Morgunblaðið - 27.05.1998, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Niðurstöður samræmdra prófa liggja fyrir
Meðaleinkunn á samræmdum prófum
eftir fræðsluumdæmum 1998 (1997)
Einkunnir eru normaldreifðar á kvarðanum 1-9
Stærðfræði íslenska Danska
Enska
Umdæmi 1998 (1997) 1998 (1997) 1998 (1997) 1998 (1997)
Reykjavík 5,4 (5,3) 5,4 (5,3) 5,3 (5,2) 5,4 (5,2)
Nágr. Reykjav. 5,1 (5,3) 5,2 (5,3) 5,1 (5,2) 5,2 (5,2)
Suðurnes 4,5 (4,3) 4,5 (4,2) 4,8 (4,6) 4,8 (4,6)
Vesturland 4,8 (4,8) 4,7 (4,7) 4,7 (4,4) 4,6 (4,5)
Vestfirðir 4,4 (4,4) 4,4 (4,3) 4,6 (4,3) 4,5 (4,4)
Norðurl. vestra 4,7 (5,2) 4,4 (5,0) 4,6 (4,7) 4,2 (4,7)
Norðurl. eystra 4,8 (4,7) 4,5 (4,6) 4,5 (4,5) 4,4 (4,6)
Austurland 4,7 (4,8) 4,7 (4,7) 4,9 (5,0) 4,7 (4,7)
Suðurland 4,7 (4,8) 4,7 (4,8) 4,9 (4,7) 4,6 (4,7)
Landið allt 5,0 (5,0) 5,0 (5,0) 5,0 (5,0) 5,0 (5,0)
Enskukunn-
átta mjög
mismunandi
VESTFIRÐIRNIR komu betur út í
samræmdum prófum 10. bekkjar
grunnskólanna í ár en oft áður. Þetta
kom fram í samtali Amalíu Björns-
dóttur, deiidarstjóra hjá Rannsókn-
arstofnun uppeldis- og menntamála,
við blaðamann Morgunblaðsins í
gær.
Niðurstöður prófanna voru sendar
í skóiana á föstudag og gerðar opin-
berar í gær. Amalía sagði hins vegar
óvíst að allir nemendur hefðu fengið
sínar einkunnir þar sem það væri
skólanna að ákveða hvenær þær
væru afhentar og sums staðar væri
það geymt fram að skólaslitum.
Meðaltöl samræmdra einkunna,
sem miðaðar eru við stigafjölda á
prófunum, voru 6,2 í stærðfræði, 6,6
í íslensku, 6,6 í dönsku og 6,8 í
ensku. Normaldreifðar einkunnir
(sjá töflu) eru hins vegar miðaðar við
hópinn.
„Fyrir utan dönsku eru allar ein-
kunnir í hærri kantinum,“ sagði
Amalía. „Stærðfræði er til dæmis í
hærra lagi miðað við fjögur undan-
farin ár og enskan er eins og oft áður
tiltölulega há. Það er hins vegar
meiri breidd í enskunni en öðrum
fögum. Stór hópur af krökkum er
mjög góður í ensku en svo er einnig
ákveðinn hópur sem stendur þar
mjög illa.
Reykjavík kemur sterkust út
Annars er þetta allt mjög
hefðbundið og fátt sem kemur á
óvart. Reykjavík kemur eins og
alltaf sterkust út en meira en helm-
ingur nemenda býr á höfuðborgar-
svæðinu. Það er hins vegar mjög
ánægjulegt að sjá að það virðist vera
uppsveifla á Vestfjörðum."
Amalía sagði viðbrögð nemenda,
skólastjórnenda og foreldra við ein-
kunnunum hafa verið upp og ofan.
„Enda er varla hægt að búast við því
að allir séu ánægðir þegar send eru
út 4.100 próf,“ sagði hún. „Það hefur
hins vegar verið óvenju rólegt í
kring um þetta í ár og ekki mikið um
kvartanir þó þeir sem fái 4,5 séu eðli-
lega ekkert ánægðir. Þrátt fyrir að
hér á landi sé ekki hægt að falla í
grunnskóla og allir eigi rétt á inn-
göngu í framhaldsskóla virðist það
einhvem veginn innbyggt í þjóðar-
sálina að það sé fímman sem fólk
þurfí að ná.“
7.672 kjósendur
strikuðu Hrannar út
YFIRKJÖRSTJÓRN í Reykjavík
hefur farið nánar yfir breytta lista í
borgarstjórnarkosningunum sem
fram fóru um síðustu helgi. Niður-
staðan er þó einungis gróf mynd af
útkomunni því fara á nánar yfir
seðlana og gera frekari útreikninga
á breyttum seðlum.
Sem kunnugt er var óvenju mikið
um að strikað væri yfir nöfn á fram-
boðslistum í ár og þá aðallega af
Usta R-listans. Að sögn Jóns Stein-
ars Gunnlaugssonar hrl. sem sæti á
í yfirkjörstjórn í Reykjavík var
mest strikað yfir tvö nöfn á R-list-
anum, nöfn þeirra Hrannars B.
Arnarsonar, sem nú hefur vikið sæti
í borgarstjóm þar til rannsókn á
fjármálum hans hefur farið fram, og
Helga Hjörvars oddvita R-listans,
en fjármál hans voru áberandi í
kosningabaráttunni. Einnig var
nokkuð um yfirstrikanir á D-lista en
þar var ekki um neitt óeðlilegt að
ræða og engin einstök nöfn þar
áberandi, að sögn Jóns Steinars.
Á annað þúsund strikuðu yfir
Hrannar og Helga saman
R-listinn fékk 84.251 atkvæði í
kosningunum. Breyttir seðlar voru
8.398. Af þeim var strikað yfir nafn
Hrannars B. Arnarsonar á 7.672
þeirra en á 1.867 seðlanna var
strikað yfir nafn Helga Hjörvars.
Á 5.108 seðlum var aðeins strikað
yfir nafn Hrannars en á 2.264 var
strikað yfir nafn Hrannars auk
annarra nafna. í 1.125 tilfellum var
strikað yfir nafn Helga Hjörvars
eingöngu á seðlum en í 742 tilfell-
um var strikað yfir nafn Helga auk
nafns annarra frambjóðenda. Á
1.282 seðlum var strikað yfir nöfn
þeirra Hrannars og Helga saman.
D-listi Sjálfstæðisflokks fékk
28.932 atkvæði. Breyttir seðlar voru
1.316 og eins og áður sagði skar
ekkert nafn einstakra fram-
bjóðenda sig úr í þeim efnum. Enn
sem komið er hefur aðeins verið
farið yfir þá breytta seðla D-lista
þai- sem strikað var yfir eitt nafn.
Af þeim seðlum kom það fyrir á 242
seðlum að strikað væri yfir nafn
Arna Sigfússonar oddvita listans.
Um helmingur kjósenda einstakra
lista þarf að strika yfir sama nafhið á
listanum til að hafa áhrif á hann.
Nokkuð var um að seðlar hafí
verið gerðir ógildir þegar kjósendur
krossuðu við nafn eins lista en strik-
uðu út nafn á öðrum lista en þeim
sem kosinn var. Aðeins má strika út
nafn á þeim lista sem kosinn er og
má þá strika út nánast að vild.
177P
(CSC-
íítrjd
STEFÁN Hermannsson borgarverkfræðingur, Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri, Helgi Hallgrímsson
vegamálastjóri og Þórhallur Ólafsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og formaður Umferðarráðs, á
spjalli að fundi loknum.
I
I
i
i
)
Nýr tækjabúnaður kynntur á 30 ára afmæli
hægri umferðar á Islandi
Skref í átt að betri
umferðarmenningu
ÞRJÁTÍU ár voru liðin í gær, 26.
maí, frá H-deginum svokallaða,
þegar Islendingar breyttu úr
vinstri yfir í hægri umferð. Á þeim
tímamótum bauð Umferðarráð til
fundar þar sem Þorsteinn Pálsson
dómsmálaráðherra fjallaði um
þróun umferðarmála á síðustu
þremur áratugum. Haraldur Jo-
hannessen ríkislögreglustjóri og
samstarfsmenn hans kynntu
hraðamyndavélar og nýtt öndun-
arsýnatæki, en þessi búnaður
verður tekinn í notkun á næstu
dögum.
Hraðamyndavélarnar eru tvær,
sín í hvorum bflnum, og í þeim
þriðja er öndunarsýnatækið, sem
mun að hluta til leysa tímafrekar
og íyrirhafnarsamar blóðprufur af
hólmi. Starfsmenn ríkislögreglu-
stjóra munu framvegis verða á
ferðinni um land allt með tækin, í
samvinnu við embætti lögreglu-
stjóra á hverjum stað og hafa þau
þegar verið pöntuð sérstaklega á
útihátíðir og ýmis mannamót í sum-
ar.
Kjarkur og áræði
Dómsmálaráðherra rifjaði í
ávarpi sínu upp þær miklu breyt-
ingar sem urðu á umferð og um-
ferðaröryggi hér á landi í kjölfar
þess að landsmenn fóru að aka
hægra megin á veginum. „Það hef-
ur þurft nokkurt áræði og tals-
verðan kjark til að taka ákvörðun
um að koma fram svo umfangs-
mikilli breytingu á umferðinni í
landinu, ekki síst vegna þess að
það var augljóst að hún kostaði
mikla peninga og miklar skipu-
lagsbreytingar." Hann benti enn-
fremur á að í tengslum við breyt-
inguna hefði farið fram mikil um-
ferðarfræðsla, sem sannanlega
hefði skilað árangri, því mjög hefði
dregið úr slysum þar á eftir. „Á
þessum tímamótum erum við að
stíga enn eitt skref í átt að betri
umferðarmenningu og bæta öryggi
borgaranna á þessu sviði,“ sagði
hann.
Ráðherra minntist einnig á nýjar
reglur um ökuleyfissviptingar og
sektir, sem allar væru settar í þeim
tilgangi að auka aðhald og herða
eftirlit með þeim sem freistast til
þess að ganga á svig við lögin, í
þeim tilgangi að fæla menn frá því
og auka öryggi í umferðinni.
Á að auka umferðaröryggi
og skilvirkni
Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri kynnti hinn nýja tækja-
búnað og minnti á að allur væri
búnaðurinn til þess ætlaður að
auka umferðaröryggi og skilvirkni í
störfum lögreglunnar. Lögregla og
vísindamenn hefðu gert nákvæmar
athuganir á öryggi tækjanna, sem
hafa verið notuð í tilraunaskyni á
undanfórnum mánuðum, og í ljós
hefur komið að öryggi þeirra er síst
minna en við hefðbunánar aðferðir
og hvergi slegið af kröfum.
Morgunblaðið/Golli
„ÞOLIR það ekki einn pilsner?" sagði Þorsteinn Pálsson dómsmál-
aráðherra áður en hann steig inn í bílinn ásamt Bjarna Bogasyni að-
stoðaryfirlögregluþjóni til þess að prófa nýja öndunarsýnatækið. Með
hjálp tækisins er hægt að komast að því á aðeins sjö mínútum hvort
ökumaður er undir áhrifum áfengis og hvert áfengismagnið er.
A
Forseti Rúmeníu á Islandi
FORSETI Rúmeníu, Emil Con-
stantinescu, lenti á Keflavíkur-
flugvelli á sunnudag og staldraði
þar við í rúma klukkustund.
Forsetinn var á leið til Kanada
í opinbera heimsókn og lenti
Boeing 737 þota hans í Keflavík
til að taka eldsneyti. Með honum
í fór voru eiginkona hans og
Andrei Plesu utanríkisráðherra
Rúmeníu auk 40 til 50 manna
fylgdarliðs, að sögn Gunnars
Gunnarssonar sendiherra í utan-
ríkisráðuneytinu, sem tók á móti
forsetanum við komuna til lands-
ins.