Morgunblaðið - 16.04.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.04.1998, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Samþykktu 1993 að hætta laxveiðiferðiun iTGfiAUKfO — ÞIÐ skuluð sko beint í Hólmavíkurrútuna, laxafíklarnir ykkar. Vöruval ehf. á fsafírði Farið fram á allt að 80% niðurfellingu krafna ísafirði. Morgunblaðið. FYRIRTÆKIÐ Rekstur- og lög- fræðiráðgjöf ehf. í Reykjavík hefur sent lánardrottnum Vöruvals ehf. á ísafirði bréf, þar sem farið er fram á niðurfellingu skulda vegna bágrar stöðu fyrirtækisins. í bréfinu er farið fram á niðurfellingu allt að 80%, þó að lágmarksgreiðsla verði 30 þúsund krónur. Eigendur Vöruvals ehf. ráku þrjár verslanir í ísafjarðarbæ, allt til síð- ustu mánaðamóta er reksturinn, inn- réttingar og lager var selt eigendum Miðbrúnar ehf., sem nú reka verslan- imar undir nafninu Eló. Eigendur Miðbrúnar ehf. munu ekki hafa yfír- tekið skuldir Vöruvals ehf. né útistandandi eignir þess í formi við- skiptaskulda. Samkvæmt upplýsingum blaðsins hófust erfíðleikar Vöruvals fljótlega eftir að Kaupfélag Suðumesja opnaði verslun á ísafírði undir nafni Sam- kaupa. Óvíst er hvort lánardrottnar fyrirtækisins samþykki framan- greindan skuldaskilasamning. HAFLIÐI Halldórs- son, fyrrv. forstjóri Gamla bíós, lést á Sjúkrahúsi Reykjavík- ur þriðjudaginn 14. þ.m. á 90. aldursári. Hafliði fæddist 1. nóvember 1908 á Siglufírði. Foreldrar hans vora Halldór Jón- asson, kaupmaður þar, og kona hans Kristín Hafliðadóttir. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskólan- um á Akureyri 1925 og settist í 4. bekk Menntaskólans í Reykjavík vetur- inn 1925-’26 en varð að hverfa frá námi vegna veikinda. Veturinn 1929-’30 stundaði hann verslunar- nám í Þýskalandi. Hafliði var verslunarstjóri á Siglufírði 1928-’39 og rak jafnframt útgerð og síldarsöltun fyrir eigin reikning árin 1935-’40. Hann varð forstjóri og annar aðaleigandi kvik- myndahússins Gamla bíós í Reykjavík frá árinu 1940 þar til það var selt Islensku óperanni í árslok 1981. Hann sat í stjórn ýmissa at- vinnufyrirtækja, svo sem útgerðarfélag- anna Sviða hf. og Hrímfaxa hf. árin 1942-’50 og Nýja bíós hf. á Akureyri frá 1944-’60. Árið 1947 stofnaði hann sjóð við Menntaskólann á Akureyri, sem er kenndur við Sigurð Guðmundsson, fyrrv. skólameistara þar. Eiginkona Hafliða var Þórann Sveinbjarnardóttir frá Isafirði, fædd 16. september 1909. Hún lést 24. febrúar 1993. Þau eignuðust tvo syni: Halldór, flugstjóra, sem lést fyrir aldur fram árið 1982, og Sveinbjörn, aðallögfræðing Seðla- banka Islands. Sonadætur þeirra eru fímm og barnabamabömin níu. Andlát HAFLIÐI HALLDÓRSSON Sólkjarna- og Rúgkjarnabrauð Léttreykt sparnaðarskinka, Ávaxtastangir 10 stk. pr. kg„ 69* fc798'p eru tilboðsdagar hjá okkur r ■ V/ JHL I • UM LAND ALLT Fíkniefnaforvarnir á Vestfjörðum Mikilvægt að foreldrar hafi augun opin ISAFJARÐARBÆR, B olungarvíkurkaup- staður og Súðavíkur- hreppur hafa sameinast um samræmt forvarna- starf vegna ávana- og fíkniefnaneyslu ungs fólks. Haldinn verður sameigin- legur borgarafundur fyrir sveitarfélögin þrjú í þessu skyni á laugardaginn kem- ur klukkan 13 í íþróttahús- inu á Torfnesi. Dagski-áin hefst þegar lúðrasveit Tónlistarskól- ans í Bolungarvík leikur nokkur létt lög meðan gestir eru að ganga í salinn og koma sér fyrir. Þvínæst setur formaður forvama- hópsins Vá-Vest, sam- starfshóps sveitarfélag- anna, Helga Dóra Krist- jánsdóttir, fundinn. Hópurinn var stofnaður fyrir rúmu ári til þess að sam- ræma fíkniefnaforvarnir á svæð- inu öllu og í ár var gengið til sam- starfs við forvarnadeild SAA vegna verkefnis sem nefnist „víð- tækar forvarnir í sveitarfélögum" og sér Vá-Vest um framkvæmd þess heima í héraði. Flutt verða ávörp og sérstakur gestur fundarins verður Guðrún Katrín Þorbergsdóttir forsetafrú. Meðal þeirra sem flytja fram- söguerindi eru Dögg Pálsdóttir formaður verkefnisstjórnar „ís- lands án eiturlyfja", Jónína Bjartmars formaður landssam- takanna Heimilis og skóla, Einar Gylfí Jónsson deildarstjóri í for- varnadeild SÁA, Óiafur Helgi Kjartansson lögreglustjóri á Isa- firði og Þórólfur Þórlindsson pró- fessor, sem er aðalfyrirlesari dagsins og gerir grein fyrir könn- un á vímuefnaneyslu unglinga ár- ið 1997. Að erindunum loknum verða pallborðsumræður þar sem gestir geta beint spurningum til fyrirles- ara og forvígismanna sveitar- stjórna og félagasamtaka á fund- inum. Honum lýkur síðan rúm- lega fjögur. Fimm einstaklingar eru í for- varnahópinum á Vestfjörðum, það er Helga Dóra Kristjánsdóttir formaður, Rósa Þorsteinsdóttir skólastjóri, Vilborg Arnarsdóttir verslunarmaður, Margi'ét Stef- ánsdóttir hjúkrunarfræðingur og Hlynur Snorrason lögreglufull- trúi og verkefnisstjóri hópsins. - Hvert er markmið fundarins? „Það er að efna til almennrar umræðu í sveitarfélögunum um mikilvægi forvarna þannig að fólk geri sér grein fyrir ástandinu og með hvaða ráðum er hægt að bregðast við. í mínum huga er ekkert sveitarfélag undanskilið vímuefna- vandanum og það er talsvert langt síðan að við viðurkenndum þennan vanda hér fyrir vestan. Lögreglan og fleiri hafa talað mjög opinskátt um þetta vanda- mál og hjá lögregluembættinu hafa menn ekki hikað við að leyfa fjölmiðlum að fylgjast með frétt- um af fíkniefnamálum." - Hvernig hefur þróunin verið í fíkniefnaneyslu ungs fólks á Vest- fjörðum? „Það er ekki gott að segja hvenær fíkniefnaneysla fór að verða veralegt vandamál hér en ef litið er á tölur kom veralegur fjöldi slíkra mála til kasta lög- reglu árið 1995 og 1996. Þeim hef- Hlynur Snorrason ► Hlynur Snorrason fæddist í Reykjavík árið 1963 og ólst upp á Skógum undir Eyjafjöllum. Hann stundaði nám í Mennta- skólanum við Sund 1981-1983 og hóf nám við Lögregluskóla ríkis- ins árið 1984. Hlynur byijaði í afleysingum hjá lögreglunni í Reykjavík árið 1983 og hefur starfað á fsafirði frá hausti þess árs. Hann starfaði fyrst sem lög- reglumaður, þá varðstjóri, síðan rannsókníirlögreglumaöur og loks sem lögreglufulltrúi og er jafnframt staðgengill yfirlög- regluþjóns. Eiginkona hans er Alma Björk Sigurðardóttir tækniteiknari og starfsmaður á skóladagheimili og eiga þau þijú börn. ur síðan fækkað aftur. Aðallega er um að ræða hass- og amfetamínn- eyslu.“ - Eru fíkniefni markaðssett skipulega á landsbyggðinni? „Það era tengiliðir mjög víða og skipulag á sölunni þótt í skamman tíma sé í senn. Hins vegar er ekki hægt að tala um mjög skipulagt net.“ - Viljið þið gera sveitarfélögin fíkniefnalaus? „Já, til langs tíma litið. Þótt það sé kannski að sumu leyti óraun- hæft er gott að hafa eitthvert markmið að stefna að. Við erum ekki bara að tala um ólögleg fíkni- efni heldur áfengis- og tób- aksneyslu unglinga líka.“ - Hefur almenningur áhyggjur af neyslu unglinga á ávana- og fíkniefnum? „Við héldum námstefnu í febrú- ar þar sem greinilegt var að fólk hafði áhyggjur og vildi ná tökum á áfengis- og tóbaksneyslu unglinga. Það taldi að ef hægt væri að ---------- stemma stigu við neyslu þessara efna á unga aldri væri hægt að fækka fíkniefnaneyt- endum í framtíðinni." - Hvað er fleira á prjónunum á næstunni í þessu sambandi? „Það er stefnt að því að fulltrú- ar frá forvarnadeild SÁA og Fræðslumiðstöð í fíkniefnavörn- um komi vestur til þess að vera með vímuefnaskóla fyrir kennara grunnskólanna. Einnig munu full- trúar frá SÁÁ halda fyrirlestra fyrir þjálfara, formenn íjiróttafé- laga og flokksstjóra í vinnuskól- um, foreldra og ýmsar starfsstétt- ir um einkenni í kjölfar vímuefna- neyslu og viðbrögð. I því sam- bandi skiptir mestu máli að hafa augun opin.“ Stefnt að vímuefna- lausum Vest- fjörðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.