Morgunblaðið - 16.04.1998, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 16.04.1998, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Ljóska Smáfólk Vá, þetta er meiri snjókoma en Nú þurfúm við einhvern til að fara Einhvern sem gerir ekki veður út nokkru sinni. út að póstkassanum. af öllu ... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Hvers virði eru fæturnir okkur? Frá Eygló Þorgeirsdóttur: FÓLK úr öUum greinum þjóðfé- lagsins þjáist af ýmsum fótamein- um svo sem líkþornum, niðurgrón- um nöglum, óeðlilegri siggmyndun, sprungnum hæl- um o.s.frv. og þarf á hjálp að halda, bæði tímabundið eða með reglu- bundinni meðferð til að halda fótun- um í góðu ástandi. Eldra fólk, hreyfi- Eygló hamlað, sjóndap- Þorgeírsdóftir urt, andlega van- heilt, sykursjúkir og gigtveikir þurfa meira á okkar hjálp að halda með spangar- og hlífðarmeðferð ásamt reglubund- inni fyrirbyggjandi meðferð. Þykir mér með ólíldndum hvað þessir hópar hafa lítið beitt sér til að fá þessa þjónustu endurgreidda að hluta eða öllu leyti úr sjúkra- eða tryggingarsjóðum eins og tíðkast í mörgum greinum innan heilbrigðiskerfísins, m.a. sjúkra- þjálfun. Silikonhh'fðarefni fyrir krepptar tær Hve margt eldra fólk og hreyfi- hamlað þekkir ekki þá tilfinningu að tæmar kreppast og verða hver undir annarri? Þessi einkenni eru fátíðari hjá körlum vegna betri skófatnaðar en tíðkast hefur hjá konum í gegnum árin. Silikon er frábært efni til að laga og koma í veg fyrir líkþom sem myndast framan á tánum, milli þeirra og of- an á þeim. 15 ára reynsla mín af þessum efnum er að slík líkþom minnka eða hverfa og öll óþægindi em úr sögunni. Þessi silikonefni þarf fólk venjulega að nota alltaf, því þau breyta álagi fótarins með- an þau em notuð. Ef fólk með skekktar tær og ranga álagsfleti hættir að nota silikonið koma ein- kennin fljótlega í ljós aftur. Þessi efni em mjúk, sveigjanleg en sterk og geta enst í áraraðir. Hin síðari ár hafa fleiri og fleiri fótaaðgerða- fræðingar tileinkað sér þessa með- ferð. Hversu virt eru störf fótaað- gerðafræðinga og hvernig er reglum heilbrigðiseftirlits fram- fylgt á sjúkrastofnunum? Samkvæmt nýjum reglum heil- brigðiseftirlits um starfsemi á fóta- aðgerðastofum er farið fram á ákveðna þætti sem fótaaðgerða- fræðingar í einkageiranum reyna að framfylgja eftir bestu getu. Annað blasir við í opinbera geiran- um, á sjúkrahúsum og flestum dvalarheimilum fyrir aldraða, van- gefna og sjúka. Þetta á sér stað þrátt fyrir að víða sé verið að byggja eða breyta, þá er sjaldnast gert ráð fyrir þessari starfsemi eða hún látin mæta afgangi. Vil ég þar nefna Landakot, þar er engin eða léleg aðstaða fyrir fótaaðgerða- fræðinga. Sama máli gegnir um Landspítalann, Grensásdeild, Reykjalund, Kleppspítalann, Am- arholt, Sólheima í Grímsnesi, Heilsuhælið í Hveragerði og fl. A Borgarspítalanum hefur starfsem- in verið lögð niður nema þá í rúmunum sem er ólöglegt. Alít ég að engum þyki fysilegt að leggjast í rúm þar sem þykkar sveppaneglur hafa verið þynntar á sjúklingi þrátt fyrir að fyllstu varúðarráðstafanir hafi verið gerðar. Þessi þjónusta þykir sjálfsögð á þessum stöðum en okkur er jafnan troðið inn í hin ótrúlegustu skot með þjónustu okkar svo sem skol, böð, fatahengi, gluggalausar skonsur og á staði þar sem einhver önnur starfsemi á sér stað, sem er óheimilt samkvæmt reglugerðum. Þama er opinberi geirinn fyrstur til að brjóta sín eign lög. Væri ekki úr vegi að heilbrigðiseftirlitið kannaði þau mál og innheimti greiðslur frá þessum stofnunum líkt og þeir krefjast frá einkageir- anum. Sólheimar í Grímsnesi og aðrar hliðstæðar stofnanir Heimili þessi gera ekkert frekar ráðstafanir fyrir þjónustu fótaað- gerðafræðinga. Tala ég þar af reynslu því Sólheimum þjónaði ég í nær tvo áratugi eða fram til ársloka 1997. En eftir áramótin virðist hafa orðið uppstokkun og breyting á starfsháttum þar og mín ekki verið þörf þar síðan. Þeir fótaaðgerða- fræðingar sem þjóna einstaklingum sem eiga við heilabilun að stríða þurfa að hafa miklu meira til að bera en að vinna verkið og mikil- vægt er að fullt traust og virðing skapist milli fagfólks og þessara einstaklinga. Mikilvægi þess vill því miður oft gleymast og er þá kannski léttvægt þótt tannlækninum, fóta- aðgerðafræðingnum, nuddaranum og rakaranum sé öllum troðið í sama herbergið sinn daginn hverj- um, en er engu að síður ólöglegt. Þjónustuíbúðir innan Félagsmálastofnunar Nú leigir Félagsmálastofnun fótaaðgerðafræðingum stofur sín- ar, eftir að kærð var að ég hygg til Samkeppnisráðs starfsemi sem stofnunin rak til fjölda ára með fótaaðgerðafræðinga sem verk- taka. Var þá verktökunum boðið að kaupa áhöld og tæki stofunnar og leigja aðstöðuna. Þetta þýddi að loka varð þessum rýmum til að að- skilja starfsemina frá annarri starfsemi. Kom þá í ljós að minnka varð aðstöðuna og uppfyllir hún víða ekki kröfur heilbrigðiseftirlits. Mun ég ræða þessi og önnur mál síðar. EYGLÓ ÞORGEIRSDÓTTIR, stofnandi Félags íslenskra fótaað- gerðafræðinga og fyrsti formaður félagsins. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunbiaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.