Morgunblaðið - 26.06.1998, Page 10

Morgunblaðið - 26.06.1998, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998 MORGUNB LAÐIÐ FRETTIR Aðstoðarlandlæknir um skyldur hjúkrunarfræðinga Kallað í hjúkrunarfræðinga ef neyðarástand skapast „ÞVÍ fylgja bæði réttindi og skyidur að vera hjúkrunarfræðingur og ef neyðarástand skapast þannig að hætta er á heilsutjóni eða mannsláti myndum við gera ráðstafanir héðan til þess að kalla inn hjúkrunarfræðinga og það yrði alveg óháð launum,“ sagði Matthías Halldórsson aðstoð- arlandlæknir aðspurður um skyldur hjúkrunar- fræðinga ef upp kæmi neyðarástand. Matthías Halldórsson sagði það vera borgara- lega skyldu hjúkrunai'fræðinga að sinna slíku kalli ef til kæmi en hann sagði landlæknisembættið ekki ræða neitt varðandi laun eða greiðslur í þessu Borgarstjóri um stöðuna á Sjúkrahúsi Reykjavíkur Höfum ómældar áhyggjur „VIÐ höfum ómældar áhyggjur af stöðunni en eigum ekki margar út- leiðir í málinu,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri að- spurð um hvort borgaryfirvöld hefðu áhyggjur af ástandinu á Sjúkrahúsi Reykjavíkur vegna yf- irvofandi uppsagna hjúkrunar- fræðinga. Borgarstjóri sagði kjarasamning í gildi og að málið snerist um kjara- bætur innan þess ramma sem hægt væri að útfæra á samningnum á hveijum vinnustað. „Það er ljóst að þær kröfur sem hjúkrunarfræðing- ar hafa sett fram munu kosta veru- lega fjármuni og staðan er einfald- lega sú hjá Sjúkrahúsi Reykjavíkur að spítalinn er með 300 milljóna króna uppsafnaðan halla og um 400 milljónir vantar í reksturinn á þessu ári. Það eru engir peningar tU. Þessi fjármál eru óútkljáð gagn- vart ríkinu og það er ógerningur fyrir okkur að gera einhverja samninga við hjúkrunarfræðinga sem hafa aukin útgjöld í för með sér án þess að það njóti blessunar ríkisins, því peningarnir koma það- an,“ sagði borgarstjóri. Ingibjörg Sólrún sagði spítalana fylgjast að í samningum sínum og hún kvaðst binda vonir við að nefnd ráðuneytisstjóranna næði árangri. „Ég er heldur bjartsýnni en ég var fyrir nokkrum dögum. Þetta gengur ekki saman nema ríkið leggi fram eitthvert meira fjármagn, því sjúkrahúsreksturinn er svo sveltur að það gerist ekki án þess. Ég held að enginn geti hugsað þá hugsun til enda ef til uppsagna kemur, því mönnun er mun minni en hún væri í verkfalli. Og munur- inn er líka sá að í verkfalli gilda vissar leikreglur, jafnvel siðareglur af beggja hálfu, en hér er uppi allt annað ástand og engar reglur í gildi.“ sambandi. Skyldur landlæknis væru faglegar og lytu fyrst og fremst að því að sjá til þess að enginn sjúklingur biði tjón á heilsu sinni. Matthías vonað- ist til að ekki kæmi til þess að neinn biði tjón á heilsu sinni vegna aðgerða hjúki-unarfræðinga og kvaðst raunar treysta þeim tU að svo yrði ekki. Störfin of sérhæfð til að aðrir sinni þeim Hjúkrunarfræðingar sem sagt hafa upp störfum hafa óskað eftir umsögn landlæknis um skyldur sínar og skilgreiningu á neyðarástandi. Matthías sagði þessa umsögn ekki liggja formlega fyrir ennþá. Hann sagði ljóst að ástandið nú yrði mun verra en þegar t.d. heimilislæknar sögðu upp. Þá hefði ekki reynst nauðsynlegt að lýsa yfir neyðar- ástandi þar sem hægt hefði verið að vísa sjúkling- um til meðferðar hjá sérfræðingum en nú kæmi ekkert í stað þeirra sjúkrahúsa sem lömuðust vegna uppsagna hjúkrunarfræðinga. Hann sagði störf þeirra orðin það sérhæfð að ógerlegt væri að fá aðra til að ganga inn í þau, ekki einu sinni er- lendis frá því það tæki nokkrar vikur að komast inn í þessi störf. Morgunblaðið/Ásdís ÞAÐ er borgaraleg skylda hjúkrunarfræðinga að sinna neyðarkalli ef til þess kemur að sögn Matthíasar Halldórssonar aðstoðaríandlæknis. Heilsugæslan í Reykja- vík í viðbragðsstöðu Opið lengur ef þarf AÐEINS átta hjúkrunarfræðingar af 100 hjá heilsugæslunni í Reykja- vík hafa sagt upp störfum en nokkrir sem höfðu sagt upp hafa afturkallað uppsagnir. Hugsanlegt er að síðdeg- isvakt yrði lengd á nokkrum heilsu- gæslustöðvum ef til uppsagna hjúkr- unarfræðinga á stóru sjúkrahúsun- um kemur, vegna aukins álags sem yrði hugsanlega vegna ástands á sjúkrahúsunum. Allai’ heilsugæslustöðvarnar eru opnar daglega frá 8 til 17 en stöðv- arnar í Grafarvogi, Efra-Breiðholti, Mjódd og Lágmúla og Miðbæjar- stöðin hafa verið opnar til klukkan 19. Einnig stöðvamar á Seltjamai- nesi og í Hafnarfirði. Guðmundur Einarsson, fram- kvæmdastjóri heilsugæslunnar, seg- ir að rætt hafi verið um að hafa þess- ar stöðvar opnar til klukkan 21 komi til uppsagna en það fari eftir ástand- inu. Þetta yrði mögulegt með litlum fyrirvara og yrði ekki gert fyrr en í fyrsta lagi 1. júlí. Búast mætti við auknu álagi þar sem þess væri öskað að fólk leitaði ekki til bráðamóttöku sjúkrahúsanna nema í brýnni neyð. Bjartsýnn á samning við hjúkr- unarfræðinga á næstu dögum Guðmundur sagði viðræður hafa verið í gangi milli stjórnar heilsu- gæslunnar í Reykjavík og fulltrúa hjúkninarfræðinga um aðlögunar- samning. Hafa samningar ekki verið sendfr í úrskurðarnefnd eins og mál hjúkrunarfræðinga á sjúki’ahúsun- um. Hann kvaðst nokkuð bjartsýnn á að hægt yrði að ljúka samningum á næstu dögum. Hugsanlega yrði fundur í dag en það var þó ekki fast- ákveðið. Framkvæmdastjóri VSI um launa- kröfur á heilbrigðisstofnunum Verulegar hækk anir valda ólgu á vinnumarkaði „ÞAÐ ER barnaskapur að ímynda sér að það hafi ekki áhrif og valdi ekki ólgu á vinnumarkaðinum í heild ef stórir hópar starfsmanna, sem hafa gert kjarasamning, geta með uppsögnum, sem hafa allt útlit ólög- legrar vinnustöðvunar, knúið fram samninga um hærra kaup,“ segir Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdatjóri VSI, aðspurður um áhrif þess á almenna vinnumarkaðin- um ef laun hjúkrunarfræðinga og fleiri starfstétta á heilbrigðisstofn- unum hækka verulega á næstunni. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, bendir á að við síðustu samningsgerð hafi það verið félagar í ASI, sem sömdu á undan öðrum um forsendur samninga og launabreytingar, eins Hús til sölu í Mývatnssveit Til sölu er tveggja hæða íbúðaxhús í Garði 3, Mývatnssveit. Húsið er 142 m2 að grunnfleti. í húsinu eru tvær íbúðir. Tilboð óskast fyrir 5. júlí nk. Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Upplýsingar í síma 854 7744, Þorlákur eða eftir kl. 18.00 í síma 464 4314, Ingunn. og svo oft áður. „í þessu tilviki til þriggja ára og er raunar ekki hægt að hreyfa þá samninga nema hér verði einhver „katastrófa" í efna- hagslífínu, en sem betur fer eru ekki líkur á að svo verði. Ef það verða mjög miklar breyt- ingar hjá öðrum á vinnumarkaðin- um, hvort sem er af þessum ástæð- um, sem nú blasa við, eða af ein- hverjum öðrum ástæðum, þá er aug- ljóst að alþýðusambandsfélagar hlaupa ekki til við endurnýjun kjara- samninga og gera langtímasamning, nema þá með mjög afdráttarlausum opnunarmöguleikum," segii’ Grétai’. Breytingai' á skipulagi gefi færi á launahækkunum Þórarinn bendir á að opinberir starfsmenn virðist vera að tileinka sér þá baráttuaðferð að semja tvisvar. Hann sagði að forsendur gildandi kjarasamninga á vinnu- markaðinum hefðu gengið betur fram en menn hafi átt von á. „Raun- ar skil ég ekki af hverju þessi staða er komin upp. Ég hélt að í samskipt- um á sjúkrahúsunum, rétt eins og í fyrirtækjunum, ætti að vera verulegt svigrúm til samninga um breytingar á vinnufyrirkomulagi og öðrum at- riðum við framkvæmd vinnunnar, sem gætu gefið færi á meiri fram- leiðni, sem komi fram í hækkuðu kaupi,“ sagði Þórarinn. Uppsögn skólastjóra Tónlistar- skóla Bessastaðahrepps Nýtt skólaum- hverfí kallar á breytingar ODDVITI Bessastaðahrepps seg- ir uppsögn skólastjóra Tónlistai'- skólans ekki vera persónulegs eðl- is heldur vegna skipulagsbreyt- inga, eins og fram hafi komið á hreppsnefndarfundi þegar upp- sögnin var samþykkt. Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir hef- ur látið í Ijós þá skoðun sína að uppsögn sín sem skólastjóra Tón- listarskóla Bessastaðahrepps sé persónuleg aðför að sér og hún muni leita réttai- síns. íbúar hreppsins og Hagsmunasamtök Bessastaðahreppshafa hafa einnig gagnrýnt uppsögnina en hún var samþykkt á hreppsnefndarfundi í vikunni. Viljum útvíkka starfsemi tónlistarskólans Oddviti hreppsins kveður fátt um málið að segja að svo stöddu. ,Auðvitað er þungbært að segja fólki upp eftii- langan starfsaldur. En við gerum miklar væntingai’ til þessara breytinga. Það eru um 400 börn í grunnskólanum og ein- ungis 50 þeirra voru í tónlistar- skólanum í vetur, við viljum út- víkka starfsemi tónlistarskólans og gefa nýju fólki tækifæri. Fjöl- margir hafa sýnt auglýsingu um starfið áhuga svo það lofar góðu,“ sagði Guðmundur Gunnarsson oddviti Bessastaðahrepps í sam- tali við Morgunblaðið í gær. „En við getum lítið sagt, Sveinbjörg ber okkur þungum sökum en þeg- ar hún lætur kanna sína réttar- stöðu á hún væntanlega eftir að komast að niðurstöðu sem hún verður að skoða áður en hún ákveður að ganga lengi’a. Það er ekkert ólöglegt við þessa uppsögn og hún eðlilegur hluti af skipu- lagsbreytingum.“ Ekki boðið áframhaldandi samstarf Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir skólastjóri tónlistarskólans vill að það komi fram að þær sögur sem gangi um að henni hafi verið boðið að taka þátt í breytingastarfi skól- ans, séu uppspuni. Hún segir að sér hafi verið boð- in píanókennsla skólaárið 1998- 1999 sem hún hafi hafnað, en ekki áframhaldandi samstarf vegna breytinganna. Hún segir jafn- framt að skólastjórastarfið sé 100% starf og þar sé kennslu- skylda innifalin og því erfitt að að- skilja þessa tvo hluti. „Mér vai- ekki boðið áframhaldandi sam- starf, heldur píanókennsla næsta skólaár.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.