Morgunblaðið - 19.05.1998, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Það sem náttúran gefur
Djúpsteiktir fíflar
ÞEGAR vorar fer hún Ilildur Há-
konardóttir, forstöðumaður lista-
safns Ámesinga, út í náttúmna
og tínir jurtir í matargerðina.
„Eg tíni fíflablöð fram að Jóns-
messu og yfirleitt nota ég villi-
jurtirnar þegar þær eru ungar.
Mér finnst allt grænt á vorin
gefa mat ferskleika, en auðvitað
þurfa blöðin að fera óskemmd og
þvegin. Vorsalatið mitt sam-
anstendur oft af ferskum fífla-
blöðum, kerfilblöðum og gras-
lauk. Auk þess sem ég nota
blöðin í salat tek ég gula fífla-
hausana og dýfi þeim í gott deig
eins og pönnuköku- eða vöfflu-
deig og djúpsteiki þá siðan í
óh'fuoli'u. Þetta er himneskur
forréttur sem ég ber fram með
sojasósu.
Hildur segir að ekki sé ráðlegt
að nota jómfrúarolíuna til að
steikja upp úr heldur aðra teg-
und af vandaðri ólífuolíu.
Smáfíflar með rót
Þegar ég sting upp maljurtag-
arðinn minn tíni ég smáfíflana
sem sá sér gjaman í mat-
jurtagörðum. Eg brylja þá smátt
niður með rótinni eftir að ég hef
hreinsað þá vel og steiki si'ðan á
pönnu í góðri olíu eða jafnvel
smjöri. Eg bæti sojasósu á pönn-
una og jafnvel örlitlu vatni ef
þannig liggur á mér. Þegar þetta
er orðið meyrt bæti ég ijóma út
á. Þetta er herramannsmatur
með hveiju sem er.“
Hildur segir að fíflar séu sagð-
ir góðir fyrir Iifrarstarfsemina
og því segir hún að seyði úr fífl-
um sé afar gott þegar menn hafí
ofkeyrt sig á annarri drykkju.
Stönglarnir góðir
Þegar búið er að taka blómin
af fíflunum og leggja í deig til að
djúpsteikja þá tekur Hildur fjóra
væna stöngla og leggur saman.
„Stönglana borða ég en verð að
byija ofan frá, þannig bragðast
þeir best.“
Kerfíllinn í uppáhaldi
„Kerfílblöðin eru uppistaðan í
salati hjá Hildi á vorin og eins
uotar hún kerfílinn i súpur eins
og t.d. grænmetis- og kjúklinga-
súpu.
Kerfílblómin sjálf em hvít og
áður en þau springa alveg út set-
ur hún þau í djúpsteikingardeig
og steikir síðan.
„Hvannarblöð nota ég aðeins
en það er varasamt að nota mikið
af þeim því þau era bæði bragð-
sterk og sérstök.“
Hildur mælir líka með njóla-
blöðum í salatið en í litlu magni.
„Ef fólk er ekki hrifið af beiska
bragðinu má byija á því að nota
blöðin í heitan, hvítan jafning. Sá
réttur er íslenskur og var al-
gengur hér áður fyrr með físki.
Morgunfrúarlauf í salatið
Hildur notar laufín af morgun-
frú í salat og einnig blöð af
þrílitri fjólu sem hún segir að sé
komin upp þar sem skjólsælt er.
Ábyrgðarmenn fá réttarbót
Aukin upplýsingaskylda
fj ármálastofnana
MÖRG dæmi eru um að þeir sem
ábyrgjast lán fyrir aðra þurfí á end-
anum að borga skuldirnar því
lántakar eiga ekki fyrir þeim. Um-
ræða um reglur til að bæta réttar-
stöðu ábyrgðarmanna
hefur staðið lengi.
Nú í maí tók gildi
samkomulag um sjálf-
skuldarábyrgðir sem
felur í sér að þeir sem
gangast í ábyrgðir fyrir
greiðendur lána eiga
rétt á upplýsingum frá
fjármálafyrirtækjum um
greiðslugetu greiðenda.
Þeir sem eiga aðild að
þessu samkomulagi eru
sparisjóðimir, bankarn-
ir, greiðslukortafyrir-
tækin, viðskipta- og
félagsmálaráðuneytin og
N eytandasamtökin.
Að sögn Sigríðar Am-
ardóttur lögfræðings Neytenda-
samtakanna felur samkomulagið í
sér miklar breytingar á stöðu
ábyrgðarmanna m.a. vegna skyldu
fjármálafyrirtækja til að upplýsa
ábyrgðarmann um hvað það þýðir
að gangast í ábyrgð og eiga fjár-
málafyrirtæki að láta ábyrgðar-
mann fá upplýsingabækling um
ábyrgðir sem hann staðfestir skrif-
lega að hafa fengið.
„Samkomulagið er fyrir alla þá
sem gangast í sjálfskuldarábyrgð,
einfalda ábyrgð og þá sem leyfa
veðsetningu á fasteign sinni til að
tryggja skuldir annars aðila.“
- Hvað er sjálfskuldarábyrgð?
„Sjálfskuldarábyrgð er þegar ein-
staklingur gengur í ábyrgð fyrir
annan greiðanda, til að tryggja fjár-
hagslega skuldbindingu hans, til
dæmis vegna láns sem hann tekur.
Abyrgðarmaður ábyrgist þar með
að greiða skuldina, vexti, dráttar-
vexti og annan kostnað eins og hann
væri sjálfur greiðandi lánsins, ef
greiðandi greiðir ekki skuld sína.“
- Hvaða rétt öðlast ábyrgðarmað-
ur samkvæmt samkomulaginu?
„Ábyrgðarmaður getur alltaf
óskað eftir því áður en hann gengst
í ábyrgð að fjármálafyrirtæki meti
greiðslugetu greiðanda lánsins.
Ábyrgðarmaður getur því fengið
upplýsingar um hver sé fjárhagsleg
geta greiðandans og þannig metið
Morgunblaðið/Þorkell
þá áhættu sem hann tekur með
stofhanir veiti í auknum mæli lán út
á eigin tryggingar.
Með því að greiðandi láns veiti
heildarupplýsingar um fjárhag sinn
getur hann jafnframt í mörgum til-
vikum gert kröfu til
þess að fá lán út á eigin
tryggingu."
Sigríður segir að í
samkomulaginu sé tekið
fyrir ábyrgðir án til-
greindrar fjárhæðar.
„Það þýðir að ábyrgðar-
maður ábyrgist aðeins
ákveðna fjárhæð sem
má ekki hækka án hans
samþykkis, til dæmis
þegar yfirdráttur er
hækkaður." Þá segir
hún að notkun greiðslu-
korts skuli stöðvuð ef
gjaldfallin úttekt er ekki
greidd við næsta gjald-
daga þar á eftir og ekki
frekari notkun kortsins
ábyrgð sinni. Sigríður hvetur
ábyrgðarmenn til að nýta sér þenn-
an rétt sinn annars geta þeir ekki
metið þá áhættu sem þeir eru að
taka á sig.
Ef upphæðin sem um ræðir er
hærri en ein milljón króna þarf ekki
að óska eftir greiðslumati þar sem
fjármálafyrirtæki er þá skylt að
greiðslumeta greiðanda."
- Hvað gerist ef greiðandinn er
ekki talinn borgunarmaður fyrir
væntanlegu láni?
„Fjármálafyrirtæki verður að
upplýsa ábyrgðarmann um það ef
niðurstaða greiðslumats bendir til
að greiðandi geti ekki staðið við
skuldbindingar sínar. Til að fjár-
málafyrirtæki geti metið greiðslu-
getu greiðanda með fullnægjandi
hætti verða þau að fá heildarupp-
lýsingar um fjárhag hans. Því
munu fjármálafyrirtæki koma á fót
kerfi til að miðla upplýsingum um
fjárhag greiðenda og verður það
gert fyrir 1. desember næstkom-
andi. „
- Verða ábyrgðir þá ekki óþarfar
þegar greiðslumat liggur fyrir?
„Það má gera ráð fyrir að lána-
má leyfa
nema skriflegt samþykki ábyrgðar-
manns komi til.
Sigríður bendir á að ef ábyrgðar-
maður telur að ekki hafi verið farið
eftir þeim reglum sem koma fram í
samkomulaginu eða telur að fjár-
málafyrirtækið hafí brotið á sér rétt
getur hann borið ágreiningsefnið
undir Urskurðarnefnd um viðskipti
við fjármálafyrirtæki.
Nefndin hefur aðsetur í Austur-
stræti 5 í Reykjavík og bæði Neyt-
endasamtökin og Samband ís-
lenskra viðskiptabanka veita um
hana upplýsingar, segir Sigríður að
lokum.
Morgunblaðið/Kristinn
„Múffur“
frá Vilkó
NÝLEGA var farið að selja „múff-
ur“ frá Vilkó. Um er að ræða app-
elsínu- og súkkulaðikökur sem bak-
aðar eru í litlum formum. I hverjum
pakka er efni í 18 muffur.
í fréttatilkynningu frá Ó. John-
son & Kaaber kemur fram að ein-
ungis þurfí að blanda vatni saman
við duftið frá Vilkó og baka kökum-
ar síðan í ofni í nokkrar mínútur.
Kemur upp um
lacoste þinn góoa smekk!
fiertu
GARÐURINN
-klæðirþigvel
KRINGLUNNI OG LAUGAVEGI