Morgunblaðið - 05.04.1998, Side 39

Morgunblaðið - 05.04.1998, Side 39
3 l I 3 J J J j y » i j 3 J I J J » J » MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR mér lá eitthvað á hjarta og síðan lagði hún fram sína skoðun á mál- inu. Ég mat það alltaf við hana að vera ekki með neitt orðagjálfur heldur tala hispurslaust um hlut- ina. Hún hafði mjög ákveðnar skoðanir og var ekkert feimin við að viðra þær. Ég bar alltaf ákveðna virðingu fyrir Sigrúnu og sá hana sem nokkurs konar máttarstólpa fjölskyldunnar. Þó svo aðdragandinn að brottför hennar hafi verið langur er ekkert sem býr mann undir þessa kveðju- stund. Hún sagði mér oft og mörg- um sinnum að þegar hún kæmi inn í himnaríki væri æðsta ósk hennar sú að fá að gæta allra þeirra bama sem þar eru. Ég vona af öllu hjarta að ósk hennar hafí ræst því bömin gætu ekki fengið betri fóstm. Við munum sakna hennar mikið. Hvíl í friði, elsku Sigrún. Margrét. Hún Sigrún frænka er dáin. Elsku frænka, sem alltaf var svolítið nær okkur en aðrar frænk- ur og frændur, er dáin í hárri elli. Sigrún var svolítið sérstök í fjöl- skyldunni. Þetta upplifði ég betur og betur eftir því sem árin færðust yfir og maður gerði sér grein fyrir lífsbaráttunni. Hún varð ung ekkja og bjó ein eftir að einkadóttirin flaug úr hreiðrinu, en ungur strák- ur á Akureyri sá ekkert athugavert við það. Þvflík hetja hún var hún Sigrún frænka. Hún vann alla sína tíð fyrir sínu og var aldrei neinum háð. Ég man eftir henni starfandi við saumaskap á saumastofunni á Lögbergsgötunni hjá Skarphéðni í Amaró og seinna hjá honum Ki-ist- jáni í niðursuðunni hjá KJ og Co. Sigrún var höfðingi heim að sækja og gjafmild með afbrigðum þótt efnalítil væri. Sérstaklega man ég eftir hvemig hún galdraði fram fyrirvaralaust heitt súkkulaði og þeyttan rjóma með nýbökuðum vöfflum. Við hlaðið veisluborðið sköpuðust oft heitar umræður um menn og málefni. Sigi-ún var oft opin fyrir nýjungum en gat einnig verið sérlega íhaldssöm. Við áttum okkar heitu samræður um mörg mál, en skildum ætíð með mikinn skilning hvort á skoðunum annars. Ég man fyrst eftir Sigrúnu frænku fyrir utan Oddagötu eitt þar sem við bjuggum. Þá var hún á leið upp í Helgamagrastræti fimm, en þar bjó hún á efri hæðinni. Neðri hæðin var leigð út. Auk þess leigði Sigrún frænka út herbergi á efri hæðinni til nemenda við Menntaskólann á Akureyri, sem ekki voru á vist, og fylgdist vel með þeirra vegferð, bæði á skólaárun- um og ekki síst síðar. Ég veit að margir þeirra hafa haldið sérstakri tryggð við Sigrúnu og heimsótt hana reglulega. Sérstaklega man ég eftir því hve henni fannst gaman í sinni fyrstu og einu utanlandsferð, árið 1980. Hún kom til okkar í Kaupmanna- höfn og dvaldi hjá okkur fjölskyld- unni í um viku tíma. Að komast í Tívolí og að sjá konungagrafimar í dómkirkjunni í Hróarskeldu voru hápunktur ferðarinnar. Elsku Unnur, við höfum átt góð- ar samverustundir í gegnum árin, okkar innilegustu samúðarkveðjur til þín og Óskars og allra afkom- enda Sigrúnar frænku. Árni Árnason. Þá hefur elskuleg móðursystir mín kvatt þennan heim eftir erfið veikindi síðustu mánuði. Með örfá- um orðum vil ég fá að minnast þín og þakka þér fyrir allt sem þú hefm- gert fyrir mig og fjölskylduna mína. Þú kenndir okkur margt, okkur yngra fólkinu í fjölskyldunni, og gladdist með okkur á góðum stund- um. Þú varst dugleg að fylgjast með okkur og tókst ávallt virkan þátt í því sem við gerðum. Þú gafst okkur líka mörg heilræði til að fara eftir og munum við minnast þín fyrir það. Það er skrítin tilfinning að eiga ekki eftir að sjá þig meira í þessu jarðlífi, eiga ekki eftir að koma í heimsókn í Stóragerði og fá kaffi og nýbakaðar kökur. Þú þurftir oft að takast á við erf- iðan tíma í lífinu en þú varst dugleg kona og stóðst ávallt eins og klett- ur. Núna þegar þú hefur kvatt finnst mér vanta stóran hluta af fjölskyldunni minni. En eitt er víst að nú ertu komin á góðan stað þar sem tekið hefur verið á móti þér með opnum örmum. Elsku Signin, við söknum þín sárt og hafðu þökk fyrir alla þína hjálpsemi og gjafmildi við okkur mömmu og Arna. Um leið og ég sendi öllum ást- vinum þínum innilegar samúðar- kveðjur bið ég góðan Guð að geyma þig og minningin um þig mun lifa í hjarta mínu. Sigurjóna S. Tengsl og vinátta fjölskyldu minnar og Sigrúnar á sér djúpar rætur og hófst þegar amma mín og afi, Helga og Svavar, leigðu hjá Sigi-únu og Agnari í Helgamagrastrætinu á Akureyri í kringum 1937. Þau kynni sem þar var stofnað til hafa haldist æ síðan og borist á milli kynslóða. Eftir að Agnar dó og Sigrún varð ein með Unni, dóttur sína unga, dvöldust þær mæðgur oft hjá afa, ömmu og dætrum þeirra á jólanóttina eftir að þau fluttu í „Gilið“. Þessi jólakvöld eru ömmu enn í fersku minni, ásamt mörgum öðrum góðum stundum. Spila- kvöldin voru fastur liður í tilver- unni hjá fjórum vinkonum, ömmu, Sigrúnu, Onnu systur hennar og Jórunni Guðmundsdóttur. Alltaf spiluðu þær vist og víst var þar glatt á hjalla, margt spjallað og mikið hlegið yfir kaffibolla, sherryglasi og öðram veislufóng- um. Eins vora ferðir ömmu og Sig- rúnar í berjamó á haustin gleði- og tilhlökkunarstundir. Auk mjólkur- brúsanna sem bláberin hurfu niður í, var stutt í kaffibrúsann og nest- isboxið. Þá var setið á milli þúfna og horft yfir norðlenskar sveitir í haustblíðunni en auðvitað var alltaf blíðviðri í þessum ferðum. Sigrún rifjaði þessar stundir oft upp eftir að hún fluttist suður og bláar berjaþúfurnar vora ljúf minning um útivera og góðan fé- lagsskap. Eftir að Unnur fluttist suður vora heimsóknir hennar og fjöl- skyldunnar í Helgamagrastrætið fastur liður hvert sumar. Þá hittust mamma og Unnur og við Gunnhild- ur voram mikið saman. Við fóram alltaf í kjörbúðina í Hlíðargötu fyr- Blómabúðin öak*3sKom v/ T-ossvbgsl<irtkjMga>*ð SímiV554 0500 " 'Cr 9* 4 Þegar andlát ber að höndum Útfararstofa kirkjugarðanna ehf. Sími 551 1266 Allan sólarhringinn ir Sigrúnu og bárum björg í bú í skjóðunni „Jakobínu“. Stundum fóram við í bæinn og ennþá munum við eftir örlitlu glerskálinni sem Gunnhildur keypti handa ömmu sinni í Amaró og okkur fannst svo falleg og alltaf átti sinn sess í stof- unni hjá Sigrúnu. Þegai- ég hélt svo til Reykjavík- ur í kennaranám var Sigrún flutt suður fyrir nokkram áram og þá bjó ég hjá henni í Stóragerðinu í þrjá vetur. Óskaplega fór nú vel um mig, þó að við höfum efalaust báðar þurft að taka á þolinmæðinni stöku sinnum. Mér fannst hún t.d. hafa óþarflega miklar áhyggjur af því að ég borðaði ekki nóg og ég man alltaf eftir gamla skaftpottin- um sem hún skóf að innan í diskinn minn og sagði: „Svona, þú klárar þetta." Stundum keypti ég í matinn og þá var það nú gjaman einhver hálftilbúinn pakkamatur. Það fannst Sigrúnu alltaf spennandi, oftast gott og stundum geymdi hún umbúðirnar svo að hún gæti keypt eins í næstu búðarferð. Nú síðustu ár hefur amma átt öragga gistingu í Reykjavík hjá Sigrúnu og áttu þær vinkonur sein- ast góðai’ stundir saman í Stóra- gerðinu í nóvember. Eins höfum við systumar oftast komið við hjá Sigrúnu í hverri Reykjavíkurferð. Ég mun alltaf minnast fallegu blómakassanna hennar á stéttinni við útidyrnar, rósanna og bláu kornblómanna sem henni fundust svo falleg. Við þökkum samfylgd á lífsins leið þar lýsandi stjömur skína og birtan himneska björt og heið hún boðar náðina sína en Alfaðir blessar hvert ævinnar skeið og að eilífu minningu þina. {Vigdís Einarsdóttir.) Ég og fjölskylda mín öll sendum Unni og fjölskyldu hennar okkar bestu kveðjur og þökkum Sigrúnu góðar minningar í gegnum tíðina. Helga. 2 1 1 | 2 I 5 Fersk blóm og skreytingar við öll tœkifœri Opið til kl.10 öll kvöld Persónuleg þjónusta Fákafem 11, sfmi 568 9120 2 1 2 1 2 I 5 Sími 555-4477 Opið öll kvöld til kl. 22 -einnig um 1 Skreytingar fyrír öll tílefni. SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998 t Elskulegur eiginmaður minn, JENSJENSSON, sem lést sunnudaginn 29. mars, verður jarðsunginn frá Háteigskirju þriðjudaginn 7. apríl kl. 13.30. Halldóra Sigurjónsdóttir. t Útför föður míns, KRISTINS JÓNSSONAR frá Laufási, sem lést mánudaginn 30. mars, fer fram frá Hvammstangakirkju miðvikudaginn 8. apríl kl. 14.00. Jarðsett verður að Tjöm. Halldóra Kristinsdóttir og aðrir vandamenn. t Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma okkar og langamma, JÓDÍS Þ. SIGURÐARDÓTTIR frá Viðey, sem lést mánudaginn 30. mars sl. á Land- spítalanum, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju mánudaginn 6. apríl kl. 15.00. Skúli Magnússon, Anna Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og hlý- hug við andlát og útför SIGRÍÐAR BERTHU ÞÓRÐARDÓTTUR, Hringbraut 76, Reykjavík. Fyrir hönd aðstandenda, Erla Vilhelmsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við and- lát og útför elskulegrar móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, SOFFÍU SIGFINNSDÓTTUR frá Stykkishólmi, Austurbrún 4, Reykjavfk. sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 11. mars síðastliðinn. Sigfinnur Sigurðsson, Lovísa Sigurðardóttir, Magnús Fr. Sigurðsson, Ingibjörg Sigurðardóttir, Þuríður Sigurðardóttir, Heiga Sveinsdóttir, Arnljótur Björnsson, Björg Helgadóttir, Rune Söderholm, Kári Tyrfingsson, Kristín Hauksdóttir, Soffía Sigurðardóttir, Ágúst Haraldsson, Erla Þorsteinsdóttir, Sigurður Sigurðarson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför RÖGNVALDAR RAGNARS GUNNLAUGSSONAR. Sérstakar þakkir faer starfsfólk 3A á Hrafnistu í Reykjavík og Magnús Ólafsson, geðhjúkrunar- fræðingur. Hulda Ósk Ágústsdóttir, Sigríður Steina Rögnvaldsdóttir, Gunnar M. Jónasson, Þórdís Rögnvaldsdóttir, Sigríður Bára Rögnvaldsdóttir, Anna Rögnvaldsdóttir, Þórarinn Sigurgeirsson, Ragna Rögnvaldsdóttir, Valgeir Gestsson, Gunnlaugur Rögnvaldsson, barnabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.