Morgunblaðið - 19.05.1998, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Fótbolta-
vefur
opnaður
MORGUNBLAÐIÐ opnaði í
gær fótboltavef sem er ný
þjónusta fyrir lesendur Morg-
unblaðsins á Netinu. Þar verð-
ur hægt að fylgjast með helstu
atburðum í sumar er varða
knattspymu. Byrjað verður á
því að fjalla um Landssíma-
deildina sem hófst í gær og í
framhaldi af því verða heims-
meistarakeppninni gerð svipuð
skil, en hún hefst 10. júní nk.
Nánari lýsingu á vefnum og
virkni hans má finna á síðu C5
í íþróttablaðinu.
Hægt er að nálgast Fót-
boltavefinn með því að slá inn
slóðina www.mbl.is/boltinn eða
velja hann innan Fréttavefjar-
ins úr glugganum Aðrir vefir
blaðsins.
Kosningavefur
Morgunblaðsins
Spurt og svar-
að á Netinu
NOTENDUM Kosningavefjar
Morgunblaðsins á Netinu gefst
kostur á að senda umsjónar-
manni vefjarins í tölvupósti
spumingar til framboðslista í
einstökum sveitarfélögum um
allt land. Spumingunum er
komið áfram til framboðanna
og svörin birt á Kosningavefn-
um jafnskjótt og þau berast.
Forsenda þess að hægt sé að
veita þessa þjónustu er að
viðkomandi framboð hafi
búnað til að taka við spuming-
unum og svara þeim í
tölvupósti. Forsvarsmenn
framboðslista era hvattir til að
senda Kosningavefnum upp-
lýsingar um netfang sitt. Net-
fang Kosningavefjarins er
kosning@mbl.is.
Netnotendur, sem senda
vilja framboðslistum fyrir-
spum, velja síðuna „Spurt og
svarað" á Kosningavefnum,
smella á hnappinn „Ert þú með
spumingu?“ og fylla út fyrir-
spumarform, sem þá birtist á
tölvuskjánum. Kosningavefn-
um má tengjast frá Fréttavef
Morgunblaðsins eða með því
að slá inn slóðina
http://www.mbl.iii/kosningar/.
Fjórtán ára
velti bíl
FJÓRTÁN ára drengur slapp
ómeiddur þegar hann velti bíl í
Dýrafirði í gær.
Drengurinn var einn á ferð, ak-
andi gömlum fólksbíl í eigu fjöl-
skyldu sinnar. Til móts við
Brekkudal í Dýrafirði valt bíllinn
og er talinn ónýtur eftir. Öku-
manninn sakaði ekki, að sögn lög-
reglunnar á ísafirði.
FRETTIR
Héraðsdómur ógildir áminn-
ingu til flugumferðarstjóra
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
felldi í gær úr gildi áminningu þá
sem flugmálastjóri veitti flugum-
ferðarstjóra í ágúst sl. fyrir brot á
lögum um réttindi og skyldur
starfsmanna rfldsins og er flug-
málastjóra gert að greiða flugum-
ferðarstjóranum 150 þúsund krónur
í málskostnað.
Flugumferðarstjórinn neitaði
flugvélum um flugheimild að
morgni 12. júlí þegar fimm af sex
flugumferðarstjórum höfðu boðað
veikindi þann dag, en umræddur
Formaður Félags íslenskra flugum-
ferðarstjóra fagnar niðurstöðunni
flugumferðarstjóri var þá að Ijúka
næturvakt sinni. Veikindi flugum-
ferðarstjóranna á þessum tíma
hlutu talsverða umfjöllun í fjölmiðl-
um og var látið í veðri vaka að þau
væru liður í kjarabaráttu. Enginn
þeirra var þó látinn sæta agaviður-
lögum, þrátt fyrir rannsókn, með
þeim rökum að örðugt væri að
sanna að um samantekin ráð hefði
verið að ræða eða að þeir hefðu ekki
verið veikir.
Dómarinn, Allan Vagn Magnús-
son, kemst að þeirri niðurstöðu að
áminning flugmálastjóra skuli felld
úr gildi, ekki sé sýnt fram á að flug-
umferðarstjórinn hafi brotið gegn
starfsskyldum sínum og flugmála-
stjóri skuli greiða honum 150.000
krónur í málskostnað.
Loftur Jóhannsson, formaður
Félags íslenskra flugumferðar-
stjóra, segir starfsbræður sína mjög
ánægða með þessa niðurstöðu
Héraðsdóms. „Reyndar er þetta
niðurstaða sem við reiknuðum með,
við töldum að hún gæti eiginlega
ekki orðið önnur, enda ljóst að flug-
umferðarstjórinn hafði eingöngu
öryggið að leiðarljósi," segir hann.
Morgunblaðið/Kristinn
FLUGUMFERÐ um Reykjavíkurflugvöll er nú stjórnað úr stjórn-
stöðvarbíl Flugbjörgunarsveitarinnar meðan unnið er að gagngerum
endurbótum á tækjabúnaði og innréttingum í flugturninum.
Flugturn á hjólum
FLUGUMFERÐARSTJÓRAR í
flugturninum á Reykjavíkurflug-
velli fluttu sig um set í gær, þegar
hafist var handa við gagngerar
endurbætur á tækjabúnaði og inn-
réttingum í turninum, en allt er það
komið til ára sinna, að sögn Hail-
gríms Sigurðssonar, forstöðumanns
rekstrardeildar Flugmálastjórnar.
Flugumferðarstjórarnir sitja nú í
stjómstöðvarbíl Flugbjörgunar-
sveitarinnar, sem lagt hefúr verið á
miðjum flugvellinum, en bíllinn
verður vinnustaður þeirra næstu
tvær til þijár vikurnar.
„Nú er verið að endurnýja
tækjakost og allar innréttingar í
turninum, leggja nýtt tölvugólf,
endurnýja allar raf- og tölvulagnir
og fjarskiptasambönd. I rauninni
þurfti að hreinsa alveg út úr tum-
inum og á meðan varð að flytja
starfsemina annað þar sem gott
útsýni er yfir flugvöllinn," segir
hann.
„Þröngt mega sáttir sitja,“ segir
Hallgrímur og bætir við að starfs-
mennirnir hafí sýnt því mikinn
skilning að grípa þurfi til þessara
óvenjulegu aðgerða."
Að sögn Hallgríms er ekki gert
ráð fyrir að þessi tfmabundnu
vistaskipti flugumferðarstjórnar
um Reykjavíkurflugvöll muni hafa
vemleg áhrif á flug, þar sem yfir-
leitt sé bjart og góð skilyrði til
flugs á þessum árstíma. Þó sé
hugsanlegt að einhveijar takmark-
anir verði á flugumferð og þá helst
í einkaflugi og lendingaræfingum.
FLUGUMFERÐARSTJÓRAR að störfum í bráðabirgðaflugturniimm
sem er gulur og á fjórum hjólum.
Útflutningsráð
Verslunin á
fulltrúa í stjórn
„ÞAÐ er rétt að samkvæmt lögum
um Útflutningsráð á að endurskoða
lögin í ár. Fari sú endurskoðun ekki
fram á innheimta markaðsgjalds að
falla niður. Það er hins vegar ekki
verið að leggja niður markaðsgjald-
ið, aðeins verið að knýja á um að lög-
in verði tekin til endurskoðunar,“
segir Jón Ásbergsson, framkvæmda-
stjóri Útflutningsráðs, sem hafnar
þeirri gagnrýni forsvarsmanna Sam-
taka verslunarinnar að Útflutnings-
ráð sé gríðarlega dýrt í rekstri.
Hann segir það rangt að verslunin
eigi _ekki fulltrúa í stjóm ráðsins.
„Ég geri mér vonir um að utan-
rfldsráðherra skipi vinnuhóp í sumar
til að undirbúa tillögu að endui-
skoðun laga um Útflutningsráð og að
starfsemi þess haldi áfram sem
fyrr,“ segir Jón.
Jón segir að gagnrýni forsvars-
manna Samtaka verslunarinnar leiði
ef til vill helst í ljós að Útflutnings-
ráð hafi ekld komið því nægilega vel
til skila hvaða starfsemi hafí farið
fram á þess vegum. „Gagnrýni er
gjöf og ég lít á athugasemdimar
meira í því Ijósi. Við þuifum að huga
að því að koma frá okkur skilaboðum
um það sem við vinnum að,“ segir
Jón.
Hann segir það rangt að verslunin
eigi ekki fulltrúa í stjóm Útflutn-
ingsráðs. Verslunarráðið tilnefnir
einn mann í stjóm samkvæmt lögun-
um, Samtök atvinnurekenda í
sjávarútvegi tilnefna þrjá menn í
stjóm, Samtök iðnaðarins einnig
þrjá og Ferðamálaráð tilnefnir einn.
Fjórir fulltrúar frá hinu opinbera
sitja í stjóminni.
„Það þarf m.a. að skoða hvemig
stjómin er skipuð við endurskoðun
laganna,“ segir Jón.
♦ ♦♦
Verslunin greiðir 53% af
markaðsgjaldinu
Hann segir rétt að margt í starf-
seminni kosti peninga en þar með sé
ekld sagt að þeim sé illa varið.
Markaðsgjaldið er byggt á virðis-
aukaskattskyldri veltu íyrirtælga.
Verslun og þjónusta greiðir 53% af
heildargjaldinu, fiskvinnsla og iðnað-
ur rám 33%, fiskveiðar 9% og sam-
göngur 5%. Greiðendur eru lögaðilar
og einstaklingar, alls 27 þúsund aðil-
ar. Markaðsgjaldið skilaði Útflutn-
ingsráði 111 milljónum kr. í fyrra.
„Það má alltaf deila um hvemig
eigi að fjái-magna svona rekstur.
Þetta er leið hins opinbera til þess að
fjármagna þessa þjónustu og er
skattur sem er lagður á samkvæmt
lögum,“ segir Jón.
Innbrot hja
Islendingum
í Cannes
í
FJÓRIR íslendingar á kvikmynda-
hátíðinni í Cannes urðu fyrir því að
brotist var inn hjá þeim aðfaranótt
mánudags á meðan þeir vora sof-
andi í húsi sem þeir leigja í Antibes.
Þetta vora annars vegar Ingvar
Þórðarson og Baltasar Kormákur,
sem staddir eru í Cannes til að
kynna myndimar Popp í Reykjavík
sem framsýnd verður í september
og 101 Reykjavík sem tekin verður
upp í vetur og hins vegar Þórir
Snær Sigurjónsson og Skúli
Malmquist sem eru að vinna að
Fíaskó.
„Stolið var frá okkur þremur
tölvum og þremur farsímum og svo
var ýmislegt fleira tekið eins og föt
og skór,“ sagði Ingvar í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöld. „Húsið
var læst þannig að þjófamir hafa
kunnað sitt fag.“
Hann áætlaði að verðmæti þýfis-
ins væri um 1 milljón króna.
Ingvar kvað lögreglu hafa sagt
þeim að það væri mildi að þeir
hefðu ekki vaknað við umgang þjóf-
anna vegna þess að þá hefðu þeir
sennilega ekki sloppið ómeiddir.
IR
► í NÝRRI skipulagstillögu fyrir Þorlákshöfn er gert
ráð fyrir svokölluðum Suðurstrandarvegi, sem á að
liggja til vesturs út frá bænum og fylgja sfðan strönd-
inni um Selvog allt til Grindavfkur.
Við byggjum
tönlistarhús
Áfram llafnfirðing-
at - allir *em einn
vk* AÐSENDAR QREINAR
Þróttur og ÍBV skildu jöfn,
3:3, í fjörugum leik / C5
Þórður Guðjónsson bikar-
meistari í Belgíu / C3