Morgunblaðið - 19.05.1998, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
GUÐRÚN Ágústsdóttir forseti borgarstjórnar, Margrét Þórhildur,
Hinrik prins og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri virða fyrir
sér vasa, sem borgarstjóri færði drottningu að gjöf.
Morgunblaðið/Kristinn
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Hjörleifur Sveinbjörnsson buðu Margréti Þórhildi, Hinriki
prinsi, Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Islands, og Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur til kvöldverðar í Höfða
á sunnudagskvöld.
FIMM daga heimsókn Margrétar Þórhildar Danadrottn-
ingar og Hinriks prins til Islands lauk í gærmorgun.
Meðal þeirra sem kvöddu drottninguna og mann hennar
á Reykjavíkurflugvelli voru forsetahjónin Olafur Ragnar
Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir. í ávarpi
sínu á Bessastöðum sagði Danadrottning það mikla
ögrun að vera beðin um að sýna kirkjuklæði á íslandi,
þar sem hér væri að finna klæði, sem ættu fáa sína líka í
Danmörku.
Síðdegis á laugardag var opnuð í Þjóðminjasafninu
sýning Margrétar Þórhildar á kirkjulist. Um kvöldið var
boðið til hátíðarkvöldverðar á Bessastöðum til heiðurs
drottningu og Hinriki prins. I ræðu Ólafs Ragnars
Grímssonar forseta íslands við það tækifæri þakkaði
hann drottningunni sérstaklega fyrir hennar framlag til
Listahátíðar í Reykjavík. Sagði hann að í aðdraganda
hátíðar á Þingvöllum til að minnast þúsund ára kristni í
landinu væri það íslendingum gleðiefni að njóta sýning-
arinnar á kirkjuklæðum drottningar. „Hlutur Danmerk-
ur, danskrar kirkju, menningar og lista í kristnisögu ís-
Heimsókn Margrétar
Danadrottningar lokið
• •
Ogrun að sýna
á Islandi
lands er margbrotinn og efnisríkur," sagði hann. „Þjóð
mín geymir í minningum sínum frásagnir af framgöngu
ættar yðar hátignar til að efla kristna trú á Islandi. Alt-
aristaflan sem langalangamma yðar gaf litlu þorpskirkj-
unni á Eyrarbakka og þér sáuð í gærkvöldi er sem tákn-
mynd um langa sameiginlega arfleifð.“
Hann vék síðar að sýningu drottningar og sagði að
hún væri nýr kafli í sameiginlegri kristnisögu, vitnis-
burður ekki aðeins um list drottningar, trúarhita og
hugsun heldur einnig gleðilegur forleikur að kristnihátíð
þjóðarinnar, staðfestingu þess að saman muni fslending-
ar og Danir spinna vef trúar, sögu og menningar á nýrri
öld.
Hrærð yfir móttökunum
Margrét Þórhildur Danadrottning þakkaði hlýjar
móttökur sem hún og maður hennar höfðu fengið á Is-
landi. „Ég er hrærð yfir þeim móttökum sem við höfum
fengið,“ sagði hún. Það hefði verið skemmtileg upplifun
að koma til Vestfjarða. Þangað hefðu þau lijónin ekki
komið áður. „Að vera beðin um að sýna nokkur verka
minna gladdi mig einnig og var mikil ögrun, þar sem ég
veit að á Islandi er að flnna sjaldgæf kirkjuklæði, sem
eiga fáa sína líka í Danmörku," sagði hún. Drottningin
sagði að vinna við kirkjuklæðin hefði mikla þýðingu fyr-
ir sig og að það gleddi sig sérstaklega þegar aðrir sýndu
vinnu hennar áhuga.
Morgunblaðið/Golli
ÓLAFUR Ragnar Grímsson forseti íslands og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir
buðu til hátíðarkvöldverðar á Bessastöðum til heiðurs Margréti Þórhildi
Danadrottningu og Hinriki prinsi.
Morgunblaðið/Kristinn
HINRIK prins, Margrét Þórhildur Danadrottning, Guðrún Katrín Þorbergs-
dóttir og Ólafur Ragnar Grímsson forseti íslands voru meðal gesta á hátfð-
arkvöldi í Þjóðleikhúsinu að kvöldi sunnudags.
Morgunblaðið/Kristinn
Á SUNNUDAG sóttu Danadrottning, Hinrik prins og forsetahjónin dansk-ís-
lenska guðsþjónustu í Dómkirkjunni, þar sem biskup íslands og dómprófastur
Kaupmannahafnar predikuðu.
Morgunblaðið/Golli
AÐ LOKINNI skoðunarferð í Ráðhúsið héldu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, Margrét
Þórhildur og Hinrik prins ásamt forsetahjónunum og fylgdarliði til móttöku í Iðnó.