Morgunblaðið - 27.05.1998, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Flóttagöng fundust við skálann á Keldum á Rangárvöllum
Morgunblaðið/Þorkell
RAGNHEIÐUR Traustadóttir og Guðrún
Sveinbjarnardóttir fornleifafræðingar virða
fyrir sér teikningu af uppgreftrinum ásamt
Drífu Hjartardóttur, húsfreyju á Keldum.
BJÖRN Stefánsson fornleifafræðingur
inni í jarðgöngunum.
Elsta hús landsins gert upp
Á KELDUM í Rangárvallasýslu stendur elsta hús
landsins. Það er sá hluti gamla bæjarins sem kall-
ast skáli og mun hann vera frá miðöldum. Viðgerð
bæjarins hófst í síðustu viku en stefnt er að því að
gera hann upp á næstu tveimur árum.
„Markmiðið með viðgerðinni er að varðveita
bygginguna sem sögulega heimild,“ segir Þór
Hjaltalín sagnfræðingur sem hefur umsjón með
verkinu. „Við ætlum okkur ekki að færa byggingar-
stigið til baka til þess „upprunalega" heldur halda
bænum við eins og skilið var við hann þegar
Þjóðminjasafnið tók við honum árið 1947.“
Ásamt Þóri vinna fornleifafræðingarnir Ragn-
heiður Traustadóttir, Guðrún Sveinbjarnardóttir
og Bjöm Stefánsson að verkinu. Fomleifafræðing-
amir sjá um uppgröftinn á staðnum en Þór hefur
yfirumsjón með endurgerðinni. Hann hefur kynnt
sér þær heimildir sem tii era um húsið og nýtir
þær. Þar er fyrst og fremst um að ræða dagbækur
og viðgerðarannál Skúla Guðmundssonar
(1862-1946) sem var síðasti ábúandinn á gamla
bænum. „Færslur hans era með eindæmum
nákvæmar enda kallaði hann viðgerðarannálinn
Smæsta smátt.“ Annað sem hefur nýst er t.d. kvik-
myndin Saga Borgarættarinnar sem fest var á
filmu árið 1915. Hún nýttist við endurgerð hjallsins
sem er austasti hluti bæjarins og var aðallega
notaður til að þumka fót.
Flóttagöng frá skálanum að Keldnalæk
Þegar farið vai- að grafa við skálann var komið
niður á göng sem liggja frá skálanum að ánni sunn-
an við bæinn. Göngin eru að öllum líkindum 13. ald-
ar smíð og hafa verið ætluð sem flóttagöng. Engar
ritaðar heimildir era þó til um notkun ganganna.
Reyndar var vitað að göngin lægju þarna því að
árið 1932 þegar verið var að búa til þró á hlaðinu
komu menn niður á göngin og endurgerðu þau eftir
bestu vissu frá þrónni og að ánni. Nú er stefnt að
því að finna út úr þvi hvernig göngin lágu uppruna-
lega og verður grafið þversnið í jarðveginn við skál-
ann tO að sjá hvemig þau hafa legið og hvemig þau
komu upp í skálanum. Það hefur ekki verið gert áð-
ur á Islandi og þar sem þessi hluti ganganna er
óhreyfður gefur uppgröfturinn möguleika á
nákvæmri aldursgreiningu þeirra.
Mikil vinna býr að baki endurgerðinni og þarf t.d.
að endurhlaða álla veggi en því verki stýrir Víglund-
ur Kristjánsson hleðslumaður. Þórhallur Hólm-
geirsson smiður sér svo um viðgerð á hurðum og
stoðum og öðra tréverki. „Það má segja að fátæktin
hafi bjargað ýmsum minjum að því leyti að tiltölu-
lega lítið var um endumýjun," segir Þórhallur.
Að framkvæmdum loknum er stefnt að þvi að
hafa bæinn til sýnis eins og hann hefur reyndar
verið frá þvi að hann komst í eigu Þjóðminjasafns-
ins árið 1942. „Það var kominn tími til að bærinn
yrði tekinn í gegn og við eram auðvitað himinlifandi
yfir þessu hér,“ segir Drífa Hjartardóttir, húsfreyja
á staðnum.
Viðræðuslit B- og D-lista í
Borgarbyggð og Isafjarðarbæ
UM HÁDEGI í gær lentu viðræður
sjálfstæðismanna og framsóknar-
manna í Borgarbyggð í hnút, og var
hætt, að minnsta kosti í bili. í
gærkvöld ætluðu sjálfstæðismenn
að ræða óformlega við fulltrúa
L-lista, Borgarbyggðarlistans.
í ísafjarðarbæ hófust viðræður
milli sjálfstæðismanna og
framsóknarmanna en upp úr þeim
slitnaði. í gær ræddust sjálfstæðis-
menn og K-listamenn Bæjar-
málafélags Isafjarðar við og munu
halda því áfram.
Framsóknarflokkur og G-listi
Alþýðuflokks, Aiþýðubandalags og
Kvennalista í Mosfellsbæ hafa
samþykkt að ganga til formlegra
viðræðna um áframhaldandi sam-
starf. Jónas Sigurðsson, oddviti G-
lista, segir að ekki hafi annað komið
til tals en að Jóhann Sigurjónsson
verði bæjarstjóri áfram.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í
Kópavogi lögðu í gærkvöldi fyrir
fulltrúaráðsfund tillögu um áfram-
haldandi samstarf við Framsóknar-
flokk og samsvarandi viðræður fóra
fram hjá framsóknarmönnum.
Á Akranesi standa enn viðræður
milli Framsóknarflokks og Kríunn-
ar, lista Alþýðubandalags, Alþýðu-
flokks og Kvennalista, og er búist
við niðurstöðu á föstudag eða laug-
ardag.
Á Siglufirði ákváðu sjálfstæðis-
menn og framsóknarmenn í fyrra-
dag að ganga til samstarfs. Að sögn
Hauks Omarssonar, oddvita sjálf-
stæðismanna, hefur Guðmundur
Guðlaugsson samþykkt að gegna
áfram stöðu bæjarstjóra. Skarp-
héðinn Guðmundsson, oddviti
framsóknarmanna, verður forseti
bæjarstjórnar en Haukur verður
formaður bæjarráðs.
Framsóknarmenn og Sameining
í samstarfi á Dalvik
Samkomulag náðist síðdegis í
gær milli framsóknarmanna og S-
lista Sameiningar á Dalvík um sam-
starf. S-listamaður mun gegna
stöðu forseta sveitarstjómar,
framsóknarmaður verður formaður
byggðaráðs og Rögnvaldur Skíði
Friðbjörnsson verður beðinn um að
gegna áfram stöðu bæjarstjóra.
I Austurhéraði hafa fulltrúar
Framsóknarflokks og F-lista
„Félagshyggju við Fljótið" rætt
saman síðastliðna tvo daga. Broddi
Bjami Bjamason, oddviti
framsóknarmanna, sagði í gær að
línur myndu skýrast með kvöldinu
um hvort af samstarfi yrði.
Fulltrúar H-lista Kríunnar í
Homafjarðarbæ ákváðu á fundi í
gærkvöldi að ganga til formlegra
viðræðna við sjálfstæðismenn. Gísli
Sverrir Ámason, oddviti Kríunnar,
segir ljóst að Sturlaugur Þorsteins-
son verði beðinn um að sitja áfram í
bæjarstjórastól.
Samkomulag tókst í fyrrakvöld
um meirihlutasamstarf Framsókn-
arflokks og Sjálfstæðisflokks í Ár-
borg. Karl Bjömsson, fyrrum
bæjarstjóri Selfoss, hefur verið
beðinn um að taka að sér embætti
sveitarstjóra í hinu sameinaða sveit-
arfélagi. Ingunn Guðmundsdóttir,
oddviti sjálfstæðismanna, verður
forseti bæjarstjórnar og Kristján
Einarsson, oddviti framsóknar-
manna, formaður bæjarráðs út árið.
í Grindavík ætla framsóknar-
menn og sjálfstæðismenn að halda
áfram samstarfi. Ákveðið hefur ver-
ið að biðja Jón Gunnar Stefánsson
um að gegna stöðu bæjarstjóra í
eitt ár í viðbót en að því loknu verð-
ur auglýst eftir manni í embættið.
í Reykjanesbæ náðist seint í
fyrrakvöld samkomulag um áfram-
haldandi meirihlutasamstarf Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknai-flokks.
Ellert Eiríksson, oddviti sjálf-
stæðismanna, verður áfram bæjar-
stjóri en Skúli Þ. Skúlason, oddviti
framsóknarmanna, verður forseti
bæjarstjómar. Embætti formanns
bæjarráðs kemur í hlut Sjálfstæðis-
flokks.
Hlutabréf >
hækka við
aukningu
kvóta
TALSVERT bar á viðskipt-
um með hlutabréf í sjávarút-
vegsfyrirtækjum á
Verðbréfaþingi Islands í gær
í kjölfar frétta af tillögum
Hafrannsóknastofnunar um
32 þúsund tonna hækkun á
aflahámarki í þorski á næsta
fiskveiðiári.
Heildarviðskipti dagsins
voru upp á 1.486 milljónir
króna, þar af námu viðskipti
með hlutabréf alls 118 m.kr.
Mest var verslað með bréf í
Samherja eða fyrir 34 m.kr.
Tuttugu milljóna króna við-
skipti áttu sér stað með hluta-
bréf í Granda og 13 milljónir í
bréfum Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar.
Nokkur hækkun varð á
verði hlutabréfa sjávarút-
vegsfyrirtækja. Mest hækkun
varð á hlutabréfum Síldar-
vinnslunnar og Granda hf.
eða 6% en bréf í Hraðfrysti-
húsi Eskifjarðar og Samherja
hækkuðu um rúm 4%.
Vísitala sjávarútvegs hækk-
aði um 3,09%.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Göngu-
garpar
heim á ný
Keflavík. Morgunblaðið.
KONURNAR fjórar sem gengu
yfir Grænlandsjökul komu til
landsins í gær. Þær sögðust vera
vel á sig komnar og ferðin hefði
gengið framar óskum. Alls
gengu þær 530 kílómetra og þar
af voru 500 á jökli. Þegar þær
komu niður af jöklinum urðu þær
að ganga um 25 kflómetra í mikl-
um aur sem hafði myndast þegar
frost fór úr jörðu. Alls tók ferða-
lagið 23 daga.
Sérblöð í dag
m m®mi
► AFLAHORFUR á næsta fiskveiðiári eru m.a. til
umfjöllunar í Verinu í dag. Sömuleiðis segir frá aukn-
um áhuga á gulllaxi og gengi í humar- og síldveiðum
og ijallað er um vaxandi vægi neytenda á mörkuðum.
4SÍDUR
4
Tuttugu
leikmenn
í bann
B1
Bjarki má
fara fiá
Molde
B2
Korda og
Agassi
úr leik
B3