Morgunblaðið - 27.05.1998, Side 44
>44 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1998
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
SKRAUTNÁL (Lobularia maritina) stendur í blóma í 4-5 mánuði.
Blómgunartími
sumarblóma
Sumarblóm í öllum regnbog-
ans litum eru einmitt það sem við
Islendingar þörfnumst eftir
grámuggu vetrarins. Fjöldi sum-
arblómategunda fer eflaust langt
með að fylla hundraðið og þar af
eru um 30 tegundir algengar í
ræktun. Sameiginlegt einkenni
sumarblóma er að þetta eru
plöntur sem lifa einungis eitt
sumar í íslenskum görðum þótt
þær séu margar
hverjar fjölærar í
heimkynnum sínum.
Snemma vors er sáð
til þessara tegunda,
missnemma eftir því
um hvaða tegund er
að ræða. Forræktun-
artími, sá tími sem
þarf að rækta plönt-
urnar til að þær verði
tilbúnar til útplönt-
unar að vori, er mis-
langur. Sumar teg-
undir þurfa langan
ræktunartíma, t.d.
stjúpur, ljónsmunni,
meyjarblómi og silf-
urkambur, en ef vel á
að vera þarf að sá þeim í lok
janúar - byrjun febrúar. Aðrar
tegundir, eins og skrautnál,
morgunfrú og paradísarblóm,
þurfa stutta forræktun, nóg er að
sá til þeirra í byrjun apríl.
Blómgunartími sumarblóma er
mislangur. Með blómgunartíma
er átt við tímann frá því fyrsta
blómið lítur dagsins ljós þar til
hinsta blómið er fallið. Flestir
garðplöntuframleiðendur miða
við að blóm sumarblómanna nái
að standa seinni hluta sumars og
fram á haustið. Helgast það af
því að garðeigendur vilja síður
horfa upp á útblómstruð sumar-
blóm í görðum sínum um mitt
sumar. Nauðsynlegt er að þekkja
vel til sumarblómategundanna og
blómgunartíma þeirra. Stjúpur
og fjólur standa mjög lengi í
blóma, þær eru með fyrstu sum-
arblómunum sem byrja að
blómstra á vorin og standa fram í
frost á haustin. Þannig er blómg-
unartími þeirra 4-5 mánuðir og
við góð skilyrði getur hann orðið
enn lengri. Ljónsmunni, sem sáð
er til í byrjun febrúar, byrjar að
blómstra upp úr miðjum júni og
stendur fram í september.
Skrautnál byrjar að blómstra í
lok maí og stendur fram í frost.
Morgunfrú, sem sáð er til í byrj-
un apríl, byrjar ekki að blómstra
fyrr en upp úr mánaðamótunum
júní-júlí og stehdur þá fram í
september. Blómgunartími henn-
ar er um tveir mánuðir. Brúðar-
auga blómstrar frá því snemma í
júní og út ágúst.
Blómgunartími brúð-
arauga er því um þrír
mánuðir. Meyjar-
blómi er ein af þeim
tegundum sem
standa mjög lengi
fram á haustið. Hann
þarf langan forrækt-
unartíma, fyrstu
blómin láta sjá sig í
lok júní-byrjun júlí
og svo stendur hann
álíka lengi og stjúp-
umar fram á haustið.
Oft er hægt að
kaupa blómstrandi
sumarblóm eins og
hengi-brúðarauga,
dalíur og tóbakshom upp úr
miðjum apríl. Fyrir bráðláta
sumardýrkendur eru þessar
plöntur eins og vatn handa þyrst-
um manni. Þegar vorveðrið er
milt og gott er ekkert að því að
setja þessar plöntur beint út í
garð en þó ber að hafa varann á
og kippa þeim inn fyrir ef kólnar
snögglega. Eins ættu menn að
hafa í huga að þar sem blómgun-
artími plantna er ekki óendan-
lega langur getur verið að þessar
tegundir klári sinn blómgunar-
tíma á miðju sumri. Þá er um að
gera að endumýja í pottunum því
fátt er sorglegri sjón en tómir
blómapottar um hásumar.
í stóram dráttum má skipta al-
gengustu sumarblómum í flokka
eftir blómgunartíma þannig:
4-5 mánuðir: Stjúpur, fjólur,
meyjarblómi, skrautnál.
3-4 mánuðir: Brúðarauga,
Ijónsmunni, flauelsblóm, tóbaks-
horn, apablóm, daggarbrá.
2-3 mánuðir: Fiðrildablóm,
paradísarblóm, jámurt, dalía,
morgunfrú, hádegisblóm, korn-
blóm, ilmskúfur.
BLOM
VIKUNMR
380. þáttur
llmsjón Ágústa
Björnsdóttir
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
Vettvangur fólks í fasteignaleit
cm.
mbl.is/fasteignir
VELVAKANPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Orlof húsmæðra
NÝLEGA barst fyrirspum
frá kjósanda í Reykjavík
um orlof húsmæðra, um
það hvort leggja ætti niður
orlofið. Kristín, aðst.kona
borgarstjóra, var svo vin-
samleg að svara kjósanda,
en svarið var ekki alveg
rétt, því spurt var hvort
leggja ætti niður orlofið.
Hið rétta er að beiðni
hefur borist til félagsmála-
ráðherra Páls Péturssonar
um að leggja niður orlof
húsmæðra og mun á næsta
haustþingi verða lagt íram
frumvarp um það. Það er
að vísu rétt hjá Kristínu,
aðst.konu borgarstjóra, að
orlofið er óbreytt í ár, en
alls óvíst um framhaldið.
Kvenfélagasamband Is-
lands er með í gangi undir-
skriftalista sem á að skila
inn fyrir 15. júní nk., en þá
verður Landsþing orlofs-
nefnda. Dreift hefur verið
bréfi til allra er að undir-
skriftunum standa en það
er svohljóðandi:
„Þann 5. febrúar 1997
skipaði félagsmálaráð-
herra nefnd til að endur-
skoða lög um oriof
húmæðra nr. 53/1972, með
síðari breytingum. Nefnd-
in hefur lokið störfum og
leggur meirihluti hennar
til að lögin um oriof
húsmæðra verði felld úr
gildi. Nefndin bendir á að
kanna þurfi möguleika
þeirra sem ekki njóta or-
lofsréttar annars staðar
(þ.e. heimavinnandi) með
einhverjum hætti og legg-
ur til að kannað verði
hvort ekki megi rúma það
verkfefni innan félagsþjón-
ustu sveitarfélaga.
Ekki vannst tími til að
koma fram með frumvarp
um ógildingu laganna í
vor, en það verður að öllu
óbreyttu lagt fram næsta
haust. Rökstuðningur með
nefndarálitinu eru þær
þjóðfélagsbreytingar sem
orðið hafa síðan lögin voru
sett. Þorri kvenna vinnur
launaða vinnu utan heimil-
is og nýtur þar með orlofs-
réttar.
Það hefur einnig heyrst
að húsmæðraorlofið stang-
ist á við jafnréttislög, sem
kveða á um jafnan rétt
allra landsmanna og séu
því forréttindi kvenna.
I flestum starfsstéttum
eru meðallaun kvenna 60%
af meðallaunum karla.
Mestur hluti þessa mis-
munar er vegna miklu
meiri yfirvinnu karla, og
einnig hitt að fjöldi kvenna
er í hlutastarfi. Þessi stað-
reynd, lítil yfirvinna og
hlutastarf kvenna, stað-
festir að konur vinna eftir
sem áður að mestu leyti
heimihsstörfin ólaunað og
án oriofsréttar. Starfsald-
ur kvenna á vinnumarkaði
er einnig styttri, þar sem
margar starfa tímabundið
eingöngu á heimili vegna
umönnunar barna,
aldraðra og sjúklinga, og
enn er ekki farið að meta
heimavinnu húsmæðra til
gildis fyrir þjóðfélagið.
Meðan jafnrétti í fram-
kvæmd er ekki nær jafn-
rétti í lögum er húsmæðra-
oriofið alls ekki forréttindi,
heldur má líta á það sem
tilraun til að jafna kjör
kynjanna.
Kvenfélagasamband Is-
lands hefur mótmælt nið-
urfellingu laganna og vill
halda orlofinu og fram-
kvæmd þess óbreyttu.“
Ágætu húsmæður, þær
ykkar sem vilja halda or-
lofinu óbreyttu, vinsamleg-
ast skráið nafn ykkar á
lista sem liggur frammi á
Hallveigarstöðum v/Tún-
götu, 3. hæð, hjá Kven-
félagasambandi Islands.
Kristín B. Kristinsdóttir,
varaforseti Kvenfélaga-
sambands Islands.
C-bekkur
Kvennaskólans 1959
C-BEKKUR Kvenna-
skólanema útskrifaðm-
1959 ætla að hittast í
Viðeyjarstofu laugardag-
inn 13. júní. Farið frá
Sundahöfn kl. 11. Upplýs-
ingar hjá Sigurbjörgu í
síma 554 3774 eða Önnu í
síma 587 7876.
Tapað/fundið
Gleraugu týndust
GLERAUGU í svörtu leð-
urhulstri með klemmu
týndust sl. þriðjudag á
milli Freyjugötu og Faxa-
fens. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 553 8252.
Snyrtiveski týndist
BRÚNT snyrtiveski með
snyrtivörum og „köku-
meiki“ frá Akademi týnd-
ist í Þjóðleikhúskjallaran-
um sl. laugardag. Skilvis
finnandi hafi samband í
síma 552 5867 eftir kl. 18.
Budda í óskilum
LITIL smellt budda með
snyrtivörum fannst á
Rauðarárstíg á móts við
Búnaðarbankann á
Hlemmi. Upplýsingar í
síma 554 3469.
Svört sólgleraugu
týndust
SVÖRT sólgleraugu með
sjóngleri týndust annað
hvort við bensínstöðina í
Glæsibæ eða Laugardals-
laugina í síðustu viku.
Finnandi vinsamlega hafi
samband í síma 562 1161,
561 0161 eða 552 2419.
Köttur 1 óskilum
KISAN á myndinni hefur
sennilega villst að heiman
fyrir a.m.k. tveimur mán-
uðum. Kisan er fresskött-
ur. Það má sjá far eftir ól á
hárunum kringum hálsinn.
Hann er búinn að eignast
nýtt heimili en ef einhver
kannast við kisuna vinsam-
lega hafið samband í síma
551 7787 eftir kl. 19.30.
SKAK
Bmsjóii Margeir
Pétursson
Staðan kom upp á
alþjóðamótinu í Madrid
sem lauk nýlega. Indverj-
inn Vyswanathan Anand
(2.770) hafði hvítt og átti
leik, en Julio Granda
Zuniga (2.630) frá Perú
var með svart.
36. Bxg5! - hxg5
37. Dxg5 - Dh7+
38. Kg2 - He8
(Eða 38. - Hf8 39.
De7 með vinnings-
stöðu) 39. Df6 og
svartur gafst upp.
Anand sigraði
örugglega á mót-
inu, hlaut 6V4 vinn-
ing af 9 möguleg-
um. 2. Svidler,
Rússlandi 5V4 v.,
3.-4. Leko, Ung-
veijalandi og San
Segundo, Spáni 5
HVÍTUR leikur og vinnur
v., 5.-7. Illeseas, Spáni,
Krasenkov, Póllandi og Ad-
ams, Englandi 4V4 v., 8.
Yermolinsky, Bandaríkjun-
um 4 v., 9. Beljavskí,
Slóveníu 3 v., 10. Granda
Zuniga, Perú 2 v.
Þeir Aleksei Shirov, sem
nú teflir fyrir Spán og
Rússinn Vladímir Kramnik
hafa lokið tveimur skákum í
einvígi sínu um áskoran-
arréttinn á Gary Kasparov í
haust. Báðar skákirnar
urðu jafntefli í rúmlega 20
leikjum.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI er enn með hugann
við kosningarnar um helgina.
Ríkissjónvarpið eyddi miklu púðri í
að kynna kosningasjónvarp og
heilu fréttirnar fjölluðu um þá flug-
eldasýningu, sem í vændum væri.
Utsendingin stóð hins vegar ekki
undir væntingum, var þunglamaleg
og tölur fóru fyrir ofan garð og neð-
an. Fyrstu tölur komu til dæmis frá
Kópavogi, en Sjónvarpið einblíndi á
Hafnarfjörð, sem var annar í
röðinni.
Þá missti Sjónvarpið af fyrstu
tölum úr Reykjavík, sem sennilega
hefur verið beðið með hvað mestri
eftirvæntingu. Það hlýtur að vera
lykilatriði að vera með á nótunum
þegar fyrstu tölur koma í Reykja-
vík, sérstaklega í ljósi þess að
skoðanakannanir bentu til þess að
mjög væri að draga saman með
fylkingum D-lista og R-lista.
Stöð 2 átti betri spretti en Sjón-
varpið, en myndatökumaður henn-
ar lenti hins vegar í ógöngum þegar
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
ávarpaði kosningavöku R-listans.
Var baksvipur gesta þá meira áber-
andi en borgarstjórinn.
Einnig lék grænn sófi stærra
hlutverk en honum hefur verið
ætlað þegar útsending Stöðvar 2
var skipulögð. I sófanum sátu Hall-
dór Ásgrímsson og Davíð Oddsson
ásamt fréttamanni stöðvarinnar og
fór ekki vel um þá.
XXX
EKKI hefur væst um höfuðborg-
arbúa í sumarblíðunni undan-
farna tvo daga. I veðri sem þessu
fær ólíklegasta fólk þá flugu í
höfuðið að draga sundfötin undan
mölkúlunum, finna fimm fermetra
handklæði og skunda á sundstað.
Þegar komið er í afgreiðsluna kem-
ur sumargjöf borgarinnar
skemmtilega á óvart. I tilefni af
sumri - og jafnvel kosningasigri R-
listans? - hefur verið ákveðið að
hækka sundgjaldið í 200 krónur úr
165 fyrir fullorðna.
XXX
HERBIE Hancoek, Benny
Goodman, Stan Getz, Art Ens-
emble of Chicago, Oscar Peterson,
Lester Bowie - hingað til hefur
jazzinn ekki verið undanskilinn á
Listahátíð í Reykjavík. Mörg
helstu stórmenni jazzins hafa lagt
leið sína hingað og miðlað af galdri
sínum, en í sumar bregður svo við
að ekki einir einustu jazztónleikar
eru á dagskrá Listahátíðar. Það er
óskiljanlegt að eitt helsta tónlistar-
form tuttugustu aldarinnar skuli
vanrækt með þessum hætti á
hátíðinni.
XXX
REYNDAR virðist fátt stór-
viðburða á þessari Listahátíð,
þótt þar sé vissulega ýmislegt for-
vitnilegt að finna. Enginn dag-
skrárliður er hins vegar þess eðlis
að maður hugsi með sér að hér sé
viðburður, sem ekki megi fyrir
nokkra muni missa af og kosti það
að aflýsa þurfi utanlandsferðum
eða slá veislum á frest.
Þetta hlýtur að teljast sérkenni-
legt, einkum í ljósi þess að hátíðinni
í ár hlýtur að vera ætlað að sýna
hvers Reykjavík er megnug þegar
jarðvegurinn er undirbúinn undir
það að Listahátíð verði haldin þeg-
ar hún verður ein af menningar-
borgum Evrópu að tveimur áram
liðnVum.