Morgunblaðið - 27.05.1998, Side 52
52 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
r * 'i
HÁSKÓLABÍÓ
scÆlttBti amlttH MMlttH saallHHti MalttWii
NÝTT OG BETRA^
S4T '
Álfabakka 8,
8900 og 587 8905
a«U
ýnd kl. 5, 7 og 9. Kl. 5, 7, 9 og 11
www.samfilm.is
Titill
Síðasla vika
1. (-.) Godzilla 3.996 m.kr.
2. (1.) Deep Impact 1.368 m.kr.
3. (2.) The Horse Whisperer 958m.kr.
4. (31.) Bulworth 763m.kr.
5. (3.) The Quest for Camelot 410m.kr.
6. (-.) Fear and Loathing in Las Vegas 302m.kr.
7. (6.) Titanic 266m.kr.
8. (4.) City of Angels 223m.kr.
9. (5.) HeGotGame 115m.kr.
10.^7/77j Sliding Doors og Woo
94 m.kr.
55.5 m.$
19,0 m.$
13,3 m.$
10.6 m.$
5.7 m.$
4.2 m.$
3.7 m.$
3,1 m.$
1.6 m.$
1.3 m.$
55.5 m.$
98.5 m.$
32,3 m.$
10.6 m.$
13,2 m.$
4,2 m.$
577,0 m.$
70,0 m.$
19,0 m.$
8,0/6,6
Af góðum og
slæmum myndum
STÓRMYNDIN Godzilla var heimsfrumsýnd á lokadegi Kvik-
myndahátíðarinnar í Cannes og var franski leikarinn Jean Reno
viðstaddur. Þótt myndin fái misjafna gagnrýni í fjölmiðlum er
ljóst að þetta verður ein af risamyndum sumarsins hvað aðsókn
varðar. Enda hefur myndin verið auglýst undir yfirskriftinni
„Stærðin skiptir máli“. Þegar Reno var spurður á blaðamanna-
fundi hvort það ætti við rök að styðjast svaraði hann stuttlega:
„Vissulega skiptir stærð áhorfendahópsins máli og einnig að
maður hafi stórt hjarta.“
Joe Leydon, gagnrýnandi Variety, heldur því fram í gagnrýni
um myndina sem birtist í síðustu viku að það vanti einmitt
hjartað í myndina. Þess vegna eigi Godzilla ekki eftir að verða
eins stór og Titanic (eins og það sé eitthvað viðmið). Hann
segir þó að hún sé alveg nógu áhrifamikil til þess
að draga hvaða 12 ára strák sem er í öllum
heiminum í bíó og það oftar en einu sinni.
John Boorman, leikstjóri „The
General", var ómyrkur í máli við
blaðamenn á sunnudag þegar
hann var spurður hvort evróp-
skar myndir gætu keppt við
stórmyndir á borð við
Godzillu. „Þær geta það engan
veginn," svaraði hann. „Það er
athyglisvert að skoða þá
þróun sem orðið hefur. Á átt-
unda áratugnum voru leikstjór-
ar við stjórnvölinn í kvikmynd-
um. Nú eru það kvikmyndastjörn-
ur og framleiðendur. Augljósasta
dæmið um það er Godzilla; í nýlegri
gagnrýni sem ég las sagði gagnrýnand-
inn að hann hefði haldið að kvikmyndir í
Hollywood gætu ekki orðið vitlausari - en þá hefði
Godzilla komið til sögunnar. í samanburði við hana væri
„Independence Day“ í ætt \ið Henry James. Það verður æ ljós-
ara að kvikmyndaiðnaðurinn snýst um peninga. Cannes er í raun
eitt síðasta vígi þeirra kvikmyndagerðarmanna sem hafa listræn-
an metnað - þar sem myndir eru metnar að verðleikum."
Marc Levin, leikstjóri „Slam“, blandaði sér inn í umræðuna og
sagði: „Jafnvel þótt stærðin skipti máli hefur komið í ljós hér í
Cannes að frumleiki og sannleikur skiptir einnig máli. „Dogma“-
myndirnar og mynd Ken Loach eru afbragðs dæmi um að það er
vettvangur íyrir aðrar myndir en þær sem koma frá stóru kvik-
myndaverunum þar sem fólk týnist í tæknibrellum og risastórri
umgjörð. Fólk þyrstir í sannar persónur og sannar tilfinningar.“
„Ég myndi nú ekki alhæfa svona,“ svaraði Boorman. „Auðvitað
má líka finna sannar tilfinningar í stórum myndum. Eini greinar-
munurinn sem mér finnst eiga rétt á sér eru góðar og slæmar
myndir.“ Theo Angelopoulos, leikstjóri, tók undir þetta. „Öll höf-
um við lifað mörg af bestu augnablikum ævinnar í kvikmynda-
húsurn," sagði hann. „Það er engin leið að flokka þær myndir
sem við höfum séð niður í gamanmyndir, dramatískar myndir,
stórmyndir eða litlar myndir. Eini mælikvarðinn sem til er eru
góðar og slæmar myndir.“
SKRIMSLIÐ „Godzilla" gerir innrás í stórborgina New York
með hrikalegum afleiðingum.
Skrímsli
sumars-
ins á
toppinn
STÓRMYNDIN „Godzilla"
náði toppsæti kvikmyndalist-
ans með því að þéna rúmar
J' 55 milljónir dollara um helg-
ina. Það eru nokkur von-
brigði fyrir framleiðendur
myndarinnar sem búist
höfðu við enn betri aðsókn
en metið fyrir þessa tilteknu
helgi á myndin „The Lost
World: Jurassic Park“ sem
tók rúmar 90 milljónir f
kassann í fyrra.
Kostnaður við gerð
„GodziIla“ var 125 milljónir
dollara en talið er að
markaðssetning myndai'inn-
. ar í Bandaríkjunum einum
nemi um 50 milljónum doll-
ara. Slagorðið „Stærðin
skiptir máli“ hefur verið á
öllum auglýsingaspjöldum, 1
sjónvarpi, dagblöðum og
greinilegt að mikið er langt
undir í markaðssetningunni.
Loftsteinamyndin „Deep
Impact“ féll niður í annað
sætið og nýjasta mynd Ro-
berts Redfords „The Horse
Whisperer“ fór niður í það
þriðja. Mynd Warren Beatty
„Bulworth“ var tekin til sýn-
inga á landsvísu og klifraði
upp í ijórða sæti listans. Ut-
an „Godzilla" er ein önnur ný
mynd á lista en það er ferða-
lag þeirra Johnny Depp og
Benicio Del Toro í „Fear and
Loathing in Las Vegas.“ Hún
fékk afar misjafna dóma í
Cannes og þykir mjög
hneykslanleg.
JEAN Reno
og Matthew
Broderick leika aðalhlut-
verkin í „Godzilla."
AÐSÓKN
iaríkjunum
BIOAÐSOKN
í Bandaríkjunum
BIOAÐSOKN
í Bandaríkjunum
BI0AÐ!
í Bandarí