Morgunblaðið - 27.05.1998, Side 49

Morgunblaðið - 27.05.1998, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1997 49 , FÓLK í FRÉTTUM 27. maí - 2. júní HÁSKÓLABÍÓ Állinn (Unagi) eftir Shohei Inamura „ÉG HEF einstaklega mikinn áhuga á fólki, eiginlega græðgisleg- an áhuga á því,“ segir japanski leik- stjórinn Inamura, en Állinn er fímmtánda myndin hans á fjörtíu ára ferli. Áður en hann byrjaði að gera kvikmyndir vann hann með nokkrum virtustu leikstjórum sem Japan hefur átt, eins og Ozu og Kawashima. Inamura segir okkur nú söguna af miðaldra Yamashita sem losnar úr fangelsi eftir átta ára innisetu fyrir að hafa drepið konu sína sem hélt fram hjá honum. Hann opnar rakarastofu og hefur þar í stórri krukku ál sem hann eignaðist í fangelsinu og varð sálufélagi hans. Dag einn bjargar hann stúlku sem reynir að fremja sjálfsmorð, en stúlkan minnir hann samt óþægi- lega mikið á eiginkonuna myrtu. Þetta er saga af manni sem er að reyna að byrja tilveruna upp á nýtt með því að koma til móts við lífið, fólkið og samfélagið eftir að hafa útilokað það í átta ár. Inamura sem er þekktastur fyrir kvikmyndir sínar Skordýrakonuna og Svart regn, fékk í fyrra Gullpál- mann í Cannes fyrir Álinn. Hann deildi verðlaununum með Ki- arostami leikstjóra Keims af kirsu- beri sem Háskólabíó sýndi á Vor- vindum í síðustu viku. En hún fjallaði einmitt líka um miðaldra mann í tilvistarkreppu, en sá vildi hins vegar enda líf sitt. REGNBOGINN Óskar og Lúsinda eftir GiIIian Armstrong „ÉG GRÉT, hló og varð yfir mig ástfangin af þykka handritinu að Oskari og Lúsindu þegar ég las það fyrst, og varð strax ákveðin í því að dag einn skyldi ég koma þessari heillandi bók á hvíta tjaldið,“ segir Gillian Armstrong um bókina eftir Peter Carey sem handritið að kvik- mynd hennar byggist á. „Þetta er ekkert venjulegt períódudrama, heldur einstaklega háðsk og næst- um súrrealistík saga af ást og örlög- um.“ Aðalsöguhetjurnar eru Óskar og RALPH Fiennes í hlutverki prestsins í áströlsku kvikmyndinni „Óskar og Lúsinda“. KOJI Yakusho leikur aðalhlutverkið í japönsku kvikmyndinni „Álnurn". Lúsinda fædd hvort í sinni heims- álfunni. Hann er fátækur prestur með spilafíkn sem elskar Guð. Hún er frjálslyndur og forríkur verk- smiðjueigandi með spilafíkn og elskar gler. En þau elska hvort annað og saman byggja þau kirkju úr gleri. Armstrong hóf ferilinn í heima- landi sínu Ástralíu, og gerði m.a. myndina „The Last Days of Chez Nous“. Hún fór til Hollywood og gerði „Little Women“, en er nú aft- ur komin heim til að gera mynd eftir sögu eins sterkasta skálds Ástrala. Hún hefur fengið til liðs við sig úrval breskra og ástralskra leikara og eru það Ralph Fiennes og Cate Blanchett sem leika aðal- hlutverkin. 7JffT0SHIBA sjónvarpstæki meo Super Black Line L ® myndlampa, Nicam Stereo o.fl. 750 TOSHIBA 207 ProT)rum myndbandstæki með Long Play (tvöfalt lengri upptaka / 4 klst á 2 tíma spólu) Mgg Einar MmM | Faresi -------— — — Qm<oai>n'mi ? Farestveit & Co. hf. Borgartúni ?8 S: S62 2901 og 56? ?900 1lMi« o í blaðaukanum Húsinu og garðinum verður að finna ýmsan fróðleik um viðhald húsa og garðrækt en nú fer í hönd mikill annatími hús- og garðeigenda. ýj • Viðhald húsa Z • Fjármögnun á endurbótum húsa IU • Sumarbústaðir ^ • Heitir pottar Q • Dúkkukofar og leiktæki ^ • Gróðurhús • Þakefni og málning • Lýsing við hús og í görðum • Sólpallar og skjólgirðingar • Hellulagnir • Blóm, tré og annar garðagróður • O.fl. Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. 12 þriðjudaginn 2. júní Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar á söludeild sérauglýsinga í síma 569 1139. AUGLÝSINGADEILD Sími: 569 1111 • Bréfasími: 569 1110 • Netíang: augl@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.