Morgunblaðið - 05.04.1998, Síða 40

Morgunblaðið - 05.04.1998, Síða 40
40 SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998 JT----------------------- MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ HJÖRDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR Hjördís Guð- mundsdóttir var fædd í Reykjavík 1. september 1920. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 28. mars síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Þór- unn Oddsdóttir, f. 11.9. 1885, d. 11.2. . 1943, og Guðmundur Jónsson, f. 9.2. 1886, d. 11. 10. 1967. Bæði voru þau fædd í ^Reykjavík og lengst af bjuggu þau á Grettisgötu 23 en þau eignuðust sex börn. Systkini Hjördísar eru Sverrir, f. 14.2. 1914 (látinn), Þuríður, f. 20.9. 1915 (látin), Anna, f. 29.12. 1916, Oddur, f. 21.9. 1918, Guðbjörg, f. 2.10. 1925. Hjördís eignaðist dóttur, Þór- unni, f. 29.8. 1941, með Jóni Elí- asi Jónssyni, vélstjóra, f. 12. 6. 1912, hann lést af slysförum 30.8. 1942. Hún giftist Gesti Bene- diktssyni veitingaþjóni árið 1947. Gestur fæddist 20.7. 1904 í Bolungarvík, lést 24.9. 1965. Seinni eiginmaður Hjördísar er Sven Norlander, búsettur í Kungsbacka í Sví- þjóð, þau giftu sig 1969 en slitu sam- vistir. Þórunn Gests- dóttir, dóttir Hjör- dísar, giftist árið 1962 Guðmundi Ara- syni, f. 25.6. 1938, og eignuðust þau fimm börn: 1) Eliza, f. 14.11. 1962. 2) Ari, f. 7.12. 1963. 3) Gestur Ben, f. 1.9. 1966. 4) Ingi Þór, f. 1.3. 1971. 5) Hjördís, f. 17.10. 1972. Þórunn og Guðmundur skildu 1979. Hjördís á tvö langömmubörn, Þórunni Heklu Ingadóttur, f. 2.6. 1996, og Viktor Ben Gestsson, f. 16.9. 1996. Utför Hjördísar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánu- daginn 6. apríl og hefst athöfnin klukkan 13.30. Hún Hjördís móðursystir mín er látin eftir mikil veikindi undanfarin ár. Minningarnar koma upp í hug- “"iÉin hver af annarri því margs er að minnast. Hjördís, Gestur og Tóta höfðu mikinn samgang við heimili pabba og mömmu þegar við systk- inin vorum að alast upp. Ég man að oft var hlegið, en það var mjög eðli- legt þar sem Hjördís var, þar var grínast og hlegið. Hjördís vann alltaf utan heimilis, í mörg ár vann hún við þjónustu- störf á veitingahúsum, við af- greiðslu á bar í Glaumbæ, Hótel Sögu og Lídó, sem margir muna í*ftir, stundum unnu þau saman, Gestur og hún, en hann var lærður þjónn. Eftir að Gestur lést árið 1965 fór Hjördís að vinna í mötu- neyti fyrir starfsfólk Búrfellsvirkj- unar. Þar kynntist hún seinni manni sínum, Sven Norlander tæknifræðingi. Þau giftu sig árið 1969 og fluttu til Gautaborgar í Sví- þjóð. Hún var þá 49 ára gömul. Sven fékk vinnu sem forstöðumað- ur fyrir Tjolleholm slot og bjuggu þau þar, þangað kom fjöldi fólks til að skoða höllina sem er safn. í tengslum við höllina var veitinga- stofa sem Hjördís sá um af miklum dugnaði. Leiðir Sven og Hjördísar skildu árið 1979. Hún kom heim og hreiðraði um sig í íbúðinni sinni á Vesturgötunni, ánægð með að vera komin heim til Tótu og barnabarn- anna. Hjördís fór síðan að vinna í + Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR AUÐUNSDÓTTUR, Bólstaðarhlíð 45, fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 8. apríl kl. 15.00. Vilhelmína Ólafsdóttir, Björn Ævarr Steinarsson, Pétur Ólafsson, Margrét Hilmarsdóttir, Símon Ólafsson, Guðrún Sch. Thorsteinsson, barnabörn og barnabarnabarn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, SIGURÐAR BRYNJÓLFSSONAR bílamálarameistara, Skipasundi 63, Reykjavík. Sérstakar þakkir viljum við færa læknum og ♦ hjúkrunarfólki heimahlynningar Krabbameinsfélagsins fyrir hlýhug og góðan stuðning í veikindum hans. Ingibjörg Markúsdóttir, Marta Katrín Sigurðardóttir, Halldór Sigdórsson, Áslaug Brynja Sigurðardóttir, Ármann Óskar Sigurðsson, Fríða Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Háaleitisbraut 2ja herb. m. bílskúr Tæplega 70 fm íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi á góðum stað við Háaleitisbraut. íbúðin er öll í góðu ástandi. Parket á gólfum. Suðursvalir. Útsýni. 24 fm bílskúr fylgir, auk bílskúrsréttar fyrir annan skúr. Eignasalan Ingólfsstræti 12, sfmi 551 9540. Alþýðubankanum og síðan íslands- banka, þar sá hún um að gefa starfsfólkinu mat og kaffi þar til hún lét af störfum þegar hún varð sjötug. Hún var orðin þreytt og veik, hún var því fegin að fá hvíld- ina. Ég bið góðan Guð að geyma hana og blessa minningu hennar og ég trúi því að mamma og hún eigi eftir að hlæja saman á öðru tilverustigi. Guð blessi Tótu, börnin hennar, tengdabörn og barnabörn. Sigrún frænka. Við fráfall ömmu er okkur efst í huga hversu góður vinur hún var. Alltaf var gott að koma til hennar á Vesturgötuna, þar sem eitthvað gott var á borðum. Hún var lista- kokkur og við sóttum mikið í eld- húskrókinn þar sem hún bar góm- sæta rétti á borð og settist svo og spjallaði við okkur. Hjördís amma, eins og við nefndum ömmu alltaf, átti mjög fallegt heimili sem hún var stolt af og gott var að koma til hennar. Þá minnumst við áranna sem við heimsóttum hana til Sví- þjóðar en þar bjó hún í 10 ár. Hún bjó á yndislegum stað rétt fyrir ut- an Kungsbakka er heitir Tjolöholms Slot, ásamt seinni eigin- manni sínum, Sven Norlander. Hann var staðarhaldari og hún stóð fyrir veitingarekstri á staðnum, sem var fjölsóttur ferðamannastað- ur. Amma stóð fyrir veislum er borgarstjórn Gautaborgar hélt á staðnum og virtist jafnt vera þar á heimavelli sem við önnur störf sem hún innti af hendi á öðrum stöðum á öðrum tímum. Þegar hún kom í heimsóknir frá Svíþjóð og bjó hjá okkur á Fjólugötunni áttum við margar góðar stundir saman; enn og aftur tengjum við hana við mat- reiðslu, við að undirbúa matinn og við öll flmm hlaupandi í kring með ærslum og köllum. Þrátt fyrir öll þessi læti sagði amma sjaldnast nokkuð heldur hélt sínu striki við matseldina. Hún vann öll þau ár sem við þekktum hana við að fram- reiða mat, hvort sem það var á Tjolöholm, Prikinu eða í Alþýðu- bankanum. Hjördís amma var mjög sjálfstæð kona og var alla tíð mjög dugleg við það sem hún tók sér fyr- ir hendur. Hún ól allan sinn aldur í Reykjavík ef frá eru talin árin tíu í Svíþjóð. Göngu- eða hjólaferðir með henni um mið- og vesturbæ Reykjavíkur eru eftirminnilegar, því hún þekkti marga og hafði gam- an af því að segja sögur af mannlíf- inu í borginni á hennar yngri árum. Góður guð varðveiti ömmu okkar. Nú nýtur hún hvíldar eftir langan veikindatíma. Við systkinin viljum þakka starfsfólki Hrafnistu í Reykjavík fyrir góða umönnun Hjördísar ömmu. Hvfl í friði. Elíza, Ari, Gestur Ben, Ingi Þór og Hjördís. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. JODIS ÞORA SIG URÐARDÓTTIR + Jódís Þóra Sig- urðardóttir fæddist í Viðey 4. júní 1914. Hún lést á Landspítalanum hinn 30. mars síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Sigurð- ur Þórólfsson og Ingibjörg Sigurðar- dóttir. Hún var þriðja í röð atta systkina en Þu'ú þeirra létust á barns- aldri. Eftirlifandi af systkinahópnum eru Elísabet Jóna Sig- urðardóttir og Guðný Sigurrós Sigurðardóttir. Utför Jódísar verður gerð frá Fossvogskirkju á morgun, mánu- daginn 6. aprfl, og hefst athöfnin klukkan 15. Á morgun, mánudaginn 6. apríl, verður móðursystir mín, Jódís Þóra Sigurðardóttir, borin til grafar. Það eru blendnar tilflnningar sem kvikna hjá manni þegar við kveðjum vini og lífsfélaga. Þakklæti fyrir að líkamlegum þrautum skuli lokið og svo tómarúm og söknuður. Eitt er víst að tómarúmið verður mikið og það verður aldrei hægt að fylla skarðið því enginn kemur í manns stað í eiginlegri merkingu. Jódís frænka eins og hún vær ævinlega kölluð á mínu heimili var okkur alla tíð einstök. Minningarnar sækja til æsku minnar því hana litaði hún fögrum litum og færði mér margar dýrmætar gjafir sem ég tel mig búa að alla tíð síðan. Þetta voru ekki endilega veraldlegar gjafir heldur gjafir persónuleikans. Því hún var ötul við að byggja mann upp með já- kvæðum orðum sem hlúðu að þeirri sjálfsmynd sem býr með manni. Svo var það gleðin, af henni var nóg. Það var svo auðvelt að vera glaður með henni Jódísi því hún virtist skemmta sér svo mikið við að gleðja okkur systkinin. Það voru ófáar ferðirnar sem við Doddi bróðir fór- um með henni og Eyjólfi manni hennar austur fyrir fjall, þegar við vorum börn, á bláa Skódanum hans Eyjólfs. Þá var sungið og trallað og í barnshuganum margir ævintýraleg- ir staðir heimsóttir. Jódís var flink að hjálpa manni að setja þessa staði í ævintýralegan búning með frá- sögnum frá fyrri tímum og með þul- um og kvæðum. Sérstaklega eru mér minnisstæðar ferðir að fossum landsins þar sem hún fór oft með þulu sem er horfin mér í orðum en hljómurinn lifir sem gerði ávallt stundina við fossana enn kraftmeiri. Hún talaði líka sérlega skýrt og fal- legt mál sem fékk mann alltaf til að hlusta og fljúga inn í ævintýra- heima. í ferðum þessum var oftast staldrað við í heimsókn á Akurhól til þeirra Ellu og Marteins og var það rúsínan í pyísuendanum að fá að koma við þar. En það voru ekki bara ferðirnar sem við áttum saman þegar ég var barn heldur allar stundirnar í lífinu sem við áttum saman, hvort heldur sem var á gleðistundum, sorgar- stundum eða í hversdagsleikanum sem hún gaf alltaf mikið af sér. Sam- veran var alltaf uppbyggjandi fyrir CFEINAR Marmari ♦ Granít ♦ Blágrýti ♦ Gabbró íslensk framleiðsla MOSAIK Hamarshöfði 4 - Reykjavik simi: 587 1960 -fax: 587 1986 --u^- ■■ mig og það var hóg- værð hennar og ró sem gerði það að verkum að manni leið alltaf vel í návist hennar hvort sem það var stund á staðnum eða bara í gegnum síma. Heimsóknirnar á milli fjölskyldnanna voru margar. Þegar ég var bam valhoppaði ég af gleði þegar ég vissi að hún ætlaði að koma í heimsókn og átti það til að monta mig af því við vini mína. Þegar ég fór að búa sjálf komu þau Eyjólfur stundum í heimsókn til mín í Kefla- vík og þá sá ég sömu gleðina hjá mínum dætrum. Hún fylgdist vel með öllum og var umhugað um þá. Heimili hennar var alltaf smekklega búið og fór hún einstaklega vel með alla hluti. Hún tók vel á móti gestum sínum og átti maður oft erfitt með að skilja hvað hún gat verið fljót að töfra fram bragðgóðar veitingar. Aldrei fannst henni hún samt eiga nóg þó svo að borðið væri stundum hlaðið af góðgæti en þannig var hún, vildi alltaf gefa svo mikið hvort sem það voru veitingarnar eða góðvild. Ég bý því enn að stórum pakka frá henni Jódísi sem hvorki rýrnar né hverfur, heldur er sá pakki sem ég get opnað þegar ég vil sem er fullur af sætleika ljúfra minninga. Annað sem hún gaf mér er hluti af mér sjálfri. Jódís mín, með þessum fátæklegu orðum vil ég leitast við að þakka þér. Kveðja, Ingibjörg Guðmundsdóttir og íjölskylda. Elskuleg nafna mín er dáin. Jódís var systir ömmu Siggu og fannst mér ég eiga aðeins meira í henni út af nafninu. Minningarnar um hana geymi ég í huga mér, einnig á ég nokkrar myndir sem teknar voru af okkur nöfnunum þegar við hitt- umst, sem var alltof sjaldan. Hringdi ég í Jódísi snemma á ár- inu, þetta símtal er sérstakt að því leyti að það var okkar síðasta sam- tal. Ég og Elísabet systir mín heim- sóttum Þórdísi á spítalann 29. mars sl. Þá vissu allir hvað beið hennar. Hennar tími var kominn. Ég er þess fullviss að hún heyrði til okkar þegar ég og Elísabet spjölluðum við Skúla og Doddá inni á stofu hjá henni. Blikkaði hún til mín og við kvöddumst í síðasta sinn. Ég er afar þakklát Elísabetu systur að hafa drifið mig með sér upp á spítala þennan sunnudagseft- irmiðdag og Halla og Þórdísi fyrir að passa Allan litla á meðan. Fyi-ir u.þ.b. 2 mán. dreymdi mig afar sér- stakan draum og vitna ég hér á eftir í hann. Amma Sigga og Ella systir þeirra stóðu við garðbekk, amma fyrir framan en Ella fyrir aftan. Voru báðar svartklæddar og lutu höfði. Jódís sat á bekknum og bar höfuðið hátt, var hún í sumarkjól sem flags- aði örlítið til í gjólunni. Bekkurinn stóð á hæð á áberandi grænu túni og virtist Jódís vera mjög örugg og sæl þarna í kyrrðinni, þar sem hún sat á bekknum og horfði yfir und- urfagra sveit. Nú veit ég að hún er farin þangað og amma Sigga ásamt þeim ástvinum sem hún lifði, hafa tekið á móti henni. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Knn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Elsku Skúli, Anna, Eyfi, Heiðar, Jódís og barnabörn. Baráttunni er lokið. Samúð mín er hjá ykkur. Kveðja, Jódís Sigurðardóttir yngri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.