Morgunblaðið - 27.05.1998, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1998
FRETTIR
AKUREYRI
MORGUNB LAÐIÐ
Stúdentaútskrift frá Menntaskólanum við Hamrahlíð
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
NEMENDUR Menntaskólans við Hamrahlíð setja upp stúdentshúfuna.
Brjóstmynd af
fyrsta rektornum
afhjúpuð
SÍÐASTLIÐINN laugardag útskrifuðust 134 stúdent-
ar frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, þar af 105 úr
dagskólanum og 29 úr öldungadeild. Dux scholae var
Kristbjörg Heiður Olsen sem útskrifaðist af náttúru-
fræðibraut. Tveir nemendur luku stúdentsprófi með
yfir 200 námseiningum, Hildur Jónsdóttir, stúdent af
tónlistar- og eðlisfræðibrautum og Daði Sverrisson,
stúdent af tónlistar- og náttúrufræðibrautum.
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð söng við athöfn-
ina. Wincie Jóhannsdóttir rektor notaði tækifærið í
ræðu sinni til að óska kórnum til hamingju með 30
ára afmælið og þakka Þorgerði Ingólfsdóttur stjórn-
anda fyrir starf sitt en kórinn hefur verið glæsilegur
fulltrúi nemenda skólans, aðstandenda og skólans
sjálfs innan lands og utan á ferli sinum. Rektor minnt-
ist einnig Sverris Einarssonar, kennara og rektors við
skólann, sem féll frá í apríl síðastliðnum.
Að vanda bárust skólanum gjafir frá eldri stúdent-
um. 25 ára stúdentar gróðursettu tijáplöntur á lóð
WINCIE Jóhannsdóttir rektor og Ragnhildur
Stefánsdóttir listamaður við brjóstmynd af Guð-
mundi Arnlaugssyni eftir þá síðarnefndu.
skólans og árgangarnir sem útskrifuðust 1976, 1977
og 1978 afhentu skólanum bijóstmynd af Guðmundi
Arnlaugssyni, fyrsta rektor skólans. Bijóstmyndin var
gerð af Ragnhildi Stefánsdóttur sem varð stúdent frá
skólanum 1977.
Tónlist við athöfnina var flutt af kórnum og nem-
endum skólans. ÖU verkin voru eftir íslensk tónskáld,
Atla Heimi Sveinsson, Jón Ásgeirsson og Jón Þórar-
insson.
Fjölbrautaskólinn við Armúla
Morgunblaðið/J6n Svavarsson
SÖLVI Sveinsson skólameistari afhendir Irisi Traustadóttur dux scholae
viðurkenningar fyrir góðan námsárangur.
BRAUTSKRÁNING nemenda úr
Fjölbrautaskólanum við Ármúla
fór fram siðastliðinn laugardag í
Langholtskirkju.
Sölvi Sveinsson skólameistari
setti athöfnina og stjómaði
henni. Alls útskrifuðust 123 nem-
endur. Þar af útskrifuðust 53
með stúdentspróf, 54 af starfs-
menntabrautum og 16 starfandi
sjúkraliðar luku einnar annar
framhaldsnámi i hjúkrun
aldraðra og félagslegri liðveislu.
Dux scholae var Iris Traustadótt-
ir og hlaut hún fjölda viðurkenn-
inga fyrir góðan námsárangur.
Bogi Ingimarsson aðstoðar-
skólameistari gerði grein fyrir
123 nem-
endur út-
skrifaðir
skólastarfí vorannar. í máli hans
kom m.a. fram að tæplega 800
manns stunduðu nám við Fjöl-
brautaskólann við Ármúla á
vorönn þar af flestir á félags-
fræðibrautum. Bogi greindi frá
því að framkvæmdir við bygg-
ingu 600 fm glerhýsis á lóð skól-
ans hefjast innan tíðar en bygg-
ing þessi mun bæta mjög aðstöðu
nemenda og skólans alls. Bogi
ræddi einnig tillögur um nýja
aðalnámsskrá fyrir framhalds-
skóla og áhrif fyrirhugaðra
breytinga á námsframboði í
framhaldsskólum.
Ágúst Þór Sigurjónsson flutti
ávarp fyrir hönd nýstúdenta og
Tryggvi Friðjónsson fram-
kvæmdastjóri fyrir hönd 20 ára
stúdenta.
Nemendur úr Söngskólanum í
Reykjavík sungu og léku við at-
höfnina og félagar úr kór Fjöl-
brautaskólans við Ármúla leiddu
fjöldasöng.
Heilsugæslustöðin á Akureyri \
Frjómæling-
ar hafnar
FRJÓTALNINGAR og frjómæl-
ingar hófust nýlega á Akureyri, en
slíkar mælingar hafa verið stundað-
ar um árabil í Reykjavík. Þær hafa
mikla þýðingu fyrir þá sem hafa
frjóofnæmi, en þær veita upplýsing-
ar um það tímabil sem frjókorn eru
í lofti og ennfremur hvaða tegund
er um að ræða á hverjum tíma. Fyr-
ir þessa einstaklinga er gagnlegt að
hafa upplýsingar um frjókom í lofti
og verður þeim upplýsingum komið
til almennings.
Rannsóknir á bráðaofnæmi á
Norðurlandi hafa sýnt að langal-
gengasta orsök þess er ofnæmi fyr-
ir frjókornum. Frjógildru, sem
safnar sýnum úr andrúmslofti hefur
t
verið komið fyrir í bænum og mun
Náttúrufræðistofnun Islands,
Reykjavíkursetur vinna úr þeim og
senda niðurstöður vikulega. Fyrstu
niðurstöður liggja þegar fyrir og
reyndist vera um að ræða víði, lyng,
elftingu og ösp en það eru nokkuð
dæmigerð frjó í lofti að vorlagi.
Heilsugæslustöðin á Akureyri
átti frumkvæði að uppsetningu frjó-
gildrunnar, en nýtur aðstoðar |
Náttúrufræðistofnunar Islands sem k
hefur umsjón með tækjabúnaði og
eins og áður sagði Náttúrufræði-
stofnun íslands, Reykjavíkursetur
sem sér um úrvinnslu frjókorna-
sýna. Þá hefur ofnæmisdeild Vífils-
staðaspítala sýnt málinu stuðning.
i
I
i
Morgunblaðið/Kristj án
HALLDÓR Blöndal, samgönguráðherra, og Pétur Þór Jónasson, sveit-
arsljóri Eyjafjarðarsveitar, fóru fyrir hópnum í upphafl ferðar. Fyrir
aftan þá eru Jakob Björnsson, bæjarstjóri á Akureyri, og Sigfús
Helgason, formaður Léttis.
Styttist í Landsmót hestamanna
Oformleg vígsla
á nýrn
HESTAMENN í Eyjafirði undir-
búa af fullum krafti Landsmót
hestamanna sem fram fer á Mel-
gerðismelum í byrjun júlí í sumar.
Gífurleg uppbygging hefur átt sér
stað á mótssvæðinu en einnig hefur
verið unnið að því að bæta reið-
leiðina frá Akureyri og suður á Mel-
gerðismela. Fyrir skömmu fór fram
formleg vígsla á nýrri reiðbrú yfír
Eyjafjarðará og yfir á mótssvæðið.
Fyrir helgina var svo óformleg
vígsla á nýjum reiðvegi á bökkum
Eyjafjarðarár að austan. Sveitar-
stjóm Eyjafjarðarsveitar bauð
Halldóri Blöndal, samgöng-
uráðherra, Jakobi Björnssyni,
bæjarstjóra á Akureyri, Franz
Árnasyni, hitaveitustjóra á Akur-
eyri, formönnum hestamannafélag-
anna á Akureyri og í Eyjafjarðar-
sveit, þeim Sigfúsi Helgasyni og Ar-
manni Ólafssyni og fleiri góðum
gestum í reiðtúr suður frá enda
reiðleið |
flugbrautarinnar á Akureyri. Hóp-
urinn reið eftir nýjum reiðvegi suð-
ur að hitaveituröri og áfram eftir
svokölluðum hitaveituvegi, sem
verður notaður alla vega fyrst um
sinn.
Gott samstarf
undirstrikað
„Við vildum með þessu undir- I
strika gott samstarf sem náðst hef- |
ur við forsvarsmenn hestamanna á
svæðinu. Einnig hafa bæjarstjóri og
hitaveitustjóri á Akureyri, svo og
samgönguráðherra lagt málinu lið
og hjálpað okkur að leysa það og
fyrir það vildum við þakka,“ sagði
Pétur Þór Jónasson, sveitarstjóri í
Eyjafjarðarsveit.
Pétur Þór sagði að ferðin hafí [
gengið mjög vel, enginn dottið af
baki og veðrið leikið við ferðalang- r
ana. Ferðin endaði svo við Islands- |
bæinn við Vín.