Morgunblaðið - 16.04.1998, Side 54
54 FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ljóska
Smáfólk
Vá, þetta er meiri snjókoma en Nú þurfúm við einhvern til að fara Einhvern sem gerir ekki veður út
nokkru sinni. út að póstkassanum. af öllu ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Hvers virði eru
fæturnir okkur?
Frá Eygló Þorgeirsdóttur:
FÓLK úr öUum greinum þjóðfé-
lagsins þjáist af ýmsum fótamein-
um svo sem líkþornum, niðurgrón-
um nöglum, óeðlilegri siggmyndun,
sprungnum hæl-
um o.s.frv. og þarf
á hjálp að halda,
bæði tímabundið
eða með reglu-
bundinni meðferð
til að halda fótun-
um í góðu ástandi.
Eldra fólk, hreyfi-
Eygló hamlað, sjóndap-
Þorgeírsdóftir urt, andlega van-
heilt, sykursjúkir
og gigtveikir þurfa meira á okkar
hjálp að halda með spangar- og
hlífðarmeðferð ásamt reglubund-
inni fyrirbyggjandi meðferð.
Þykir mér með ólíldndum hvað
þessir hópar hafa lítið beitt sér til
að fá þessa þjónustu endurgreidda
að hluta eða öllu leyti úr sjúkra-
eða tryggingarsjóðum eins og
tíðkast í mörgum greinum innan
heilbrigðiskerfísins, m.a. sjúkra-
þjálfun.
Silikonhh'fðarefni
fyrir krepptar tær
Hve margt eldra fólk og hreyfi-
hamlað þekkir ekki þá tilfinningu
að tæmar kreppast og verða hver
undir annarri? Þessi einkenni eru
fátíðari hjá körlum vegna betri
skófatnaðar en tíðkast hefur hjá
konum í gegnum árin. Silikon er
frábært efni til að laga og koma í
veg fyrir líkþom sem myndast
framan á tánum, milli þeirra og of-
an á þeim. 15 ára reynsla mín af
þessum efnum er að slík líkþom
minnka eða hverfa og öll óþægindi
em úr sögunni. Þessi silikonefni
þarf fólk venjulega að nota alltaf,
því þau breyta álagi fótarins með-
an þau em notuð. Ef fólk með
skekktar tær og ranga álagsfleti
hættir að nota silikonið koma ein-
kennin fljótlega í ljós aftur. Þessi
efni em mjúk, sveigjanleg en sterk
og geta enst í áraraðir. Hin síðari
ár hafa fleiri og fleiri fótaaðgerða-
fræðingar tileinkað sér þessa með-
ferð.
Hversu virt eru störf fótaað-
gerðafræðinga og hvernig er
reglum heilbrigðiseftirlits fram-
fylgt á sjúkrastofnunum?
Samkvæmt nýjum reglum heil-
brigðiseftirlits um starfsemi á fóta-
aðgerðastofum er farið fram á
ákveðna þætti sem fótaaðgerða-
fræðingar í einkageiranum reyna
að framfylgja eftir bestu getu.
Annað blasir við í opinbera geiran-
um, á sjúkrahúsum og flestum
dvalarheimilum fyrir aldraða, van-
gefna og sjúka. Þetta á sér stað
þrátt fyrir að víða sé verið að
byggja eða breyta, þá er sjaldnast
gert ráð fyrir þessari starfsemi eða
hún látin mæta afgangi. Vil ég þar
nefna Landakot, þar er engin eða
léleg aðstaða fyrir fótaaðgerða-
fræðinga. Sama máli gegnir um
Landspítalann, Grensásdeild,
Reykjalund, Kleppspítalann, Am-
arholt, Sólheima í Grímsnesi,
Heilsuhælið í Hveragerði og fl. A
Borgarspítalanum hefur starfsem-
in verið lögð niður nema þá í
rúmunum sem er ólöglegt. Alít ég
að engum þyki fysilegt að leggjast í
rúm þar sem þykkar sveppaneglur
hafa verið þynntar á sjúklingi þrátt
fyrir að fyllstu varúðarráðstafanir
hafi verið gerðar.
Þessi þjónusta þykir sjálfsögð á
þessum stöðum en okkur er jafnan
troðið inn í hin ótrúlegustu skot
með þjónustu okkar svo sem skol,
böð, fatahengi, gluggalausar
skonsur og á staði þar sem einhver
önnur starfsemi á sér stað, sem er
óheimilt samkvæmt reglugerðum.
Þama er opinberi geirinn fyrstur
til að brjóta sín eign lög. Væri ekki
úr vegi að heilbrigðiseftirlitið
kannaði þau mál og innheimti
greiðslur frá þessum stofnunum
líkt og þeir krefjast frá einkageir-
anum.
Sólheimar í Grímsnesi og aðrar
hliðstæðar stofnanir
Heimili þessi gera ekkert frekar
ráðstafanir fyrir þjónustu fótaað-
gerðafræðinga. Tala ég þar af
reynslu því Sólheimum þjónaði ég í
nær tvo áratugi eða fram til ársloka
1997. En eftir áramótin virðist hafa
orðið uppstokkun og breyting á
starfsháttum þar og mín ekki verið
þörf þar síðan. Þeir fótaaðgerða-
fræðingar sem þjóna einstaklingum
sem eiga við heilabilun að stríða
þurfa að hafa miklu meira til að
bera en að vinna verkið og mikil-
vægt er að fullt traust og virðing
skapist milli fagfólks og þessara
einstaklinga. Mikilvægi þess vill því
miður oft gleymast og er þá kannski
léttvægt þótt tannlækninum, fóta-
aðgerðafræðingnum, nuddaranum
og rakaranum sé öllum troðið í
sama herbergið sinn daginn hverj-
um, en er engu að síður ólöglegt.
Þjónustuíbúðir innan
Félagsmálastofnunar
Nú leigir Félagsmálastofnun
fótaaðgerðafræðingum stofur sín-
ar, eftir að kærð var að ég hygg til
Samkeppnisráðs starfsemi sem
stofnunin rak til fjölda ára með
fótaaðgerðafræðinga sem verk-
taka. Var þá verktökunum boðið að
kaupa áhöld og tæki stofunnar og
leigja aðstöðuna. Þetta þýddi að
loka varð þessum rýmum til að að-
skilja starfsemina frá annarri
starfsemi. Kom þá í ljós að minnka
varð aðstöðuna og uppfyllir hún
víða ekki kröfur heilbrigðiseftirlits.
Mun ég ræða þessi og önnur mál
síðar.
EYGLÓ ÞORGEIRSDÓTTIR,
stofnandi Félags íslenskra fótaað-
gerðafræðinga og fyrsti formaður
félagsins.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunbiaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
i