Morgunblaðið - 19.05.1998, Side 1
120 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
111. TBL. 86. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR19. MAÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Indónesíuher virðist hafa
tekið afstöðu með Suharto
Otti um blóðbað beiti hann sér gegn fjöldamótmælum á morgun
Reuters
UM 5.000 námsmenn söfnuðust saman úti fyrir þinghúsinu í Jakarta í gær og nokkur hundruð þeirra fóru inn
í húsið þar sem þeir skoruðu á þingmenn að neyða Suharto til afsagnar. Höfðust hermennirnir ekkert að en
óttast er, að annað geti orðið uppi á teningnum á morgun.
YFIRMAÐUR indónesíska herafl-
ans vísaði í gær á bug áskorun for-
seta þingsins um að Suharto, for-
seti Indónesíu, segði af sér. Sagði
hann, að forsetanum bæri skylda
til að hafa forystu um þær umbæt-
ur, sem nauðsynlegar væni. Ottast
er, að yfirlýsingin gefi til kynna, að
herinn ætli að snúast gegn almenn-
ingi og þeim borgaralegu samtök-
um, sem krafist hafa afsagnar
Suhartos.
Wiranto hershöfðingi og yfir-
maður hersins sagði, að Harmoko,
forseti þingsins, hefði ekki haft
neitt lagalegt umboð er hann
krafðist afsagnar forsetans í gær
og því hefði hann aðeins talað sem
einstaklingur. Sagði hann, að her-
inn vildi koma á fót samstarfsráð-
um með námsmönnum og öðrum
gagnrýnendum en Suharto bæri
sem forseta að leiða þjóðina í gegn-
um þessa erfiðu tíma.
Lætur Suharto í sér heyra?
Moetojib, yfirmaður indónesísku
leyniþjónustunnar, sagði í gær, að
Suharto væri „rólegur" þrátt fyrir
allt, sem á hefði gengið, og ætlaði
að ræða opinberlega um ástandið í
landinu í dag.
Amien Rais, leiðtogi 28 milljóna
múslima, hvatti í gær til fjöldamót-
mæla um land allt á morgun en
Wiranto skoraði á fólk að halda sig
heima. Óttast margir, að mótmælin
geti breyst í mikið blóðbað, einkum
ef herinn hefur tekið ákveðna af-
stöðu með Suharto.
BANDARIKIN og Evrópusam-
bandið, ESB, hafa náð samning-
um, sem koma í veg fyrir banda-
rískar refsiaðgerðir vegna við-
skipta við íran, Líbjhi og Kúbu.
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, hvatti í gær til, að múrarnir,
sem girtu fyrir frjáls viðskipti
með landbúnaðarafurðir og aðra
vöru, yrðu „rifnir niður“.
Clinton sagði í London í gær,
að fallist hefði verið á að hætta
hótunum um refsiaðgerðir þegar
ESB féllst á að vinna að því, að
íranir kæmu sér ekki upp ger-
eyðingarvopnum og reyndi jafn-
framt að hindra, að evrópsk fyrir-
tæki fjárfestu í eignum eða fyrir-
tækjum, sem Kúbustjórn hefði á
sínum tíma tekið af Banda-
ríkjamönnum bótalaust. Sagði
Clinton, að með þessum samningi
Suharto hét því á laugardag að
stokka upp í stjórninni til að
greiða fyrir umbótum í stjóm- og
efnahagsmálum en fæstir telja, að
slík uppstokkun breyti einhverju
um vaxandi kröfur um afsögn
hans.
hefði verið rutt úr vegi einu helsta
ágreiningsefni Bandaríkjanna og
Evrópu.
Castro hlýddi
á Clinton
Heimsviðskiptastofnunin eða
fyrirrennari hennar, GATT, er 50
ára um þessar mundir og í tilefni
af því flutti Clinton ræðu þar sem
hann hvatti til frjálsra viðskipta á
öllum sviðum og ekki síst með
landbúnaðarvöru. Jafnframt bauð
hann til nýrrar, alþjóðlegrar ráð-
stefnu um þessi mál í Bandaríkj-
unum á næsta ári.
Fidel Castro, forseti Kúbu, var
viðstaddur ræðuna en við komuna
til Genfar sagðist hann vera
reiðubúinn til að heilsa Clinton
með handabandi. Ekki varð þó af
því, að þeir hittust.
Áskorun Harmokos um afsögn
Suhartos var fagnað meðal náms-
manna og hann sagði einnig, að
sem forseti þingsins hefði hann
kvatt það saman til skyndifundar í
dag til að ræða þessi mál og
hugsanlega afsögn forsetans.
Klökknaði eftir
þrumuræðu
HELMUT Kohl, kanslari Þýska-
lands, flutti eina mikilvægustu
ræðu á ferli sínum í gær á flokks-
þingi kristilegra demókrata í
Bremen og ef marka má undir-
tektir samflokksmanna hans tókst
honum vel upp. Klöppuðu þeir
fyrir honum í tíu mfnútur að
ræðunni lokinni og voru fagnað-
arlætin svo mikil, að Kohl komst
við. Þingkosningar verða í Þýska-
landi í september og skoðana-
kannanir sýna, að Gerhard
Schröder, kanslaraefni jafnaðar-
manna, hefur gott forskot á Kohl.
Því reið á miklu fyrir kanslarann
að sýna allt sitt besta í ræðunni
og honum virðist hafa tekist það.
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, skoraði í gær á indónesíska
herinn að sýna stillingu og hvatti
jafnframt stjómvöld til að leyfa
lýðræðislegar umræður um
umbætur í stjómmálum og
efnahagsmálum landsins.
BANDARISKA dómsmálaráðuneytið
og 20 ríki í Bandaríkjunum hafa
formlega höfðað mál á hendur hug-
búnaðarrisanum Mierosoft og er fyr-
irtækinu gefið að sök að hafa brotið
lög um einokun og hringamyndun.
Líklegt er talið, að málareksturinn
gegn Microsoft verði sá mesti, sem
um getur, gegn fyrirtæki í Bandai'íkj-
unum en sakargiftimar eru þær, að
það hafi beitt fyrir sig Windows-stýri-
kerfinu til að neyða tölvuframleiðend-
ur til að nota netvafrann frá
Daufar
horfur í
Mið-Aust-
urlöndum
Jerúsalem, London. Reuters.
BENJÁMIN Netanyahu, forsætis-
ráðherra Israels, bar í gær til baka
fréttir ísraelska útvarpsins þess
efnis að hann hefði fallist á tillögu
Bandaríkjamanna um afsal 13%
lands til viðbótar á Vesturbakkan-
um í hendur Palestínumönnum.
Netanyahu kom í gær heim úr för
sinni til Bandaríkjanna, þar sem
hann ræddi m.a. við Madeleine Al-
bright, utanríkisráðherra.
„Þetta er ekki satt,“ sagði Net-
anyahu á blaðamannafundi í gær
um frétt þess efnis að hann hefði
sæst á afhendingu 13% að þessu
sinni. Hann sagði að náðst hefði
„takmarkaður árangur á nokkram
sviðum" á fundum sínum með Al-
bright. „Það hafa ýmsar hugmynd-
ir komið upp, en ég held að það sé
ekki tímabært að tala um lausn,“
sagði hann án þess að útskýra nán-
ar hvað hann átti við.
I London átti Albright óvæntan
fund í gær með Yasser Arafat, for-
seta heimastjórnar Palestínu-
manna, en þar urðu engin þáttaskil
í tilraunum til að koma friðaram-
leitunum fyrir botni Miðjarðarhafs
af stað, en þær hafa legið niðri frá
því í mars í fyrra. Talsmaður utan-
ríkisráðuneytisins sagði að Al-
bright hefði gefið Arafat skýrslu
um fundi hennar með Netanyahu í
Bandaríkjunum.
Bera fyrir sig öryggissjónarmið
Bandaríkjamenn reyna nú að fá
ísraela til að samþykkja afsal 13%
lands á Vesturbakkanum til viðbót-
ar því sem þeir hafa þegar afhent
Palestínumönnum. Arafat hefur
sæst á tillögu Bandaríkjamanna,
en upphaflega höfðu Palestínu-
menn krafist þess að fá allt að 30%
í viðbót afhent nú. Israelsstjóm
segir að ekki sé hægt að fallast á
tillögu Bandaríkjamanna, því verði
henni framfylgt sé öryggi Israels-
ríkis stefnt í voða.
Palestínumenn gera kröfu til
næstum því alls Vesturbakkans, en
þar hyggjast þeir stofna sjálfstætt
ríki sitt. ísraelar hafa enn sem
komið er sæst á að afhenda þeim
27% af umræddu svæði, en aðeins
um 3% eru algerlega undir yfirráð-
um Palestínumanna nú.
Microsoft. Er þess krafist, að fyrir-
tækið hætti því og bæti það Intemet
Explorer-vafranum við Windows-
kerfið verði það einnig að láta vafr-
ann frá keppinautinum, Netscape,
fylgja með.
Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna,
sagði í London í gær, að hér væri
ekki um neitt smámál að ræða, heldur
gæti það beinlínis haft áhiif á banda-
rískt efnahagslíf. Hann kvaðst hins
vegar bera fullt traust til dómsmála-
ráðuneytisins.
Söguleg sátt með Bandaríkjumim og ESB
Hætta að hóta
efnahagslegum
refsiaðgerðum
London, Genf. Reuters.
Reuters
Microsoft ákært
fyrir einokun
Washington, London. Reuters.