Morgunblaðið - 16.04.1998, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 16.04.1998, Qupperneq 46
MORGUNBLAÐIÐ 46 FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1998 MINNINGAR + Eiginmaður mínn, GUÐMUNDUR KR. GUÐMUNDSSON skipstjóri, Miðbraut 4, Seltjarnarnesi, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 14. apríl sl. Oddný Sigtryggsdóttir. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og unnusti, ÞÓRÐUR BJARKAR ÁRELÍUSSON hafnarstjóri, Sandgerði, lést á heimili sínu mánudaginn 13. apríl. Jarðarförin fer fram frá Langholtskirkju þriðju- daginn 21. apríl kl. 13.30. Hilmar Þórðarson, Árelíus Þórðarson, Sesselja Jörgensen, Ragnar G. Þórðarson, Birna Kemp, Ingi Ólafur Þórðarson, Anja Liisa Perdomo, Elsa Hildur Halldórsdóttir og barnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR SÆMUNDSSON f. THORSTEINSON, lést á Landakoti miðvikudaginn 8. apríl sl. Útför hennar verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík á morgun, föstudaginn 17. apríl, kl. 15.00. Helga Jóhannsdóttir, Jón Marinó Samsonarson, Gyða Jóhannsdóttir, Haukur Arnar Viktorsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Faðir okkar, sonur, bróðir og mágur, ÁRNI ÞORKELSSON sjómaður, Skólabraut 6, Hellissandi, lést af slysförum að morgni mánudagsins 13. apríl. Útför hans verður gerð frá Ingjaldshólskirkju laugardaginn 18. apríl kl. 14.00. Þorkell Árnason, Gunnar Þór Árnason, Kolbrún Guðjónsdóttir, Valdimar Einarsson, Þorkell Árnason, Anna Sobolwska, Eygló Anna Þorkelsdóttir, Kristmundur Einarsson. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, JÓNA GÍSLÍNA SIGURÐARDÓTTIR, Bústaðavegi 85, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn 6. apríl sl. Útför Jónu fer fram frá Áskirkju föstudaginn 17. apríl nk. kl. 13.30. Sigurður Brynjólfsson, Guðborg Olgeirsdóttir, Margrét Karlsdóttir, Herbert Svavarsson, Guðmundur Valur Sigurðsson, Ólafía Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við frá- fall elskulegs eiginmanns míns, föður, tengda- föður og afa, GUNNARS N. JÓNSSONAR vélvirkja, Laugarnesvegi 112. Jóhanna Sveinsdóttir, Margrét Gunnarsdóttir, Baldvin Reynisson, Lára I. Ólafsdóttir og barnabörn. EWALD E. BERNDSEN + Ewald Ellert Berndsen fædd- ist á Blönduósi 30. ágúst 1916. Hann lést á sjúkrahúsi Reykjavíkur 8. apríl síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Sigurð- ur Berndsen og Mar- grét Pétursdóttir. Systkini hans voru: Guðný, Pétur (lát- inn), Hermann (lát- inn), Margrét (látin), Brynhildur og Sól- veig. Ewald var tvíkvæntur. Með fyrri konu sinni, Jóhönnu Baldvinsdóttur, eignaðist hann tvo syni, Baldvin og Sigurð. Seinni kona hans var Hulda Knútsdóttir og lifir hún eigin- mann sinn. Þau eignuðust þrjá syni, Ellert Friðrik, Björgvin Ragnar og Birgi Stefán. Barna- börnin voru 13 og eru þau: Baldvin, Jó- hanna, Ragnar, Mar- grét, Ewald, Halla, Kristín, Guðmundur, Stefanía, Jóhann, Sigurður, Davíð og Viðar. Barnabarna- börnin voru þrjú. Ewald stundaði heildverslun á fyrri árum og síðar gerð- ist hann forstöðumaður líknarfé- lagsins Skjaldar, Ránargötu 6 í Reykjavík. Utför Ewalds Berndsen fer fram í dag frá Dómkirkjunni í Reykjavík og hefst athöfnin klukkan 13.30. Sumir menn eru þeirrar ein- stöku gerðar, að þó holskeflur heimsins kaffæri þá á fertugu dýpi um stund þá skýtur þeim upp tví- efldum - og þeir endurríða lífsnet- ið svo þétt að allt umhverfið nýtur ævintýrisins. Slíkur var Lilli Berndsen. Reyndar var æviferill Ewalds Berndsen samfellt ævintýri því- líkra andstæðna, að jafnvel nóbelskáldi væri hugsunin ein of- viða. Gælunafnið eitt sér var þver- sögn; maðurinn var mikill á velli, vel byggður og hafði svo sterka návist að jafnvel í þéttsetnum sal var sem hann sæti þar einn - og þagði þó oftast utan á hann væri yrt; fæddur heimsmaður og hvergi lítill. Lífshlaupið var eins og tón- verk í abstraksjón; skalinn sprengdur upp og niður - öllu kerfl gefið langt nef. Islandsmeist- ari í knattspymu, ungur með fé- lögum sínum; golfmeistari Islands á sínum tíma; bridsmeistari litlu síðar; ryksuga á listir og menningu alla, efnaður athafnamaður með bjarta framtíð og fríða fjölskyldu sér við hlið - og rennir sér svo full- ur á rassinum niður í ystu myrkur mannlegrar óhamingju: utan- garðsmaður, King of the Road. Lilli var fullur lengi. Mörg ár. Þjóðfélagið hafði löngu afskrifað hann og gott ef hann hafði ekki sjálfur afskrifað þjóðfélagið; hold- gervingur Rónans með stórum staf - og mæður af betra standi sögðu unglingum sínum að svona færi ef þeir væru að dandalast úti á kvöld- in og fikta við brennivín. Engir vildu það en gerðu samt - og ekk- ert breyttist. Þar til haustið 1975. Þá gerðist eitthvað - og þjóðfélag- ið stöðvaðist eina andrá: Lilli Bemdsen var hættur að drekka. Ymsir létu segja sér tvisvar. Sögurýnar segja Freeport exó- dus hefjast 1. ágúst 1975, en þann dag leitaði Hilmar heitinn Helga- son sér hjálpar á litla sjúkrahúsinu í Freeport á Long Island. Að visu höfðu tveir landar komið þar við á árum undan, en þeir fóm hljótt - og Hilmar kom heim með Stóra- sannleik í farteskinu og setti upp loftbrú til Ameríku. Vinur okkar fylgdi í spor Binna frænda síns vestur um - og þar með hófst lokakafli ævintýrisins „Lilli Berndsen". Freeportfarar fóra geyst við heimkomu og villtu ekki á sér heimildir; þeir höfðu rifið leikritið vestur í Ameríku og höfðu allt að vinna en engu að tapa - og þjóðin fylgdist með. Komst raunar ekki hjá því. Menn höfðu hátt. Boð- skapurinn var einfaldur: viður- kennum sjúkdóminn umbúðalaust, styðjum sjúka til sjálfshjálpar með fræðslu um eigið ástand - og ávinningurinn er þjóðfélagsins. Steinum var velt, ormar skriðu út og eftirleikinn þekkir þjóðin: fyrst- an Freeportklúbbinn, þá SAA, Vog, Vík, Staðarfell o.s.frv., o.s.frv. Engin auglýsingastofa hefði get- að hannað þá auglýsingu og for- dæmi, sem Lilli Berndsen var þessari hreyfingu. Það eitt að hann gekk reistur og ódrukkinn um stræti sló öll vopn úr höndum úr- tölumanna. Slík var návistin. Vinstrivængjaðir pólitíkusar sem gagnrýndu „bruðl“ heilbrigð- iskerfisins í stuðningi við „hvít- flibbaróna" fengu snögga af- greiðslu hjá Gunnari heitnum Möller, er þá stýrði Sjúkrasamlagi Reykjavíkur, en hann lýsti því yfir í heyrenda hljóði að svo lengi sem Lilli gengi um ódrukkinn greiddi Sjúkrasamlagið Ameríkumeðferð- ir; sú staðreynd sýndi það, ein og sér, að kraftaverk heyi-ðu ekki lið- inni tíð. Olíkt flestum öðram Freeportföram hvarf Lilli ekki til árdagastarfa eftir endurfæðinguna vestra. Hann hafði upplifað þján- inguna, vissi á hverjum eldurinn brann heitast - hvar þörfin var mest. Nú bretti hann upp ermar. Vestra hafði hann kynnst áfanga- heimilum; lausn sem hafði reyndar hvarflað að honum meðan hann lifði utan þjóðfélagsins og verið var að reyna að rétta honum og öðram hjálparhönd með sjúkra- húsvist, afvötnun og smá uppbygg- ingu. Það var ekki að neinu að hverfa þegar þessu fólki var vísað út í kuldann að viku liðinni; ekkert starf, ekkert heimili eða athvarf. Lilli fékk nokkra Freeportfara til liðs við sig, tryggði sér stuðning æskuvinar úr fótboltanum áður, Alberts heitins Guðmundssonar, sem þá sat í borgarstjórn, og leit- aði fylgis Birgis ísleifs borgar- stjóra og Sveins Ragnarssonar fé- lagsmálastjóra - og brátt fóru hjólin að snúast. Á vordögum 1976 sá Líknarfélagið Skjöldur dagsins ljós. Áfangaheimilið á Ránargötu 6 - en það hús var keypt undir starf- semina þetta vor - var í raun ís- brjótur þess starfs sem á eftir fylgdi. Menn sáu dæmið ganga upp undir öruggri handleiðslu Lilla - og eftirleikurinn varð allur auðveldari. Heimilið óx að húsum og virðingu - og ólíklegustu menn hafa gengið þaðan út í þjóðfélagið; ábyrgir skattborgarar, engum skuldugir nema sjálfum sér. Þótt Lilli helgaði rekstri Ránar- götuheimilisins síðustu tvo áratugi ævi sinnar - og tveimur árum bet- ur - kom hann víðar við í áfengis- málum þessara ára. Hann sat und- irbúningshópinn að stofnun SÁA ásamt nokkram þungavigtarmönn- um; sat í aðalstjórn samtakanna í fjölda ára - og lagði öllum góðum málum það lið hann mátti. Hann var stjórnarformaður félags sem lagðist í víking og setti upp stór- huga meðferðarstöð á Lálandi hjá Dönskum. Röng tímasetning, vond fjárhagsráðgjöf og enn verri fjöl- miðlaumfjöllun gekk af þessari til- raun dauðri, en líkið reis upp úr rústunum sem vítamínsprauta fyr- ir AA starf í Danmörku - svo ekki var siglt til einskis. Enda stóð Lilli jafnkeikur sem fyrr - lífið er jú bara skóli. Freeportfélagar sakna í dag vinar í stað. Við Þórann teljum okkur ríkari af vináttunni við Ewald Berndsen síðustu tvo ára- tugi; einstakan persónuleika sem var raunverulegt krydd í íslensku þjóðlífi á seinni hluta þessarar ald- ar, sem brátt er gengin eins og hann. Hugur okkar allra er þó hjá Huldu. Hennar er missirinn mest- ur. Tómas Agnar Tómasson. Þá er hann Lilli horfinn frá okk- ur, enn einn framkvöðullinn fallinn. Lilli Bemdsen var einn af þeim sem stóðu í fylkingarbrjósti og börðust fyrir stofnun SÁA fyrir rúmum 20 árum. Hann var dreng- ur góður, stoð og stytta þeirra sem til hans leituðu. Lilh átti m.a. hug- myndina að því að stofna athvarf fyrir alkóhóhsta undir merkjum Líknarfélagsins Skjaldar. Yfir heimHinu á Ránargötu ríkti hann síðan sem vemdari og hjálpaði fjölda manns að ná aftur tökum á tilverunni eftir langa baráttu við Bakkus. Þeir era ófáir Islending- amir sem geta þakkað Lilla endur- heimta hamingju. Hann var sá bróðir sem allir þurfa á að halda þegar erfiðleikar steðja að. En þó að Lilli sé farinn mun hann lifa í þeim verkum sem hann vann, minnisvörðum um manngæsku og bræðralag. Baráttunni við Bakkus er ekki lokið en Lilli átti þátt í að styrkja þá baráttu með ötulu starfi í þágu SÁA. Vertu sæll bróðir, verk þín munu halda áfram að hjálpa þeim sem þjást. Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann. Hann var margmenni og allir vora þeir í einum og sama líkam- anumu og enginn öðram Hkur. Hann var glæsimennið sem átti engan sinn líka, hann var íþrótta- maðurinn sem allir strákar öfund- uðu um leið og þeir Htu upp til hans, hann var bissnessmaðurinn sem ferðaðist um veröldina í leit að fé og fagnaði, hann var bóka- maðurinn sem gat þulið hið magn- aða leikrit Pétur Gaut á norsku, hann var róninn í strætinu sem manni stóð ógn af þegar þannig lá á honum, hann var sá umbreytti sem vakti stóra furðu því enginn hefði eytt fimmkalli í að veðja á að hann yrði edrú. Hann var síðan í gríni kallaður Nestor fyllibyttn- anna en það var ekkert grín, hann var eiginlega kominn beint úr grískum goðsögnum um foringja Pýlosmanna í umsátrinu um Troju og endaði auðvitað sem vitur öld- ungur. Ewald Berndsen kallaður Lilli lék á okkur alla því hann er nú dá- inn en við héldum að hann yrði ei- lífur. Hann gerði kraftaverk á mönnum götunnar með því að vera til fyrirmyndar og taka í hönd þeirra og sleppa ekki, hann vissi hvað þeim kom og hann hlustaði ekki á bullið í þeim því hann hafði sjálfur verið maður götunnar og var kominn með alla viskuna sem menn öðlast í návígi við rykið í ræsinu, kuldann í kjall- aratröppum húsa eða frostrósir á þóftum báta sem voru þak yfir höfðum þeirra manna sem áttu hvergi heima. Hann var maður þagnarinnar um sjálfan sig og alla sína reynslu, hann var löngu hættur að vera hissa en átti nóg af brosi til að milda sársauka þeirra sem vora enn steinhissa. Hann var óhræddur síðustu dagana en kannski dálítið byrjað- ur að spyrja sjálfan sig um fram- tíð þegar stritið og þessi síðasta barátta við grimman sjúkdóm tæki enda. Eg sagði honum að hvernig sem leikar færu mundi hann sigra, rétt eins og hann hefði alltaf gert í fjölsnúnum leikjum lífsins. Hann brosti þegar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.