Morgunblaðið - 16.04.1998, Síða 1
80 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
85. TBL. 86. ÁRG. FIMMTUDAGUR16. APRÍL 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Borgar-
stjóri
Teheran
látinn laus
Teheran. Reuters.
ÍRÖNSK yfirvöld slepptu í gær úr
haldi borgarstjóranum í Teheran,
sem setið hefur í varðhaldi síðan 4.
apríl, sakaður um spillingu. Hand-
taka hans dró fram í dagsljósið
valdabaráttu milli hófsamra og
íhaldssinna í íranska stjórnkerfinu.
Iranska fréttastofan IRNA
greindi frá lausn borgarstjórans,
Gholamhossein Karbaschi, í gær en
greindi ekki frekar frá málavöxtum.
Ahmad Bourghani, aðstoðarmenn-
ingarmálaráðherra landsins, stað-
festi í samtali við Reuters að Kar-
baschi hefði verið látinn laus.
■ Lagði Rafsanjani/26
--------------
Pol Pot
sagður
látinn
SJÓNVARPSSTÖÐIN CNN
greindi frá því í nótt að Pol Pot,
fyrrverandi leiðtogi Rauðu Kmer-
anna, væi-i látinn. Hann mun hafa
fengið hjartaáfall og var á áttræðis-
aldri. Pol Pot hefur jafnan verið tal-
inn bera mesta ábyrgð á
fjöldamorðum sem framin voru í
Kambódíu 1975-1979. Pol Pot leiddi
þá stjórn kommúnista sem myrti
fjölda þegna sinna og olli gífurlegri
hungursneyð. Er talið að um tvær
milljónir manna hafi látist á fjög-
urra ára valdatíma Pots. Eftir inn-
rás Víetnama í Kambódíu flýði Pol
Pot tii fjalla. Stjórnarher Kambódíu
hefur viljað koma höndum yfir Pot
og sögðust leiðtogar Rauðu Kmer-
anna síðast í fyrradag tilbúnir að
láta hann af hendi.
* 0
Oraníureglan mælir gegn samþykkt friðarsamkomulags á N-Irlandi
Stuðningur almennings
virðist vera afgerandi
Reuters.
KLERKURINN Ian Paisley á blaðamannafundi í gær þar sem kynnt var kosningaherferð gegn samþykkt
samkomulagsins á N-Irlandi. Paisley var ómyrkur í máli á fundinum.
Belfast. Daily Telegraph og Reuters.
ÓRANÍUREGLAN, sem er eins
konar heildarsamtök sambands-
sinna á N-írlandi, kaus með afger-
andi meirihluta á fundi í gær að
mæla ekki með friðarsamkomulag-
inu sem náðist fyrir helgi að svo
stöddu. Stjórnmálaskýrendur túlka
niðurstöðuna sem ósigur fyrir Da-
vid Trimble, leiðtoga Sambands-
flokks Ulster (UUP), sem beitt hef-
ur sér fyrir samkomulaginu, en
hann lét engan bilbug á sér finna í
gær og niðurstöður skoðanakönn-
unar sem birt er í dagblaðinu The
Irish Times í dag gefa til kynna að
73% íbúa N-írlands styðji sam-
komulagið. Aðeins 14% íbúa virðast
mótfallin samkomulaginu og 13%
hafa ekki gert upp hug sinn.
Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram
22. maí næstkomandi og er hér á
ferðinni fyrsta vísbending um af-
stöðu almennings. Hlýtur hún að
glæða vonir stuðningsmanna samn-
ingsins og styrkja stöðu Trimbles.
Fyrr um daginn hafði sambands-
sinninn Ian Paisley og flokkur hans
(DUP) hafið kosningaherferð gegn
samkomulaginu. Paisley sagði á
blaðamannafundi að breska og írska
ríkisstjórnin væru sekar um „svik,
lygar og þjösnaskap" og taldi víst
að þær myndu nota „öll sín lúaleg-
ustu brögð“ til að fá samninginn
samþykktan í þjóðaratkvæða-
greiðslunni.
Paisley telur samninginn leiða til
sameinaðs Irlands, sem hann hefur
ávallt verið mótfallinn, og hvatti
íbúa N-írlands til að segja nei við
honum. Hann sagðist njóta yfir-
gnæfandi stuðnings meðal sam-
bandssinna, ekki síður innan UUP,
þrátt fyrir að flokkurinn hefði stað-
ið að samkomulaginu. Joel Patton,
einn harðlínumanna innan Óraníu-
reglunnar, sagði í gær samninginn
alger svik og taldi Óraníuregluna
verða að leiða andstöðu gegn hon-
um. „David Trimble hefur selt Ulst-
er í hendur andstæðinganna."
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, hvatti hins vegar íbúa N-
Irlands í gær til að hlusta fremur á
raddir þeirra sem vilja bjartari
framtíð til handa N-írlandi, og sem
samþykkja ætla samninginn.
Það er kannski kaldhæðnislegt en
Paisley á í herferð sinni heldur
óvenjulega skoðanabræður því inn-
an raða lýðveldissinna (IRA, INLA)
eru margir sem ekki vilja sam-
þykkja samninginn. Þessir „skoð-
anabræður" Paisleys voru viðfangs-
efni auglýsinga sem DUP birti í
dagblöðum í gær en þar var því
haldið fram að friðarsamkomulagið
leiddi til þess að „morðingjum" yrði
sleppt lausum úr fangelsi. Þar er
vísað til ákvæðis í samkomulaginu
um að föngum sem nú sitja inni í
breskum og írskum fangelsum fyrir
glæpi á vegum öfgasamtaka verði
sleppt lausum innan tveggja ára.
Irsk yfirvöld tóku fyrsta skrefið í
þessa átt í fyrrakvöld þegar þau
slepptu úr haldi níu IRA-mönnum,
en enginn þeirra var að afplána
dóma fyrir morð.
Lausn fanganna vakti mikla reiði
Paisleys og félaga, sem sögðu
ákvörðunina „skammarlega og fyr-
irlitlega" og vísi að því sem koma
skyldi.
Reuters
Mafíuforingi í járnum
ÍTALSKA lögreglan hefur haft
hendur í hári Vito Vitale en talið
er, að hann hafi tekið við af Sal-
vatore Toto Riina sem „foringi
foringjanna" í mafíunni á Sikiley.
Hér er verið að færa hann í fang-
elsi í Palermo en lögreglan sat
fyrir honum við búgarð skammt
frá borginni þar sem hann hefur
verið í felum.
Enn deilt um stöðu rússneska minnihlutans í Lettlandi
Persson lýsir stuðningi
við ákvarðanir Letta
Almaty, Riga. Reuters.
GÖRAN Persson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, lýsti því yfir eftir fund
með ráðamönnum í Riga í gær að
hann styddi þær aðgerðir sem lett-
nesk stjórnvöld hefðu ákveðið að
grípa til í því skyni að koma til móts
við óánægju fólks úr rússneska
minnihlutanum í landinu. Sagði
Persson þessar aðgerðir bæta horf-
ur Letta á að hljóta aðild að Evrópu-
sambandinu.
Öryggis og samvinnustofnun
Evrópu, ÖSE, gagnrýndi í gær
efnahagslegar refsiaðgerðir Rússa
gegn Lettlandi, sem þeir hafa
ákveðið að grípa til í mótmælaskyni
við þá meðferð sem hinn fjölmenni
rússneski minnihluti í Lettlandi hef-
ur sætt, en stór hluti hans hefur
ekki fengið lettneskan ríkisborgara-
rétt.
ÖSE ósátt við
þvinganir Rússa
„ÖSE er ekki sátt við þessa refs-
ingastefnu gagnvart Lettlandi,"
sagði Bronislav Geremek, sem fer
með forsæti í stofnuninni um þessar
mundir, á blaðamannafundi í
Kazakstan, þar sem hann er staddur
í opinbei-um erindagjörðum.
„Okkur finnst að viðbrögð Rússa
hafi ekki verið í sanngjörnu sam-
ræmi við það sem hefur verið að
gerast í Lettlandi," sagði Geremek.
Stjórnvöld í Moskvu, sem hafa
kosið að tala ekki um þvinganir í
þessu sambandi, hafa lýst því yfir
að þau muni beita „hnitmiðuðum
efnahagslegum aðgerðum" gegn
Lettlandi vegna þess sem þau kalla
brot á réttindum rússneska minni-
hlutans þar, en hann er meira en
fjórðungur íbúa landsins. Frá því
Sovétríkin hrundu 1991 og Lettland
endurheimti sjálfstæði sitt hafa
margir hinna 700.000 Rússa sem
þar búa ekki fengið full borgara-
réttindi.
Lettland þénar árlega hundruð
milljóna Bandaríkjadala á því að
flytja útflutningsolíu frá Rússlandi
um sitt yfirráðasvæði og á því að
selja Rússum matvæli og fleiri vör-
ur. Rússlandsstjórn hefur hótað að
hætta að notast við lettneskar hafnir
til útflutnings á rússneskri olíu.
Sem talsmaður ÖSE, sem 54 Evr-
ópuþjóðir eiga aðild að, hvatti Ger-
emek í gær rússnesk og lettnesk
stjórnvöld að leita leiða til að leysa
ágreining sinn með samningum.