Morgunblaðið - 27.05.1998, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 27.05.1998, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1997 25 LISTIR N orræna kvenna- bókmenntasagan Fjórða bindi Norrænu kvennabókmennta- sögunnar er nýkomið út og nær yfir tíma- bilið 1960-90. Orn Olafsson segir þetta bindi stórum betra en næsta á undan. ÞETTA bindi er nær 600 bls., nær yfir tímabilið 1960-90, og er þar með þessari frásögn lokið, en 5. bindi mun eiga að rúma skrár og ævisögur skáldkvenna. Ártölin merkja að höfundarverkið liggi að mestu innan þessa tímara- mma, en auðvitað er einnig fjallað um þau rit þess sem birtust fyrir og eftir þessi ártöl, allt til síðustu ára. Bindinu lýkur á 20 bls. sam- antekt um grænlenskar og samískar skáldkonur síðustu áratuga. Þetta bindi er eins og hin fyrri, smekklega hannað og fagurlega mynd- skreytt, oftast listaverkum kvenna sem varða umrædd bókmenntaverk. Þetta bindi er að því leyti stórum betra en næsta á undan, að hér er meira fjallað í samfellu um skyld skáld. Þannig er það sami fræðimað- ur sem fjallar um ljóð norskra kvenna allt þetta tímabil, og þá fæst góð yfirsýn, enda þótt henni sé skipt á þrjá hluta. Enda er þessi fræðimaður, Unni Langás, með bestu höfundum bókarinnar, fjallar alhliða um bókmenntaverkin, og er ekkert feimin við að bera þau saman við verk karlmanna. En þetta bindi er afar ójafnt að gæðum, stundum er ekki talað um neitt annað en efni skáldsagna. Þannig sýnir umfjöllun sjálfs aðahútstjórans um Suzanne Brpgger ekki á nokkum hátt að hún aðskilji sig frá þeim tugum kvenna sem fjölluðu umbúðalítið um eigið líf. Það var einn meginstraumur tíma- bilsins uppúr 1970, að sýna hvernig hið einkalega sé í rauninni almennt. Auk þess var mikill straumur af- hjúpana á því hvernig karlrembusvín misbuðu viðkvæmum konum, og oft fór það út í baráttusögur til fyrir- myndar, hvernig konur sigruðust á slæmum aðstæðum. Hér er einnig fjallað um afþreyingarbókmenntir svo sem ísfólkið - vegna þess að þar birtist losti frá sjónarmiði kvenna, skilst mér. Hinsvegar er ekki fjallað um gamalstaðlaða fjöldaframleiðslu svo sem Rauðu ástarsögurnar. Enda hefur kvennahreyfingin alltaf litið á slíkar sögur sem eitt helsta tækið til að kúga konur. Alls kyns bókmenntir Hér segir frá mörgum skáldum sem virðast mjög spennandi. Og heildarniðurstaðan verður sú, að Suzanne Bregger Vilborg Dagbjartsdóttir konur hafi skrifað allskyns bók- menntir á þessu tímabili. Því er ekki hægt að tala um sérstaka „kvenlega sýn“ eða kvenlegan rithátt. En er það ekki það sem til stóð? Að draga það fram, að konur geti allt sem karlar geta, og að listaverk þeirra séu ekki síður einstaklingsbundin en karla. I samanburði við það skiptir minnstu máli hvaða tískustraumar mótuðu þær ófrumlegi’i. Hér kemur og fram, að á síðustu árum mynda skáld blandaða hópa karla og kvenna, sem eiga þá sameiginlega skáldskaparstefnu eða bakgrunn. Þessi kvennabókmenntasaga sannar þá að mínu mati, að ekki er nein ástæða til að tala um sérstakar kvennabókmenntir. Islenski hlutinn Islenski hlutinn er eftir Dagnýju Kristjánsdóttur, Soffíu Auði Birgis- dóttur, Sigríði Albertsdóttur, Ragn- hildi Richter og Ulfhildi Dagsdóttur, rúmar 40 síður alls. Hér er m.a. fjallað um íslensku skáldin Svövu Jakobsdóttur, Jakobínu og Fríðu Sigurðardætur, Nínu Björk Arna- dóttur, Málfríði Einarsdóttur, Ingi- björgu Haraldsdóttur, Þóru Jóns- dóttur og Þuríði Guðmundsdóttur. Ekki get ég fundið að efnisvali, annað en það, að ekki skuli minnst á Kristínu Omarsdóttur né Rögnu Sig- urðardóttur. Að vísu skal ég ekki hrósa bókum Rristínar seinni árin, en hún byrjaði vel, og hefur alla tíð hrifið marga lesendur, ekki síður en Auður Haralds, Magnea Matthías- dóttir, Vigdís Grímsdóttir og Asa Sólveig, sem allar fá hér umfjöllun. Skyldi Kristínu sleppt vegna þess að hún er ekki kennimannleg, eins og ýmsar sem hér er um fjallað? Ragna Sigurðardóttir hefði mörgum fremur verðskuldað umfjöllun um sín vönd- uðu og sérkennilegu skáldverk. Ýmsar konur hafa og gefið út ljóð á undanförnum árum, og þótt þær hafi ekki getið sér frægð, þá er margt af þessu athyglisvert, og hefði a.m.k. mátt nefna það. Því verður að segjast, að þessi bók gerir hlut íslenskra skáldkvenna minni en efni stóðu til. Umfjöllunin er raunar helsti mikið bundin við efnis- atriði, oftast nær. Um annað koma undarlegir sleggjudóm- ar, einsog að kalla Vilborgu Dagbjartsdóttur módernista, röksemdalaust. Ljóð hennar eru ótvírætt af andstæðu tagi, opin Ijóð öðrum fremur, og síst verri fyrir það. Orðið módernismi er ekki neinn gæðastimpill. Víða í ritinu er þó módernismi skilgreindur á venjulegan hátt, sem rofin, sundurlaus framsetning, t.d. í kafla Úlfhildar Dagsdóttur um verk Steinunnar Sigurðar- dóttur, en það er að mínu viti besti hluti íslensku kaflanna. Þó er undar- legt, að Úlfhildur skuli ekki minnast á þá breytingu sem varð með skáldsögu Steinunnar Hjartastað, en hún er a.m.k. þrefalt lengri en fyrri sögur Steinunnar, enda ríkja þar langdregnar endurtekningar, líkt og í sögum Vigdísar Grímsdóttur. Og fráleit er sú kenning Úlfhildar að söguhetjur Steinunnar verði æ hetjulegri, þegar hugsað er til tusk- unnar sem er í sögumiðju Hjartastaðar, og hún borin saman við Öldu í Tímaþjófinum, 1986. Vissulega er Alda ofurseld ástar- sorg, en það er vegna þess að hún tekur áfallinu, vill ekki smækka það, þvi það væri að smækka sjálfa sig. Hvaða gagn má nú helst hafa af þessu bindi bókmenntasögunnar? Þar gildir það sama og um verkið í heild; yfirlit er ekki að fá, enda um afar marga og sundurleita höfunda að ræða. Enn versnar þetta við það, að gæðamat virðist að mestu bannað, og ekki gert upp á milli höfunda nema í textalengd. Það finnst mér gróf móðgun við raunveruleg skáld, og þá einkum við skáldkonur. Ritið er svo yfirgripsmikið, að fáir munu lesa það til að finna forvitnilega höfunda, til þess þyrfti að semja [stutt] yfirlitsrit úr þessu. Þá stend- ur það efth-, að vilji fólk vita eitthvað um tiltekna bókmenntagrein í til- teknu landi á ákveðnum tíma, eða um tiltekinn höfund, sem það hefur séð nefndan, þá er hægt að fletta upp á þessu í efnisyfirliti, og stund- um má finna góða umfjöllun, sem segir hvaða verk séu athyglisverð og hvernig. Alveg eins má þó búast við tómum efnisútdráttum. Leikfélag Akureyrar Markúsar- guðspjall í Bústaða- kirkju LEIKFÉLAG Akureyrar sýnir í tví- gang Markúsarguðspjallið í Bústaða- kirkju í Reylgavík um hvítasunnuna. Fyrri sýningin verður á hvítasunnu- dag kl. 20 og sú síðari annan í hvíta- sunnu á sama tíma. Sýningin er ein- leikur Aðalsteins Bergdal og var hún frumsýnd nyrðra á Renniverk- stæðinu við Strandgötu um páskana. Sýning Leikfélags Akureyrar var frumsýning Markúsarguðspjalls hér- lendis en á undanförnum árum hafa nokkrir erlendh- leikarar spreytt sig á því að flytja fagnaðarerindi Markúsar guðspjallamannsins á leiksviði. í sýningu á Markúsarguðspjalli flytur Aðalsteinn Bergdal texta guð- spjallsins nokkuð styttan. Felldir voru úr guðspjallinu kaflar, einstök vers og setningar þar sem örlar á endurtekningu en þess gætt að halda meginefni frásagnarinnar til haga. Textinn í sýningunni er einkum sótt- ur í útgáfu Hins íslenska biblíufélags á Nýja testamentinu frá árinu 1994, en á stöku stað var valið orðalag úr eldri útgáfu frá árinu 1967. Leikstjóri sýningarinnar er Trausti Olafsson, leikhússtjóri Leik- félags Akureyrar. Miðasala verður við innganginn en unnt er að panta miða í miðasölu Leikfélags Akureyrar. ---------------- Kvikmynd um Max Ernst í Listasafni Islands í TILEFNI af sýningu á verkum þýsk-franska listamannsins Max Emsts í Listasafni Islands verður sýnd í safninu kvikmynd eftir Peter Schamoni um listamanninn á laugar- dögum og sunnudögum, meðan á sýn- ingunni stendur eða til 28. júm'. Að mati höfundar kvikmyndarinnar spannar saga Max Emsts sögu hins óhefta ímyndunarafls í Evrópu um margra áratuga skeið. í myndinni lætui' hann listamanninn rekja viðburðarríka ævi sína með frásögn- um af þátttöku sinni í uppreisn Dada- hópsins í Köln gegn viðteknum list- gildum skömmu eftir fyira stríð og starfi súrrealistinna í París á 3. ára- tugnum, enn fremur flótta til Band- aríkjanna í síðari heimsstyjöldinni og dvöl í Arizona og loks endurdkomunn- ar til Evrópu nokkru eftir að stríðinu lauk. Myndin um Max Emst er 100 mínútna löng og hefjast sýningar á henni kl. 12 og kl. 15. Talið í myndinni er á ensku. Vortilboð á alpina Léttir gönguskór sem henta vel í stuttar gönguferðir. Tilboðsverð kr. 5.900 Léttir gönguskór við allra hæfi. Tilboðsverð kr. 8.900 Leðurskór/núbúk leður, veltisól- ar, frábærir í allar gönguferðir. Tilboðsverð kr. 9.900 Leðurskór, veltisóli. Hörku- gönguskór. Einn með öllu. Tilboðsverð kr. 13.900 Gullfallegir leðurskór með vibransóla. kr. 14.900 25% afsláttur af legghlffum og FoxRiver varmasokkum m/gönguskóm. r 1 skkum JHT JP Persónuleg og fagleg þjónusta 'LEIG ANl ÚTIVISTABÚÐIN http://www.mmedia.is/sportleigan www.mbl l.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.