Morgunblaðið - 30.05.1998, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998 D 23»
STEFÁN Hjaltalín var að vinna í Flosaporti
árið 1936 og þurfti oft að ganga upp Klapp-
arstíginn úr og í vinnu. Við húsið númer 14
kom hann auga á fallega stúlku og æ oftar
sá hann hana fylgjast með ferðum sínum þar
sem andlit hennar gægðist
fram fyrir gardínurnar. Hann
var að nálgast tvítugt en hún
tveimur árum eldri. Það eru
meira en sextíu ár síðan þau
Stefán og Ingveldur Markús-
dóttir fóru að draga sig sam-
an.
„Ég safnaði í mig kjarki og fór að bjóða
henni með leigubíl á rúntinn. Svo þróaðist
sambandið uns árið 1938 að okkur fæddist
fyrsta barnið, stúlkan Sigurbjörg Marta. Við
bjuggum f synd fyrstu þrjú árin en 25. apríl
árið 1940 gaf hann sr. Bjarni Jónsson okkur
saman í stofunni heima hjá sér í Lækjargöt-
unni“, segir Stefán.
Margt fallegt
í brúðkaupsgjöf
„Á eftir fengum við síðan gesti í heimsókn
til foreldra minna,“ segir Ingveldur þegar hún
rifjar upp brúðkaupsdaginn. Þessi ár voru
erfið, það var litla vinnu að fá og Stefán seg-
ist hafa verið í hóp þeirra verkamanna sem
jafnvel slógust um að fá einhverja vinnu þeg-
ar ástandið var verst. Ingveldur segir að
þrátt fyrir erfiða tíma hafi þau fengið marga
fallega hluti í brúðkaupsgjöf en tilstandið hafi
annars ekki verið mikið í kringum þennan
dag. „Það tíðkaðist ekki að gera mikið úr
brúðkaupum á þessum tíma.“
Þau Ingveldur og Stefán bjuggu á heimili
foreldra Ingveldar, hjá þeim Markúsi Guð-
mundssyni og Sigurbjörgu Jónsdóttur. Þau
bjuggu reyndar alla sína tíð á Klapparstígn-
um í sama húsi eða á sömu lóð og foreldr-
arnir meðan þau lifðu og síðan áfram uns
Stefán og Ingveldur fluttu á Hrafnistu fyrir
nokkrum árum.
Árið 1941 fæddist þeim dóttirin Ingibjörg
Ólafía og þau tóku síðar að sér drenginn Sig-
urð Júlíus og ólu hann upp.
Stefán vann við vegavinnu
þegar börnin voru lítil og á
sumrin fór Ingveldur með þau
og dvaldi hjá honum, nokkur
sumur á Hellisheiði og fimm
sumur á Þingvöllum. Fyrstu
árin bjuggu þau í tjaldi en
Stefán átti vörubíl og fékk skúr á hann sem
fjölskyldan bjó í síðar. Þegar Stefán var lið-
lega fertugur lauk hann námi í rafvirkjun sem
hann vann síðan við.
Lánsöm með
börnin okkar
Þegar þau eru spurð hvernig hjónabandið
hafi gengið þessi 58 ár þeirra saman eru þau
sammála um að öll hafi þau verið góð.
„Við höfum alltaf verið samrýnd og afskap-
lega lánsöm með börnin okkar. Við leystum
okkar ágreiningsefni ekki með látum og vor-
um ákveðin í að vinna úr þeim vandamálum
sem upp komu og láta hjónabandið blessast.
Við höfum sem betur fer átt vel skap sarnan,"
segir Stefán og bætir við að nú sé komið að
ævikvöldinu hjá þeim og þau séu sátt við öll
árin sem þau hafa fengið að vera saman. „Að
fá að eyða ævikvöldinu hérna á Hrafnistu er
gott því nú lifum við eins og á fimm stjörnu
hóteli.
Liðtækur við heimilisstörfin
Þegar talið berst að heimilisstörfum segir
Ingveldur að nágrannakonurnar hafi öfundað
sig af Stefáni. „Hann var alltaf svo liðtækur
við heimilisstörfin, eldaði og var ekkert að
Giftí
58 ár
Morgunblaðið/Ásdís
STEFÁN og Ingveldur láta vel af dvöl sinni á Hrafnistu.
INGVELDUR Markúsdóttir og Stefán Hjalta-
lín 25. apríl árið 1940.
draga við sig að gera það sem þurfti. Kon-
urnar í næstu húsum bentu eiginmönnunum
á hversu duglegur Stefán væri við heimilis-
störfin við lítinn fögnuð karlanna."
- Hafið þið um árin átt sameiginleg
áhugamál?
„Já, við höfum alltaf ferðast mikið bæði
hér heima og erlendis. Við vorum líka bæði
gefin fyrir að dansa og vorum frá upphafi í
Þjóðdansafélaginu. Svo voru ófáar veiðiferð-
irnar sem við fórum saman í um árin“, segir
Ingveldur.
Reglusemi mikilvæg
-Hvað teljið þið að hjón þurfi að leggja
áherslu á í sínu sambandi ef hjónabandið á
að verða farsælt?
„Það er mjög mikilvægt að hjón séu reglu-
söm og á meðan okkar börn voru að alast
upp kom áfengi aldrei inn á heimilið.
Það er líka forsenda fyrir góðu hjónabandi
að koma sér saman um leið sem báðir una
við þegar skoðanir eru ólíkar og umfram allt
að vera ekki að keppast um völd á heimilinu
heldur hjálpast að.“
í BRÚÐKAUPIÐ
DRAGTIR
KOSTABOÐ í KOSTA BODA
BRÚÐKAUPSGJÖF
Ef keypt er matar- og kaffistell
fyrir átta manns, fylgja meö
í kaupunum fimm viðbótarhlutir
að eigin vali í sama borðbúnaði
að verðmæti kr. 10.000
KOSTA BODA
KRINGLUNNI SÍMI 568 9122