Morgunblaðið - 19.05.1998, Síða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hlutabréf í Járnblendifélaginu skráð á verðbréfaþingi í gær
Söluverðmæti á fyrsta
degi nam 15 milljónum
Unnið að sameiningu
HÞ og Skála
Stefnt að
skráningu á
VÞI á árinu
STJÓRNENDUR Hraðfrystistöðv-
ar Þórshafnar hf. stefna að skrán-
ingu félagsins á Verðbréfaþingi Is-
lands á síðari hluta ársins, eftir að
lokið hefur verið við sameiningu út-
gerðarfélagsins Skála hf. við
Hraðfrystistöðina.
Hraðfrystistöðin hefur verið skráð
á Opna tilboðsmarkaðnum frá því í
desember 1996. Jóhann A. Jónsson,
framkvæmdastjóri HÞ, segir að við-
skipti á Opna tilboðsmarkaðnum séu
orðin lítil, hafí flust yfir á
Verðbréfaþing. Hluthafar voru orðn-
ir um 290 um síðustu áramót og
félagið stækkar verulega við fyrir-
hugaða sameiningu. Því segir
Jóhann eðlilegt að skrá félagið á al-
mennum hlutafjármarkaði, að loknu
því sameiningarferli sem hafíð er.
Unnið að samrunaáætlun
Fyrir rúmu ári sameinaðist dótt-
urfélagið Stakkar ehf. Hrað-
frystistöðinni en það átti nótarskipið
Júlla Dan sem selt var á síðasta ári.
Þá hefur stjómin samþykkt samein-
ingu við Hæng ehf. miðað við síðustu
áramót. Unnið hefur verið að sam-
einingu Skála ehf. og Hrað-
frystistöðvarinnar á grundvelli hlut-
hafasamkomulags. HÞ á 36% í Skál-
um sem gera út nótarskipin Júpiter
og Neptúnus. Fram kom á aðalfundi
Hraðfrystistöðvarinnar á dögunum
að sjónarmið hluthafa í Skálum hafi
verið mismunandi varðandi forsend-
ur sameiningar og óvíst hvort af
sameiningu verði á grundvelli sam-
komulagsins.
Jóhann segir að unnið sé að sam-
runaáætlun og verði sameiningu
væntanlega lokið um mitt ár. Hún
miðast þó við 1. janúar síðastliðinn.
BÚ KRISTJÁNS Ó. Skagfjörð hf.
var tekið til gjaldþrotaskipta með
úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur
31. mars síðastliðinn, samkvæmt
auglýsingu í Lögbirtingablaðinu.
Frestdagur við skiptin, m.ö.o. upp-
hafsdagur skipta sem hefur ýmis
réttaráhrif við búskiptin, er 30.
desember 1997. Frestur til að lýsa
kröfum í þrotabúið rennur út í lok
HLUTABRÉF í íslenska Járn-
blendifélaginu voru formlega skráð
á verðbréfaþingi Islands í gær og
seldust bréf að verðmæti 5 milljón-
ir króna að nafnverði á fyrsta degi
á meðalgengi nálægt 3,0, sem er
júní, en skiptafundur til að fjalla
um skrá um lýstar kröfur og
ráðstöfún á eignum og réttindum
búsins verður haldinn á skrifstofu
skiptastjóra föstudaginn 10. júlí
1998. Skrá yfír lýstar kröfur, þar
sem fram kemur afstaða skipta-
stjóra til þein-a, mun liggja þar
frammi viku íyrir fundinn. Skipta-
stjóri er Skúli Bjamason hdl.
um 20% hækkun frá því í almenna
útboðinu þar sem almenningi gafst
kostur á að kaupa sér 100 þúsund
króna hlut á genginu 2,5. Grípa
þurfti til 20 þúsund króna
skerðingar á bréfunum vegna mik-
illar ásóknar, þannig að þegar upp
var staðið nam einstaklingshlutur-
inn 80 þúsund krónum að nafn-
verði, sem færir hverjum hluthafa
um 16 þúsund króna hagnað af
fjárfestingunni miðað við þróun
mála í gær. Uppistaða viðskipta
gærdagsins vom aðallega einstak-
lingshlutir á bilinu 80-240 þúsund
krónur að nafnvirði.
Gengið í jafnvægi
nálægt 3,0
Davíð Bjömsson, forstöðumaður
viðskiptastofu Landsbanka Is-
lands, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þegar í gærmorgun hafi
verið Ijóst að gengi bréfanna
myndi liggja nálægt þremur, þar
sem fyrstu kauptilboðin buðu hæst
2,90 en lægstu sölutilboðin vora
3,05. Gengi bréfanna sveiflaðist
nokkuð yfír daginn úr því að vera
2,90 í byrjun dags, í það að verða
hæst 3,05 síðdegis en við lokun var
gengið 2,98. Hann sagði þau miklu
viðskipti sem áttu sér stað með
bréfin ekki koma sér á óvart í ljósi
þess að 2.700 einstaklingar ættu
hlut í félaginu og kvaðst því frekar
reikna með líflegum viðskiptum
með hlutabréfin á næstu vikum.
Aðspurður um gengisþróunina
næstu daga, sagði Davíð að útlit
væri fyrir að gengi bréfanna í dag
væri í jafnvægi við þau sem seld
vora með tilboðsfyrirkomulagi í út-
boðinu á meðalgenginu 3,02.
Davíð sagði einnig ljóst að stærri
hluthafamir færa fram á mun
hærri ávöxtun af sínum hluta held-
ur en þeir sem keyptu í einstak-
lingsútboðinu. Þannig hafi borist
eitt sölutilboð upp á fimm milljónir
króna að nafnvirði á genginu 3,5
sem seldist ekki
FBA vaktar
þýska
markið
FJÁRFESTINGARBANKI at-
vinnulífsins hf. tilkynnti í gær að
hann hefði hafið viðskiptavakt á
þýsku marki gagnvart íslensku
krónunni, með sama hætti og
Bandaríkjadal. Agnar Hansson hjá
markaðsviðskiptum FBA segir
stefnt að því að hefja síðar við-
skiptavakt með sterlingspund og
japanskt jen.
FBA mun upplýsa aðra aðila á
millibankamarkaði um kaup og
sölutilboð í þýskum mörkum og að
öðra leyti standa að þessari vakt
með sama hætti og nú tíðkast í við-
skiptavakt með Bandaríkjadal.
Stöðluð upphæð skal vera ein millj-
ón marka.
Með þessu vill FBA leggja sitt af
mörkum við að auka dýpt og
stöðugleika millibankamarkaðar-
ins, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu FBA, og þannig stuðla að skil-
virkari verðmyndun.
Agnar segir sjálfgefið að við-
skiptavakt með þýskt mark yfir-
færist á evrana þegar hún verður
tekin í notkun í byrjun næsta árs.
---------------------
ABC vill
50 millj. dala
fyrir WTN
London. Reuters.
SJÓNVARPSFRÉTTASTOFAN
Worldwide Television News
(WTN) í London vill ekkert segja
um þá frétt að bandaríska sjón-
varpið ABC hyggist selja fyrir-
tækið fyrir að minnsta kosti 50
milljónir dollara.
Financial Times hermdi að ABC
News, eign Walt Disney Co.,
hygðist selja WTN og að helzti
keppinauturinn væri fréttastofan
Associated Press.
WTN er keppinautur Reuters-
sjónvarpsins og hefur mætt vax-
andi samkeppni síðan AP hleypti
sjónvarpsfréttastofu sinni af stokk-
unum 1994.
ABC á 80% í WTN, en ITN-
sjónvarpsfréttastofan í Bretlandi
(Independent Television News) og
Channel Nine rásin í Ástralíu eiga
10% hvor í fyrirtækinu.
ITN er í eigu United News &
Media Plc, Carlton Commun-
ications Plc, Daily Mail & General
Trast Plc, Granada Group Plc og
Reuters.
Kristján O. Skag-
fjörð gjaldþrota
i
DkkaTopp
EPOXY MALNING
Iðnaðarmálning
á gólf og veggi
• Án lífrænna
leysiefna
• Slitsterkt
• Stenst
háþrýstiþvott
• Áralöng reynsla
• Góð viðloðun
IÐNAÐABGÓLF'
Smiðjuvegur 72,200 Kópavogur
Sími: 564 1740, Fax: 554 1769
/ /
Afram tap hjá Arnesi hf.
Umsvif aukin með því
að hefja bolfískvinnslu
NYR framkvæmdastjóri Árness hf. í
Þorlákshöfn vinnur að því að stöðva
taprekstur félagsins og kynnti
áform sín á aðalfundi félagsins íyrir
skömmu. Þar kom fram að reiknað
er með áframhaldandi tapi á þessu
ári. Árni Vilhjálmsson, stjómarfor-
maður Granda, tók við stjórnarfor-
mennsku á aðalfundinum.
Árnes hf. var rekið með 150 millj-
óna kr. tapi á síðasta ári, eins og
komið hefur fram. Lúðvík Börkur
Jónsson sem tók við stöðu fram-
kvæmdastjóra um áramót hefur ver-
ið að vinna að breytingum á rekstr-
inum. Félagið hefur sérhæft sig í
veiðum og vinnslu flatfisks. Lúðvík
segir að vegna samdráttar í veiðum
hafi félagið staðið frammi fyrir því
að draga verulega úr allri sinni
starfsemi. Sú leið hafi verið farin að
auka fremur starfsemina á öðram
sviðum. Nú væri hafin bolfiskvinnsla
og keypti félagið sjálft allan afla af
sínum skipum en bolfískurinn fór
áður á markað. Þurfti að endur-
semja við áhafnir allra skipanna til
að gera það mögulegt.
Lúðvík Börkur segir að sami
taptaktur hafi verið hjá Árnesi
fyrstu þrjá mánuði ársins og á
síðasta ári, meðal annars vegna
verkfalla og lélegrar loðnuvertíðar.
Því hafi orðið verulegt tap af rekstr-
inum. Hins vegar vonast hann til að
hagnaður verði það sem eftir er af
árinu og að það lagi stöðuna þannig
að tap ársins verði ekki meira en um
það bil 23 milljónir kr.
Frekari breytingar
Hann boðar frekari breytingar á
rekstri fyrirtækisins í framtíðinni.
Bendir á að skip félagsins séu orðin
gömul og henti illa breyttum áhersl-
um í rekstri. Þurfi að endurnýja
skipin og fækka um eitt. Hann bend-
ir á að félagið eigi mikið af illa nýtt-
um fasteignum. Þurfi að vinna að því
að selja þær, leigja eða koma þar
upp einhverjum rekstri. Og í síðasta
lagi nefnir hann að endurskipuleggja
þurfí fjármál félagsins og vinna að
lækkun fjármagnskostnaðar.
Á aðalfundinum gaf Jón Sigurðar-
son ekki kost á sér áfram sem
stjórnarformaður og var Árni Vil-
hjálmsson, stjórnarformaður
Granda hf., kosinn formaður í hans
stað. Jón tók hins vegar sæti Árna
sem varaformaður. Með þeim í
stjórn eru Eyþór Björgvinsson, Sig-
urður Einarsson og Guðmundur
Birgisson.
Samþykkt var tillaga um að veita
stjórn félagsins heimild til að auka
hlutafé félagsins um allt að 125
milljónir kr. að nafnvirði með sölu
nýrra hluta.
I
L
I
1
»
I
\
l
h