Morgunblaðið - 19.05.1998, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 19.05.1998, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998 5 7 FRÉTTIR Baula stendur fyr- ir raddnámskeiði í KRAMHÚSINU, Skólavörðustíg 12, stendur raddspunahóp- . urinn Baula fjrir ' raddnámskeiði með ( argentínsku listakon- I unni Kozönu Lucca dagana 21. maí kl. 14- 18, 22. maí kl. 20-23, 23. maí kl. 14-19 og 24. maí kl. 14-18. Námskeiðið er fyrir alla þá sem vilja vinna með röddina sína í leik eða starfi. A námskeiðinu skiptast á / hópvinna og einstak- ' lingsvinna með virkri í þátttöku hópsins. I I kynningu segir m.a., að Kozana sé fjölhæf listakona sem láti ekki starfsgreinaheiti eins og leikari, söngvari, myndlistar- maður, leikstjóri... stöðva sig: Hún gerir þetta einfaldlega allt eftir þörfum og vinnur gjaman með fólki úr ólíkum greinum við að skapa og rannsaka nýjar leiðir. Roy Heart Theater er alþjóðlegur leikhópur sem þekktur er fyrir rannsóknir sínar á þessu sviði. Kozana er einn af stofnendum leikhóps- ins og viðhorf hans til raddarinnar eru sá grunnur sem hún byggir á. Verð á námskeiðið er 1.500 kr. og upplýsingar er hægt að fá hjá Kristjáni Helgasyni og Guðnýu Maríu. Málefni grunnskólans í Kópavogi FORELDRARÁÐ gi-unnskólanna í Kópavogi gangast fyrir opnum fundi um málefni grunnskólans. Fundurinn verður haldinn í Félagsheimili Kópa- vogs miðvikudaginn 20. maí Id. 20.30. A fundinum munu fulltrúar allra framboðslista til bæjarstjórnar gera grein fyrir stefnu sinni og hugmynd- um í málefnum grunnskólans, t. a. m. varðandi fjölda í bekkjardeildum, heilsdagsskóla, mötuneytismál, for- varnastarf og annað það er grunn- skólanum tengist. Ætlunin er að stærstum hluta fundartímans verði varið í almennar umræður og gefst fundarmönnum þá kostur á því að bera upp fyrirspurnir, sem tengjast fundarefninu. ------4-«-«--- Opinn fundur um skólamál í Hafnarfírði Kozana Lucca ( ( I < ( I ( < < < ( ( i ( ( ( : ( Gegn vímuefnum ÓLAFUR Örn Haraldsson, alþing- ismaður, hefur að undanförnu staðið fyrir opnum hádegisverðar- fundum um málefni sem eru ofar- lega á baugi. Miðvikudaginn 20. maí kl. 12-13.30 verður fundur á Hótel Borg með yfirskriftinni: Gegn vímuefnum, segir í fréttatil- kynningu. A fundinum á Hótel Borg er sjónum fyrst og fremst beint að forvörnum og fyrirlesarar fengnir frá ýmsum þeim aðilum sem nú berjast gegn vímuefnum. Framsögumenn verða: Árni Ein- arsson, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar í fíknivömum, Áslaug Þórarinsdóttir, Vímulaus æska, Haraldur Finnsson, skóla- stjóri Réttarholtsskóla, Steinunn V. Óskarsdóttir, borgarfulltrúi og Hildur Sverrisdóttir, Jafningja- fræðsla. Hádegisverður 1.100 kr. FORELDRARÁÐ Hafnarfjarðar stendur fyrir opnum fundi um skólamál með fulltrúum allra fram- boðslista til komandi bæjarstjórnar- kosninga í Hafnarfirði. Fundurinn verður haldinn í Álfafelli í Iþrótta- húsinu við Strandgötu þriðjudaginn 19. maí kl. 20 og hefst með því að for- maður Foreldraráðs Hafnarfjarðar afhendir árlega viðurkenningu ráðs- ins þeim aðila sem unnið hefur hafn- firskri æsku vel. Fulltrúar framboðslistanna og for- eldrafélaga við sex grunnskóla í Hafnarfirði segja frá hugmyndum sínum um framtíð grunnskólans. Fundinum lýkur með fyrirspurnum og almennum umræðum. Úr dagbók lögreglunnar 15. til 18. maí 1998 A fímmta tug manna í fang*a geymslum um helgina NOKKURT annríki var hjá lög- reglu þessa helgi. Á fimmta tug gistu fangageymslur um helgina, flestir vegna ölvunar og afbrota en einhverjir vegna þess að þeir höfðu ekkert annað húsaskjól. Slíkum gistingum hefur þó fækkað verulega hjá lögreglu á undanförn- um árum. Umferðarmál eru fyrir- ferðarmikil í verkefnalista lögi'egl- unnai1 þessa helgina eins og oft er á vorhelgum. Fjölmennt lið lög- reglu hefur verið í ýmsum störfum vegna heimsóknar Margrétar Þór- hildar Danadrottningar. Innbrot - þjófnaðir - skemmdarverk Á föstudag var lögreglu tilkynnt að stolið hefði verið skartgripum úr verslun í austurborginni. Eink- um voru það karlagullhringir og er áætlað verðmæti þeirra á þriðja hundrað þúsund. Verði borgurum boðnir slíkir hringir svo grun- semdir veki eru þeir vinsamlega beðnir að koma upplýsingum til lögreglu. Skömmu eftir miðnætti á laug- ardag var brotin rúða í banka í austurborginni. Ekki náðist skemmdarvargurinn en starfs- menn gerðu viðeigandi ráðstafan- ir. Annar skemmdai'vargur var handtekinn aðfaranótt laugardags, eftir að hafa brotið rúðu á Lauga- vegi. Maðurinn var vistaður í fangageymslu. Karlmaður var handtekinn eftir að hafa brotið rúðu í ökutæki í miðbænum. Hann skarst á hendi við athæfi sitt og varð að flytja hann á slysadeild til aðhlynningar. Lögreglu var tilkynnt um inn- brot í ökutæki í Grafarvogi. Úr ökutækinu var stolið nokkrum verðmætum, meðal annai;s geisla- spilara og geisladiskum. Ökutækið var ólæst og pappaspjald í hliðar- glugga. Enn á ný vill lögreglan brýna það fyrir borgurum að ganga tryggilega frá verðmætum hlutum og ekki bjóða þjófum óþ- ai’fa tækifæri til að stela annarra eigum. Fjórir piltar um tvítugt voru handteknir við Hlemm eftir að hafa unnið skemmdir á fjórum ökutækjum í hverfínu. Einn pilt- anna veittist að lögi’eglumönnum við handtökuna en þrír voru vistaðir í fangageymslu. Karlmaður var handtekinn á sunnudag eftir að hafa brotið rúðu í verslun við Laugaveg. Hann er einnig grunaður um að hafa unnið skemmdir á ökutæki í miðbænum. Hann var vistaður í fangageymslu. Þá var lögreglu tilkynnt um að brotist hefði verið inn í sumarhús við Hafravatn og húsmunum stolið. Líkamsmeiðingar - fíkniefnamál Á föstudagskvöld kom til átaka milli fyrrum sambýlinga. Karl- maður veitti konu nokkra áverka auk þess að fjarlægja árs gamalt barn þeirra á brott. Á leið hans af heimili konunnar vann hann síðan skemmdir á ökutæki hennar. Karl- maðurinn yfirgaf vettvang án þess að taka barn þeirra með en hringdi til lögreglu og kom sjálfur á lögreglustöð. Vert er að benda einstaklingum sem beita ofbeldi á nýlegt meðferðarúrræði sem hefur tekið til starfa og er hægt að leita upplýsinga í síma 570-4000. Fleiri slík tilvik komu til úrlausnar lög- reglu um helgina þar sem sam- skiptum náinna einstaklinga lauk með ofbeldisbeitingu. Undir morgunn á laugardag gaf karlmaður sig á tal við lögreglu í miðborginni og kvaðst hafa orðið fyrir árás. Hann var blóðugur á hendi og kenndi sér einnig meins á fæti. Hann aíþakkaði að leita sér aðstoðar á slysadeild en var ekið heim af lögreglu. Ekki er ljóst um árásarmann. Um svipað leyti réðust þrír menn að tveimur sem voru á gangi í bænum. Báðir árás- arþola hlutu áverka á andliti og voru fluttir á slysadeild. Árásar- menn flúðu brotavettvang á ökutæki en voru handteknir af lö- geglu skömmu síðar. Þeir voru all- ir fluttir til vistunar í Hótel Stein, en ökumaðurinn er einnig grunað- ur um ölvun. Á laugardag var voru þrír piltar um tvítugt handteknir og fundust á þeim ætluð fikniefni. Þeir voru fluttir í fangageymslu. Að morgni sunnudags var lö- geglu tilkynnt að ráðist hefði verið á kai’lmann á Tryggvagötu. Mað- urinn var fluttur á slysadeild en hann hafðþhlotið áverka í andliti og víðar. Árásarmaður er ófund- inn. U mfer ðarmálefni Um hádegi á laugardag var árekstur tveggja ökutækja á Kalkofnsvegi. Báðir ökumenn og þrír farþegar sem allir voru börn kenndu til eymsla og ætluðu að leita aðstoðar á slysadeild. 13 öku- menn voru stöðvaðir vegna gi’uns um ölvun við akstur. Einn þeirra sinnti ekki stöðvunarmerkjum lög- reglu og varð úr eftirför í Mos- fellsbæ og næsta nágrenni. Öku- maðurinn var fluttur á lögreglu- stöð. Snemma að morgni sunnudags var ökutæki ekið upp á umferð- areyju og á umferðarmerki á Frí- kirkjuvegi við Sóleyjargötu. Tveir menn sáust síðan hlaupa brott af vettvangi en það náðist að hand- sama annan þeirra og flytja á lög- reglustöð. í ljós kom að bifreiðinni hafði verið stolið skömmu áður úr Þingholtunum. Um miðjan dag á sunnudag varð árekstur á Vesturlandsvegi við Víkurveg er fimm ökutæki skullu saman. Ökumaður úr einu ökutæki og farþegar úr öðru fóru sjálfir á slysadeild en eignatjón var mikið og varð að flytja þrjú ökutæki brott með kranabifreið. Námskeið í upp- lýsingamiðlun ATVINNU- og ferðamálastofa Reykjavíkurborgar stendur, nú í maí, fyrir þremur stuttum nám- skeiðum fyrir starfsfólk í ferðaþjón- ustu. Námskeiðin verða með svipuðu sniði og námskeið sl. vor sem þóttu gefa góða raun en alls tóku um 160 manns þátt í þeim, seg- ir í fréttatilkynningu. Ennfremur segir: „Markmið námskeiðanna er að bæta upplýs- ingamiðlun til ferðamanna í borg- inni, en í könnun sem Atvinnu- og ferðamálanefnd gerði sumarið 1996 kom í ljós að ferðamenn afla sér upplýsinga mjög víða s.s. á hótel- um, í verslunum, á veitingastöðum, hjá leigubifreiðastjórum og víðar. Jafnframt kvörtuðu ýmsir í þeirri könnun yfir að erfitt væri að afla upplýsinga. Á námskeiðinu verður kynnt í stuttu máli starfsemi menningarstofnana í borginni. Upplýsingamiðstöðvar ferðmála, möguleikar til afjireyingar, verslun o.fl. Auk þess fá þátttakendur lista með viðburðum sumarsins og annað hagnýtt kynningarefni. Alls verða haldin þrjú námskeið sem ætla má að standi í 2-3 klst. og verður dagskrá sú sama á þeim öll- um. Þátttakendur geta valið milli eftirtaldra tímasetninga: 19. maí kl. 14, 26. maí kl. 9 og 28. maí kl. 14. Námskeiðin verða haldin á Korn- hlöðuloftinu, Bankastræti 2 (fyrir ofan Upplýsingamiðstöð ferðamála) og eru þátttakendum að kostnaðar- lausu.“ Sumarstarfíð hafíð í söfnunum í Nesi LÆKNINGAMINJASAFNIÐ í Nesstofu og Lyfjafræðisafnið hófu sumarstarfsemi sína laugardaginn 16. maí og verða bæði opin fjórum sinnum í viku í sumar, á sunnudög- um, þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum milli kl. 13 og 17. Söfnin munu einnig opna sali sína áhugamannahópum á öðrum tímum ef um er beðið. Söfnin standa hvorf hjá öðru við Neströð á Seltjarnar- nesi. I Lyfjafræðisafninu má sjá muni og minjar úr íslenskum apótekum frá upphafi þessarar aldar fram til okkar daga og skoða hvernig lyfja- gerð var háttað enn lengra aftur í tímann. Lækningjaminjasafnið er til húsa í Nesstofu, sem er eitt af elstu steinhúsum landsins, reist á árun- um 1761-1763 fyrir fyrsta landlækni íslendinga, Bjarna Pálsson. Þar gefur að líta muni sem tengjast sögu heilbrigðismála á íslandi síð- ustu aldirnar. Barnfðstrunám- skeið í Kópavogi RAUÐAKROSSDEILD Kópavogs stendur fyrir tveimur barnfóstr- unámskeiðum og er hvort nám- skeið 16 kennslustundir. Fyrra námsskeiðið er dagana 22.-29. maí, en hið síðara 23.-30. maí. Nám- skeiðin eru ætluð 11-14 ára ung- lingum og er markmiðið að þátt- takendur fræðist um börn og um- hverfi þeirra og öðlist þannig aukið öryggi við barngæslu. Fjallað er um æskilega eigin- leika barnfóstru, þroska barna, leikfangaval, mikilvægi fæðuteg- unda, matarhætti, aðhlynningu ungbarna, pelagjöf, slys í heima- húsum, veikindi og skyndihjálp. Upplýsingar um þessi námskeið og skráning eru hjá Rauða ki’ossi íslands, Efstaleiti 9. Dagbók Í|^Ö|J Háskóla íslands DAGBÓK Háskóla íslands 18. til 23. maí. Ailt áhugafólk er velkomið á fyr- irlestra í boði Háskóla Islands. Dag- bókin er uppfærð reglulega á heima- síðu Háskólans: http://www.hi.is Miðvikudagurinn 20. maí: Kristín B. Guðmundsdóttir, dýralæknir á Keldum, heldur fyrir- lestur á fi’æðslufundi í bókasafni Keldna kl. 12.30. Fyrirlestur sinn nefnir hún: „Sýkingaþættir E. coli“. Fimmtudagurinn 21. maí: Laufey Tryggvadóttir faralds- fræðingur, Krabbameinsskrá, flytur fyrirlestur í málstofu í læknadeild í sal Rrabbameinsfélags íslands, Skógarhlíð 8, kl. 16.00. Fyrirlestur sinn nefnir hún: „Erfðir, umhverfi og brjóstakrabbamein". Föstudagur 22. maí: Hildur Atladóttir heldur meistara- prófsfyrirlestur í næringarfræði kl. 15 í stofu 158 í VR-II. Hún nefnir fyrirlestur sinn: „Rannsókn á matar- æði íslenskra ungbarna“. Leiðbein- andi var Inga Þórsdóttir prófessor, prófdómari Jóhannes Gíslason og í umsjónai-nefnd Gestur Pálsson, sér- fræðingur í barnalækningum. Rannsóknardagur nómsbrautar í hjúkrunarfræði stendur kl. 13-16 í Eirbergi, Eiríksgötu 34. Kandídatar í hjúki’unarfræði kynna lokaverkefni sín til BS-prófs í hjúkrunarfræði. Anna K. Daníelsdóttir, stofnerfða- ft-æðingur á Hafrannsóknastofnun, heldur fyrirlestur á vegum Líffræði- stofnunar í stofu G-6, Grensásvegi 12, kl. 12.20. Fyrirlestur sinn nefnir hún: „Stofnerfðarannsóknir". Bergþóra Hlíðkvist Skúladótth’, MS- nemi, efnafræðiskor flytur fyririest- ur í málstofu í efnafræðiskor í stofu 158, húsi VR-II kl. 12.20. Hún nefnir fyrirlestur sinn: ,Áhrif glýkós- fingólípíða á adrenergu boðkerfm í hjartavöðvafrumum". Sýningar Landsbókasafn íslands - Háskóla- bókasafn. Haraldur Sigurðsson og kortafræðin. 4. maí til 30. ágúst 1998. Sýning var opnuð á fæðingardegi Haralds, en hann hefði þá orðið níræður. Orðabankar og gagnasöfn. Ollum er heimill aðgangur að eftirtöldum orðabönkum og gagnasöfnum á veg- um Háskóla íslands og stofnana hans. íslensk málstöð. Orðabanki. Hefur að geyma fjölmörg orðasöfn í sérgreinum: http://www.ismal.- hi.is/ob/ Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn. Gegnir og Greinir. http://www.bok.hi.is/gegnir.html Orðabók Háskólans. Ritmálsskrá: http://www.lexis.hi.is/ Námskeið á vegum Endurmennt- unarstofnunar HÍ vikuna 18.-23. maí. 18. maí kl. 16.00-19.30. Refsi- og skaðabótaábyrgð stjórnenda hlutafélaga. Umsjón: Kristinn Bjarnason hdl. Auk hans: Jakob R. Möller hrl., málflutningsskrifstofu Suðurlandsbraut 4a. 19. og 20. maí kl. 15-19. Árangurs- rík liðsheild. Kennari: Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræðingur og ráðgjafi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.