Morgunblaðið - 19.05.1998, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 19.05.1998, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Reuters Skúlptúr ‘98 Clinton og Blair leggja hart að ráðamönnum í Pakistan Pakistanar hafni kjamorkutilraunum London, fslamabad. Reuters. VEGFARANDI virðir fyrir sér skúlptúrinn Nana Blum eftir Niki de Saint-Phalle í Haag um sl. helgi. Þar í borg stendur nú yfir sýningin Skúlptúr ‘98 og eru sýnd þar rúmlega fimmtíu úti- listaverk sem gefa grófa heildar- mynd af þrívíðri myndlist í Evr- ópu undanfarna öld. Sýningin stendur til 14. júlí. BILL Clinton, forseti Bandaríkj- anna, og Tony Blair, forsætis- ráðherra Bretlands, hringdu í gær í Nawaz Sharif, forsætis- ráðherra Pakistans, til að skora á hann að fyrirskipa ekki kjarn- orkutilraunir en hann vildi ekki lofa því. Sendimaður Japans- stjórnar hóf í gær viðræður við ráðamenn í Pakistan til að fá þá til að hefja ekki kjarnorkutilraun- ir og gaf til kynna að það væri Pakistönum sjálfum fyrir bestu að fara ekki að dæmi Indverja, sem sprengdu fímm kjarnorku- sprengjur í vikunni sem leið. „Þetta voru góðar samræður þar sem forsetinn og forsætis- ráðherrann færðu rök fyrir því hvers vegna þeir ættu ekki að hefja kjarnorkutilraunir,“ sagði Mike McCurry, talsmaður Band- aríkjaforseta, um hálftíma samtal Clintons og Blairs við Sharif. Clinton sagði á blaðamanna- fundi í gær að hann vildi semja við Pakistana um „sérstakar aðgerðir“ til að treysta varnir Pakistans og tryggja að landið hefði efnahags- legan og pólitískan ávinning af því til lengri tíma litið að hafna kjam- orkutilraunum. Forsetinn vildi þó ekki skýra frá því hvers konar að- gerðir kæmu til greina. Hefur ákvörðun þegar verið tekin? Sendimaður Japansstjórnar, Seiichiro Noburu, sagði eftir fund með Gohar Ayub Khan, utanríkis- ráðherra Pakistans, að hann teldi að pakistanska stjómin hefði ekki enn tekið ákvörðun um hvort hún færi að dæmi Indverja. „Ég hygg að pakistanska stjómin sé að meta ástandið mjög vandlega, mjög varfærnislega." Fjölmiðlar í Pakistan sögðu hins vegar að stjórnin hefði þegar ákveðið að hefja kjamorkutilraun- ir vegna mikils þrýstings heima fyrir, spumingin væri aðeins hvenær þær hæfiist. Japanir hóta efnahagslegum refsiaðgerðum Pakistanski utanríkisráðherr- ann brást mun harkalegar við kjamorkutilraunum Indverja en Sharif forsætisráðherra, sem sagði um helgina að stjórnin hefði ekki enn tekið ákvörðun í málinu en Pakistanar gætu hafið kjarnorku- tilraunir með 12-24 stunda fyrir- vara. Japanskir embættismenn sögðu að sendimaðurinn hefði afhent stjóm Pakistans bréf frá Ryutaro Hashimoto, forsætisráðherra Jap- ans, þar sem hún væri vömð við því að Japanir myndu grípa til efnahagslegra refsiaðgerða gegn Pakistönum ef þeir sprengdu kjamorkusprengjur í tilrauna- skyni. Japanir og Bandaríkjamenn hafa gripið til refsiaðgerða gegn Indverjum, sem talið er að geti kostað þá 20 milljarða dala, and- virði 1.400 milljarða króna. Leið- togar átta helstu iðnríkja heims, sem ræddu málið í Birmingham um helgina, fordæmdu kjamorku- tilraunir Indveija en samþykktu ekki tillögu Bandaríkjastjómar um að öll ríkin gripu til refsiað- gerða. Pakistanar sögðust hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með viðbrögð leiðtoganna við kjamorkusprengingum Indveija. Uppnám á leiðtogafundi Óstaðfestar fregnir um að Pakistanar hefðu þegar hafið kjarnorkutilraunir ollu uppnámi á leiðtogafundinum á sunnudag. Hashimoto og Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, skýrðu báðir blaðamönnum frá því að Pakistan- ar kynnu að hafa sprengt kjarn- orkusprengjur í tilraunaskyni en það var dregið til baka. „Sam- kvæmt upplýsingum okkar hefur það ekki gerst enn,“ sagði Clint- on. Lal Krishna Advani, innanríkis- ráðherra Indlands, sagði í gær að líklegt væri að Pakistanar hertu á „fjandsamlegum aðgerðum sín- um“ í Kasmír og víðar á Indlandi. Hann varaði hins vegar við því að slíkar aðgerðir yrðu „gagnslausar og dýrkeyptar fyrir Pakistana“. James Rubin, talsmaður band- aríska utanríkisráðuneytisins, sakaði Indverja í vikunni sem leið um að hafa villt um fyrir Band- aríkjastjórn áður en kjamorkutil- raunimar hófust. Indverska utan- ríkisráðuneytið vísaði þessu á bug í gær og sagði að Indverjar hefðu aldrei lofað því að sprengja ekki kjamorkusprengjur í tilrauna- skyni. Bandaríkjamenn sakaðir um „hræsni" Jimmy Carter, fyrrverandi for- setí Bandaríkjanna, sagði á sunnu- dag að Bandaríkjamenn væru ekki í aðstöðu til að gagnrýna Indverja fyrir kjamorkutilraunir þar sem þeir hefðu ekki viljað fækka eigin kjamavopnum og bandaríska þingið hefði ekki enn staðfest alþjóðlegan samning um bann við kjarnorkusprengingum í tilrauna- skyni. Hann sagði að afstaða Bandaríkjamanna bæri því keim af „hræsni“. Formaður og varaformaður leyniþjónustunefndar öldunga- deildar Bandaríkjaþings sögðu um helgina að hún myndi heimila sölu á 28 orrustuþotum af gerðinni F- 16 til Pakistans ef þarlendir ráða- menn fyrirskipuðu ekki kjamorku- tilraunir. Pakistanar hafa þegar greitt rúman hálfan milljarð dala fyrir þotumar en þingið hefur hindrað afhendingu þeirra í rúm tíu ár. rriAÍ +ÍLBOÐ Á Nusqvaada Daísy 320 Verð áður: kr. 41.800.- tÍLBOÐSVERJ): KBst 35.530 StCR*. isttm Mörkinni 1 Reykjavík síml verslunar 588 9505 sfmi heildsölu 588 9555 Umboðsmenn Husqvarna Akranes: Handraöinn, Borgarnes: Kaupfélag Borgfiröinga, Stykkishólmur: Setta, ísafjöróur: Póllinn. Blönduós: Kaupfélag A-Húnvetninga, Siglufjörður: Verslunin Elin, Saudárkrókur: Rafsjá, Akureyri: Radiónaust, Ólafsfjöröur: Verslunin Valberg, Húsavik: Bókaverslun Þórarins Stefánssonar, Egilsstaðir: Heiöubúö, Hornafjörður: Lónið, Vestmannaeyjar: Undir Nálina, Selfoss: Hjá Elisu, Keflavík: Stapafell. Verstu þurrk- ar í Mexíkó í sjötíu ár Mexíkó. Reuters. VERSTU þurrkar í 70 ár herja nú á Mexíkó og sögðu embættismenn á sunnudag að skógareldar í suður- hluta landsins væru svo miklir að til náttúruhamfara mætti telja. Fimm slökkviliðsmenn og einn óbreyttur borgari hefur týnt lífi í baráttunni við eldana. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í ríkinu Chiapas. Julia Carabias, umhverfismál- aráðherra landsins, heimsótti Chi- apas á laugardag og sagði þá að veðurfyrirbærið El Nino tæki nú sinn toll í Mexíkó. Ársúrkoma hefði aldrei mælst minni, og væri um það bil einn tíundi af meðalúrkomu. Carabias ræddi við bændur í Chi- apas og kom fram í máli hennar að það sem af er árinu hefur ekkert rignt í suðausturhluta landsins og hefðu þurrkar sumstaðar aldrei ver- ið verri. Skömmu eftir að Carabias hafði lokið heimsókn sinni til Chiapas var lýst yfir neyðarástandi þar vegna mikilla skógarelda. Hátt í fimmtíu manns hafa beðið bana vegna skóg- arelda í Mexíkó það sem af er árinu. Flesta eldana kveikja bændur til að hreinsa ræktarland áður en regntíminn byrjar. Á laugardag áttu nokkrir ráðherrar skyndifund vegna ástandsins og ríkisstjórar í suðurríkjunum kröfðust þess að bændum yrði bannað að kveikja elda til að hreinsa land. Á sunnudag var haft eftir Rom- arico Arroyo landbúnaðarráðherra að auka yrði innflutning á helstu korntegundum um 12-17% í ár, miðað við síðasta ár. Sagði hann að þegar hefðu um 10 milljónir hektara ræktarlands skemmst af völdum eldanna. Yfirvöld í ríkinu San Luis Potosi, norðaustur af Mexíkóborg, sögðu á sunnudag að ef ekki færi að rigna myndu þau lýsa yfir neyð- arástandi eftir tíu daga eða svo. Mikill reykur stafar af eldunum og eykur hann á gífurlega mengun í Mexíkóborg, þar sem um 17 millj- ónir manna búa. Sl. föstudag var íbúunum ráðlagt að halda sig innan- dyra og reykja ekki, þar eð loft- mengun í borginni hafði sjaldan verið meiri. I I I l I I í I b i \ t i I
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.