Morgunblaðið - 05.04.1998, Síða 2

Morgunblaðið - 05.04.1998, Síða 2
-fr 2 SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Stæner sigraði í Músíktilraunum MUSIKTILRAUNUM, hljómsveita- keppni Tónabæjar, Iauk sl. föstu- dagskvöld. Rafnfirska rokkhljómsveitin Stæner sigraði í keppninni að þessu sinni og hlaut hljóðverstíma í sigurlaun. í öðru sæti varð hljóm- sveitin Bisund og Mad Methods í þriðja sæti. Þær hrepptu einnig hljóðverstíma. ■ Hafnarflarðarrokkið/32 Leitað í þjóðlegan fróðleik um lækningamátt jurta og sjávardýra I ÆTIHVANNAFRÆJUM, geit- hvönn, baldursbrá og rót vallhumals eru frumudrepandi efni. Við rann- sókn og greiningu á efnunum kom fram að virku efnin í ætihvanna- fræjum voru tvenns konar, annars vegar svokölluð kúmarín efni og hins vegar ilmolíur. Virkasta efnið í þessum ilmolíum er límonín og eru raunar meira en 60% af ilmolíum í ætihvannafræjum þetta límom'n. Límonín og skylt efni, perillyl alkóhól, eru nú í klínískum rannsóknum sem krabba- meinslyf. Þetta eru m.a. niðurstöður rann- sókna íslenskra vísindamanna. Þeir mældu einnig áhrif efna í jurtum á hluta ónæmiskerfisins. Niðurstöður úr þeirri mælingu sýna að fjölsykr- ur í litunarmosa og lúpínurót hafa áhrif á ónæmisprófið og verður það Virk efni í fræi og krossfiskum rannsakað frekar. Einnig hefur blóðberg, brenninetla, fífill, sóley, söl og blöðruþang verið rannsakað, en þær rannsóknir eru skemmra á veg komnar. Með rannsóknunum er ætlunin að kanna hvort jurtir á íslandi séu líklegar til að vera gagnlegar til lækninga og hvort finna megi í þessum jurtum efni sem hafa áhugaverð líffræðilega virk efni sem séu líkleg til að vera til heilsubótar. Ef svo reynist verður stefnt að því að kanna hvort grundvöllur sé fyrir vinnslu slíkra efna og framleiðslu fyrir heilsuvörumarkaðinn. Æti- hvönn, geithvönn, litunarmosi og fleiri jurtir hafa verið notaðar til lækninga hér á landi í gegnum ald- irnar, sumar allt frá landnámi. Virk efni í svampi, bertálkna og krossfisk Rannsóknir á sjávarlífverum, sem vísindamennimir vinna einnig að, beinast að því að leita uppi áhugaverðar tegundir og var m.a. stuðst við þjóðtrú við þá leit. Síðan eru virk efni þessara lífvera leituð uppi með aðstoð skimprófs og ein- angmð, komist að byggingu þeirra og reynt með þeim upplýsingum að leita uppi hlutverk og líklegt nota- gildi með tilliti til framleiðslu á lyfj- um og heilsubótarefnum. Tegund- imar sem safnað var og virknipróf- aðar vom bertálkni, brennihvelja, egghylki beitukóngs, hrúðurkarlar, krossfiskur, marflær og svampur. Þrjár tegundir af þessum sjö, svampur, bertálkni, sem er kuð- ungslaus sæsnigill, og krossfiskur, sýndu markverða virkni sem er margfalt hærra hlutfall en sást í rannsókninni á íslenskum lækninga- jurtum eða 43%. ■ Heilsubót/10 FRÉTTIR Morgunblaðið/Golli Húsvísk fegurðardís ÁSA María Guðmundsdóttir var kjörin Fegurðardrottning Norð- urlands í Sjallanum á Akureyri á föstudagskvöld. f öðru sæti varð Áshildur Hlín Valtýsdóttir og var hún jafn- framt valin besta ljósmyndafyr- isætan. Þriðja varð Guðbjörg Hermannsdóttir, sem einnig var valin vinsælasta stúlkan. „Ég er ekki búin að átta mig á þessu ennþá,“ sagði Ása í stuttu samtali í gær. „Undirbúningur- inn fyrir keppnina hefur verið strembinn en mjög skemmtileg- ur enda stelpurnar frábærar,“ sagði Ása. Hún mun keppa um titilinn Fegurðardrottning Is- lands sem fram fer á Broadway í maí nk. Ása verður 18 ára á þessu ári. Fegurðardrottning Norður- lands 1997, Katrín Arnadóttir, krýndi arftaka sinn. Vistvænn heyskeri Vaðbrekka. Morgiinblaðið. ENDURNÝTING er hugtak sem mjög er haldið á lofti um þessar mundir. Ljóst er að það eru margir hlutir, ekki allir stórir í sniðum, sem falla undir skilgreiningu þessa hug- taks. Dæmi um þetta er heyskerinn sem sést á meðfylgjandi mynd. Hagleiksmaðurinn Bjöm Hallur Gunnarsson, bóndi og sjómaður á Rangá í Tungu, smíðaði skerann úr flökunarvélarhnífsblaði. Þetta er ekki flókin smíði, blaðið úr flökunar- vélinni einfaldlega skrúfað á skaft og þá er kominn úrvals heyskeri. Bjöm Hallur segir að mikið falli til af svona blöðum sem hætt er að nota í flökunarvélarnar, vegna þess að þegar blöðin slitna yfir ákveðið mark versnar svo nýtingin við flök- unina að farga verður blöðunum. Mjög hart og gott efni er í þessum blöðum og þess vegna auðvelt að koma í þau góðu biti með réttum verkfæmm. Þó ekki sé hægt að nota blöðin lengur í flökunarvél má nota þau lengi sem heyskera og vegna þess hvað blöðin bíta vel eru Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson HEYSKERINN vistvæni. þau sérlega hagstæð til að skera niður heyrúllur af öllum gerðum. Auk þess sem blöðin era end- umýtt er þetta sérlega ódýr lausn, því þótt keypt sé skaft til að setja á blöðin er kostnaðurinn óveralegur. Geta má til samanburðar að venju- legur rafmagnsheyskeri, sem er seldur víða, kostar á bilinu sextíu til hundrað þúsund krónur. 6(1 Heilsubót á landi og í sjó ►íslenskir vísindamenn undir stjórn Sigmundar Guðbjamasonar prófessors leggja stund á rann- sóknir á íslenskum lækningajurt- um og sjávarfangi /10 Örmagna og áttavilltir ►Úrslit þingkosninganna í Úkra- ínu um liðna helgi sýna að gnind- vallarspumingum um stöðu þjóð- arinnar eftir hrun Sovétríkjanna hefur enn ekki verið svarað /12 í þorpinu læra fíklar að lifa á ný ►Viðtal við Andrea Muccioli sem rekur heilt þorp á Ítalíu, þar sem fólk fær aðstoð við að losna undan fíkniefnum /22 ► 1-4 Landgrunnið ►Fimmtíu ár em nú iiðin frá því að lög um landgmnn íslands vora sett/1-4 ► 1-16 Gullna ríkið ►í Kalifomíu kvikna hugmyndim- ar en náttúmhamfarir eru högg- ormurinn í Paradís /1-6 Erum við ekki íslend- ingar ►Sveinn Einarsson leikstjóri og rithöfundur hefur um langt árabil verið einn atkvæðamesti leikhús- maður íslenskur /8 FERÐALÖG ► 1-4 Tónleikar á tröppum Schönbrunn ►Kórar og hljómsveitir hafa tæki- færi til að halda ókeypis tónleika á tröppum Schönbrann-hallarinnar í Vín frá apríl fram í október /1 Heillandi umgjörð um heimssýningu ►Heimssýningin Expo ’98 verður opnuð í Lissabon í vor /2 BILAR ► 1-4 Almera reynist best ►Nissan Almera 1,4 var valinn áreiðanlegasti bíllinn í könnun sem gerð var í Þýskalandi /2 ATVINNA/ RAÐ/SMÁ ► 1 -24 Harpa velur Navision Financials ►Megin markmiðið með nýju upp- lýsinga- og viðskiptakerfi Hörpu hf. er bætt þjónusta við viðskipta- vini og umboðsaðila sem felst meðal annars í varðveislu upplýs- inga um sérliti /1 FASTIR ÞÆTTiR Fréttir 1/2/4/8/bak Brids 46 Leiðari 30 Stjömuspá 46 Helgispjall 30 Skák 46 Reykjavíkurbréf 30 Fólk í fréttum 50 Minningar 37 Útv./sjónv. 49,58 Myndasögur 44 Dagbók/veður 59 Bréftil blaðsins 44 Skoðun 32 Hugvekja 46 Mannlífsstr. 7c Idag 46 Dægurtónl. 13c INNLENDAR FRÉTTIR: 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6 Mosfellsheiði Brotist inn í þrjá vörubfla BROTIST var inn í þrjá vörabíla á Mosfellsheiði aðfaranótt gærdags- ins og stolið síma og verkfæram. Verknaðurinn var kærður til lög- reglunnar á Selfossi klukkan átta í gærmorgun. Að sögn lögreglunnar vora rúður brotnar, illa gengið um og mikið skemmt. Tjón og skemmdir vora þó nokkrar. Vitað er að ránið var framið eftir miðnætti, en hvorki hvað margir né hverjir vora að verki. Bifreiðunum hafði verið lagt við vinnusvæði þar sem verið er að leggja slóða vegna rafmagnslínu frá Nesjavöllum til höfuðborgarsvæðis- ins. Vörabflamir eru á vegum verk- takans Ellerts Skúlasonar í Keflavík. Lést í flugvél FLUGVÉL frá bandaríska flugfé- laginu USAir lenti á Keflavíkur- flugvelli á fóstudag eftir að kona hafði látist um borð. Að sögn lögreglunnar á Kefla- víkurflugvelli var tilkynnt að veik kona væri um borð í vélinni, sem var af gerðinni Boeing 767 og á leið frá Evrópu til Bandaríkjanna. Skömmu síðar var sagt að hún væri látin. Vélin lenti klukkan 17.20 og var lík konunnar flutt frá borði. Tveir bandarískir læknar vora um borð í vélinni, en þeir gátu ekki hjálpað konunni. Ekki er vitað um dánarorsök. Konan var 72 ára gömul og frá Havertown í Pennsylvaníu. Hún var á ferð ásamt dætrum sínum og mágkonu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.