Morgunblaðið - 26.06.1998, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Austurleið og SBS mynda nýtt fólksflutningafyrirtæki með sameiningu
Verður stærsta
rútufyrirtæki
landsins
SAMKOMULAG hefur náðst milli
eigenda Austurleiðar hf. og SBS hf.
að sameina fyrirtækin og mynda
þannig stærsta rútufyrirtæki lands-
ins með rúmlega fjörutíu langferða-
bifreiðir að sögn forráðamanna
þess. Fyrirhugað er að formleg
sameining fyrirtækjanna verði í
haust en þau eru þegar byrjuð að
samhæfa áætlunarferðir sínar og
aðra þjónustu.
SBS (áður Sérleyfisbflar Selfoss)
er nú með 21 langferðabifreið í
rekstri og hefur um árabil haft sér-
leyfi á fólksflutningum milli Reykja-
víkur, Hveragerðis, Selfoss, Eyrar-
bakka, Stokkseyrar, Þorlákshafnar,
Biskupstungna og að Gullfossi og
Geysi.
Austurleið, sem er með 22 bifreið-
ir í rekstri, hefur hins vegar sérleyfi
Navís-Land-
steinar í nýtt
húsnæði
HUGBÚNAÐARFYRIRTÆKIÐ
Navís-Landsteinar hefur flutt
starfsemi sína í nýtt 1200 fer-
metra húsnæði við Grjótháls 5 í
Reykjavík og verður þar undir
sama þaki og Landsteinar
Intematíonal, sem á 50% í Navís-
Landsteinum og fyrirtækið
NaviPlus sem sfyrir nýsmíði á
öllum sérlausnum fyrirtækjanna.
Að sögn Jóns Arnar Guð-
bjartssonar markaðsstjóra er
hér um mikla hagræðingu að
ræða: „Navís-Landsteinar störf-
uðu áður á tveimur stöðum í
borginni. Mikið óhagræði fylgdi
því en með sameiningu fyrir-
tækisins á einn stað verður
þjónustan aukin og bætt.
á leiðinni Reykjavík, Hella, Hvols-
völlur, Höfn í Homafirði, Egilsstað-
ir. Fyrirtældð hefur auk þess byggt
upp þjónustu við ferðamenn í Þórs-
mörk og er þar með verslun og gisti-
aðstöðu. Bæði fyrirtækin reka auk
þess verkstæði og sinna margvísleg-
um hópferða- og skólaakstri.
BÆNDASAMTÖKIN eru nú með
í athugun að bjóða út tryggingar
fyrrir félagsmenn sína. Guðmundur
Stefánsson hagfræðingur hjá sam-
tökunum segir ástæðuna tvíþætta;
annars vegar sé ætlunin að kanna
hvort hægt sé að ná lægri iðgjöld-
um, hins vegar skerpa á trygginga-
skilmálum, þannig að þeir verði
einfaldir og skýrir.
„Það er végna þess að félags-
menn hafa lent í slæmum slysum
Markmiðið að bæta þjónustuna
Ómar Óskarsson, framkvæmda-
stjóri Austurleiðar, segir að marg-
víslegir möguleikar skapist til að
hagræða í rekstrinum og veita
betri þjónustu með því að reka
þessa starfsemi undir einum hatti.
undanfarin ár og við höfum verið
ósáttir við túlkun tryggingafélaga
á bótaskyldu.“
Horft til norrænna
fyrirmynda
Þá segir hann að Bændasam-
tökin vonist til þess að hvetja með
þessu bændur til að tryggja eignir
sínar, enda séu búskaparhættir að
breytast og laga þurfi tryggingar
að breyttum aðstæðum.
„Við erum þegar byrjaðir að sam-
eina starfsemina, en ætlunin er að
ganga formlega frá sameiningunni
í haust. Á undanförnum árum hef-
ur harðnað nokkuð á dalnum í
þessari atvinnugrein og það ýtti
vissulega á eftir mönnum að leita
nýrra leiða til að hagræða í rekstr-
inum. Rútufarþegum hefur al-
mennt fækkað en fjölgun ferða-
manna yfir sumarið hefur þó unnið
hana upp að nokkru leyti. Við erum
bjartsýnir á að ná fram hagræð-
ingu með samnýtingu bílaflotans,
sem gefur okkur færi á að bæta
þjónustuna enn frekar," segir Óm-
ar.
Nafn hefur enn ekki verið ákveð-
ið á nýja fyrirtækið og fyrst um sinn
verður það rekið undir heitinu
Austurleið-SBS.
Guðmundur segir að horft hafi ver-
ið til fyrirmynda hjá öðrum bænda-
samtökum á Norðurlöndum, sem
hafi náð góðum árangri með trygg-
ingaútboðum. Einnig hafi önnur
hagsmunasamtök hér á landi náð
ágætis samningum með sama fyr-
irkomulagi. Aðspurður segir hann
ekki ákveðið hvort leitað verði til
innlendra eða erlendra trygginga-
félaga, en línurnar ættu að skýrast
með haustinu.
s
Flugfélag Islands
í leiguverkefni
Tekur að
sér áætl-
unarflug í
Bretlandi
FLUGFÉLAG íslands hefur
samið við breska flugfélagið
Eastern airways, um að annast
leiguflug fyrir félagið innan
Bretlands. Samningurinn er til
tveggja ára en verkefnið hefst í
júlí.
Um er að ræða eina Metró
vél Flugfélagsins sem sinna
mun áætlunarflugi með farþega
á milli Humberside og skosku
borgarinnar Aberdeen.
Fyrsta verkefnið
af þessu tagi
Páll Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags ís-
lands, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að þetta væri í fyrsta
sinn sem félagið tæki að sér
slflcan samning erlendis: „Við
höfum verið að líta í kringum
okkur á þessum leigumarkaði
undanfarið. Ljóst er að af nægu
er að taka og allt eins líklegt að
önnur Metro vél fari í samskon-
ar verkefni á næstunni á svipuð-
um slóðum“. Páll segir á vissan
hátt slæmt að missa vélina á
þessum árstíma þegar annir hér
heima eru hvað mestar, en til
lengri tíma litið þá muni þetta
verða félaginu til góða.
Allur rekstur og viðhald vél-
arinnar verður í höndum Flug-
félagsins.
Bændasamtökin vilja lægri iðgjöld og skýrari tryggingaskilmála
*
Ihuga að bjóða út trygg-
ingar fyrir félagsmenn
TT-r
mm
AÍvCít H/C
Guðmundur Guðjónsson og Ragnar Axelsson koma við í Hvallátrum
í blaðinu á sunnudaginn.
't v vtt*