Morgunblaðið - 19.05.1998, Síða 50
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Ástkaer eiginmaður minn og faðir okkar,
BJÖRN MEKKINÓSSON,
Guðrúnargötu 9,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnudaginn
17. maí.
Gunnhildur Jóhannsdóttir,
Dagmar Björnsdóttir Henry, Jóhann Björnsson,
Mekkinó Björnsson, Björn Björnsson,
Sigríður Björnsdóttir, Gunnhildur Bjömsd. Mekkinósson.
t
Elskulegur bróðir okkar og frændi,
JÓNAS KÁRI STEFÁNSSON,
Húki,
Miðfirði,
andaðist á sjúkrahúsinu á Hvammstanga
aðfaranótt sunnudagsins 17. maí.
Kristmann Ágúst Stefánsson,
Ása Sigríður Stefánsdóttir,
Unnur Sveinsdóttir
og fjölskylda.
t
Okkar ástkæra
JARÞRÚÐUR PÉTURSDÓTTIR,
Ljósheimum 8,
Reykjavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugardaginn
16. maí.
Aðstandendur.
t
Útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
DAVÍÐS SIGMUNDAR JÓNSSONAR,
Bauganesi 30,
sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur mánudaginn 11. maí sl., verður gerð
frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 19. maí kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hans, er bent á hjúkrunarþjónustu Karítas.
Guðrún Davíðsdóttir,
Erla Daviðsdóttir, Jóhann Birgir Guðmundsson,
Sigríður Davíðsdóttir,
Sveinn Georg Davíðsson,
Jón Pálmi Davíðsson,
Elísabet Dolinda Ólafsdóttir, Már Björgvinsson,
Georgía Olga Kristiansen,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
TRYGGVI JÓNSSON,
frá Læknesstöðum,
sem andaðist 14. maí sl. verður jarðsunginn frá Sauðaneskirkju
á morgun, miðvikudaginn 20. maí kl. 14.00.
Ingibjörg Halldórsdóttir,
Sigurveig Tryggvadóttir, Jón Jakobsson,
Freyja Tryggvadóttir, Ólafur Friðriksson,
Kristján Sigfússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og lang-
afa,
KRISTJÁNS ÁRNASONAR
frá Holti í Aðalvík,
til heimilis á Mávabraut 10a,
Keflavfk.
Guðbjörg Finnbogadóttir,
Kristín E. Kristjánsdóttir, Leifur Georgsson,
Unnur H. Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
KRISTÍN
HJALTESTED
+ Kristín Hjalte-
sted fæddist í
Reykjavík 28. mars
1973. Hún lést af
slysförum 9. maí
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar eru Erla
Hjaltested og Ragn-
ar Kristinsson.
Systkini Kristínar
eru: Lára Hjaltested,
f. 1971, hjúkrunar-
fræðingfur, Svavar
Hjaltested, f. 1980,
nemandi í Verslun-
arskóla Islands, og
Ragnar Hjaltested, f.
1984, nemandi í Réttarholtsskóla.
Kristín var nemandi á kenn-
arabraut við Háskólann á Akur-
eyri og þjálfaði þar 5. flokk
stúlkna hjá KA. fþróttir hafa átt
hug hennar allan frá barnæsku.
Kristín hefur leikið með
íþróttafélaginu Fram í hand-
knattleik til margra ára.
títför Kristínar Iljaltested fer
fram frá Bústaðakirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Elsku bamið mitt.
Hversu fógur ertu vina mín,
hversufógurertu!
Hversupferástþín.
I Biblíunni er ritað:
ÖUu er afmörkuð stund og sérhver
hlutur undir himninum hefír sinn
tíma. Að fæðast hefír sinn tíma og að
deyja hefir sinn tíma, að gráta hefír
sinn tíma og að hlæja hefir sinn tíma,
að kveina hefír sinn tíma og að dansa
hefír sinn tíma, að kasta steinum hef-
ir sinn tíma, að tína saman steina hef-
ir sinn tíma, að elska hefír sinn tíma
og að hata hefír sinn
tíma, að faðmast hefír
sinn tíma og að halda
sér frá faðmlögum hefír
sinn tíma. Allt sem Guð
gjörir stendur að eilífu,
við það er engu að bæta,
og af því verður ekkert
tekið.
Fari elsku Kristín
Hjaltested Ragnars-
dóttir í friði til hins eilífa
ljóss.
Pabbi og Kristín.
Laugardagskvöldið 9.
maí sl. fengum við hörmulega frétt
um Kristínu, okkar bestu vinkonu.
Hún var að koma í bæinn frá Akur-
eyri þar sem hún var að klára próf.
Við vorum famar að undrast að hafa
ekki heyrt neitt frá henni þetta kvöld,
en svo kom í Ijós að við áttum ekki
eftir að fá að heyra í henni framar.
Við áttum erfitt með að trúa þessum
fréttum og skildum ekki og skiljum
ekki enn af hverju hún var tekin
svona fljótt frá okkur. Við reynum að
hugga okkur við og geyma í huga
okkar allar þær frábæru minningar
sem við eigum um samverustundir
okkar með henni. Við gætum
auðvitað skrifað heila bók um þær
stundir, en upp úr standa allar hand-
boltaferðimar með Fram allt frá þvi
við vomm 13 og 14 ára gamlar og sól-
arlandaferðimar með vinunum.
Einnig fómm við í ijölmargar tjald-
og sumarbústaðaferðir innanlands,
sem ekki vora síðri en þær sem vora
utan landsteinana. Jaíh minnisstæðar
og mikilvægar fyrir okkur era þær
hversdagslegu stundir sem við áttum
með henni, því það leið varla sá dagur
að við heyrðum ekki í henni eða sá-
um.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og
afi,
EINAR J. GÍSLASON
fyrrverandi forstöðumaður
Fíladelfíusafnaðarins,
Snorrabraut 56,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Hvítasunnukirkjunnni
Fíladelfíu, Hátúni 2, Reykjavík, föstudaginn
22. maí klukkan 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir.
Þeim, sem vildu minnast Einars, er bent á minningarkort Samhjálpar
hvítasunnumanna, Hverfisgötu 42, 101 Reykjavík, sími 561 1000.
Sigurlina Jóhannsdóttir,
Guðrún Margrét Einarsdóttír,
Guðni Einarsson,
Sigurmundur Gísli Einarsson,
Guðný Einarsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við fráfall ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
GUÐMUNDAR JÚLIUSAR
GUÐMUNDSSONAR,
Grenimel 35,
Reykjavík,
og heiðruðu minningu hans. Þá færum við starfsfólki á deild 1A, Landa-
kotsspítala, hugheilar þakkir fyrir þá alúð og hlýju, sem það sýndi honum
meðan hann dvaldist þar.
Guðný Sigfúsdóttir,
Sigrún Guðmundsdóttir, Sigurður Jakobsson,
Sigfús Guðmundsson, Rosemarie Þorleifsdóttir,
Guðni Guðmundsson, Steinunn Sigurðardóttir,
Þórunn Guðmundsdóttir, Ólafur Kristinn Ólafsson,
Hafdís Guðmundsdóttir, Guðmundur Gíslason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Lokað í dag vegna jarðarfarar DAVÍÐS S. JÓNSSONAR.
Kápan ehf.
Undanfarm tvö ár bjó Kristín hins
vegar í Þýskalandi og á Akureyri og
áttum við þess vegna ekki eins marg-
ar stundir saman og við hefðum
viljað. Við bættum það upp sl. tvo
mánuði þar sem Kristín þjó þá í
Reykjavík og var mikið með okkur.
Þessir tveir mánuðir era okkur mjög
kærir og eram við innilega þakklátar
fyrir að hafa fengið að vera með henni
Kristínu okkar svona mikið síðustu
tvo mánuðina í lífi hennar. Kristín
hefur alla tíð verið mjög ákveðin og
ávallt staðið á sínu. Handboltinn hef-
ur verið hennar aðal áhugamál í lífinu
og þar hefur hún alltaf lagt sig alla
iram og ætlaðist hún til þess sama af
öðram. Hún var mjög hreinskilin og
sagði yfirleitt alltaf það sem henni bjó
í brjósti. Hún hikaði ekki við að sýna
okkur vinkonunum væntumþykju
sína á marga vegu og var alltaf til
staðar þegar við þurftum á henni að
halda. Við vonum að við höfum náð að
gefa henni jafnmikið og hún gaf okk-
ur á þeim áram sem við lifðum sam-
an, sem urðu því miður ekki næstum
því nógu og mörg.
Elsku Erla, Lára, Svavar, Ragnar,
Lára amma, Ragnar og Hilmar. Við
biðjum góðan Guð að styrkja ykkur í
sorginni og hjálpa ykkur að lifa með
henni um ókomin ár.
Elsku Kristín okkai-, við vitum ekki
af hveiju þú þurftir að yfírgefa okkur
svona snemma, en við vonum og trú-
um að það sé einhver tilgangur með
því. Við eigum eftir að sakna þín mik-
ið og ekkert á eftir að fylla þitt skarð.
Þú munt vera að eilífu í hugum okkar
og hjörtum.
Astar- og saknaðarkveðjur, þínar
vinkonur að eilífu,
Ragnheiður og Steinunn.
Okkur langar í örfáum orðum að
minnast Kristínar Hjaltested sem
lést í hörmulegu bílslysi 9. maí síðast-
liðinn. Kristínu höfúm við þekkt í
mörg ár, en hún lék handknattleik
með Fram upp alla yngri flokkana.
Okkar kynni hóíúst fyrir alvöra þeg-
ar hún hóf að leika með meistara-
flokki félagsins 18 ára gömul. Kraft-
ur, barátta og leikgleði einkenndu
Kristínu sem leikmann og var hún
draumur hvers þjálfara að þjálfa.
Hún gerði miklar kröfúr til sín sem
leikmanns og ætlaðist til að aðrir
gerðu slíkt hið sama, dreif lið sitt
áfram og gafst aldrei upp. Það er
stórt skarð höggvið í hóp Fram-
stelpna og allra Framara. En minn-
ingin um hressa og yndislega stúlku
mun lifa. Megi algóður guð styrkja
fjölskyldu hennar, ættingja og vini í
þessari miklu sorg.
Margs er að minnast,
margterhéraðþakka.
Guði sé lof fyrir hðna tíð.
Margs er að minnast,
margseraðsakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Farþúífriði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt
Gekkst þú með Guði,
Guðþérnúfylgi,
hans dýrðarlmoss þú hljóta skalt.
(V.Briem)
Guðríður, Arna, Ósk
og Hafdis.
Elsku Kristín. Það er stutt á milli
gleði og sorgar. Ekki era liðnar nema
tvær vikur síðan við stelpumar vor-
um saman á lokahófi HSÍ. Það
geislaði af þér þetta kvöld og hópur-
inn átti saman góða stund. Engan
óraði þá fyrir að þetta væri í síðasta
skiptið sem við kæmum allar saman.
Nú hefur stórt skarð verið höggvið í
hópinn og eftir sitjum við hugsandi og
harmi slegnar.
Þú varst íþróttamaður af lífi og sál
og handboltinn skipaði stóran sess í
lífi þínu. Svo stóran að fjarlægðin
milli Reykjavíkm- og Akureyrar var
þér engin hindran í að taka þátt í
leikjum með okkur. Baráttugleði og
áhugi var það sem einkenndi þig. Þú
varst öflug í vöm og sókn og óspör á
að hvetia samherja þína til dáða. Þú
varst ósérhlífin og gerðir miklar kröf-
ur til sjálfrar þín og vildir að aðrir
gerðu hið sama.
Otal minningar um góða vinkonu
og félaga koma fram í hugann á stund
sem þessari. Við era þakklátar fyrir
að hafa fengið að kynnast þér og taka