Morgunblaðið - 30.05.1998, Blaðsíða 20
20 D LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
• •
Gift í liðlega
40 ár v
ÁRIÐ 1956 var verið að byggja upp
í Skálholti. Gunnar Sæmundsson
sem þá var um tvítugt var að vinna
við framkvæmdirnar og Ásta Hall-
dóra Ágústsdóttir sem var á sama
aldri og Gunnar vann í mötuneyt-
inu á staðnum.
Þau Gunnar og Ásta sem hafa
verið gift í rúmlega fjörutíu ár eiga
Ijúfar minningar frá Skálholti enda
var það þar sem þau kynntust og
hann bað hennar.
Gunnar var
búinn að koma
upp einbýlishúsi í
Birkihvammi í
Kópavogi og
þangað fluttist
Ásta til hans þegar
fyrsta barnið þeirra fæddist árið
1957. Ásta segir að þau hafi alltaf
ætlað sér að fylla húsið af börnum
og á endanum urðu þau sjö.
Sjö börn
„Við eigum miklu barnaláni að
fagna. Börnin okkar hafa öll verið
heilbrigð og eru reglusöm. Hvorki
börnin né tengdabörnin nota
tóbak.“
Ásta og Gunnnar segja að fimm
barna þeirra hafi þegar gengið í
hjónaband og það sjötta er á
leiðinni í hnaþpelduna 30. maí.
„Ekkert þeirra er fráskilið sem bet-
ur fer,“ segir Ásta. Yngsta barnið
er ekki enn komið á giftingaraldur.
Gefin saman á Akranesi
Ásta og Gunnar voru gefin sam-
an í gamla þresthúsinu Kirkjuhvoli
á Akranesi 30. nóvember árið 1957
og í athöfninni var frumburðurinn,
Ágúst Þór, skírður. Þessi dagsetn-
ing hefur æ síðan verið í uppáhaldi
hjá fjölskyldunni,
þrjú barna þeirra eru
skírð 30. nóvember,
tvö barnabarnanna
og yngsta dóttirin
giftist 30. nóvember.
Eftir athöfnina á
Akranesi var kaffi
fyrir nánustu ættingja og vini á
bernskuheiimili Ástu á Akranesi.
Systir Ástu saumaði á hana kjól í
tilefni dagsins en annars segja þau
tilstand eins og tíðkast núna ekki
hafa almennt tíðkast á þessum
tíma.
- Og hefur hjónabandið alltaf
gengið vel?
„Okkur hefur alltaf liðið vel sam-
an, þó svo að við höfum mætt
ýmsum öðrum hremmingum en
hjónabandsvandræðum eins og
gengur og gerist. Við höfum haft
nóg fyrir stafni og það var oft mik-
ið um að vera á barnmörgu
heimili. Það er líka okkar gæfa
hversu börnin okkar eru góð.
Við höfum aldrei þurft að hafa
áhyggjur af þeim. Það hefur
sjálfsagt haft sitt að segja aö
Gunnar var búinn að koma
upp húsi þegar við kynnt-
umst og því höfum við aldrei
þurft að hafa það miklar fjár-
hagsáhyggjur að hætta væri
á að við misstum húsnæði,"
segir Ásta. Gunnar segir að
reglusemi eigi eflaust stóran
þátt í því hversu farsælt
hjónabandið hefur verið.
„Við höfum lagt okkur fram
um að vera samstíga og
láta heimilið ganga fyrir öllu.
Líklega fer farsælt hjóna-
band að miklu leyti eftir
þersónuleika fólks og
hversu mikilvægt það telur
að halda hjónabandinu
saman."
Kveiktum á kertum
ÁSTA og Gunnar voru gefin saman á
Akranesi 30. nóvember árið 1957.
- Hvað með rómantíkina
í hjónabandinu? Hvernig
hafið þið haldið henni við?
Morgunblaðið/Þorkell
HJÓNIN Ásta Halldóra Ágústsdóttir og Gunnar Sæmundsson hafa bæði áhuga á bílum og hér standa þau hjá
bílnum sem þau fengu sér nýlega.
PAU ætluðu að fylla húsið af börnum og þau urðu sjö.
„Við höfum alltaf passað upp á
að eiga stundir fyrir okkur, jafnvel
þegar börnin voru lítil. Þá áttum við
okkar tíma þegar þau voru sofnuð,
kveiktum á kertum og höfðum það
notalegt," segir Ásta og bætir við
að það hafi líka skerpt ástina þeg-
ar Gunnar kom heim með fallega
blómavendi. „Ég man sérstaklega
eftir því hvað mér þótti vænt um
að fá fallega blómavendi fyrstu bú-
skaþarárin þegar við áttum ekki
marga hluti. Ég man meira að
segja ennþá hvernig sumir þeirra
litu út.“ Gunnar segir að kannski
hafi þau ekki gert nóg af því að
hæla hvort öðru fyrir það sem vel
er gert en slíkt er töluvert mikils
virði í hjónabandi. „Við höfum að
minnsta kosti lagt rækt við að
segja börnunum okkar þegar þau
gera vel,“ skýtur Ásta inn í.
„Seinna meir, þegar börnin urðu
eldri, fórum við að fara meira út
saman, við höfum til dæmis bæði
gaman af því að fara í leikhús og
erum ættrækin.11
Látið undan sitt á hvað
- Hvernig hafið þið leyst deilu-
málin?
„Auðvitað erum við ekki sam-
mála um alla hluti en þá höfum við
eflaust látið undan sitt á hvað þeg-
ar ágreiningsefni komu upp. Ann-
ars er hún Ásta svo skapgóð,"
segir Gunnar og hún er ekki sein á
sér og segir að það sé eins með
hann, Gunnar skipti vart skapi.
„Við deilum sjaldan og þá ekki
með Ijótum orðum eða stórum yfir-
lýsingum."
- Hafið þið aldrei deilt vegna
húsverkanna?
„Nei, það hefur ekki verið
ágreiningsefni,“ segir Ásta. „Ég var
auðvitað heimavinnandi þegar
börnin voru lítil og Gunnar vann þá
mjög langa vinnudaga. Á þeim
tíma sá ég um heimilisstörfin. Þeg-
ar ég fór að vinna úti breyttist
þetta oa Gunnar fór að taka þátt í
þeim. „Eg sé til dæmis alltaf um að
vaska upp og mér finnst það satt
að segja skemmtilegt. Auk þess
geri ég ýmislegt annað sem til fell-
ur.“, skýtur Gunnar inn í.
- Hafið þið komið ykkur upp
sameiginlegum áhugamálum?
„Nei, ekki markvisst. Heimilið og
börnin okkar eru okkar sameigin-
lega áhugamál og núna t.d. er aðal
takmark okkar að koma yngsta
syninum til manns. Við höfum þó
bæði áhuga á ferðalögum og bíl-
um,“ segir Gunnar og upplýsir að í
hjónabandinu hafi þau eignast ell-
efu nýja bíla og geri aðrir betur.
„Við áttum alltaf Ford-bíla og
fengum viðurkenningu á sínum
tíma fyrir tryggð okkar við þá bíla-
tegund. Undanfarin ár höfum við
hins vegar keyþt okkar þíla af
Heklu.
- Hvaða ráð eigið þið handa
þeim sem eru að ganga í hnapp-
elduna í sumar?
„Að bera virðingu fyrir hvort
öðru, láta heimilið skipa fyrsta sæti
og vera reglusöm.“.
SÆNGURLÍN, RÚMTEPPI, HANDKLÆÐI, DÚKAR,
SÆNGUR OG KODDAR.
VÖNDUÐ EFNI ♦ FALLEG HÖNNUN
VANDAÐUR LITPRENTAÐUR BÆKLINGUR
HRINGDU, VIÐ SENDUM ÞÉR EINTAK.
GLEÐILEGT
TILEFNI
GLÆSILEGAR
GJAFIR
MUNIÐ
GJAFAKORTIN
SÍMI 561 1717