Morgunblaðið - 16.04.1998, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1998 27
Fyrirlestur um Hilde
gard von Bingen
HILDUR Hákonardóttir, forstöðu-
maður Listasafns Árnesinga, heldur
fyrirlestur um Hildegard von
Bingen sunnudaginn 19. apríl.
Hildegard von Bingen var fædd í
Rínardalnum fyrir réttum 900 ár-
um. Hún var nunna, rithöfundur og
tónskáld og fékk viðurkenningu
páfa og fræðastofnana kirkjunnar
bæði fyrir ritverk sín og sýnir sem
henni birtust allt frá bamæsku.
Sýnir hennar voru teiknaðar
meðan hún lifði og eru afar sérstök
og falleg miðaldaverk. Sjálf vildi
Hildegard ekki að fullu túlka sýnir
sínar, sagðist vera sjáandi en ekki
túlkandi, en hún lét þó eftir sig
mörg ritverk og var mikilhæfur
predikari.
Hún er íyrsta tónskáld sögunnar
hvers ævisaga er þekkt og þegar
verk hennar voru gefin út í nútíma-
búningi seldust þau í miklu magni.
I fyrirlestrinum mun Hiidur
segja frá ævi og störfum Hildegard
von Bingen, sýna myndirnar af sýn-
um hennar og segja frá túlkunum
þeirra, guðfræði, táknmáli og list-
rænu samhengi. Auk þess verða
leikin sýnishorn af tónlist hennar.
Fyrirlesturinn verður í Listasafni
Ái-nesinga við Tryggvagötu 23 á
Selfossi og hefst hann klukkan 16.
Aðgangseyrir er kr. 300.
HILDUR Hákonardóttir, held-
ur fyrirlestur um Hildegard von
Bingen.
Mæðgur sýna í
Stöðlakoti
MÆÐGURNAR Guðrún Marinós-
dóttir og Sif Ægisdóttir opna sýn-
ingu í Stöðlakoti, Bókhlöðustíg 6,
laugardaginn 18. apríl. Á sýning-
unni verða skartgripir og aðrii’
skúlptúrar.
Guðrún útskrifaðist úr textíldeild
MHÍ árið 1979 og hefur unnið með
tágar, hrosshár o.fl. efni í þrívíð
verk. Hún hefur unnið við kennslu,
haldið einkasýningar og tekið þátt í
fjölda samsýninga bæði heima og
erlendis.
Sif útskrifaðist úr skúlptúrdeild
MHÍ árið 1991 og gíðan gullsmíða-
deild Lahti’s Institute of Design,
Finnlandi, árið 1996.
Nú hafa þær leitt saman hesta
MÆÐGURNAR Sif Ægisdóttir
og Guðrún Marinósdóttir sýna
saman í Stöðlakoti og verður
sýningin opnuð á laugardag.
sína og vinna með ólík efni, aðallega
silfur og hrosshár.
Þema sýningarinnar er „Maður
líttu þér nær“ og stendur sýningin
til 3. maí.
Einleikarapróf
í Fella- og
Hólakirkju
TÓNLEIKAR verða haldnir á
vegum Tónlistarskólans í Reykjavík
í Fella- og Hólakh’kju föstudaginn
17. apríl kl. 20.30.
Tónleikarnir eru
síðari hluti einleik-
araprófs Stefáns
Jóns Bernharðs-
sonar hornleikara
frá skólanum.
Kristinn Öm
Kristinsson leikur
með á píanó.
Auk þeh-ra
Stefán Jón koma fram Hildur
Bernharðs- Ársælsdótth’ fiðla,
son. Valgerður Ólafs-
dóttir víóla og
Margrét Árnadóttir selló.
Á efnisskrá eru En Forét op. 40
eftir Eugéne Bozza, Kvartett fyrir
horn og strengi op. 20 eftir J.A.
Amon, Canto Serioso eftir Cari Niel-
sen, Study fyrir hoi-n og segulband
eftir Jan Segers og Sónata (1939)
eftir Paul Hindemith.
-----------------
Djass í
Múlanum
TÓNLEIKAR á vegum djass-
klúbbsins Múlans verða haldnir í
kvöld, fimmtudagskvöld kl. 21 í
Sölvasal á 2. hæð
Sólons Islandus-
ar. Að þessu sinni
leikur hljómsveit-
in Sveifluvaktin
sem kemur fram í
fyrsta skipti.
Hljómsveitin
leggur áherslu á
eldri djasstónlist
sen tengist
þekktum flytjend-
um sveiflutíma-
bilsins eins og Erroll Garner, Fats
Waller og Louis Armstrongs.
Sveifluvaktin er skipuð Gunnari
Gunnarssyni píanóleikara sem jafn-
framt átti frumkvæði að stofnun
hljómsveitarinnar, Sigurði Flosa-
syni saxófónleikara, Tómasi R. Ein-
arssyni kontrabassaleikara og Kára
Árnasyni trymbii.
Næstu tónleikar eru á sunnudag-
inn með Jóhanni Ásmundssyni og
félögum og munu þeir spila fusion
tónlist.
-----------------
Djass í
Alafoss Bezt
KVINTETT Ólafs Jónssonar heldur
djasstónleika í kaffihúsinu Álafoss
Bezt í Mosfellsbæ í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, kl. 22. Leikin verður tón-
list frá síðustu áratugum, m.a. eftir
Dave Liebmann, George Garzone og
McCoy Tyner.
Kvintettinn skipa; Ólafur Jónsson
og Jóel Pálsson saxófónar, Hilmar
Jensson gítar, Þórður Högnason
bassi og Matthías M.D. Hemstock
trommur.
GUNNAR
Gunnarsson.