Morgunblaðið - 11.12.1997, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997 51
EYRÚN
GÍSLADÓTTIR
+ Eyrún Gísladóttir
fæddist í Vest-
mannaeyjura 17. jan-
úar 1931. Hún lést á
Sjúkrahúsi Reykja-
víkur 2. desember
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru Gísli
Vilhjálmsson, útgerð-
armaður á Akranesi,
f. 26. janúar 1899, d.
10. maí 1975, og Hild-
ur Jóhannesdóttir frá
Neskaupstað, f. 23.
ágúst 1906, d. 21.
aprfl 1941. Hún flutt-
ist tveggja ára ineð
foreldrum sínum að Litla-Bakka
á Akranesi. Níu ára gömul missti
hún móður sína en eftir það ólst
hún upp hjá móðurömmu sinni,
Ingveldi Árnadóttur á Litla-
Bakka.
Eyrún átti einn albróður, Gísla,
f. 30. október 1928, d. 9. nóvem-
ber 1959. Hálfsystkini hennar
voru tílfljótur, f. 26. júní 1930, d.
28. september 1991, Erla, f. 12.
júní 1933, og Anna Jóna, f. 16.
desember 1945.
Hhm 30. mars 1952 giftist Eyrún
Árna Sigurðssyni, f. 13. nóvem-
ber 1927, síðar sóknarpresti.
Nú er hún Eyrún, vinkona mín,
farin í sína hinstu ferð. Eftir
standa fjölskylda hennar, systur
og við sem vorum svo lánsöm að
kynnast henni og eiga vináttu
hennar.
Eyiún var gift mági mínum og
hefur vinátta okkar verið hnökra-
laus og einstök frá fyrstu kynnum.
Meðan börnin okkar voru lítil
hjálpuðumst við að með pössun
þeirra ef illa stóð á og nauðsyn
krafði. Ég get með sanni sagt að
þar átti Eyrún vinninginn. Það vai-
alveg sama hvernig á stóð alltaf var
hún reiðubúin að annast eitt og
jafnvel tvö af bömum okkar og þá
stundum með litlum fyi-irvara ef ég
hafði engin ráð önnur. Eyrún var
gædd eiginleika, sem ekki er öllum
gefinn. Hún kunni að hlusta ef ein-
hver vinur hennar átti í erfiðleik-
um. Hún gat gefið manni holl ráð
og sá alltaf björtu hliðarnar á
hverju máli. Aldrei heyrði ég hana
kvarta, og illt umtal leiddi hún hjá
sér. Það var eitthvað í framkomu
hennar, sem veitti mér styrk, og í
hvert skipti sem ég leitaði til henn-
ar um góð ráð, fór ég frá henni
glaðari og bjartsýnni en ella. Það
var einnig gott að þegja með henni,
því hún átti svo mikinn innri styrk
og trúarvissu.
Eyrún andaðist 2. desember sl.
Það var fagurt veður og stillt þann
dag. Ég held að hún hafi fengið
hægt andlát. Hennar nánustu voru
hjá henni á þeirri ögurstund. Það
er erfið og mikil lífsreynsla að vera
viðstaddur andlát þeirra sem mað-
ur elskar, en ég vona að þegar frá
líður verði það þeim huggun harmi
gegn.
Ég syrgi Eyrúnu af heilum hug,
en ég veit að nú líður henni vel,
stríðinu við langvarandi sjúkdóm er
lokið. Þegar sorgin dvínar á ég alla
góðu minningarnar og get þá rifjað
þær upp. Með hækkandi sól og von-
ina að leiðarljósi kveð ég þig,
Eyrún mín.
Sigurlaug Sveinsdóttir.
Ég veit ekki hvort þú hefur
huga þinn við það fest
að fegursta gj'óf sem þú gefúr
er gjöfin sem varla sést.
Astúð í andartaki
auga sem góðlega hlær.
Hlýja í handartaki.
Hjarta sem örar slær.
Allt sem þú hugsar í hljóði
heiminum breytir til.
Gef því úr sálarsjóði
sakleysi, fegurð og yl.
(Ú.R.)
Foreldrar hans voru
Sigurður Sigurðsson
frá Vigur, f. 19. sept-
ember 1887, d. 20.
júní 1963, sýslumað-
ur Skagfirðinga og
bæjarfógeti á Sauð-
árkróki, og kona
hans Guðríður Stef-
anía Arnórsdóttir frá
Hvammi í Laxárdal,
Skagafjarðarsýslu, f.
15. aprfl 1889, d. 14.
júní1948.
Börn Eyrúnar og
sr. Árna eru Arnór,
grunnskólakennari,
f. 6. júlí 1952, maki Ásta Guð-
björg Rögnvaldsdóttir, bóka-
safnsfræðingur, f. 6. janúar 1952,
börn þeirra eru: Stefanía Embla,
f. 29. janúar 1980, Kolbeinn, f. 4.
nóvember 1985, Árni, f. 4. nóv-
ember 1985; og Hildur, hjúkrun-
arfræðingur og ljósmóðir, maki
Pétur Böðvarsson, skipatækni-
fræðingur, f. 19. apríl 1955, börn
þeirra Sif, f. 7. júlí 1992, Þór, f.
28. febrúar 1994. Barn Hildar:
Eyrún Ýr, f. 6. aprfl 1976.
Útför Eyrúnar fór fram í kyrr-
þey frá Fossvogskapellu 10. des-
ember.
Nú er þessari baráttu lokið, bar-
áttunni við erfiðan sjúkdóm, sem
fyrst kom í ljós á haustdögum 1988.
Okkur fannst það ósanngjamt þeg-
ar hann uppgötvaðist. Aður hafði
Eynin barist við erfiðan augnsjúk-
dóm og þurft ofar en einu sinni að
fara utan í erfiðar aðgerðir. Þær
tókust nokkuð vel og svo sannar-
lega átti hún skilið að eiga góða
daga. Allt þetta bar hún af miklu
æðruleysi og aldrei í öll þessi ár
heyrðist hún kvarta. Þegar heilsu-
gæslustöðin á Blönduósi var stofn-
uð 1975 var Eyrún fyrsti hjúki-un-
arfræðingurinn, sem þar var ráðin.
Starfi sínu sinnti hún af alúð og
kostgæfni og átti hún stóran þátt í
að byggja upp heilsugæsluna í
Austur-Húnavatnssýslu. Eitt af
hennar aðaleinkennum var sú hlýja
og mildi sem hún sýndi skjólstæð-
ingum sínum og samstarfsfólki,
enda leið öllum vel í návist hennar.
A litlum vinnustað eins og okkar
við heilsugæslustöðina á Blönduósi,
þar sem er fátt starfsfólk, fer ekki
hjá því að fólk bindist nánum bönd-
um. Saman áttum við góðar stundir
bæði við vinnu og utan.
Við „stelpurnar á stöðinni" minn-
umst ljúfu stundanna yfir kaffi-
bolla, talandi um mat, tísku, föt og
m.fl. Þá var Eyrún í essinu sínu.
Hún var alltaf svo fallega klædd og
komu þar ekki hvað síst fram henn-
ar listrænu hæfileikar og einstök
smekkvísi.
Eyrún var gift séra Árna Sig-
urðssyni, f.v. sóknarpresti á
Blönduósi. Hann studdi hana
dyggilega í sjúkdómsbaráttu henn-
ar og var eins mikið hjá henni og
hann gat starfs síns vegna. Við
starfslok 1992 flutti Eyrún til
Reykjavíkur. Þangað hafði hugur-
inn oft leitað ekki síst eftir að börn-
in hennar og barnabörnin voru
komin þangað. Hún var mikill vinur
barna sinna og bamabörnin áttu
hug hennai- allan.
Að leiðarlokum eru henni færðar
þakkir vegna starfa í þágu stofnun-
arinnar. Við samstarfsfólk hennar
þökkum vináttu og samstarf á liðn-
um árum. Eins og jólaljósin sem nú
lýsa upp skammdegið á jólafóstunni
mun minningin um hana lýsa upp
hugi okkar um ókomin ár.
Elsku Árni, Arnór, Hildur og
fjölskylda, þið eigið margar góðar
minningar um einstaka konu. Þær
verða aldrei frá ykkur teknar.
Guð veri með ykkur.
Starfsfólk Heilsugæslunnar
á Blönduósi.
í örfáum orðum langar mig að
kveðja kæra vinkonu sem nú hefur
horfið á vit æðri máttarvalda, eftir
margra ára hetjulega baráttu við
eifiðan sjúkdóm.
Það er erfitt að finna orð þegar
komið er að kveðjustundinni,
Eyrún mín. En efst í huga er þakk-
læti fyrir að hafa fengið tækifæri til
að kynnast þér og verða þér sam-
stiga um sinn. Fáa þekki ég sem
gæddir eru öllum þeim góðu eigin-
leikum sem þú hafðir. Þó held ég að
vammleysi þitt, næmni og æðru-
leysi beri þar hæst. Þessir góðu
eiginleikar hafa án efa hjálpað þér í
gegnum þær miklu sjúkdórftsraunir
sem þú hefur þurft að kljást við í
gegnum tíðina. Oft fannst manni
meira en nóg um hvað lagt væri á
eina manneskju. En þú varst hetja.
Þú komst í gegnum alla þessa erfið-
leika með þinni einstöku stillingu,
sem einkenndi þig svo mjög. Þú
hafðir gott auga fyrir fegurð og ein-
kenndi bæði látleysi og smekkvísi
allt þitt yfirbragð, sem og heimili
ykkar Arna. Fjölskyldan var þér
ætíð mikils virði og var gaman að
hlusta á frásagnir þínar af þroska
barnabarnanna og viðfangsefnum
þeiiTa. Missir þeiira er mikill.
Þú varst ekki allra, Eyrún mín,
en hlý og notaleg í framkomu og
sannkallaður vinur vina þinna. Við
hittumst fyrst fyrir rúmum tuttugu
ái-um er við unnum saman á
Blönduósi, þar sem þú bjóst en ég
dvaldi tvö sumur ásamt eldri dóttur
minni. Það var í raun gamall ætt-
fróður maður sem tengdi okkur
saman er hann sagði okkur frá til-
tölulega nánum skyldleika okkar.
Við áttum ánægjulegar stundir
þessi sumur, bæði í vinnunni og ut-
an. Við komumst fljótt að raun um
að andlegur skyldleiki var einnig til
staðar ásamt sameiginlegum
áhugamálum. Það kom mér því
ekki á óvart þegar ég flutti heim frá
Svíþjóð og hóf nám í nýja hjúkrun-
arskólanum að þú skyldir skella þér
suður í námið að nokkrum dögum
liðnum eftir að ég hringdi og sagð-
ist sakna þín í bekknum. Við börð-
umst síðan hlið við hlið gegnum
þetta sérnám okkar, er kostaði
bæði gleði og tár. Anægjustundim-
ar voru þó ætíð fleiri þegar til baka
er litið. Það var ætíð gefandi að
vera samvistum við þig, elsku
Eyrún. Ekki síður var gott að
heyra í þér eftir að ég flutti út á
land og stundunum fækkaði. Við
gátum rætt tímunum saman um líf-
ið og tilveruna og spáð og spekúler-
að. Þú hafðir mikið innsæi og við
höfðum gaman af að kafa djúpt of-
an í málin, ekki síst mannssálina.
Við höfðum oft á orði hve leitt það
væri að svo langt væri á milli okkar
og samverustundirnar því fáar. Ef
til vill höfðu þær aldrei verið svo
margar, fyrir utan árin í sémám-
inu. En innihaldsríkar voru þær
ætíð og alltaf eins og við hefðum
hittst i gær.
Ég mun ætíð minnast þín með
hlýhug og þakklæti, elsku Eyrún.
Lífið hefði orðið snauðara án þín.
Elsku Arni, Arnór, Hildur og
fjölskyldur, við Finnbogi biðjum
þess að Guð gefi ykkur styi-k í sorg-
inni. Minningin um góða frænku og
vinkonu lifir í hjarta okkar.
Þín vinkona,
Sveinborg.
Erfidiykkjurw
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
^ Simi 562 0200 ^
nrTXXXiiiixil
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
KETILL HLÍÐDAL JÓNASSON
bifvélavirkjameistari,
Kleppsvegi 42,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstu-
daginn 12. desember kl 15.00.
Margrét Ingunn Ólafsdóttir,
Unnur Gréta Ketilsdóttir, Hrólfur S. Gunnarsson,
Ólöf Guðrún Ketilsdóttir, Haraldur Á. Bjarnason,
Jónas Ingi Ketilsson, Eggert Ketilsson
og barnabörn.
t
Bróðir minn, mágur og frændi,
PÉTUR SÓLBERG ÓLAFSSON
frá Flatey
á Breiðafirði,
lést á endurhæfingadeild Landspítalans i Kópavogi laugardaginn
29. nóvember. Jarðarförin hefur farið fram.
Guðlaug Ólafsdóttir, Sigurþór Þorgrímsson
og börn.
t
Elskuleg móðir mín, amma okkar og systir,
MARGRÉT HÓLMGEIRSDÓTTIR
frá Hellulandi,
Aðaldal,
Dyrhömrum 8,
Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 3. desember sl. verður jarðsungin frá Fossvogs-
kapellu föstudaginn 12. desember kl. 13.30.
Karen Hólmgeirs Jóhannsdóttir,
Benedikt Rúnar, Margrét Rós, Sara Jamí,
systkini hinnar látnu og fjölskyldur þeirra.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
MATTHILDUR KRISTINSDÓTTIR,
Álfhólsvegi 151,
Kópavogi,
sem andaðist miðvikudaginn 3. desember sl.,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstu-
daginn 12. desember kl. 15.00.
Elí Jóhannesson,
Gunnar S. Elíson, Elín E. Ellertsdóttir,
Kristln Elídóttir, Þórir Þórarinsson,
Agnes Elidóttir, Ámi B. Sigurbergsson,
Málfríður Elfdóttir, Víðir Þ. Guðjónsson,
Kristbjörg Elídóttir, Sigurgeir Georgsson,
Steindór J. Elíson, Valgerður G. Guðgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför
STEFÁNS GÍSLASONAR
fyrrv. húsasmiðs.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Sunnu-
hlíðar í Kópavogi, einnig Heimaaðhlynningarfyrir
ómetanlega hjálp í veikindum hans.
Helga Jóhannsdóttir
og fjölskylda.
Lokað
Lokað verður eftir hádegi í dag, fimmtudaginn 11. desember,
vegna jarðarfarar ÁSTHILDAR PÉTUR3DÓTTUR.
Bergdal ehf.
Lokað
Vegna jarðarfarar ÁSTHILDAR PÉTURSDÓTTUR, fararstjóra,
verður lokað frá kl. 14.30 í dag.
Samvinnuferðir-Landsýn.
r