Morgunblaðið - 05.04.1998, Page 25

Morgunblaðið - 05.04.1998, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998 25 Það er augljóst að ef svona héldi áfram myndi bamið vega mörg tonn eftir nokkra mánuði. En það gerist ekki þar sem þroskinn hægist dag frá degi. Við fæðingu er heilinn 11% af líkamsþyngd en hjá fullorðnum aðeins 2,5%. Við fimm ára aldur hefur heihnn tekið út 80% þroska síns og við átta ára ald- ur hefur hann því sem næst náð fullum þroska. HeiUnn þroskast minna frá átta ára til átján ára en á einu ári frá sjö til átta ára. Enda eru engin takmörk fyrir því hvað böm geta lært. Flestir áh'ta að með aldrinum verðum við gáfaðri. Það er ekki al- veg rétt. Við öðlumst meiri visku með aldrinum en um leið glötum við miklu af hæfileika okkar til að læra og muna. Ungböm fæðast hvorki með visku né þekkingu en það er mun auðveldara að kenna eins árs gömlu bami að lesa en sjö ára bami. Og það er auðveldara að læra að lesa en að læra að tala. ÓHkt töl- uðu máli er ritað orð alltaf eins. Það hefur ekki mismunandi hreim eða hljóðfall, það er ekki ógreinilegt eða rennur saman við önnur orð. Lestr- arkennsla þroskar athygh og minni bamsins og gerir því kieift að nýta meðfæddar gáfur sem best. Og barnið þarf aldrei að streitast við, heldur lærir það ómeðvitað og fyrirhafnarlaust rétt eins og það lærir að tala. Börn sem læra að lesa í æsku þurfa ekki að stauta sig áfram orð fyrir orð í tilbreytingar- lausum tón. Orðin verða þeim ekki fyrirstaða og þau lesa líflega og með eðUlegum áherslum eftir efni textans. Um leið þroskast sjón- minni þeirra - sem er ómetanleg hjálp við stafsetningu. Því yngra sem bam lærir að lesa, því betur les það.“ Þú leggur upp með spjöld með orðum. Óg hvað svo? „Já, á spjöldunum era orð - ekki stafir. Orðið verður að ná yfir hlut. Það þýðir ekkert að byrja á staf- rófinu. Það þýðir ekkert að lyfta upp spjaldi sem á stendur „B.“ Barnið veit ekkert hvað „B“ er. Það getur ekki haldið á „B,“ nagað það. Þú getur ekki gert neitt við „B“ eitt og sér. En „bolti“ hefur merkingu. Hann er hlutur - sem barnið þekkir. Þú byrjar á því að koma upp heilmiklum orðaforða hjá baminu. Síðan velurðu bók sem barnið má ekki sjá, bók með einni setningu á hverri blaðsíðu. Þú skrifar setning- una niður og kennir hana á sama hátt og orðin vora kennd. Síðan fær barnið bókina og getur lesið hana. Þar með ertu kominn með lítinn lestrarhest og lestramámið á ekki eftir að hamla árangri í skóla. Það er auðvitað hægt að beita þessari aðferð í stærðfræði - eða hverju sem fólk vill leggja áherslu á frá upphafi. Við höfum hins vegar tilhneigingu til að halda að það sem við áttum í erfiðleikum með hljóti að vera erfitt fyrir börnin. En það er ekki svo.“ En gerir skólakerfið ekki ráð fyrir því að lestrarkennsla fari fram innan veggja skólanna? „Jú, jú, en ekki förum við að laga börnin að skólakerfmu.“ Er ekki hætta á því að börnum leiðist fyrstu árin í skóla, ef þau eru orðin læs? „Það er ekkert sem segir að börnum sem hafa þekkingu og hæfni leiðist. Þau finna sér leið. Þau era betur undir það búin að takast á við aðstæður sem bjóða upp á leiðindi. Ég held að þeim bömum sem ráða ekki við náms- efnið leiðist miklu meira í skóla. Ég held að við ættum að fara að velta fyrir okkur hvernig við foram með hæfileika barnanna okkar. Við eyðum fyrstu fimm áranum í að þagga niður í þeim. Við hreinlega meinum þeim að læra. Svo um fimm ára aldurinn hefur hæfileik- inn til að læra dofnað, vegna þess að þá tekur rökkerfið við, þ.e.a.s. hæfni þeirra færist yfir á annað svið. Um leið dregur úr þeim hraða sem þau hafa búið yfir til að læra nýja hluti. Og þá er orðið of seint að nýta þá snilUgáfu sem hvert barn býr yfir.“ Safnaðarstarf Reykjavíkurprófastsdæmi. Há- degisfundur presta á morgun, mánudag, kl. 12 í Bústaðakirkju. Áskirlga. Æskulýðsfélag mánu- dagskvöld kl. 20. Bústaðakirkja. Æskulýðsstarf mánudagskvöld kl. 20.30. Digraneskirkja. Starf aldraðra á þriðjudag frá kl. 11. Leikfimi, mat- ur, helgistund. Dómkirkjan. Kl. 11 barnasam- koma í safnaðarheimilinu, Lækjar- götu 14a. Friðrikskapella. Kyrrðarstund í hádegi á morgun, mánudag. Létt- ur málsverður í gamla félagsheim- ilinu að stundinni lokinni. Grensáskirkja. Mæðramorgunn mánudag kl. 10-12. Ágústa Guð- marsdóttir sjúkraþjálfari ræðir um hreyfiþroska baraa. Páskaglaðningur. Allar mæður velkomnar með lítil- börn sín. Æskulýðsfélagið mánudagskvöld kl. 20.' Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk kl. 20. Neskirkja. Foreldramorgunn mið- vikudag kl. 10-12. Gestir úr Há- teigssókn koma í heimsókn. Árbæjarkirkja. Starf fyrir 7-9 ára stráka og stelpur kl. 13-14 i safn- aðarheimili Árbæjarkirkju. Æsku- lýðsfundur yngri deildar kl. 20-22 í kvöld. Starf fyrir 10-12 ára sti'áka og stelpur mánudag kl. 17-18. AlUr velkomnir. Fella- og Hólakirkja. Bænastund og fyi’irbænir mánudaga kl. 18. Tekið á móti bænaefnum í kirkj- unni. Æskulýðsfélag unglinga á mánudögum kl. 20.30. For- eldramorgunn í safnaðarheimilinu þriðjudag kl. 10-12. Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænaefnum í kirkjunni alla daga frá kl. 9-17. Kyrrðarstund mánudag kl. 12. Altarisganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður. Sorgarhópur á mánudögum kl. 20 í umsjón prest- anna. Hjallakirkja. Æskulýðsfélag Hjallakirkju kl. 20.30 fyrir ung- linga 13-15 ára. Páskabingó kl. 20 á þriðjudag á vegum safnaðarfé- lagsins. Allir velkomnir. Prédikun- arklúbbur presta er á þriðjudög- um kl. 9.15-10.30. Umsjón dr. Sig- urjón Árni Eyjólfsson héraðs- prestur. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumað- ur G. Theodór Birgisson. Almenn samkoma kl. 16.30. Ungt fólk verður með vitnisburði. AJlir hjartanlega velkomnir. Kópavogskirkja. Samvera Æsku- lýðsfélagsins kl. 20 í safnaðarheim- ilinu Borgum. Seljakirkja. Fundur KFUK mánudag. Fyrir 6-9 ára stelpur kl. 17.15-18.15 og fyrir 10-12 ára kl. 18.30-19.30. Mömmumorgnar á þriðjudögum kl. 10. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús kl. 20-22 æskulýðsfél. 13-15 ára. Landakirkja, Vestm. Strax að lokinni guðsþjónustu hefst hið ár- lega kristniboðskaffi KFUM & K í safnaðarheimilinu. Allir bæjar- búar hvattir til að koma. Kl. 20.30 unglingafundur. Á morgun, mánudag, bænasamvera í KFUM & K-húsinu kl. 20.30. Hugsaðu fyrst! Hugsaðu hratt! Hugsaðu sjálfstætt! Nú eru þessar öflugu Power Macintosh 6500/250 á sérlega gáðu verði. •—— » i i i < > ii i * * ■) i i * H t « t I H i i I i" I i i i i f Tölvurnar eru meö 250 MHz PowerPC 603e örgjörva, 32 Mb vinnsluminni, 4 Gb harbdiski, SD-hrööunarkorti, 24-hraöa geisladrifi, L2 flýtiminni, innbygg&u ZlP-drifi, 36W hátalara-pari meb 3-D og LivePix-myndvinnsluforriti. Tilboð 1: m/15" Multiple Display-skjá: Tilboð 2: m/17" 720-skjá: 239.900,- Umboö Akureyri: Haftækni (D V/SA B8HH Apple-umboðið Skipholti 21, 105 Reykjavík, sími: 511 5111 Netfang: sala@apple.is Veffang: http://www.apple.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.