Morgunblaðið - 27.05.1998, Side 11

Morgunblaðið - 27.05.1998, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1998 11 FRÉTTIR an. „Bankaráðið taldi náttúrulega höfuðviðfangsefni sitt að koma í veg fyrir að svona atburðarás gæti end- urtekið sig og óskaði af því tilefni eftir því við Ríkisendurskoðun að hún gerði ákveðnar athuganir fyrir bankaráðið á upplýsingakerfum í bankanum og því hvort upplýsinga- gjöf til bankaráðsins væri fullnægj- andi.“ Hann sagði að Ríkisendurskoðun hefði fallist á að gera þetta. Afrakst- urinn hefði verið greinargerð, sem lá fyi'h' í apríl 1997, og hefði hún verið gagnleg fyrir bankaráðið. Þar væri hins vegar eingöngu um kerfíslæga athugun að ræða, en ekki úttekt á einstökum málum. „Þegar Ríkisendurskoðun tók að sér að framkvæma þessa athugun var það gert með bréfi, sem var svar við greinargerð bankaráðsins," sagði Kjartan. ,A.ð fengnu því svari taldi bankaráðið að komnar væru ákveðn- ar lyktir í þetta mál.“ Einhugur í bankaráði Kjartan sagði að einhugur hefði verið í bankaráðinu um að ljúka mál- inu með þessum hætti. Hins vegar væri það rétt, sem kæmi fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar, að það væru mörg mjög alvarleg álitaefni, sem tengdust stjórnendum og stjórn Lindar hf. Það hefði hins vegar verið niðurstaða bankaráðsins á þeim tíma eftir að formlegt svar barst frá við- skiptaráðherra varðandi ósk bankaráðsins um samráð um fram- hald málsins að ekki væri ástæða til þess að efna til opinberrar sakamáls- rannsóknar út af málinu að svo komnu máli. „Það var talið að málið væri út af fyrir sig fullupplýst innan bankans,“ sagði Kjartan. „Það var niðurstaða þeirra sem um það fjölluðu, bæði endurskoðenda og annarra, að þetta hefði fyrst og fremst orsakast af mjög alvarlegum brotalömum í framkvæmdastjórn fyrirtækisins." Landsbankinn eignaðist hlut í Lind þegar hann keypti Samvinnu- bankann í upphafi árs 1990 og varð eini eigandi fyrirtækisins árið 1992. Lind hætti rekstri og sameinaðist Landsbankanum í ágúst 1994. Kjartan rakti að þegar fyrirtækið hefði hafið starfsemi hefðu verið uppgangstímar í efnahagslífinu, en síðan hefði komið efnahagslægð á tímanum 1991 til 1992. Viðkvæm starfsemi „Þessi starfsemi var ákaflega viðkvæm fyrh- því,“ sagði hann. „Þetta var starfsemi, sem byggði á því að lánað var til kaupa á vélum, fasteignum og fleiru og ekki tekin önnur veð eða aðrar tryggingar en viðkomandi hlutur sjálfur.“ Reksturinn hefði verið áhættu- samur og því hefði þurft að vanda mjög til vals á stjómendum. Þarna hefði verið mikið og alvarlegt tap. Þegar bankaráðið hefði ákveðið að leggja fyrirtækið niður hefði verið mælt fyrir um að halda öllum af- skriftum aðskOdum í bókhaldi bank- ans þannig að það væri auðvelt að fylgjast með því hvemig fyrirtækinu endanlega reiddi af. Kjartan sagði að í skýrslu Ríkisendurskoðunar hefði verið mik- ið gert úr fjárhagslegum ábyrgðum Landsbankans gagnvart Lind hf. og gerðar athugasemdir við þær, en hjá bankaráðinu hefði komið fram að Ijóst væri af þess hálfu að annað hefði ekki komið til greina eftir að bankinn var orðinn eigandi að öllu hlutafé Lindar en að hann bæri ábyrgð á skuldbindingum fyrirtækis- ins. skýrslu Ríkisendurskoðunar. Það hefði fremur verið bankaráðsins því að á þeim tíma hefði það heyrt undir þingið. Hann sagði að í fyrirspurn- inni á þingi hefði hann verið spurður um heildartapið og í skýrslu ríkisendurskoðanda hefði ekkert komið fram um það. Samkvæmt svari Finns við fyrir- spurn Ástu Ragnheiðar um málið á þessu þingi var tapið 707 milljónir króna vegna afskrifta og afskriftar- samninga út af Lind og 16 milljónir vegna sölutaps af rekstrarleigutekj- um. Finnur sagði að sennilega hefði örlagaríkasta ákvörðunin í þessu máli verið tekin þegar ákveðið hefði verið að sameina Lind Landsbank- anum, en það hefði verið gert í tíð forvera síns í ráðuneytinu. „Ég kem að málinu 19. apríl 1996 þegar bréf formanns bankaráðs Landsbankans kom til mín með skýrslu Ríkisendurskoðunar,“ sagði Finnur. Hafði upplýsingar um að tap væri meira en 400 milljónir Finni var bent á það á blaða- mannafundinum að í bréfi formanns bankaráðs frá 1996 segði að Ijóst hefði verið 1994 að Landsbankinn þyrfti að taka á sig a.m.k. 400 millj- ónir króna vegna afskrifta á útistandandi kröfum Lindar, en síð- an hefði komið í Ijós að um enn hærri fjárhæðir væri að ræða. Finnur sagði að ráðuneytið hefði ekki spurst fyrir um þetta atriði vegna þess að það hefði ekki talið að það væri hlutverk þess að kveða upp úr í málinu hvernig með það skyldi farið á grundvelli laganna um við- skiptabanka og sparisjóði. Því hefði hann hins vegar ítrekað að teldi bankaráðið að ástæða væri til sér- stakra aðgerða í málinu væri rétt að leita til þeirra aðila, sem færu með opinbert vald í hverju tilviki. „Það er auðvitað útilokað að vera með öll þau fyrirtæki, sem undir það heyra hverju sinni, í bókhaldslegri gjörgæslu innan ráðuneytisins," sagði hann. „Mitt mat á þessum tíma var að ábyrgðin yrði að vera bankaráðsins í málinu og þess vegna vísaði ég þessu til þess á grundvelli laganna." Finnur var spurður hvort það væri rétt skilið að hann hafnaði allri ábyrgð, hafnaði samráði við bankaráðið um það hvað bæri að gera í kjölfar skýrslunnar frá Ríkisendurskoðun og hvernig hann mæti niðurstöðu bankaráðsins. „Um leið og ég svara bankaráðinu með því að telja að þeir beri ábyrgðina er ég að setja ábyrgðina yfir á það,“ sagði Finnur. „Þeii- taka sína ákvörðun og ég ætla ekki núna eftir á að meta hvort þeirra ráðstöf- un hafi verið rétt eða röng. Ég tel að þeir hafi tekið ákvörðun á grundvelli þess sem þeir töldu vera skynsam- legt.“ Hann kvaðst ekki ætla að leggja mat á það hvort bankaráðið hefði brugðist og hann hefði aðeins þau gögn, sem hann hefði lagt fram á fundinum, í höndum og til að svara með öðrum hætti yrði hann að hafa frekari gögn í höndum. „Við erum með bankaeftirlit til að fylgjast með þessum fyrirtækjum á fjármagnsmarkaði, við erum með ríkisendurskoðun, innri endur- skoðanda bankans, við erum með bankaráð," sagði Finnur. „Þetta eru allt saman eftirlitsaðilar gagnvart þessum fyrirtækjum og það getur ekki verið að ráðuneyti geti lagt mat á þessi atriði ef þessir aðilar treysta sér ekki til þess. Ráðuneytið hefur ekki mannskap til þess.“ Gagnrýni á framkvæmdastjóra Lindar Finnur var spurður um þau hörðu orð, sem fram kæmu í skýrslu Ríkisendurskoðunar um fram- kvæmdastjóra Lindar, Þórð Yngva Guðmundsson, og gagnrýni á starfs- lokasamning þann, sem við hann var gerður þegar Lind var sameinuð bankanum. „Framkvæmdastjórinn var látinn fai'a úr starfi fyrir mína tíð, en það var auðvitað stjórnar og bankaráðs- ins að ganga frá [starfslokum fram- kvæmdastjórans],“ sagði Finnur. „En það var allt saman fyrir mína tíð og það var ekki heldur íyrrverandi ráðherra, sem gerði það. Það ver stjórn Lindar eða bankaráð." Finnur var spurður hver bæri endanlega ábyrgð þegar litið væri til taps Landsbankans í heild um leið og bent var á að þeim sem færi svona með heimilisbókhaldið hjá sér yrði hent út á götuna. „Ef maður færi svona með heimil- isbókhaldið yrði manni kastað út,“ sagði ráðherrann. „Hins vegar er það svo að bankaráðið bar ábyrgðina á rekstri bankans gagnvart Alþingi meðan þetta var rekið sem ríkisvið- skiptabanki, en bankastjórarnir bera ábyrgð á rekstri bankans. Það er enginn vafi. Abyrgðin er alveg skýr í lögunum." „Þegar þetta var orðið var Lind í raun bara deild í Landsbankanum," sagði hann. „Það hefði skaðað svo viðskiptahagsmuni bankans og verið svo fráleitt að hlaupa frá þeim skuld- bindingum að það kom ekki til um- ræðu, hvorki af hálfu bankastjóra né bankaráðs." Kjaitan vildi koma því á framfæri að tapið vegna Lindar væri 707 millj- ónir, en ekki milljarður eins og einnig hefði verið haldið fram. Tapað hlutafé væri vitaskuld inni í afskrift- artölunni, sem gefin hefði verið upp í svarinu við fyrirspurn Astu Ragn- heiðar og 707 milljónir væru því lokatalan. Kjartan vitnaði til þeirra orða viðskiptaráðherra á blaðamanna- fundinum að eðlilegt hefði verið að bankaráðið skilaði skýrslu Ríkisendurskoðunar til Alþingis vegna þess að það kysi ráðið og kvaðst aldrei hafa vitað til þess að svona stofnanir skiluðu skýrslum beint til Alþingis nema það væri sérstaklega ákveðið í lögum. Sam- skipti ríkisbankanna við Alþingi færu jafnan fram fyrir milligöngu ráðuneytis bankamála. Bankaráð Landsbankans kemur saman á morgun og kvaðst Kjartan telja fullvíst að þá yrði brugðist við atburðum gærdagsins með einhverj- um hætti. „Ég mun í fyrsta lagi leggja til að sérstaklega verði kannað hvort ekki sé rétt að óska eftir því að heimilað verði að birta greinargerðina til Ríkisendurskoðun og væntanlega í samráði við ríkisendurskoðanda," sagði hann. „Síðan mun ég á þeim fundi leggja til að bankaráðið samþykki að óska eftir því að það verði leitað til þeirra aðila, sem fara með opinbert vald í hverju tilviki, eins og segir í bréfi við- skiptaráðherra frá 14. júní 1996 og Landsbankinn óski þess að fram fari opinber sakamálsrannsókn á því hvort framkvæmdastjóri Lindar, stjórnarmenn í fyrirtækinu og aðrir starfsmenn þess kunni að hafa bak- að sér ábyrgð að lögum með ein- hverjum athöfnum sínum eða at- hafnaleysi meðan þeir störfuðu við fyrirtækið." Hann sagði eðlilegt að líta til at- riða í greinargerð Ríkisendur- skoðunar, þar sem nefnd væru ýmis athugunarefni, til dæmis umboðs- svik, óeðlilegar lánveitingar og fleira. Meðal annars gæti hafa verið um að ræða brot á almennum hegn- ingarlögum ef um væri að ræða auðgunartilgang eða misnotkun aðstöðu og brot á lögum um reikn- ingsskil og bókhald. Kemur til greina að bankinn kæri tiltekna einstaklinga „Einnig kemur til athugunar að bankinn kæri tiltekna einstaklinga á grundvelli þess gruns, sem kann að hafa vaknað um saknæmt athæfi þeirra,“ sagði hann. „Það er ekki síst ástæða til þess að framkvæma rannsókn af þessu tagi þegar í ljós kemur að milli bankaráðs og annarra ábyrgðaraðila bankans kann að hafa ríkt einhver misskilningur um hver væri eðlileg afgreiðsla þessa máls.“ Kjartan sagði að auk þessarar ástæðu væru tvennar umræður á Alþingi, annars vegar í júní 1996 og hins vegar núna, einnig ábending til bankaráðsins. Þá hefði við- skiptaráðherra nú ákveðið á grund- velli upplýsingalaga að opinbera skýrslu Ríkisendurskoðunar til bankaráðsins og í umræðum í fram- haldi af því hefði komið í ljós að ýmis athugunarefni væru í málinu. Að sín- um dómi væri því best að opna málið í heild á nýjan leik, en ekki hluta þess og þá væri vart önnur leið fær en sú að óska atbeina þeirra, sem fara með opinbert rannsóknar- og ákæruvald í landinu. SIOCKHOLM * Timaritid HEIMSMYND og BROADWAY kynna: ¥ i Fegurðarsamkeppni Islands i 1998 sem haldin verbur á Broadway, föstudaginn 29. maí. 22 stúlkur taka þátt í keppninni. SKEMMTIATRIÐI: Yfirskrift keppninnar i ár er „Glamour" og skemmtiatribi öll i þeim anda. Stúlkurnar koma þrisvar fram og eru þær að sjálfsögbu i abalhlutverkinu á úrslitakvöldinu. Þær verba í Mary Sol babfötum, í tískusýningu í fötum frá Cosmo og svo í glæsilegum síbkjólum, sem undirstrikar glæsileika kvöldsins. Danspör frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru sýna Ballroom- og Latin dansa. Harold Burr, söngvari The Platters mun ylja matargestum meb Ijúfum tónum við undirleik Þóris Úlfarssonar. Hann mun svo koma aftur fram meb hinni ungu og skemmtilegu „ABBA" söngkonu, Huldu Gestdóttur. Hljómsveitin Svartur ís skemmtir á dansleik til kl. 03:00. Kynnar kvöldsins: Unnur Steinsson og Bjarni Olafur Guðmundsson. NYJUNG I KEPPNINNI, NETSTULKA ARSINS! Skobabu vefinn okkar. Hægt er ab kjósa Netstúlku ársins í Fegurbarsamkeppni Islands og takib svo þátt í LUKKU-LEIKNUM á Netinu. Fínir vinningar! Slóbin er: www.broadway.is I Eftirtaldir aðilar styrkja Fequrðarsamkeppni íslands 1998: I ISUiMDSFWe KUiTURA C L Æ S \ B /€ EffCO (rítftrvc jv Tæknlval Canon ÍÍwftlfRHk FACE aass KARL K. KARLSSONHE COMPAlL Miöasala oq borða- brcrdvm pantamr: Daaleaa frá kl. 13-17 á Broadway. HÓTEL ÍSLANDI Miða- og borðapantanir í síma 533 1100. i Verð 5.900, matur og sýning. 2.200, á skemmtiatriöin og keppnina Hu*a>>$srUtaSar mm, "gur jtUulaðifi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.