Morgunblaðið - 26.06.1998, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Kristján
NÓTA- og togskipið Gardar EA kom í fyrsta sinn til heimahafnar á
Akureyri í fyrrakvöld. Þetta næstlengsta skip íslenska fiskiskipaflot-
ans er engin smásmíði og hafnarbáturinn á Akureyri sýnist ansi smár
þar sem hann dólar framan við skipið.
Gardar EA, nótaskip Samherja,
í fyrsta sinn til heimahafnar
Aflaverðmæti
rúmar 130
milljónir króna
NÓTA- og togveiðiskipið Gardar
EA, sem Kistufell ehf., dótturfyrir-
tæki Samherja hf., keypti frá Nor-
egi í apríl sl., kom í fyrsta sinn til
heimahafnar í fyrrakvöld. Skipið
var með rúm 800 tonn af síldarflök-
um og tæp 400 tonn af gúanói sem
landað var hjá Krossanesverksmiðj-
unni. Aflaverðmæti skipsins í þess-
um túr var um 55 milljónir króna.
Gardar EA hefur farið þrjá veiði-
túra frá því Samherji keypti skipið
frá Noregi í lok apríl sl., einn túr á
kolmunna og tvo á síld og er afla-
verðmætið í þessum þremur veiði-
ferðum rúmar 130 milljónir króna.
Skipið var við veiðar í Síldarsmug-
unni og í íslensku lögsögunni og
heldur á ný til síldveiða um hádegis-
bilið í dag.
Þorsteinn Vilhelmsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Samherja, sagði
skipið hafa reynst mjög vel og að
Aksjón
Föstudagur 26. júní
21 .OOÞ-Sumarlandið
Þáttur ætlaður ferðafólki á
Akureyri og Akureyringum í
ferðahug.
sama skapi fiskað vel, frá því fyrir-
tækið eignaðist þetta stærsta og
fullkomnasta nótaveiðiskip íslenska
flotans. í skipinu er fullkominn
vinnslubúnaður fyrir uppsjávarfisk
með 6 flökunarvélum og frystigetu
sem nemur 150 tonnum á sólar-
hring. Þá er í skipinu fullkominn
sjókælibúnaður.
Veiði að glæðast
á Reykjaneshrygg
Fjórir af togurum Samherja,
Akureyrin, Víðir, Guðbjörg og
Baldvin Þorsteinsson, eru við út-
hafskarfaveiðar á Reykjaneshrygg.
Þorsteinn sagði að veiðin hefði verið
dræm að undanfórnu en væri eitt-
hvað að glæðast. Nótaskip fyrirtæk-
isins, Oddeyrin og Sunnuberg, sem
Samherji leigði frá Vopnafirði, voru
á leið til Grindavíkur í gær með full-
fermi af loðnu. Hábergið er rétt
komið á loðnumiðin og Þorsteinn
EA var að taka nótina á Seyðisfirði í
gær og er á leið á miðin. Jón Sig-
urðsson og Sæljónið eru á sfldveið-
um.
Hríseyin er við rækjuveiðar úti
fyrir Norðurlandi. Togarinn er í sín-
um öðrum túr eftir slipptöku og
landaði 37 tonnum á Dalvík úr íyrri
túrnum og var kominn með svipað-
an afla í gær.
Höfum til sölu
glæsilegt fullbúið raðhús við
Víkurgil. Frábært útsýni.
Möguleiki er að taka litla íbúð
í Fteykjavík upp í kaupverð.
Upplýsingar í síma 462 3005
milli 10 og 12 eða í síma
8544553.
v 1
POLLINN
Hljómsveitin Sín
skemmtir föstudags- og laugardagskvöld.
lazztónleikar sunnudagskvöld kl. 21.00.
Ómar Einarsson, gítar, Stefán Ingólfsson, bassi,
ásamt danska trommuleikaranum Ole Saxe.
Aðgangur ókeypis
Bæjarráð samþykkir samkomulag um starfskjör kennara
Yfí rvinmitímar
eftir starfsreynslu
BÆJARRÁÐ Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum í gær sam-
komulag um starfskjör grunn-
skólakennara á Akureyri. I því
felst að kennarar með yfir 10 ára
starfsreynslu fá greidda 12 yfir-
vinnutíma á mánuði, þeir sem hafa
6-10 ára starfsreynslu fá 10 tíma
greidda í yfirvinnu á mánuði, en
þeir sem eru nýjastir í starfi fá 7
yfirvinnutíma á mánuði.
Asgeir Magnússon, formaður
bæjarráðs, vildi undirstrika að ekki
væri um nýjan kjarasamning að
ræða, þetta væri tilboð bæjarins til
að leysa þann vanda sem upp var
kominn í kjölfar uppsagna um 90
kennara við grunnskóla Akureyr-
arbæjar. „Okkar vandi stafaði af
þessum uppsögnum og við þurftum
að tryggja það að kennarar kæmu
aftur til starfa þannig að skólastarf
yrði með eðlilegum hætti í haust,“
sagði Asgeir.
Sérstaða á Akureyri
Hann sagði að á Akureyri hefði
verið nokkur sérstaða, en álag á
kennara væri mikið, meira en víð-
ast annars staðar. Astæður þess
væru m.a. að tekin var ákvörðun
um að einsetja skólana strax, eða
áður en búið var að koma húsnæð-
ismálum þeirra í viðunandi horf. Sú
ákvörðun að einsetja skólana væri
skynsamleg en menn hefðu ekki
verið nægilega fljótir að taka
ákvarðanir því tengdar, þ.e. að
hraða uppbyggingu við skólana.
Það gerði að verkum að víða væri
þröngt setinn bekkurinn, húsnæði
væri dreift sem hefði í fór með sér
viðbótarálag fyrir kennara.
Blandaðir bekkir
Einnig nefndi Ásgeir að Akur-
eyrarbær væri reynslusveitarfélag
og ynni að verkefni á sviði málefna
fatlaðra. Blöndun í bekki væri því
meiri í skólum bæjarins en víðast
annars staðar og því fylgdi aukið
álag á kennara. Loks nefndi for-
maður bæjarráðs þá sérstöðu að sú
ákvörðun að auka kennslu við skól-
ana kallaði á fleiri kennara, en þeir
hefðu ekki fengist til starfa á liðnu
hausti. Leiðbeinendur hefðu því í
nokkrum mæli verið ráðnir í stað
réttindakennara við grunskólana
en það þýddi einnig aukið álag á þá
kennara sem fyrir voru.
„Allt þetta hjálpaðist að við að
skapa þá óánægju sem hér var um-
fram aðra staði. Við höfum síðustu
daga verið að leita leiða til að mæta
þessari óánægju og niðurstaðan
varð sú að bæta yfirvinnutímum við
laun kennara, mest hjá joeim sem
elstir eru í starfi,“ sagði Ásgeir.
Jafnframt er stefnt að því að
nýtt launakerfi verði tekið upp
haustið 1999, en taka á upp þá
vinnu sem hafin var milli kennara-
sambandsins og launanefndar
sveitarfélaga á síðasta ári um end-
urskoðun og starfstilhögun í skól-
unum. Skólamál munu hafa for-
gang samkvæmt samkomulagi
meirihlutaflokkanna í bæjarstjórn,
ráðist verður í mikla uppbyggingu
við skólana og hugað að innra
starfi þeirra.
Viðurkenning á að
kennarar hafa lágt kaup
Björg Dagbjartsdóttir, sem sæti
átti í viðræðuhópi kennara, sagði
að í samkomulaginu fælist viður-
kenning Akureyrarbæjar á því að
kennarar hefðu lágt kaup, að fag-
fólk vanti inn í skólana og að skóla-
mál verði forgangsverkefni í bæn-
um. „Þetta eru bestu kostir sam-
komulagsins að okkar mati. Það
felur ekki í sér byltingu í kjaramál-
um, en það er tilboð um ákveðnar
kjarabætur," sagði Björg.
Hún sagði að stefnt hefði verið
að því í upphafi af ná fram hækkun
grunnlauna, en engu hefði verið
þokað í þá átt. Forsvarsmenn bæj-
arins hefðu viljað hafa þetta með
þessum hætti, að bæta yfirvinnu-
tímum við laun kennaranna. Þetta
form á greiðslunum væri það sem
kennarar væru helst óánægðir
með, þeir hefðu kosið að viðbótin
kæmi inn í grunnlaunin.
Þeir kennarar sem sögðu upp
störfum munu nú á næstu dögum
og vikum ákveða hver og einn
hvort þeir taka tilboði bæjarins og
draga þá uppsagnir sínar til baka í
kjölfarið. Björg sagði marga hafa
ákveðið að hugsa sig um og væri
það eðlilegt að fólk vildi íhuga kost-
ina vandlega.
Vel heppnaðir vinadag-
ar soroptimistasystra
HATT á þriðja hundrað soroptim-
istasystur frá Norðurlöndunum
tóku þátt í vinadögum á Akureyri
um helgina. Þórunn Sveinbjöms-
dóttir, formaður Soroptimista-
klúbbs Akureyrar, sagði vinadag-
ana hafa heppnast mjög vel og gest-
ir átt ánægjulega daga á Akureyri.
Salóme Þorkelsdóttir, forseti
Soroptimistasambands íslands setti
vinadagana í Menntaskólanum á
Akureyri á laugardag en hátíðar-
ræðuna flutti Vigdís Finnbogadótt-
ir, fyrrverandi forseti Islands en
hún var jafnframt verndari vina-
daganna.
Helen van Themsche, forseti
Evrópusambands Soroptimista,
kom til Akureyrar og tók þátt í
vinadögunum ásamt öllum forsetum
Soroptimistasambanda Norður-
landanna. Á fundi tengdum vina-
dögunum var fundarefnið; „Bamið
- samfélagið - framtíðin", og flutti
Lára Bjömsdóttir, félagsmálastjóri
Reykjavíkurborgar, framsöguer-
indi.
Á laugardagskvöld var hátíðar-
kvöldverður soroptimistasystra í
Morgunblaðið/Kristján
VIGDÍS Finnbogadóttir, fyrr-
verandi forseti Islands og Helen
van Themsche, forseti Evrópu-
sambands Soroptimista.
íþróttahöllinni, undir veislustjórn
Þóreyjar Aðalsteinsdóttur. Á
sunnudag var sorptimistamessa í
Akureyrarkirkju, þar sem sr. Hulda
H.M. Helgadóttir prédikaði. Þá var
einnig farið í skoðunarferð um
Akureyri og í Laufás, þar sem sr.
Pétur Þórarinsson og Ingibjörg
Siglaugsdóttir sýndu gestum stað-
inn.
Tónleikar, kvöldvaka og
messa á þjóðlagadögum
ALÍSLENSKIR þjóðlagatónleikar
verða haldnir í Deiglunni í kvöld,
föstudagskvöldið 26. júní, kl. 21.
Þórarinn Hjartarson og Ragnheið-
ur Ólafsdóttir flytja ljóð eftir Pál
Ólafsson, en þau Bára, Diddi og
Njáll kveða, syngja og spila þjóðlög.
Annað kvöld, laugardagskvöld,
verður kvöldvaka að gömlum sið í
Deiglunni kl. 21. Félagar úr Kvæða-
mannafélaginu Iðunni í Reykjavík
munu kveðast á og yrkja og kvæða-
menn úr hópi heimamanna bætast
við en öllum er velkomið að taka
þátt í slagnum. Að lokinni kvöld-
vöku streyma gestir á harmonikku-
ball á Fosshóteli-KEA á vegum
harmonikkuunnenda við Eyjafjörð.
Þjóðlagadögum lýkur með þjóð-
lagamessu í Akureyrarkirkju kl. 21.
Tónlist flutt af Kór Akureyrar-
kirkju, Birni Steinari Sólbergssyni
organista, Jóni Rafnssyni, bassa,
Snorra Guðvarðarsyni, gítar, og
Daníel Þorsteinssyni verður með
þjóðlagaívafi.
Belgískur
málari í
Deiglunni
BELGÍSKI málarinn og högg-
myndalistamaðurinn Alex-
andra Cool opnar sýningu á
myndverkum í Deiglunni við
Kaupvangsstræti á Akureyri
laugardaginn 27. júní kl. 16.
Alexandra er spænskmennt-
aður listmálari og arkitekt og
hefur hún komið víða við á
starfsferli sínum, m.a. í mynd-
höggi í stein á Italíu í tæpan
áratug og málaralist á Ind-
landi áður en hún nam frekar
við „Centre de Terre“ í Frakk-
landi. Eftir ár þar snéri hún
heim til Belgíu að sköpunar-
starfi með dönsurum og tón-
listarfólki. Undangenginn ára-
tug hefur hún unnið að list
sinni á Korsíku, í Brussel og
New York en flest verk hennar
tilheyra einkasöfnum víða um
veröld.
Sýningin er á dagskrá Lista-
sumars og stendur til 8. júlí
næstkomandi.
Hundasýning
í Höllinni
ÁRLEG hundasýning Hunda-
ræktarfélags íslands og
svæðafélags HRFI á Norður-
landi verður haldin helgina 27.
og 28. júní í íþróttahöllinni á
Akureyri.
Að þessu sinni verða sýndir
alls 130 hundar af 29 tegund-
um auk 15 ungi-a sýnenda.
Dómari verður Karl-Erik Jo-
hannsson frá Svíþjóð. Sýningin
hefst báða dagana kl. 11.00 og
eru úrslit áætluð um kl. 16.00
báða dagana. Keppni ungra
sýnenda fer fram á laugardeg-
inum.