Morgunblaðið - 27.05.1998, Page 23

Morgunblaðið - 27.05.1998, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1997 23 LISTIR Gapið svarta RÉTTARHöLDIN. Sviðsmynd/Innsetning, 1994. Föt, plast og tré. 4,5 x 8 m. SKÓGARBRÚN, 1996. Vax á pappír, 62 x 88 cm. MYMILIST Listasafn Akureyrar MYNDVERK/SVIÐSMYND Opið alla daga frá 14-18. Lokað mánudaga. Til 10. júní. Aðgangur ókeypis. Sýningarskrá 500 krónur. ÞAÐ sem af er árinu hefur næsta lítið farið fyrir Listasafni Akureyr- ar, og hafa verið í gangi ýmsar bollaleggingar um ástæðuna. Helst álitu menn sunnan heiða það vegna aðkallandi endurbóta á húsnæðinu, sem staðið hefur hálfkarað frá upp- hafi, en nú er komið á daginn að það mun vera vegna aðhaldssemi. Sýn- ingar verða færri og standa mun lengur, en hins vegar situr við samt um ládeyðu og metnaðarleysi um framhald framkvæmda. Um frekar dýran og séríslenzkan sparnað að ræða, og leikur mörgum forvitni á að vita hvort til séu áætlanir um verklok, því hér virðist eftir öllum sólarmerkjum takmarkaður stór- hugur ráða för. Fullbyggt og vel rekið yki safnið til muna ris höfuð- borgar Norðurlandsins og um leið aðsókn á sýningar og aðrar fram- kvæmdir innan veggja þess, skapar að auk margs konar óbeinar tekjur sem skila sér einnig eftir krókaleið- um í sjóði bæjarfélagsins. Væri ráð að nýkjörnir bæjarfulltrúar kynntu sér hvernig staðið er að fjármögnun safnabygginga erlendis og rekstur þeirra, og er það vissa mín að margt óvænt kæmi þá upp úr kafinu, sum- ir verði aldeilis hlessa, því þar er ekki um afgangsverkefni að ræða. Hins vegar býr meiri metnaður að baki fyrstu markverðu framkvæmd ársins en oftast áður, þótt helst sé vegna þess að um samstarfsverkefni er að ræða, sem hófst í listasafninu í Hjörring í Danmörku og endar í Norræna húsinu. Um er að ræða mikla og vel skipulagða kynningu á sænska lista- manninum Roj Friberg, sem vinnur á breiðu tæknisviði málverks, grafíklista og innsetninga. Eigin- lega eru allar gerðir hans á lista- sviði eins konar sviðsmyndir í rými, bornar uppi af mjög afmörkuðu en margslungnu tæknisviði með mann- inn og tilvistarspuminguna sem leiðarstef. Listamaðurinn reynir að þrengja sér inn að innsta kjarna hlutanna og afhjúpa eðli þeirra, lífið sjálft, blekkinguna, lífslygina og marklitla vegferð manneskjunnar í tímalausu rými þar sem allt er dæmt til tortímingar, að leysast upp í frum- eindir sínar. Myrkrið og dauðinn alltaf nærri. Memento mori. Hér er skáldskapur Kafka næsta áþreifanlegur ásamt drungalegri framtíðarsýn Orwells. Borgarinn brotinn niður og þögul fórnarlömb sitja fyrir dómi stýrivaldsins, sem bjarglaus peð, strengjabrúður sem tíndar hafa verið upp á langri og dapurlegri vegferð þeirra í ógnvæn- legum heimi sem engu eirir. Óper- sónulegt alræðið hefur tekið völdin og ekkert eftir nema orkan frá gap- inu svarta. Menn hafa líkt myndheimi Fri- bergs við hið fræga málverk sviss- neska málarans Arnolds Böcklins (1827-1901), Dauðaeyjan, sem hann málaði í fyrstu útgáfu 1880. En það er ekki nema hálfur sann- leikur, því málverk Böcklins er meira skynrænn og huglægur draumur um eitthvað handan alls sem er, en hrá skírskotun til veru- leikafirringar og nálægrar ógnar. Vekur upp allt aðrar og sértækari kenndir goðsögu, fortíðarþrár og saknaðar þegar maður stendur frammi fyrir útgáfunni í Þjóðlista- safninu í Berlín en myndum Fri- bergs, sem búa yfir beinni þjóðfélagsádeilu, þótt vitundin um forgengileikann, endalokin og eilífð- argapið sé nærri í báðum tilvikum. Sjálfur talar listamaðurinn um listina sem „úthverfuna, siðferði- legan kraft í þróun samfélagsins - um möguleika hins einstæða ímynd- unarafls til að skapa og breyta heiminum. Hún er hvorki eitt af frumefnum jarðarinnar né heldur ein af lofttegundum hjúpsins; hún er það sem handhafar skilgreining- anna á hverjum tíma ákveða að hún sé, en hugmyndir hans sjálfs eru aðrar.“ Hvort sem myndefnið er maður- inn einn og sér, hópur manna/og eða manndýra, forhlið húss, inni- mynd eða landslag, framber útkom- an leikrænar vísanir þar sem lista- maðurinn er leikstjórinn sem magn- ar upp stemmningu og áhrif sem eiga að skila sér til skoðandans. Þetta gerir hann með aðstoð mjög þróaðs tæknisviðs, þar sem ljós- myndin virðist oftar en ekki nærri, þó svo að útfærslan sé gerð með blýanti á pappír eða vaxi á filmu eða pappír. Tæknisviðið virðist mjög persónulegt, þótt misjafnlega sann- færandi sé og hafi stundum yfir sér fráhrindandi slikju. Á staðnum virk- ar sjálf sviðsmyndin „Réttarhöldin" heilust og upprunalegust, hefur magnþrungnustu skírskotunina, þarnæst landslagsmyndirnar sem virðast hafa mál í stemmningarík- um einmanaleika sínum. Hins vegar þarf skoðandinn að rýna mun leng- ur í smámyndirnar til að átta sig á þeim til fulls, en þær búa margar hverjar yfir öflugum vísunum, en verða sem utangátta í hinu hráa ljósföla rými. Hvað sem öðru líður er Roj Fri- berg drjúgur listamaður sem geng- ur að list sinni með mikilli alvöru og rífur í heilabú skoðandans. Lista- safnið hefur sóma af sýningunni, kemst á blað fyrir metnaðarfulla og áhugaverða framkvæmd. Gefin hefur verið út vegleg sýn- ingarskrá sem Marianne Ilkjær frá listasafninu í Hjörring hefur rit- stýrt og ritar hún jafnframt for- mála, en listamaðurinn hefur annast útlitshönnun, sem minnir ekki svo lítið á mánaðarrit um bókmenntir og listir. Hún er prýdd mörgum lit- myndum og í henni eru tvær upp- lýsandi ritgerðir eftir þá Lars-Erik Stephansen og Poul Áncher Bech, og að auk ein stutt í lokin um hug- takið list eftir Roj Friberg sjálfan. Sem sagt gott, og meira af slíku ... Bragi Ásgeirsson Tónlistarskólinn í Reykjavík Tónleikar Strengja- sveitar STRENGJASVEIT Tónlistar- skólans í Reykjavík heldur tón- leika í Grensáskirkju fimmtu- daginn 28. maí og hefjast þeir kl. 20.30. Á efnisskrá eru Salzburt, sin- fónía í D-dúr eftir W.A. Mozart. Tvö lög eftir J. Svendseri, Erot- ic eftir E. Grieg og Verklárte Nacht op. 4 eftir Schönberg. Stjórnandi er Mark Reed- man. í kvöld er dregið í Víkingalottóinu um tugi milljóna króna! Fáðu þér miða fyrir kl. 16 í dag. CATH! AS ei ns kr. röðinj

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.