Morgunblaðið - 26.06.1998, Side 17

Morgunblaðið - 26.06.1998, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI LANDIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998 1 7 Obyggðaskokk um Þorvaldsdal HIÐ árlega óbyggðaskokk eftir endilöngum Þorvaldsdal í Eyjafirði fer fram laugardaginn 4. júlí nk. Þor- valdsdalur er opinn í báða enda, opn- ast suður í Hörgárdal og norður á Arskógsströnd. Skokkið hefst kl. 10.00 við Fom- haga í Hörgárdal, en Fomhagi er 60 m yfir sjávarmáli og endamarkið er við Arskógsskóla, sem einnig er 60 m yfir sjávarmáli. Vegalengdin er um 26 km. Allbratt er fyrsta spölinn upp frá Fomhaga og dalbotninn nær 500 m hæð eftir 5 km en er úr því hallar undan með þeim frávikum sem landslagið býður upp á. Þorvalsdalsskokkið er ætlað öll- um, bæði konum og körlum, sem telja sig komast þessa leið, hlaup- andi, skokkandi eða gangandi. Tíma- töku verður hætt eftir 6 tíma. Keppt er í aldursflokkkum 16-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára, 60-69 ára og 70 ára og eldri. Þrír fyrstu í hverjum ald- ursflokki karla og kvenna fá sér- staka verðlaunapeninga og auk þess fá allir pening sem komast í mark á tilskildum tíma. Skráning við rás- mark hefst kl. 9.30, þar greiðist þátttökugjald og númer verða af- hent. Skokkarar fylgja sennilega helst fjárgötum en mega fara hvaða leið leið sem þeim sýnist þægilegust. Farið er um móa, mýrlendi og norð- lenskt hraun. Menn mega búast við að blotna í fætur við að fara yfir mýrar og læki. Fjórar drykkjar- stöðvar verða á leiðinni og þar verða björgunarsveitarmenn til taks og einnig ekur jeppi mönnum yfir Hrafnagilsá, einu verulegu þverána sem er á hlaupaleiðinni. Bíll mun aka fótum hlauparanna frá rásmarki eða endamarki og við Árskógsskóla er hægt að komast í sturtu. Sá elsti 77 ára Þetta er í fimmta sinn sem efnt er tíl þessa skokks og sá sem hraðast hefur hlaupið var 2 tíma og 7 mínút- ur og elsti þátttakandinn hefur verið 77 ára. Götuskokkarar, göngumenn og aðrir eru hvattir til að fara á sín- um hraða um þennan fallega dal. Framkvæmdaaðilar eru Ferðafé- lagið Hörgur, Ungmennafélagið Reynir, Björgunarsveit Árskógs- strandar og Ferðaþjónustan Ytri- Vík/Kálfskinni. Upplýsingar veitir Bjami Guðleifsson á Möðruvöllum, sími 462-4477 eða 462-6824. Hótel Edda opnar á Akureyri Annasamt í sumar HÓTEL Edda á Akureyri tók til starfa sl. sunnudag og eins og mörg undanfarin ár eru fyrstu gestir hótelsins eldri útskriftar- árgangar sem koma til Akureyr- ar til að samfagna nýstúdentum sem útskrifast frá Menntaskólan- um á Akureyri 17. júní. Annasamt verður á hótelinu í sumar, m.a. vegna ýmissa við- burða á Akureyri og nágrenni. Má þar nefna Pollamót Þórs 3.-4. júlí, Landsmót hestamanna á Melgerðismelum 8.-12. júlí og Norðurlandamót unglingalands- liða í knattspyrnu í byrjun ágúst. Auk þess verða ráðstefnugestir nokkurra ráðstefna sem haldnar verða í bænum, á hótelinu, svo og fjölmargir innlendir og er- lendir gestir sem ferðast um landið. Á myndinni er Jónas Hvann- berg hótelstjóri ásamt hluta af starfsfólki Hótels Eddu á Akur- eyri. Morgunblaðið/Jónas Baldursson Ovenju snjólétt í Fjörðum Grýtubakkahreppi. Morgnnblaðið. SNJÓALÖG og færi á leiðinni norður í Fjörður voru könnuð skömmu fyrir miðjan júnímánuð. Óvenjulega lítill snjór er á leið- inni út yfir Leirdalsheiði og vart langt að bíða að bílfært verði allt norður í Kamb í Hvalvatnsfirði. Er það mun fyrr en oft hefúr ver- ið og komið hafa þau ár að ekki er fært í Fjörður fyrr en um fyrstu helgi ágústmánaðar og þá eftir að leiðin hefur verið mokuð með jarðýtu. I liðinni viku var fó frá nokkrum bæjum í Grýtubakka- hreppi rekið í afrétt og er þá ým- ist rekið vestur í Þorgilsfjörð eða í Hvalvatnsfjörð. Gróður hefur farið vel af stað í Fjörðum á þessu vori en er farinn að líða verulega fyrir þurrk en fjalldrapi er þó vel laufgaður í hlfðum. Gróðrarstöð í túnjaðri væntanlegs álvers við Reyðarfjörð Reyðarfirði - í hinu nýja sveitarfé- lagi á Austfjörðum hefur verið opn- uð gróðrai-stöðin Sómastaðir við Reyðarfjörð og er á samnefndri jörð sem er staðsett á milli þéttbýl- iskjamanna á Eskifirði og Reyðar- firði fast við þann stað sem orðaður hefur verið við álver Norsk Hydro. Eigandi fýrirtækisins er Gunnar Th. Gunnarsson skrúðgarðyrkju- fræðingur, en hann útskrifaðist af skrúðgarðyrkjubraut Garðyrkju- skóla nkisins á Reykjum í Ölfusi 1988. Gunnar opnaði í byrjun júní og síðan hefur verið nóg að gera. Mest hefur verið að gera í sölu sumar- blóma en einnig hefur verið töluvert að gera í sölu garðplantna. Á Sómastöðum fást allar helstu garðplöntur, sumarblóm og fjölær- ingar og einnig garðverkfæri ýmis- konar, trjákurl, mold og áburður í pokum. Gunnar hefur einnig leigt út áhöld s.s. mosatætara, keðjusög, sláttuorf o.fl. og síðan er hann með ýmsa garðaþjónustu s.s. garðaúðun og trjáklippingar, hellulagnir og alls kyns lóðafrágang. Gunnar verður með tvo menn í vinnu í sum- ar við afgreiðslu og garðvinnu. Kjörorð fyrirtækisins er „Allt í garðinn!" og það er opið alla daga frá kl. 10-18. Aðspurður um væntanlegt álver sagðist Gunnar ekki óttast það. ÁI- ver með fullkomnasta hreinsunar- búnað og gróðrarstöð eiga að geta farið ágætlega saman. Á Sómastöðum er einnig gamalt steinhús sem Hans Jakob reisti ásamt sonum sínum árið 1875 og setur það mikinn svip á staðinn. Hassel Teudt Handklæðaofnar Vandaðir handklæðaofnar. Fáanlegir í ýmsum stærðum. Lagerstærðir: 700 x 550 mm 1152 x 600 mm 1764 x 600 mm Heildsöludreiflng: . , Smiðjuvegi 11.Kópavogi TCnGlehf. sími 564 1088,fax564 1089 Fæst í byggingavöruverslunum um land allt. FRÁ vígslu kaffihússins. MorgunblaíiaBig. Fannar. Vímulaust kaffíhús í Tryggvaskála Selfossi - Nýverið opnaði vímulaust kaffihús í Tryggvaskála á Selfossi. Að opnun kaffihússins stendur undirbúningshópur nemenda Fjöl- brautaskóla Suðurlands. Undirbún- ingur og vinna í kringum kaffihús- ið hefúr staðið um nokkurt skeið og má segja að langþráður draum- ur hópsins hafi nú ræst. Kaffthúsið er fyrst og fremst hugsað fyi-ir aldurshópinn 16-20 ára og verða uppákomur og rekst- ur hússins sniðinn fyrir þann ald- urshóp. Hópurinn sem stendur að kaffihúsinu hefur unnið allt sitt starf í sjálfboðavinnu en Selfossbær hefúr stutt vel við bakið á krökkun- um og það kom fram í máli Jens Bárðarsonar, forsprakka kaffihúss- ins, að vonandi héldi aðstoðin áfram nú þegar nýtt sveitarfélag, Árborg, væri orðið að veruleika. etto H J A L M A R L^L Notaðu heilann! Þekking Reynsla Þjónusta FÁLKINN Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Sími 540 7000 Fax 540 7001 • Netf. falkinn@falkinn.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.