Morgunblaðið - 16.04.1998, Síða 42

Morgunblaðið - 16.04.1998, Síða 42
42 FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1998 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Hverra hagsmuna er Dagsbrún að gæta? Á SÍÐUSTU misser- um hafa fjölmargir fé- lagsmenn í Dagsbrún verið fluttir í önnur stéttarfélög að þeim forspurðum. Nokkuð fór að bera á þessu í framhaldi af verkfallsá- tökum síðasta árs þar sem í ljós kom að hægt var að draga úr áhrif- um verkfallsins t.d. hjá olíufélögunum með því að hafa hluta starfs- stöðva þeirra opna á þeirri forsendu að starfsfólk væri ekki í Dagsbrún heldur í öðru stéttarfélagi. Þróunin hefur síðan orðið sú að það er í æ ríkara mæli sett í hendur atvinnu- rekenda að ákveða að hvaða stétt- arfélagi starfsfólk þeirra skuli eiga aðild og um leið geti atvinnurek- endur fært starfsfólkið úr einu fé- laginu í annað. Þetta hefur gert það að verkum að samstaða verkafólks hefur veikst. Hverra hagsmuna skyldi það þjóna? Hvers vegna er valdið sett í hendur atvinnurekenda? Ekki eina en þó ágætt dæmi um framsal stéttarfélags á ákvörðunar- valdi um félagsaðild til vinnuveit- anda er mál verkafólks hjá ISAL, sem hefur sumt hvað í áratugi verið félagsmenn í Dagsbrún. Atburðarásin hófst með því að í nóvember sl. ákvað Halldór Björns- son, formaður Dagsbrúnar, með einhliða bréfi að segja upp félagsaðild Dags- brúnarfélaga hjá ISAL. Starfsmönnum ISAL og þá sérstaklega þeim sem gegnt höfðu trún- aðarstörfum fyrir Dagsbrún var að von- um brugðið en í bréfinu veltir Halldór upp þeirri spurningu hvort ekki væri rétt að starfs- menn ISAL gerðust fé- lagsmenn í Hlíf þar sem vinnuveitandi þeiiTa greiddi gjöld jjeirra til Hlífar. En víkjum nánar að bréfi Halldórs en þar segir m.a. orðrétt: },Á síðasta þingi Alþýðusambands Islands haustið 1996 var sú breyting gerð á fé- lagsaðild að verkalýðsfélagi að ekki gildir lengur sú i'egla að lög- heimili ráði félagsaðild. Nú gildir sú regla að greiðsla gjalda ræður félagsaðild.“ Einnig segir í bréf- inu: „Þú mátt ekki taka það þannig að við séum að meina þér að vera félagsmaður hjá okkur áfram en við sjáum ekki alveg hvernig má láta það ganga upp þar sem greiðslur af þér, bæði í fé- lagssjóð og aðra sjóði skapar þér rétt hjá félaginu en ekki lögheimili eins og var áður.“ Starfsmenn ÍSAL voru að von- um ósáttir við bréf Halldórs og kærðu uppsögn félagsaðildarinnar til ASÍ. Miðstjórn ASÍ gerði alvar- Breytinga er þörf, segir Bjarki Már Magnússon, og innleiða þarf nýjan hugsunarhátt. legar athugasemdir við bréf Hall- dórs en í bréfi miðstjórnarinnar kemur fram að ummæli í bréfinu um að ASI hafi breytt lögum sínum á þann veg að Dagsbrún hafi ekki verið heimilt að hafa hina brottreknu lengur í félaginu feli í sér misskilning. Þessa stöðu harm- ar miðstjórnin og „telur brýnt að tafarlaust verði leyst úr þeim vandamálum sem uppi eru varð- andi félagsaðild verkamanna hjá ISAL og raunar almennt varðandi skilin milli Vmf. Dagsbrúnar og Vmf. Hlífar. Miðstjórnin beinir því til félaganna beggja að taka upp samstarf sín á milli um leiðréttingu á þessari stöðu“. Eg velti fyrir mér hvað gerir það að verkum að formaður Dagsbrún- ar sendir umrætt bréf um einhliða uppsögn til fjölmargra félagsmanna sem auk þess er byggt á misskiln- ingi. Bréfið er ódagsett og er ekki stutt neinum ákvörðunum félags- fundar eða annarra stofnana félags- ins sem lögum samkvæmt eiga að taka slíkt stói-mál fyrir. Dagsbrún og Hlíf eru með sama samningssvið á höfuðborgarsvæð- inu og þurfa því að hafa góða sam- vinnu sín á milli um málefni félags- manna. Osamstaða þessara verka- lýðsfélaga kemur skiljanlega ein- göngu niður á félagsmönnum þeirra. Hvernig verða verkfóll næstu ára ef sú þróun heldur áfram að at- vinnurekendur ráða í auknum mæli félagsaðild? Munu verkfóllin einkennast af ósamstöðu, skipulagðri af atvinnu- rekendum? Höfuðborgarsvæðið er löngu orð- ið viðurkennt sem eitt starfssvæði og nokkur fyiirtæki eru með starf- FESTINGAJÁRN pi ■ ■ OG KAMBSAUMUR Þýsk gæðavara — traustari festing HVERGI MEIRA URVAL Ármúla 29-108 Reykjavik - símar 553 8640 og 568 6100 Bjarki Már Magnússon engri opnunartími -aukin biónusta í Krinqlunni 5 Afgreiðsla SPRON í Kringlunni 5, húsi Sjóvá-Almennra, verður nú opin frá kl. 9.15 til 16 alla virka daga. Þetta er liður í bættri þjónustu SPRON við viðskiptavini sína en sífellt fleiri hafa sótt okkur heim á síðustu mánuðum og fært sér þjónustu okkar í nyt. Komdu við hjá okkur og kynntu þér þær fjölmörgu nýjungar sem við höfum fram að færa. Nýir viðskiptavinir eru boðnir sérstaklega velkomnir. Við munum kappkosta að veita þeim öll þau fríðindi sem þeir hafa áunnið sér í fyrri bankaviðskiptum sínum og gera þeim yfirfærsluna fyrirhafnarlausa. %/J B SPARIS ron SPARISJÓÐUR REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS Afgreiðsla SPRON, Kringlunni5,s(mi568 6310 semi sína dreifða innan þessa svæð- is. Fyrirtækjunum er heimilt að senda starfsfólk sitt á milli starfs- stöðva sinna innan þess svæðis. En hver er staða starfsmannsins? Getur atvinnurekandinn greitt félagsgjöld viðkomandi starfs- manns í það stéttarfélag sem at- vinnurekandanum þóknast og um leið (ómeðvitað) stuðlað að því að starfsmaðurinn glatar áunnum réttindum í kjölfar breyttrar fé- lagsaðildar viðkomandi starfs- manns? Getur atvinnurekandinn flutt trúnaðarmann verkalýðsfélags á aðra starfsstöð og hætt að greiða félagsgjöld trúnaðarmannsins til Dagsbrúnar en þess í stað byrjað að greiða félagsgjald hans í annað stéttarfélag, t.d. Hlíf? Verði sú skipun mála algeng í framtíðinni getur atvinnurekand- inn allt að því losað sig við óþægan trúnaðarmann með því að borga fé- lagsgjöld hans í nýtt stéttarfélag, en sem bein afleiðing gæti trúnað- armaðurinn ekki lengur starfað sem trúnaðarmaður fyrir sitt gamla félag. Halldór Björnsson hefur látið það álit sitt í ljós að það geti gerst. Hver er hagur verkafólks af framsali á slíkri ákvarðanatöku til atvinnurekenda? Er hér ekki að verða grundvallarbreyting á stöðu verkafólks? Það er fáheyrður viðburður í verkalýðsfélagi að mönnum sé í tugatali vikið úr félagi sem þeir hafa verið aðilar að í áratugi líkt og gerðist með starfsmenn ISAL. Slíkt ber merki þess að breytinga sé þörf og innleiða þurfi nýjan hugsanahátt hjá forustu verkalýðs- félagsins. Höfundur er verkamaður. Athugasemd frá stjórn Aðventsafnað- arins í Hafnarfirði í FRÉTT Morgunblaðsins 13. marz sl. segir að yfirstjórn Aðventsafn- aðarins hafi vikið presti safnaðarins í Hafnarfirði úr starfi vegna sam- starfsörðugleika. I tilefni þeirrar fréttar hefur Morgunblaðið verið beðið að birta eftirfarandi sam- þykkt stjórnar safnaðarins í Hafn- arfirði - sem og ályktun almenns safnaðarfundar Aðventsafnaðarins í Hafnarfirði frá 19. marz sl.: „Við lýstum yfir megnri óánægju með uppsögn prestsins okkar, Steinþórs Þórðarsonar. Okkur finnst að í svo mikilvægu máli hefði átt að hafa samráð við stjóm Hafn- arfjarðarsafnaðar áður en til upp- sagnar kom. Við mótmæltum kröft- uglega þessari uppsögn. Samskipti safnaðar og prests hafa frá upphafi verið mjög góð. Söfnuðurinn hefur unnið hörðum höndum að byggingu safnaðar- heimilis og boðun fagnaðarerindis- ins samtímis því sem unnið var mikið sjálfboðastarf til fjáröflunar. Samheldni og kærleikur hefur einkennt allt safnaðarstarf. Söfnuð- urinn hefur verið í stöðugum vexti eins og sjá má af því að tala safnað- armeðlima hefur meira en tvöfald- ast á þeim sex árum sem liðin eru síðan söfnuðurinn var stofnaður. Safnaðarstarf hefur verið lifandi og virkt sem hefur t.d. komið fram í ýmsum nýjungum. Það má t.d. nefna miðnæturmessu á aðfanga- dagskvöld, samkomu á nýársdag, nýársfagnað og upprisuhátíð. Þar sem nýr söfnuður er að vaxa, ávextir andans sýnilegir, flestir meðlimir nýir og á hverjum hvfld- ardegi þó nokkrir gestir, getum við ekki séð af hverju presturinn okkar er látinn fara. Við erum ávextir þessa starfs. Við sjáum fram á verulega erfiðleika vegna brott- vikningar prestsins okkar og hvernig hana bar að. Börnin okkar eru niðurbrotin, við erum niður- brotin, gestir okkar og meira að Fylgstu með nýjustu fréttum á fréttavef Morgunblaðsins www.mbl.is segja fólk sem hefur verið á nám- skeiðum hringir og skilur ekki neitt í neinu. Við spyi'jum: Er þetta starfi Guðs til framdráttar? Viljum við vinna svona? Steinþór er einn reyndasti út- breiðsluprédikari okkar. Að okkar dómi hefur hann staðið sig frábær- lega vel. Þátttakendur á námskeið- um sem hann hefur haldið hafa skipt hundruðum. Við spyrjum: 1. Hvers vegna fékk presturinn ekki skriflega aðvöi-un áður en hon- um var sagt upp? 2. Af hverju var ekki haft sam- band við stjórn Hafnarfjarðarsafn- aðar áður en til uppsagnar kom? Ekki hefur komið fram að Stein- þór hafi brotið af sér í starfi. Með ákvörðun þessari er unninn mikill skaði á útbreiðslu- og boðunarstarfi Aðventhreyfingarinnar hér á landi. Við samþykkjum ekki að ástæður þær sem taldar eru upp í uppsagn- arbréfi séu nægjanlegar til að taka prestinn frá okkur. Við krefjumst endurskoðunar á þessu máli á þann hátt að viðunandi lausn fáist fyrir söfnuðinn okkar og prest.“ Ályktun safnaðarfundar „Við, meðlimir í Aðventsöfnuðin- um í Hafnarfirði, lýsum yfir hryggð og undrun á þeim vanhugsuðu ákvörðun stjórnar samtakanna að segja fyrirvaralaust upp presti okk- ar, Steinþóri Þórðarsyni, þar sem hann hefur ekki brotið af sér í starfi. Við mótmælum þessu harð- lega. Við mælumst eindregið til þess að ákvörðun þessi verði dregin til baka. Lýsum við því yfir að það er vilji okkar að stjórn safnaðarins skjóti máli þessu að öðrum kosti til æðri stjórnstiga (sbr. safnaðarhandbók, bls. 48, ensk útgáfa), með það fyrir augum að ákvörðun þessari verði hnekkt eða önnur viðunandi lausn fundin í samvinnu við Hafnarfjarð- arsöfnuð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.