Morgunblaðið - 27.05.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.05.1998, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Ilornstciim Tónlistarhúss (Kópavogi lagOur NEI, nei Davíð, bara homsteinninn... Heimssýningin EXPQ ‘98 í Lissabon KRISTINN R. Ólafsson, fréttaritari Ríkisútvarpsins á Spáni, tekur Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóra Utflutningsráðs, tali við opnunina. Fyrir miðju er Sverrir Haukur Gunnlaugsson, sendiherra íslands gagnvart Portúgal. Fjallað um íslenska skálann í Krafa Sverris Hermannssonar Svar kemur í dag eða á morgun SVARS við kröfu Sverris Her- mannssonar, fyrrverandi banka- stjóra Landsbanka Islands, um end- urupptöku greinargerðar Ríkisend- urskoðunar til bankaráðs Lands- banka Islands um kostnað bankans vegna veiðiferða, risnu o.fl., er að vænta í þessari viku að sögn Sigurð- ar Pórðarsonar ríkisendur- skoðanda. „Það er bara dagaspurning um það hvenær við svörum þessu, það verður eflaust í þessari viku, á morgun [í dag] eða á fimmtudag- inn,“ sagði Sigurður. í bréfi sínu krafðist Sverrir þess að ríkisendurskoðandi og allt hans starfslið viki sæti við meðferð máls- ins, annars vegar þegar ákvörðun verði tekin um hvort við endurupp- tökubeiðninni verði orðið og hins vegar við efnislega meðferð endur- upptökukröfunnar. Ríkisendurskoðun hefur að und- anförnu unnið að endurskoðun á kostnaði vegna risnu, veiðiferða, ferðalaga o.fl. í Seðlabankanum og Búnaðarbankanum að ósk bank- anna sjálfra og Alþingis, að sögn Sigurðar Þórðarsonar. Hann sagði að verið væri að vinna í því máli. „Við erum búin með annan bank- ann, Búnaðarbankann, en erum byrjuð á Seðlabankanum, það er spurning hve mikla vinnu enn við þurfum að setja í hann.“ sjónvarpi UIC, önnur stærsta sjónvarpsstöðin 1 Portúgal, fjallaði um heimssýning- una í Portúgal um helgina. I um- fjöllun sjónvarpsstöðvarinnar kom fram að íslenski skálinn væri einn af þremur athyglisverðustu skálum sýningarinnar. Hinir eru skálar Kína og Seychelles eyja. Sjónvarps- stöðin hvatti gesti sýningarinnar til að gera sér ferð í íslenska skálann. Aðsókn að íslenska skálanum hef- ur aukist enn frekar frá opnun sýn- ingarinnar. Starfsmenn í íslenska skálanum gerðu óformlega könnun og virtist þeim sem fjórum sinnum fleiri kæmu í íslenska skálann en þann ísraelska og þakka þeir það umfjöllun portúgalska sjónvarpsins. Framsæknustu fyrirtækin í Evrópu Sex íslensk fyrirtæki þeirra á meðal Baldur Pétursson SEX ÍSLENSK fyr- irtæki eru á lista yf- ir 500 framsækn- ustu fyrirtæki Evrópu. Á morgun, fimmtudaginn 28. maí, verður þessum fyrirtækjum veitt viður- kenning á morgunverðar- fundi sem haldinn er á vegum iðnaðar- og við- skiptaráðuneytisins og Samtaka iðnaðarins. Baldur Pétursson, deildarstjóri samkeppnis- hæfni- og iðnþróunarsviðs ráðuneytisins, er formað- ur verkefnisstjómar. „Samtökin Europe’s 500 vinna lista yfir 500 framsæknustu fyrirtæki Evrópu og að þessu sinni var miðað við að velja fyr- irtæki sem vaxið höfðu hraðast á árunum 1991-1996 og þar sem frum- kvöðull og stofnandi átti enn mik- il ítök í fyrirtækinu. Verkefnið féll að þeirri stefnu ráðuneytisins sem mörkuð er af ráðherra, Finni Ingólfssyni, að taka aukinn þátt í alþjóðlegum verkefnum til að efla verðmæta- sköpun og atvinnu. Því var efnt til samstarfs við Samtök iðnaðar- ins um verkefnið hér á landi. Við- skiptastofnun Háskóla íslands var fengin til að sjá um ýmsa framkvæmdaþætti. “ -Hver eru þessi sex íslensku fyrirtæki sem komust á listann? „Flugfélagið Atlanta, verslun- arkeðjan Nóatún, útgerðaríyrir- tækið Samherji, tölvufyrirtækið Tæknival, Vömveltan sem rekur 10-11 verslanirnar og stoðtækja- framleiðandinn Össur sem kemst nú á listann í annað sinn. Til sam- anburðar má geta þess að ein- ungis fjögur norsk fyrirtæki komust á listann, þrettán írsk, fjórtán finnsk og sautján sænsk.“ - Hvert er markmið þessa verkefnis? „Það er að örva frumkvæði sem leitt getur til fyrirtælg'a- rekstrar og atvinnusköpunar og vekja áhuga á kraftmiklum, hrað- vaxandi og atvinnuskapandi fyr- irtækjum sem starfa við ólíkar aðstæður víðsvegar í Evrópu. Verkefnið byggist á styrk, hæfni og kunnáttu þeirra er standa á bak við framsæknustu fyrirtæki álfunnar." Baldur segir að valið lúti afar ströngum skilyrðum um vöxt, eignarhald og fleira. - Hvaða þýðingu hefur það fyr- ir þessi íslensku fyrirtæki að komast á listann? „Valið var úr hópi fimmtán þúsund fyrirtækja sem vora svo aftur valin úr milljónum fyrir- tækja í allri Evrópu. Þetta er því mikil viðurkenning á dugmiklum og atorkusömum frumk\'öðlum og öflugum íslensk- um fyrirtækjum og sýnir glöggt að það er mikOl drif- kraftur í íslensku at- vinnulífi um þessr mundir. Auk þess er þessi útnefning vera- leg auglýsing því verk- efnið er rækilega kynnt um alla Evrópu og hefur verið í fjölmiðl- um erlendis að undanfomu m.a. í Business Week, Financial Times og Wall Street Journal.“ - Verður gefið út sérstakt rit um þá velgengnisþætti sem ein- kenna þessi framsæknustu fyrir- tæki og frumkvöðla í Evrópu? „Já, meginefni þess eru upp- lýsingar um velgengnisþætti sem einkenna þessi framsæknu fyrir- tæki og frumkvöðla sem voru ►Baldur Pétursson er fæddur í Reykjavík árið 1958 og ólst upp á Bakkafirði. Hann lauk við- skiptafræðiprófi frá Háskóla ís- lands árið 1985 og stundaði nám í rekstrarhagfræði við Col- umbia University í New York árið 1989. Baldur vann við ráðgjafastörf með og eftir nám í HÍ, varð deildarsérfræðingur í Iðnað- arráðuneytinu árið 1985 og skipaður deildarstjóri þar árið 1986. Baldur hefur átt sæti í fjölmörgum opinberum nefnd- um á innlendum og erlendum vettvangi m.a. sem formaður og hefur starfað og átt sæti í ýms- um nefndum á vegum alþjóð- legra stofnana s.s. OECD, WTO, ESB, Norrænu ráðherraneftid- arinnar, EFTA og setið í stjórn EANPC. Baldur er formaður í ráðgjafanefhd EFTA um lítil og meðalstór fyrirtæki og sam- keppnishæfni atvinnulífs frá ársbyijun 96. Hann hefur átt sæti í stjórn Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins frá árinu 1988 þar af sem formaður frá árinu 1995. Baldur hefur ritað fjölda greina og ritstýrt skýrslum um atvinnumál frá 1985. Hinn 1. júlí næstkomandi tek- ur Baldur við starfi fulltrúa iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis og umhverfisráðuneytis í send- iráði íslands í Brussel. Eiginkona Baldurs er Salóme Herdís Viggósdóttir og eiga þau þijú börn. unnar af Juan Roure, prófessor við viðskiptaháskólann í Navarra í Barcelona á Spáni. Á ráðstefnunni mun iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Finnur Ingólfsson, og framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Sveinn Hannesson, veita íslensku fyrir- tækjunum sex sér- staka viðurkenningu fyrir þeirra þrótt- mikla starf á undnafömum árum. Þá mun Robin Lockerman, framkvæmdastjóri Europe’s 500, halda fyrirlestur svo og forsvarsmenn tveggja ís- lenskra fyrirtækja sem komust á lista yfir framsæknustu íyrirtæki Evrópu þ.e. frá flugfélaginu Atl- anta og stoðtækjafyrirtækinu Össuri. I lok fundarins verður umræða með fulltrúum allra sex íslensku fyrirtækjanna." Morgunverðarfundurinn verð- ur haldinn á Grand hóteli frá klukkan 8-10 árdegis. Valin úr hópi milljóna fyrirtækja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.