Morgunblaðið - 16.04.1998, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ
^ 60 FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1998_______________________
FÓLK í FRÉTTUM
BRUCE Willis er í niunda sæti.
WILL Smith er nýr inni á listanum eftir
tvær metsölumyndir sumarsins í röð.
Tveir nýir
Námskeið til löggildingar vigtarmanna verða haldin, ef næg
þátttaka fæst!
Á Reyðarfirði dagana 27., 28. og 29. apr. nk.
Skráningu þátttakenda lýkur 22. apríl.
í Reykjavík dagana 4., 5. og G. maí nk.
Skráningu þátttakenda lýkur 27. apríl.
Skráning þátttakenda og allar nánari upplýsingar á Löggildingarstofu í síma
568 1122. Námskeiðsgjald kr. 24.000.
Endurmenntunarnámskeið
Ætlað þeim, sem eru með réttindi 5 ára eða eldri verða
haldin, ef næg þátttaka fæst!
j Reykjavík 7. maí nk.
Á Hornafirði 11. maí nk.
Á Neskaupstað 12. maí nk.
Öllum námskeiðunum lýkur með prófi.
Skráning þátttakenda og allar nánari upplýsingar á Löggildingarstofu í síma
568 1122. Námskeiðsgjald kr. 10.000.
• •
Oruggustu kvik-
myndastj ömumar
Tom Cruise, Mel Gibson, Harrison Ford
og Tom Hanks eru þær kvikmyndastjörn-
ur sem talið er að geti öðrum fremur selt
myndirnar sem þeir leika í og tryggt vel-
gengni þeirra í miðasölunni eftir því sem
fram kemur í nýlegri könnun. Arnaldur
Indriðason skoðaði hana.
Tveir nýir HoIIywoodleikarar
eru á listanum fyrir árið 1997, Matt
Damon og Will Smith. Damon er
einn af höfundum óskarsverðlauna-
myndarinnar „Good Will Hunting"
auk þess sem hann fer með aðal-
hlutverkið í henni, en Smith hefur
tvö sumur í röð farið með áberandi
hlutverk í metsölumyndum,
„Independence Day“ og „The Men
in Black“. Smith stendur nú næst-
um jafnfætis Eddie Murphy sem
vinsælasti svarti leikari í heimi.
Leikkonur hopa niður listann en
bent er á að kvenhlutverk hafi ekki
verið burðug í fyrra almennt séð ef
litið er framhjá þeim sem hlutu út-
nefningar til Oskarsins. Fyrsta
leikkonan sem nefnd er á listanum
er í 15. sæti, Julia Roberts. Mynd
hennar, Brúðkaup besta vinar
míns, naut mikilla vinsælda á síð-
asta ári. Fyrir sjö árum var Ro-
berts í A+ flokkinum og er reynd-
ar eina leikkonan sem komist hefur
í þann flokk. Þá lék hún í „Pretty
Woman“.
Bretarnir
Hvergi utan Bandaríkjanna hef-
ur á undanfórnum árum komið
fram jafn efnilegur hópur ungra
kvikmyndaleikara og í Bretlandi
enda er nú mikil uppsveifla í
breskri kvikmyndagerð og breskar
bíómyndir fara um veröld víða. I
hópi ungu bresku leikaranna sem
nefndir eru í könnuninni, þótt þeir
hafí ekki komist í fimmtíu efstu
sætin, eru Ewan McGregor, Jonny
Lee Miller, Kate Winslet, Minnie
Driver, Robert Graves, Jude Law,
Kate Beckinsale, Joe Finnes, Ben
Chaplin, Stuart Townsend og auð-
vitað Robert Carlyle í Með fullri
reisn og Rowan Atkinson sem
furðufyrirbærið Bean í samnefndri
kvikmynd en báðar hafa haft yfir
200 milljónir dollara í tekjur.
Margir þakka nýja breska lotterí-
inu fyrir aukinn vöxt kvikmynda-
gerðar þar í landi; 124 breskar bíó-
myndir voru framleiddar á síðasta
ári og fór helmingurinn í dreifingu
í kvikmyndahús.
Margt hefur breyst í Bretlandi
sem skýrir þá þróun sem orðið hef-
LEIKKONAN Sharon Stone er
í 34. sæti.
ur í kvikmyndagerðinni. Bent er á
að ungir framleiðendur vilji nú
gera sölumyndir og koma á fót
raunverulegum kvikmyndaiðnaði
en fyi’ir tíu árum hefði slíkt verið
álitið villutrú. Með „Trainspotting"
fékk unga fólkið áhuga á breskum
bíómyndum og nýju myndirnar
þykja ekki eins sjálfmeðvitaðar og
myrkar og þær sem gerðar voru á
síðasta áratug.
Könnunin sýnir að stjörnukerfið
er í fullum blóma. Trúin á að kvik-
myndastjörnurnar geti trekkt að
áhorfendur sama hvað þær leika í
(kannski með fáeinum undantekn-
ingum) er ansi sterk í Hollywood
og könnun eins og þessi eykur
hana. Stjörnurnar sjálfar geta
verðlagt sig upp úr öllu valdi en
ekki er óalgengt að þær séu farnar
að fá 20 milljónir dollara á mynd;
leikarar eins og Cruise, Gibson,
Ford, Hanks og Carrey hreyfa sig
ekki fyrir neitt minna. Flestir af
þeim sem þátt tóku í könnuninni
eru á því að slíkur kostnaður borgi
sig. En tvær stórstjörnur í sömu
myndinni er of mikið. Ein ástæða
þess að Tom Cruise fær ekki að
leika á móti neinum stórstjörnum í
myndum sínum er einfaldlega sú
að með hann innanborðs hefur
framleiðandinn ekki efni á öðrum
eins leikara.
En eftir því sem kostnaðurinn
við stjörnurnar eykst er sífellt ver-
ið að uppgötva nýjar stjörnur og
Vigtarmenn
EINU sinni á ári er gerð könnun
á meðal þeirra sem kaupa og selja
bíómyndir, bíóhúsaeigenda og for-
stjóra kvikmyndafyrirtækja um all-
an heim, á því hvaða kvikmynda-
stjörnur þeir telji að eigi mestri vel-
gengni að fagna. Er leikurunum
gefm stig eftir því hvað menn telja
þá eftirsótta og líklega til þess að
/AFFl
R E YHjAVIK
R f S T á W R S N T ' H A R
ítilTivif
Hljómsveitin
Grape
leikur í kvöld.
Svarfur ís
leikur
föstudags- og
laugardagskvöld
I/AfFI
REY KJAVIK
— heitasti
staðurinn í bænum
selja myndimar sem þeir eru í.
Nöfn fleiri en 500 leikara komust á
blað í fyma og birti bandaríska
tímaritið Variety nýlega lista með
52 efstu nöfnunum. I fjórum efstu
sætunum voru: Tom Cruise með
100 stig, Mel Gibson með 97 stig,
Harrison Ford með 96 stig og Tom
Hanks með 95 stig. Þessir leikarar
geta auðveldlega selt kvikmynda-
húsaeigendum bíómyndir fyrirfram
eingöngu út á nafn sitt og skiptir þá
engu máli að myndin með þeim hef-
ur ekki enn verið gerð, hver gerir
handritið, hver sér um leikstjórnina
eða hvaða aðrir leikarar koma til
með að leika í myndinni. Nöfn þess-
ara leikara eru talin tryggja undan-
tekningarlaust góða aðsókn.
Carrey þýtur upp listann
Þessir fjórir leikarar eru í
svokölluðum A+ flokki yfir leikara
sem dreifingaraðilar teija sig ör-
ugga um að hagnast á. I þeim
næsta fyrir neðan, A flokki, er Jim
Carrey efstur með 93 stig, Brad
Pitt kemur á eftir honum með 93
stig einnig og síðan Arnold
Schwarzenegger, einnig með 93
stig, og John Travolta í fjórða sæti
með 91 stig. Alls eru 22 leikarar í
þessum ílokki. Þeir tryggja ekki
fyrirframsölu á bíómynd en ef
fylgja þeim góðir leikstjórar og
kostnaðaráætlunin er svimandi há
og efni myndarinnar er í ætt við
það sem leikararnir hafa gert áður,
er öruggt að myndin fær mikla
dreifingu um allan heim.
I þriðja flokknum, kallaður B+,
trónir Dustin Hoffman í fyrsta sæti
með 74 stig, Richard Gere kemur á
eftir honum með 73 stig, þá Sylv-
ester Stallone með 73 stig og loks
JIM Carrey getur selt
hvaða mynd sem er.
JOHN Travolta er í
áttunda sæti.
A1 Pacino með 73 stig
einnig. Þessar stjömur
og fieiri í B+ flokknum
eru taldar standa næst-
um jafnfætis leikurum í A
flokknum en kostnaður
við myndir þeirra, mót-
leikarar, leikstjóri og
þess háttar vegur aðeins
þyngra þegar kvik-
myndahúsaeigendur og
dreifingaraðilar meta
væntanlegt gengi mynda þeirra.
Stærsta stökkið á milli áranna
1996 og 1997 tók Jim Carrey en
mynd hans, Lygari lygari, sem
naut gríðarlegra vinsælda um heim
allann, átti mestan þátt í því. Ann-
ar sem þaut upp listann er Leon-
ardo DiCarpiro. Hann er í tíunda
sæti en var áður í því 31. og er víst
að Titanic hafi haft eitthvað að
segja um aukið verðgildi leikarans.
Ekki skemmir fyrir honum að líkt
og Brad Pitt er DiCaprio ákaflega
vinsæll í Japan en þar er stærsti
markaður í heiminum utan Banda-
ríkjanna fyrir Hollywoodmyndir;
er líklegt að táningsstúlkur eigi
sinn þátt í því að þeir sem þátt
tóku í könnuninni telji þessa tvo
leikara svo eftirsótta.