Morgunblaðið - 19.05.1998, Blaðsíða 28
i K*
28
ÞRIÐJUDAGUR 19.: MÁÍ 1998
MOÍIGUNBLÁÐIÐ
LISTIR
Alþjóðleg ljóðahátíð í Litháen
ALÞJÓÐLEG ljóðahátíð verður
haldin í Litháen dagana 26. maí til
1. júní. Hátíðin nefnist Poezijos
pavasaris sem merkir Vor skáld-
skaparins. Auk litháískra skálda
er 10-15 erlendum skáldum boðið
til ljóðahátíðarinnar.
Meðal erlendra skálda sem hafa
lesið upp á hátíðinni síðan hún
hófst 1965 eru Nóbelsverðlauna-
skáldið Czeslav Milosz, Daninn
Niels Frank og Svíinn Tomas
Tranströmer.
Þau skáld sem boðið er til hátíð-
arinnar nú og munu lesa upp og
ræða skáldskap sinn ásamt mörg-
um kunnustu
skáldum Lit-
háen eru m.a.
Olga Sedakova
frá Rússlandi,
Lauri Oton-
koski frá Finn-
landi, Magnus
William-Ols-
son, Svíþjóð,
Ales Debeljak,
Slóveníu, Knut
Ódegárd, Noregi og Jóhann
Hjálmarsson, sem er fyrsta ís-
lenska skáldið sem boðið er til
hátíðarinnar.
Ljóð eru les-
in og kynning-
ar- og um-
ræðufundir
haldnir í höfuð-
borginni Vilni-
us og einnig í
öðrum borgum
eins og Trakai
og Kernavé.
Háskólinn í
Vilnius verður
með sérstaka lokaða athöfn í til-
efni hátíðarinnar.
Ljóðahátíðin er ein helsta vor-
hátíð í Litháen og með henni
fylgst af almenningi, fjölmiðlum,
blöðum, útvarpi og sjónvarpi. Hún
vekur athygli víða, ekki síst í
nágrannalöndum, enda er hún yf-
irleitt mjög fjölmenn.
Veglegt rit um ljóðlist og með
ljóðum erlendu skáldanna í lit-
háískri þýðingu er gefið út í
tengslum við hátíðina. í ritinu
birtast að þessu sinni fimmtán ljóð
eftir Jóhann Hjálmarsson í
þýðingu Rösu Ruseckiene.
Rithöfundasamband Litháen
býður til hátíðarinnar og skipu-
leggur hana.
Jóhann
Hjálmarsson
GREINARGERÐ 1998
Fyrir hverja er greinarperoin? f Hverjir purfa ehhi ao shila?
utan staOgrGiOslu
Ýmis félög, sjóðir og stofnanir njóta und-
anþágu frá almennri skattlagningu sam-
kvæmt 4. gr. laga nr. 75/1981 um tekju-
skatt og eignarskatt, þ.e. þeim er hvorki
gert að greiða tekjuskatt né eignarskatt.
Þessi undanþága nær ekki til skatts á fjár-
magnstekjur að því marki sem um er að
ræða vaxtatekjur, arð og söluhagnað af
hlutabréfum. Af þessum tekjum ber að
greiða 10% tekjuskatt. Með vaxtatekjum
er átt við vexti, verðbætur, afföll og
gengishagnað.
Hér er um að ræða fyrirtæki og stofnanir í
eigu ríkis og sveitarfélaga, líknarfélög og
önnur félög, stofnanir og sjóði sem ekki
reka atvinnu og þá sem undanþegnir eru
almennri skattlagningu samkvæmt sér-
lögum. Skylda til að greiða skatt af áður-
nefndum fjármagnstekjum nær til þeirra
sem taldir eru upp í 2., 3., 5., 6. og 7.
tölulið 4. gr. laga nr. 75/1981.
Hafi félag/stofnun ekki aðrar fjármagns-
tekjur en arð eða staðgreiðsluskyldar
vaxtatekjur og hafi staðgreiðsla verið rétti-
lega ákvörðuð og haldið eftir af þeim tekj-
um, teljast það fullnaðarskil. Þarf þá ekki
að skila greinargerð um fjármagnstekjur.
| Uvcrjir purfa aöshila?
Sé um að ræða gengishagnað eða vaxta-
tekjur af kröfum í eigin innheimtu eða aðr-
ar vaxtatekjur eða arð sem ekki hefur verið
skilað staðgreiðslu af, ber að gera grein
fyrir þeim á Greinargerð um fjármagnstekj-
ur, RSK 1.07 og greiða 10% tekjuskatt af
þeim tekjum eftir álagningu. Einnig ef um
er að ræða hagnað af sölu hlutabréfa.
tlvenæiáao shila?
Greinargerð um fjármagnstekjur RSK 1.07,
skal skila til skattstjóra eða umboðs-
manns hans í síðasta lagi 31. maí. Hægt
er að sækja um viðbótarfrest til 22. júní.
Allar nánari upplýsingar er hægt að fá hjá skattstjórum og ríkisskattstjóra.
RSK
RIKISSKATTSTJORI
, RSK -01-98
Helmingur
Erró mynd-
anna seldist
strax
Á SÝNINGU á verkum Errós í
Galleríi Sævars Karls við
Bankastræti í Reykjavík eru sýndar
50 litlar olíumyndir, svokallaðar
vasamyndir (pocket-myndir), með
konuandlitum, 20 vatnslitamyndir
og 3 olíumyndir í hefðbundinni
stærð -þar sem konur eru einnig
allsráðandi enda er þema sýningar-
innar konur.
Á fyrstu klukkutímunum seldist
strax um helmingur myndanna en
olíumyndimar kosta 50 þúsund
krónur hver og vatnslitamyndirnar
120 þúsund krónur hver.
Sýningin verður opin á verslunar-
tíma á meðan á Listahátíð stendur.
Erró áritar
í TILEFNI af sýningu Errós í
framtíðarhúsnæði Listasafns
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu var
gefin út 400 síðna litprentuð bók
með verkum eftir Erró og umfjöll-
un. Erró mun árita bókina í safninu
í dag þriðjudag milli kl. 16 og 18.
Um helgina komu um 2700
manns á sýningu Errós.
Safnið er enn ófullgert og verður
opnað í endanlegri mynd árið 2000.
Það er nú opið frá kl. 10-18 alla
daga til 23. ágúst.
Þriðjudagur
LAUGAVEGUR 114: Flögð
og fögur skinn. Art.is. kynnir
verk eftir íslenska listamenn í
tólf gluggum í miðbænum.
Gengið frá Tryggingastofnun
ríkisins að Galleríi Sævars
Kai-ls með viðkomu á sýning-
arstöðum kl. 17.
Þjóðleikhús: Le Cercle in-
visible, Victoria Chaplin og Je-
an-Baptiste Thierrée, frum-
sýning kl. 20.
Klúbbur
Listahátíðar,
Iðnó
Þriðjudagur
Úngh'ngurinn í skóginum kl. 20.
Minjagripa-
samkeppni
NÚ stendur yfír sýning í galleríi
Handverks & hönnunar, Amt-
mannsstíg 1, á verðlaunuðum og
áhugaverðum tillögum úr minja-
gripasamkeppni er haldin var á veg-
um Átaks til atvinnusköpunar og
Handverks & hönnunar.
Alls bárust 289 tillögur og eru 40
þeirra til sýnis. Að lokinni sýningu
verður sýningin sett upp í Deiglunni
á Akureyri í tengslum við Lista-
sumar.
Sýningin er opin alla virka daga
nema mánudaga frá kl. 11-17 og
laugardaga frá kl. 12-16. Sýningin
stendur til 6. júní. Aðgangur er
ókeypis.