Morgunblaðið - 19.05.1998, Blaðsíða 72
Atvinnutryggingar
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Sverrir Hermannsson krefst endurupptöku
Allt starfslið ríkisend-
urskoðanda víki sæti
ÁSGEIR Þór Árnason, lögmaður
Sverris Hermannssonar, fyrrver-
andi bankastjóra, hefur ki-afist þess
að greinargerð Ríkisendurskoðunar
frá því í agríl sl. til bankaráðs
Landsbanka Islands hf. um kostnað
bankans vegna veiðiferða, risnu o.fl.
verði endurupptekin. Krafist er ít-
arlegri rannsóknar, annarra efn-
istaka og að ákveðnar breytingar
verði gerðar á greinargerðinni, en
jafnframt að núverandi ríkisendur-
skoðandi og starfslið hans allt víki
sæti við meðferð málsins, annars
^f^vegar þegar ákvörðun verður tekin
um hvort við endurupptökubeiðn-
inni verði orðið og hins vegar við
efnislega meðferð endurupptöku-
kröfunnar.
Krafan er birt í heild sinni í
Morgunblaðinu í dag, en þar kem-
ur m.a. fram að farið er fram á að
kafli í greinargerðinni um skrán-
ingu og frágang bókhaldsgagna
sem tengjast risnukostnaði verði
endurskrifaður og sérstaklega til-
greint að Ríkisendurskoðun hafi
aldrei áður vakið athygli á að frá-
gangi fylgiskjala kynni að vera
ábótavant en hafi þó allan
starfstíma Sverris haft með endur-
skoðun bankans að gera.
Þá er þess einnig krafist að frá
því verði greint að fram til þessa
hafi Ríkisendurskoðun ekki vakið
athygli bankastjómar á því að eitt-
hvað hafi verið athugavert við
kostnaðarliði þá sem greinargerðin
fjallar um og að það hafi verið and-
stætt góðri endurskoðunarvenju að
láta það hjá líða.
I endurupptökukröfunni segir að
greinargerðina beri að endurupp-
taka af þeirri ástæðu að núverandi
ríkisendurskoðandi hafi frá upphafi
verið vanhæfur til þess að vinna að
henni, en það helgist af þeirri laga-
skyldu hans að vera annar tveggja
endurskoðenda Landsbankans og
þar með hafi störf hans að greinar-
gerðinni óhjákvæmilega lotið að því
að rannsaka eigin þátttöku í endur-
skoðun bankans og varði hann því
sjálfan verulega. Þá segir að lög-
fræðingur embættisins, Láms Ög-
mundsson, hafi verið vanhæfur við
meðferð málsins, þar sem sambýlis-
kona hans sé systir Jóhönnu Sig-
urðardóttur alþingismanns, sem
hafi aðilastöðu í málinu sem upp-
hafsmaður þess.
■ Krafa um/12
Myndað í
stúkunni
BÆÐI Stöð 2 og Ríkissjónvarpið
sýndu í gærkvöld kafla úr leik
Þróttar og Iþróttabandalags
Vestmannaeyja í efstu deild
karla í knattspyrnu á Laugar-
dalsvelli þótt ekki hefðu náðst
samningar um sýningar frá leikj-
um í deildinni við þýska fyrir-
tækið UFA. íslandsmótið hófst af
krafti og náðu nýliðarnir í deild-
inni að knýja fram 3-3 jafntefli
gegn núverandi fslandsmeistur-
um. Kvikmyndatökumaður
Ríkissjónvarpsins myndaði í upp-
hafi neðst í stúkunni á Laugar-
dalsvellinum, en kom sér síðar
fyrir á sínum hefðbundna stað
undir þaki hennar. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins stóð
aldrei til að Knattspyrnusam-
band íslands, sem samdi við UFA
um sýningarréttinn frá deildinni,
meinaði tökumönnum sjónvarps-
stöðvanna aðgöngu að vellinum.
■ Sýnt í fréttum/C5
Samkomulag
um störf Alþingis
Hlé fram
yfír kosn-
ingar
SAMKOMULAG hefur náðst
milli þingflokka um störf
Alþingis og þinglok í sumar. Að
sögn Ólafs G. Einai-ssonar for-
seta Alþingis er stefnt að því að
ljúka þingi 5. júní nk. og af-
greiða hálendisfrumvörpin þrjú
og húsnæðisfrumvarpið um
miðja næstu viku.
Þá hefur orðið að samkomu-
lagi að gera hlé á þingstörfum
síðdegis í dag og hefja þau að
nýju eftir sveitarstjómarkosn-
ingarnar eða næstkomandi
mánudag. I næstu viku hefjast
síðan viðræður milh þingflokk-
anna um það hvaða þingmál,
sem nú bíði afgreiðslu, eigi að
afgreiða á þessu þingi og hver
megi bíða haustsins.
■ Samstaða hefur/10
Svartfugls-
eggin komin
„ELDRA fólkið bíður eftir
eggjunum, þau eru viss vor-
boði,“ segir Júlfus Jónsson
kaupmaður um svartfugls-
eggin, en fyrsta sending
vorsins, 4.500 egg norðan af
Langanesi, úr Skálavíkur-
bjargi, kom í verslanir
Nóatúns í gær. „Þau eru
heldur í fyrra fallinu núna. I
fyrra fengum við þau t.d.
ekki fyrr en 24. maí.“
Morgimblaðið/Ásdís
Morgunblaðið/Ásdís
Ekki hefur enn verið gengið frá irýjum kjarasamningi við ljósmæður
YFIR 65% ljósmæðra á kvenna-
deild Landspítalans, eða 103 af um
150, hafa sagt upp störfum sínum
frá síðustu mánaðamótum og verð-
ur síðasti starfsdagur þeÚTa því 31.
júlí næstkomandi. Stafa uppsagn-
irnar af óánægju með launakjör.
Sólveig Friðbjarnardóttir, ljósmóðir
á kvennadeildinni, segir að margar
ljósmæðranna hafi þegar ráðið sig
til annarra starfa.
Misjafnt er eftir sviðum innan
kvennadeildarinnar hversu margar
ljósmæður hafa sagt upp; á sónar-
og glasafrjóvgunardeildum er hlut-
fall þeirra sem sagt hafa upp nálægt
100%. Þá hafa allmargar Ijósmæður
sem starfa sem hjúkrunarfræðingar
á ýmsum öðrum deildum spítalans
sagt upp, enda eru flestar ljósmæð-
ur einnig hjúkrunarfræðingar.
„Þetta er vegna óánægju með
Yfír 65% ljós-
mæðra á kvenna-
deild segja upp
laun og við erum líka óánægðar með
að ekki skuli hafa verið lokið samn-
ingum við okkur,“ sagði Sólveig.
„Eftir síðustu samninga var gert
ráð fyrir starfsmati og að okkur
yrði raðað í launaramma, en eftir
eitt og hálft ár hefur ekkert gerst í
því. Við fáum því enn greitt eftir
gömlu samningunum frá því fyrir
fjórum og hálfu ári og höfum aðeins
fengið 4,5% og 1,5% hækkanir á
þann samning," segir Sólveig enn-
fremur.
Hún segir undarlegt að ríkið
skuli geta gengið frá þessum málum
við svo til allar aðrar stéttir á stofn-
unum sínum en hjúkrunarfræðinga
og ljósmæður. „Við teljum að við
höfum verið hunsaðar þennan tíma.
Við erum orðnar sárar og svekktar
yfir þessu og það er alveg á tæru að
talsvert margar þeirra ljósmæðra,
sem hafa sagt upp, eru búnar að fá
vinnu annars staðar og munu ekki
snúa aftur. Það mun því verða hér
ófremdarástand."
Enginn karl í ljós-
mæðrastétt
Enginn kar-i er í stétt ljósmæðra
og segir Sólveig það kannski ein-
hverja skýringu á lélegum kjörum
Ijósmæðra. „Við bíðum eftir að fá
karlmann í stéttina, það verður
kannski ef við fáum launahækkanir
og verður kannski stéttinni til fram-
dráttar ef við fengjum karla í þessi
störf.“
Þær ljósmæður sem ekki segja
upp störfum segir Sólveig einkum
vera þær sem nálgast eftirlaunaald-
ur, og þær sem eru í skóla.
Gjöf Norðmanna á
kristnitökuafmæli
“ Stafkirkja
til Vest-
mannaeyja
EFTIRLÍKING af norskri staf-
kirkju verður væntanlega reist í
Vestmannaeyjum í tilefni af 1000
ára kristnitökuafmælinu árið 2000.
Norska ríkisstjórnin hefur
samþykkt að leggja til við Stórþing-
ið að kirkjan verði þjóðargjöf Norð-
manna tii íslendinga á þessum
timamótum. Þannig á að minnast
þess að Ólafur konungur Tryggva-
— son gaf kirkju til Islands þegar þeir
Hjalti Skeggjason og Gissur hvíti
komu hingað árið 1000 til þess að
kristna Islendinga og skyldi kirkjan
reist þai- sem þeir kæmu fyrst að
landi á leið sinni til Þingvalla, en
það var einmitt í Vestmannaeyjum.
■ Eftirlfldng/4
<