Morgunblaðið - 16.04.1998, Síða 56

Morgunblaðið - 16.04.1998, Síða 56
56 FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ Illt er að selja sál fyrir auð ✓ / Akvörðun ríkisstjórnar Islands að af- henda viðkvæmar og persónulegar heilsufarsupplýsingar landsmanna í hendur óviðkomandi aðila í formi einkaleyfis vekur furðu, segir Margrét Þorvaldsddttir. Hún telur brýnt að settar verði reglur um öflun og meðferð persónulegra upplýsinga í heilbrigðiskerfínu. RÍKISSTJÓRN eða stjórn- málamenn (þjónar fólksins) hafa engan rétt til að ráðstafa heilsu- farsupplýsingum almennings til einkaaðila að fólki forspurðu. Læknar eiga heldur ekki að hafa rétt til að ráðstafa upplýsingum sem þeim er trúað fyrir til óvið- komandi aðila. Persónulegum upplýsingum á ekki að vera hægt að ráðstafa á neinn hátt nema samþykki viðkomandi liggi fyrir. Þetta er sett fram að gefnu tilefni. Heilsan er fólki mjög dýrmæt og því er viðkvæmt mál hvernig farið er með þær upplýsingar sem fólki er gert að gefa upp við hinar ýmsu aðstæður. Heilsufarsupplýs- inga hefur verið afiað hér af mik- illi elju af heilbrigðisstofnunum á undanförnum árum. Raunar hefur oft verið komið aftan að fólki við að ná fram mjög persónulegum upplýsingum sem ekki væru gefn- ar upp við venjulegar aðstæður. Við komu á ýmsar heilbrigðis- stofnanir er fólki gert að fylla út heilbrigðisskýrslu áður en þjón- ustan er veitt. Skýrslur þessar hafa oft verið mjög ítarlegar og farið inn á viðkvæm mál, oft langt umfram það sem koma á stofnun- ina gefur tilefni til. Fólk hefur þó látið slíkt yfir sig ganga í þeirri trú að upplýsingarnar færu ekki lengra, enda er oft látið að því liggja að þær séu aðeins formsat- riði. Stundum hefur verið gengið fram af talsverðri hörku við upp- lýsingaöflun. Eg minnist tilviks fyrir um tveim áratugum, er hringt var frá ákveðinni heilbrigð- isstofnum hér í borg og mér til- kynnt að ég ætti að mæta þar í rannsókn á ákveðnum uppgefnum tíma. „Koma hvað?“ Ég sagðist ekki hafa pantað neina rannsókn hjá þessari stofnun. Kvenröddin í símanum tilkynnti mér með tals- verðri mekt að mér bæri að koma vegna þess að minn árgangur hefði verið valinn til rannsóknar. Ég bað forláts og sagðist ekkert erindi eiga á staðinn. Þegar kraf- ist var skýringa sagði ég einfald- lega að ekkert amaði að mér! Þegar svo á síðasta á ári leika átti svipaðan leik, brást ég hin versta við. Þá hafði framhalds- skólanemi verið fenginn til að hringja og fara fram á þátttöku í rannsókn sem byggð var á upplýs- ingum, sem gefnar höfðu verið á heilbrigðisstofnun og voru komn- ar í hendur óviðkomandi aðila, án þess að leitað hefði verið leyfis. Án efa taka margir aðilar þátt í hinum ýmsu rannsóknum í nafni vísinda og jafnvel alls mannkyns- ins af áhuga og ánægju og er það hið besta mál. En svo eru aðrir sem kæra sig ekkert um slíkt né að þeirra málum sé flíkað að þeim forspurðum, enda hefur hvergi komið fram hvemig tryggja eigi rétt fólks til verndunar trúnaðar- upplýsinga. Heilbrigðisáðherra hefur sagt að ef handhafar gagnagrunns ger- ist brotlegir verði leyfíð tekið af þeim. Slík fullyrðing er varla raunhæf. Ef kvörtun yrði lögð fram væri það vegna þess að við- kvæmar upplýsinga hefðu lekið út. Fólki yrði þá gert að leggja fram rök fyrir kvörtuninni og yrði það varla gert nema með því að opinbera þessi viðkvæmu mál. Hver myndi kæra sig um slíkt? Líti hver í eigin barm. Hvort sem síðustu atburðir, þ.e. tilraun til að láta heilsufarsupp- lýsingar landsmanna í hendur óviðkomandi aðila, verður að veruleika eða ekki, kallar þetta „upphlaup“ á uppstokkun í sam- skiptum almennings við lækna og heilbrigðiskerflð. Reglur verða að vera skýrar. Á heilbrigðisstofnun- um þarf að vera til staðar plagg, undirritað frá viðkomandi stofn- un, þar sem fram kemur að upp- lýsingar sem fólk lætur læknum eða öðru starfsfólki í té fari ekki í hendur utanaðkomandi aðila nema með skriflegu leyfi viðkom- andi. Þessar reglur þurfa að vera lögfestar svo einstaklingar geti leitað réttar síns telji hann á sér brotið. Hvað varðar þær upplýsingar sem nú þegar eru til staðar í heil- brigðiskerfinu, þá eiga sömu regl- ur að gilda þar líka þ.e. að engar upplýsingar fari út af stofnunum eða í hendur óviðkomandi aðila án skriflegs samþykkis viðkomandi einstaklinga. Nú, þegar erlend tryggingafé- lög eru farin að leita fyrir sér með viðskiptavini hér á landi, verða all- ar upplýsingar um heilsufar þeirra og ættarsögu verðmæt söluvara, í viðleitni til að sneiða hjá „óæskilegum", kostnaðarsöm- um viðskiptavinum. Persónulegar upplýsingar gætu því orðið þeim aðilum sem ráða yfir slíkum upp- lýsingum, drjúg tekjulind. Það er ekki rétt sem haldið hef- ur verið fram að slíkar persónu- upplýsingar hafi ekki verið mis- notaðar. í erlendum blöðum og tímaritum hafa ítrekað birst grein- ar um þessa þróun, fólki hefur ver- ið gert að fara í genapróf og einnig hefur fólki verið neitað um trygg- ingar vegna þess að hjá þeim leyn- ist brenglað gen sem gæti e.t.v. leitt til krabbameins eða annarra sjúkdóma síðar á lífsleiðinni. Það skýtur skökku við að ríkis- stjóm, sem talar fjálglega um frelsi einstaklingsins, skuli tala fyrir einokun sem gæti reynst þjóðinni fjötrar, ekki aðeins þess- ari kynslóð heldur einnig framtíð- arkynslóðum. Þetta á sér stað í landi þar sem varla má velta við steini nema að undangengnu ítar- legu umhverfismati þar sem fjöl- margir aðilar eru kallaðir til að skoða málin frá öllum hliðum áður en ákvörðum er tekin. Ef þetta mál kemur til umræðu á þingi, verðum við, almenningur í landinu, að geta treyst á siðferðis- legan styrk þingmanna hvar í flokki sem þeir standa. Þingið er okkar brimvöm. Treysta verður því að þingmenn gæti þess að réttarstaða almennings sé tryggð og að lög sem tryggja eiga þennan rétt séu til staðar og verði virt. Höfundur er blaðamaður. I DAG VELVAKANPI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Þakklæti til Ágústs og Bjarna Ara á Aðalstöðinni GUÐRÚN hafði samband við Velvakanda og vildi hún koma á framfæri þakklæti sínu til þeirra fé- laganna Bjarna Ára á Að- alstöðinni og Ágústs Magnússonar sem var á Aðalstöðinni. Segist hún sakna Ágústs mikið og vill að hann komi aftur. Einnig segir hún að lagaval Bjarna Ara sé alveg frá- bært. Hún vill hvetja alla aðra aðdáendur Ágústs til að láta skoðun sína i ljós. Foreldrar, börn og áfengi LÍTIL saga frá Sviþjóð. Þrettán ára stúlka kemur heim úr skóla og segir móður sinni að börnin í bekknum hafi verið spurð um áfengisneyslu sína: „Og hvað sagðir þú?“ spyr móðirin. Ég sagði eins og satt er að ég hefði tvisvar drukkið áfengi" svarar telpan. Þá er eins og móðirin átti sig ekki á þessari skýrslu svo telpan bætir við: „Þegar ég stalst í glasið hans pabba og þegar við villtumst á glösunum svo ég saup á víninu þínu í staðinn fyrir ávaxtasafann minn.“ Lítil saga en mætti vera til umhugsunar. En í sambandi vikð áfengisneyslu barna, sem öllum ofbýður að mér virð- ist, minnist ég þess sem Jónas Hallgrímsson kvað um þorskinn: Hvað mundi hugsa þessi þorri þiljusemaðundirvorri háskatólin hremma fer? Þótt þeir sjái, séu dregnir synir þeirra beitu fegnir gamlir þorskar gleyma sér. Fátt einkennir nú um stundir áfengismálin á Is- landi betur en þetta: „Gamlir þorskar gleyma Sér“' H.Kr. Tapað/fundið Drengjaúr í óskilum DRENGJAÚR fannst við æfingadeild kennarahá- skólans á miðvikudag í sl. viku. Uppl. í síma 553 5997 eftir kl. 17. Poki týndist við Laugarnesveg RÓSÓTTUR poki með hálfprjónuðum vettlingi í týndist við Laugamesveg og á leið að Skjóli. Skilvís finnandi hafi samband í síma 568 5876. Hálsmen týndist í miðbænum HÁLSMEN týndist í mið- bæ Reykjavíkur miðviku- daginn 8. apríl síðdegis. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 552 8593. Fundarlaun. Brúnt seðlaveski týndist í miðbænum BRÚNT leðurveski með gylltri áletrun inm', týndist um páskana, sennilega í miðbænum. Skilvís finn- andi hafi samband í sima 557 6515. Fundarlaun. Lyklakippa í óskilum 2 UNGAR stúlkur fundu í nágrénni Fífuhvammsveg- ar í Kópavogi lyklakippu sem á eru 2 lyklar. Á kipp- unni er nokkurs konar bein. Upplýsingar í síma 554 6184. Dýrahald Gulbröndóttur högni týndur GULBRÖNDÓTTUR högni týndist frá Laufás- vegi 5. apríl. Hann er eyrnamerktin- F-7H128. Þeir sem hafa séð hann hafi samband í síma 552 5064. Fundarlaun. Ormur leitar að fósturheimili ORMUR sem er ll/> árs norskur skógarköttur leit- ar eftir fósturheimili til haustsins vegna ferðalags eiganda. Ormur er inni- köttur. Upplýsingar í síma 551 9870. Páfagaukur í óskilum í Kópavogi PÁFAGAUKUR, hvítur með bláu í stéli, er í óskilum í Hlíðarhjalla í Kópavogi. Fuglinn er bú- inn að vera þar í rúma viku. Þeir sem kannast við fuglinn hafi samband í síma 554 4062. SKÁK bmsjón Margeir Pétursson STAÐAN kom upp á Hoogovensmótinu í Hollandi í janúar. Rússinn Vladúnir Kramnik (2.790) hafði hvítt og átti leik gegn heimamanninum Paul Van der Sterren (2.555). 32. Rxe5! og svartur gafst upp, því 32. - Hxcl 33. Rf7+ er vonlaust. Besta tilraunin er 32. - Bxd5, en eft- ir 33. exd5 - fxe5 34. Hxc5 - bxc5 35. Dxe5 er hann peði undir og stað- an ein rjúkandi rúst. Það stendur nú til að þeir Kramnik og Aleksei Shirov tefli einvígi á Spáni í maí um áskorun- arréttinn á Gary Kasp- arov, stigahæsta skák- mann heims og heims- meistara eigin atvinnu- mannasamtaka. Shirov, sem varð annar í Linares um daginn, kom í stað An- ands, sem vildi standa við samning sinn við FIDE um að tefla ekki í heims- meistarakeppni annarra samtaka. HÖGNI HREKKVÍSI »S</artur dcxgar fiyrir fóocígers oq //amnnersíej/a,." Víkverji skrifar... LESANDI Morgunblaðsins á Skeiðum skrifaði ritstjóra blaðsins bréf, þar sem lýst er póst- samgöngum á íslandi á árinu 1998. Bréf lesandans er svohljóðandi: ,;Ágæti ritstjóri. I dag, þriðjudag 14. apríl, síðdeg- is, var að berast til okkar, hér á Skeiðum, póstur frá fimmtudegin- um 9. aprfl. Þessi póstur er orðinn ansi gamall en upplýsingar um fermingar sem fóru fram um páska voru auglýstar í þessu blaði. Undanfarnar helgar hafa ferm- ingaupplýsingar verið í blöðum sem komið hafa hér eftir helgi svo það er ekki fyrir landsbyggðarfólkið sem þessar upplýsingar eru í blað- inu. Þetta er ef til vill angi af stærra máli. Pósturinn er ekki borinn út nema þrisvar í viku og það síðdegis hjá okkur. Þannig að við sitjum ekki við sama borð og aðrir hvað auglýsingar varðar. Það er ekki gott fyrir okkur að hringja eftir auglýsingu í þriðjudagsblaði þegar blaðið kemur á miðvikudagskvöld eftir lokun fyrirtækja. Ég tek bara dæmi af Morgun- blaðinu, en allar rukkanir og póstur sem maður þarf að standa skil á á ákveðnum tíma lendir í þessu líka Við munum kunna vel að meta þegar Morgunblaðið gerir kröfu um betri póstútburð á landsbyggðinni. Skeiðin eru í Ámessýslu og hafa hingað til ekki verði talin afskekkt, en svona er þjónustan við okkur. Virðingafyllst, Valgerður Auðunsdóttir.“ xxx GEÐBRIGÐI í skapi rússneskra stjómmálamanna em ekki minni en veðrabrigði geta verið nú á þessum síðustu og verstu tímum E1 Ninjo hafstraumsins í Kyrra- hafi, sem kennt er um allt óvenju- legt, sem gerist á sviðið veðurfræði. Skemmst er að minnast geðbrigða Borís Jeltsíns, forseta Rússa, er hann rak alla ríkisstjórnina í einu vetfangi og stjómmálamennimir kysstu á vöndinn og létu sér gott þykja, samanber forsætisráðherr- ann. Um helgina gerðist það svo að aUt í einu tók að snjóa þvert gegn veðurspám, sem Veðurstofa Rúss- lands hafði gefið út. Varð kafalds- snjór, sem olli því að menn þurftu um miðjan apríl að fara að moka snjó af götum Moskvuborgar. Á sunnudag var jafnfallinn snjór í Moskvu 16 sentímetrar og fulltrúi borgarstjóra Moskvu, Júrís Lúsjkov, sem er einn þeirra, sem þykja líklegir að bjóða sig fram til forsetaframboðs árið 2000, varð öskuillur út í Veðurstofuna og hót- aði að stofna eigin veðurstofu ef slíkar falspár endurtækju sig. Tal- aði hann um að stofna veðurstofu Moskvuborgar. Rússneskir veðurfræðingar báru hönd fyrir höfuð sér og bentu á að þetta „páskahret“ hefði komið fleiri veðurstofum að óvörum en Veður- stofu Rússlands, en veðrið, sem gekk yfir olli m.a. miklum umferð- artöfum í Frakklandi og flóðum á Englandi. En hvað um það, fulltrúi borgar- stjórans í Moskvu vill góðar veður- spár og ekkert annað!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.