Morgunblaðið - 16.04.1998, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Valdabarátta rhaldsmanna og umbótasinna í fran ágerist
Rafsanjani Karb-
borgarsijóra lið?
Lagði
aschi
Teheran. Reuters.
HANDTAKA borgarstjórans í
Teheran, Gholamhossein Karb-
aschi, hefur undanfama daga verið
helsta þrætueplið í valdabaráttu
hófsamra bandamanna Mo-
hammads Khatamis, forseta lands-
ins, og fylgjenda íhaldsmanna, sem
Khatami bar óvænt af sigurorð í
kosningum í maí sl.
Borgarstjórinn sat í varðhaldi, án
þess að eiga kost á lausn gegn
tryggingu, frá 4. apríl þar til í gær.
Hann var sakaður um spillingu.
Stuðningsmenn hans segja ástæður
handtökunnar pólitískar og að
íhaldssinnuð dómsmálayfírvöld séu
með þessu að vinna gegn um-
bótasinnuðum forseta landsins.
í nýjasta hefti The Economist
segir að mesta ögrun Karbasehis
við andstæðinga sína hafi verið sú,
að fyrir tveim árum stofnaði hann
stjómmálasamtök í félagi við aðra
umbótasinna. Handtöku hans megi
túlka sem viðvömn um að menn
reyni ekki að breyta ríkjandi
ástandi.
Blaðið Iran News greindi frá því í
gær að fyrrverandi forseti, Akbar
Hashemi Rafsanjani, sem skipaði
borgarstjórann í embætti, hefði lagt
allt kapp á að fá hann leystan úr
haldi. Hafði blaðið eftir heimilda-
manni að með viðræðum við æðsta
leiðtoga landsins, Ayatollah Ali
Khamenei, hefði Rafsanjani tryggt
að Karbaschi yrði látinn laus.
Undanfarna daga hafa írönsk
dagblöð ýmist greint frá því að Kar-
baschi verði leystur úr haldi fljót-
lega eða að beiðnum um lausn hans
hafi verið hafnað. Á þriðjudag lenti
lögreglu saman við þúsundir náms-
manna á götum Teheran er þeir
kröfðust þess að borgarstjórinn
yrði látinn laus og voru nokkrir
handteknir.
Vestræn viðhorf óvinsæl
The Economist segir að flestir ír-
anir séu sannfærðir um að borgar-
stjórinn hafi verið lagður í einelti og
efist ekki um ástæðuna. Spilling sé
útbreidd í landinu og mútugreiðslur
daglegt brauð. Þar sé enginn und-
anskilinn, ekki einu sinni lögregla
og dómstólar. En enginn nema
borgarstjórinn hafi mátt sæta svo
nákvæmri rannsókn eða sætt jafn
harðri gagnrýni fjölmiðla.
Karbaschi hefur verið hrósað í
hástert fyrir að hafa komið á breyt-
ingum í Teheran, þar sem um 10
milljónir búa, en hirðuleysi og lang-
vinnt stríð Irana við Iraka hafði
komið illa niður á borginni. En
íhaldssinnaðir andstæðingar hafa
horn í síðu hans vegna vestrænna
viðhorfa hans og stjórnunarað-
ferða.
Hann tók við embætti 1989, fyrr-
verandi klerkur sem sneri sér að
stjórnmálum og leit á sig sem nokk-
urskonar Hróa hött. Hann tók til
við umbætur á borginni, byggði
íþróttavelli, bókasöfn og listagallerí.
Eitt af því eftirtektarverðasta sem
hann gerði var að breyta sláturhús-
um í fátækrahverfum borgarinnar í
tómstundamiðstöðvar.
Havel sagður við
„furðugóða heilsu“
Reuters
DAGMAR Havel, eiginkona Tékklandsforseta, og læknar á
Háskólasjúkrahúsinu í Innsbruck ræða við fréttamenn í gær.
Reuters
Hvítt og
rautt á hátíð
hindúa
ÞESSI vel skreytti herramaður
heitir Baba Kheraishwar Nath og
er 87 ára gamall helgisiðameistari
Sadhu-hindúa á Indlandi. Með and-
litið hveitihvítt og eldrautt að
fornum sið tekur hann þátt í helgri
hátíð hindúa er nefnist Kumbh
Mela, í borginni Hardwar. Hátiðin
stendur í 15 vikur, en henni iýkur
29. aprfl. Á meðan á henni stendur
dýfa nokkrar milljónir þátttak-
enda í henni sér í fljótið Ganges.
nnsbruck. Reuters.
VACLAV Havel, forseti Tékk-
lands, var við „íúrðugóða heilsu“ í
gær eftir að hafa gengist undir
bráðaaðgerð á Háskólasjúkrahús-
inu í Innsbruck í Austurríki á
þriðjudag. Læknar sögðu þó í gær
að nokkur hætta væri á aukakvill-
um.
Ernst Bodner, yfirskurðlæknir
sjúkrahússins, sagði á frétta-
mannafundi í gær að aðgerðin
hefði tekið þrjár og hálfa klukku-
stund og hefði um 30 cm langur
hluti af digurgiminu verið numinn
á brott. Sagði Bodner að öll líffæri
störfuðu eðhlega, en sjúkdómurinn
væri þess eðlis að hætta væri á al-
varlegum aukakvillum á næstu
dögum.
Norbert Mutz, yfirlæknir á
gjörgæsludeild sjúkrahússins, var
öllu bjartsýnni á batahorfur Hav-
els. „Eg ræddi við forsetann í
morgun í 45 mínútur. Hann er nú
vel á sig kominn. Honum líður vel.
Hann er farinn að lesa. Hann er
við furðugóða heilsu.“ Síðdegis í
gær var Havel fluttur af gjör-
gæsludeild.
Havel var í fríi í Innsbruck með
konu sinni, Dagmar, þegar hann
kenndi sér meins. Hún tjáði frétta-
mönnum að í gær hefðu honum
borist kveðjur frá stjómmála-
mönnum víða um heim sem hefðu
óskað honum skjóts bata. Havel
mun að líkindum dvelja á sjúkra-
húsinu í Innsbruck í allt að hálfan
mánuð.
ÁHRIFARÍK HEILSUEFNI
Auka orku, úthald og einbeitingu
Fást í mörgum heilsubúðum, apótekum og mörkuðum
URTE PENSIL
Sólhattur
og Propolis
virka vel saman.
Gæðaefni
SKALLIN PLUS
vinur magans
Bio-Qinon
Q10 kapsler
BIO QINON Q-10
Eykur orku, úthald og velliöan
FæstlHagkaupsverslunurr
.PRQPQUS.
Gæðaefnl frá
Healthilife
Sterkir Propolis
belgir (90 stk.)
virka sérlega vel.
Þú getur treyst heilsuefnum
frá Parma Nord 100%
Bio-Biloba Ginkgo
Bio-Selen + Zink
Bio-Chróm - grennandi
Bio-Glandin Bio-Caroten
Bio-Calcium Bio-Magnesium
Bio-Fiber Bio-E-vitamín
Bío-Zink
isoFLAvoN soja BíO-SELEN UMBOÐIÐ
hefur virkni E-vítamíns
Sími 557 6610.
Franskur ráðherra
varar við EMU
Frankfurt. Reuters.
í ÞÝZKU blaði
var í gær haft eft-
ir Jean-Pierre
Chevenement,
innanríkisráð-
herra Frakk-
lands, að hann
teldi að hætta
bæri við stofnun Efnahags- og mynt-
bandalags Evrópu, EMU, og hann
líkti áformunum, sem eiga að verða
að veruleika um næstu áramót, við
feigðarsiglingu Titanic.
„Hafflöturinn er kyrr, veitingasal-
urinn glæsilegur, hljómsveitinn leik-
tr undir. Þegar við komum auga á
ísjakann getur það verið um seinan,"
sagði ráðherrann í viðtali við Die
Woche. Chevenement, sem er einn
helzti efahyggjumaðurinn um EMU-
áformin á vinstri væng franskra
stjórnmála, segir
í viðtalinu að ríki
Evrópu ættu að
halda sínum eigin
gjaldmiðlum
vegna þess að
með því að fjar-
lægja möguleik-
ann á þvi að eiga við gengi gjaldmið-
ilsins - sem gerist með myntbanda-
laginu - aukist hættan á efnahags-
legum áfóllum og félagsleg misklíð
muni aukast, sem og spenna í milli-
ríkj asamskiptum.
Chevenement gagnrýndi ennfrem-
ur harkalega sjálfstæði hins væntan-
lega Seðlabanka Evrópu, þar sem
stjórnendur hans myndu ekki kæra
sig um að taka tillit til hagvaxtar-
hvetjandi aðgerða og aðgerða gegn
atvinnuleysi.
EVRÓPA^
Skotin á
stuttu færi
RANNSÓKN Sameinuðu þjóð-
anna hefur leitt í ljós að margir
þeirra sem létu lífið í áhlaupi
serbnesku lögreglunnar á bæi í
Kosovo-héraði, voru skotnir á
stuttu færi. Þá reyndust all-
margir hinna föllnu vera konur
og börn en ekki skæruliðar
eins og Serbar höfðu haldið
fram.
Ekki vopna-
kapphlaup
ATAL Behari Vajpayee, for-
sætisráðherra Indlands, sagði í
gær að tilraunaskot Pakistana
á langdrægri eldflaug fyrr í
mánuðinum myndi ekki koma
af stað vopnakapphlaupi ríkj-
anna. Hann ítrekaði hins vegar
að Indverjar væru viðbúnir
hvaða ógn sem að rikinu steðj-
aði.
Eigum Marc-
osar skilað
HÆSTIRÉTTUR Sviss hefur
hafnað kröfu aðstandenda
Ferdinands heitins Marcosar,
einræðisherra á Filippseyjum,
um að eignum hans í svissnesk-
um bönkum verði ekki skilað
til filippeysku þjóðarinnar.
Segja Svisslendingar að þar
með sé rutt úr vegi síðustu
hindrunni fyrir því að fé af
reikningum Marcosar verði
lagt inn í filippeyska seðla-
bankann.
Aldrei legið
oftar við flug-
árekstri
FJÖLDI alvarlegra flugatvika
þar sem legið hefur við
árekstri farþegaflugvéla í lofti
yfir Bretlandi hefur vaxið og
aldrei verið meiri, samkvæmt
skýrslu bresku flugmálastjórn-
arinnar (CAA). Árið 1996 lá 26
sinnum við raunverulegum
fiugárekstri í farþegaflugi yfir
Bretlandi en tölur fyrir síðasta
ár liggja ekki fyrir. Til saman-
burðar var meðaltal áranna
1989-95 11 tilvik á ári.
75 falla í
Ktírdistan
SJÖTÍU og fimm manns hafa
fallið í átökum kúrdískra upp-
reisnarmanna og tyrkneska
hersins sl. tvo daga. Flestir
hinna föllnu voru Kúrdar, 64,
en ellefu hermenn féllu í átök-
unum sem voru skammt frá
írösku Iandamærunum.
Æ minni trtí
á Kohl
FRAMMÁMENN í þýsku at-
vinnu- og stjórnmálalífi telja æ
minni líkur á því að Helmut
Kohl, kanslari Þýskalands, nái
endurkjöri, samkvæmt könnun
sem birt var í gær. Búast 49%
þeirra við sigri jafnaðarmanna
en 30% voru þeirrar skoðunar
fyrir mánuði.
Helmingur
tílæs
NÆRRI því helmingur
marokkósku þjóðarinnar er
ólæs, samkvæmt könnun sem
birt var í landinu í gær. Verst
standa konur og íbúar dreifbýl-
isins að vígi.