósum, skotum,
útúrsnúningi, guðlasti
og níði en minna fer
fyrir græskulausu
gamni eða einhverri al-
vöru.
Því er svo sem ekki
að neita að með sumum
kvæðum sínum fær
Sverrir lesendur til að
brosa út í annað og
kannski bæði. í þessari ljóðabók er
honum sérlega uppsigað við kristni
og hræsni í tengslum við kristilegan
boðskap. í kaldhæðnu kvæði sem
hann nefnir Something magic segir
svo um eðli þessa guðdóms:
Ég lít í anda Ésú
eingjast á krossinum.
Maður eða gvuð?
Veitða ekki.
En eitt veit ég;
Það hángir eitthvað á spítunni.
Það hangir hins vegar á spýtu
þessarar bókar að ótöiulegur fjöldi
kvæða er ortur þessum sama Jesú
til höfuðs og sannast sagna hættir
sá jólaglaðningur um síðir að vera
skemmtilegur. Að vísu má skilja svo
af bókarkápu að jólabarnið hvíli ekki
lengur í jötu heldur í gini úlfsins og
meginefni ljóðabókarinnar sé fyrir
bragðið sá ógnarheimur sem við
höfum búið börnum okkar. En ein-
hvern veginn finnst mér að tugir
ljóða um vammir Krists og krist-
indóms breyti þar engu um.
Sama má segja um háð- og níð-
kvæði sem 'fjalla um nafnkennda
menn ogjafnvel nýlátna. Þess háttar
fyndni er afar vandmeðfarin. Hjá
Sverri þykir mér hún lágkúruleg enda
er hún lítið annað en níðið. Slíkur
skáldskapur segir líka meira um höf-
undinn en þá sem ort er um.
Tvíræðni einkennir kveðskap
Sverris. Eigi að síður er hægt að lesa
út úr texta hans ákveðin siðferðileg
viðhorf. Hann varar að vísu á stöku
stað við dómhörku og bendir m.a. á
að „messías / gvuð yðar, / var dæmd-
ur / fyrir guðlast". En þessi viðvörun
á ekki við um hann sjálf-
an því að sjálfur er hann
vandlætari hinn mesti.
Það má hins vegar segja
að hann feli þá vandlæt-
ingu á bak við ofhvörf
og ýkjur í skjóli þess að
enginn taki hann alvar-
lega.
Sams konar ofhvörf
einkenna fullyrðingar
Sverris um mannkynið:
„Miðað við manninn er
„eiðni“ / minniháttar
pest“, segir á einum
stað og slík niðurstaða
leiðir af sér býsna
svarta tómhyggju.
Sumt af því á rætur
sínar í aðdáun Sverris
á Steini Steinarr sem Sverrir lítur á
ljóst og leynt sem fyrirmynd sína
og birtist jafnt í vísunum og meðvit-
uðum stælingum. En við tómhyggju
Steins bætir Sverrir hedonisma eða
lífsnautnahyggju og niðurstaðan er
eftir því. í einu kvæðinu líkir hann
lífinu við bílferð um grýtta og von-
lausa vegi og útkoman verður þessi:
Nítum því tímann í fíblskap og fliss,
til fjandans með leiðind’ og ángur.
Lífið er djók og svo déskoti stutt,
en dauðinn svo grátlega lángur.
Sverrir virðir ekki venjulegar staf-
setningarreglur fremur en aðrar og
semur sínar eigin, lætur stafsetn-
ingu mótast að mestu af framburði.
Sannast sagna hentar þessi ritháttur
illa enda verður höfundur að gera
undantekningar á honum til að mál
hans skiljist.
Þótt hafa megi gaman af sumum
kvæðum Sverris Stormskers verður
gamanið þó víða grátt og í sumum
ljóðum miður skemmtilegt.
Skafti Þ. Halldórsson
Sverrir
Stormsker
Nýjar bækur
• LAFAÐ í röndinni á mannfé-
laginu er fyrsta bók Ragnhildar
Richter.
Þetta er bók
um sjálfsævisög-
ur kvenna, þar
er fjallað um þær
Ólafíu Jóhanns-
dóttur, Ingunni
Jónsdóttur á
Kornsá, Guð-
björgu Jónsdótt-
ur frá Brodda-
nesi og Guðrúnu
Borgfjörð. Allar
skrifuðu þær
sjálfsævisögur sínar snemma á
öldinni. Skoðaðar eru hugmyndir
kvennanna um sjálfar sig og stöðu
sína í heiminum, en allar lýsa þær
jaðarstöðu sinni.
Titill bókarinnar er sóttur til
Guðbjargar á Broddanesi sem seg-
ist aldrei hafa verið í nokkru fé-
lagi, nema þetta sem hún hafi
lafað í röndinni á mannfélaginu,
eins og svo margar aðrar konur.
Allar lýsa konurnar flóknu sam-
bandi við mæður sínar, sem ýmist
veita þeim of litla athygli eða
ætla að kæfa þær með umhyggju
sinni og afskiptasemi.
Háskólaútgáfan gefur bókina
út. Hún er 173 bls. ogkostar
2.300 kr.
Ragnhildur
Richter
Frábært
verð
,, 2.990
Kringlunni 12, sími 568 6062,
Skemmuvegi 32L, sími 557 5777
BÓKHALDSHUGBÚNAÐUR
/yr/r WINDOWS
Yfir 1.200
notendur
gH KERFISÞRÓUN HF.
ZÍsJ Fákafeni 11 - Sími 568 8055
www.treknet.is/throun
40-50% afsláttur
Dæmi um verð
Jakki
Jakki
Peysa v-háls
Chenille peysa
Rúllukragabolur
Velúrbolur
Blúndubolur
Sett, bolur+pils
Flauelsskyrta
Vesti, viskós
Sítt pils
Dömubuxur
Buxur
Áður Nú
2.990 1.790
4.890 2.890
4.490 2.690
4.990 2.990
1.890 1.190
1.990 990
1.990 1.190
5.890 3.590
3.390 1.990
2.790 1.690
3.490 1.990
4.490 2.690
3.390 1.990
Opið frá ki. 10.00-18.00
Nýtt greiðslukortatímabil
Síðumúla 13, sími 568 2870