Morgunblaðið - 26.06.1998, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
ERLENT
FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998 21
Túnfískurinn
Deilt um hvort Irakar hafi sett taugagasið VX í eldflaugar
Samið við Japani
Butler segir niður-
stöðurnar óyggjandi
UNDIRRITAÐUR hefur verið
samningur Hafrannsóknastofnun-
arinnar og japanska íyrirtækisins
MAR um áframhald samstarfs á
sviði tilraunaveiða á túnfíski innan
íslensku efnahagslögsögunnar.
Þessir tveir aðilar hafa unnið sam-
an að þessu verkefni sl. tvö ár með
sérstöku leyfi sjávarútvegsráðu-
neytisins.
I fréttatilkynningu frá Hafrann-
sóknastofnun segir, að árangur
samstarfsins hafi verið sá, að nú
þyki ljóst, að túnfiskur komi í tölu-
verðum mæli inn í íslenska efna-
hagslögsögu. Enn skorti þó upp-
lýsingar varðandi göngur túnfisks-
ins og mergð á miðunum. Haf-
rannsóknastofnunin hafi því talið
ástæðu til frekari túnfiskrann-
MÁLMSTEYPA Þorgríms Jóns-
sonar hefur nú um nokkurra ára
skeið framleitt handfærasökkur úr
grájárni, einnig kallaðar pottsökk-
ur, en þær eru miklu umhverfis-
vænni en blýsökkur. Verða þær
ásamt ýmsum nýjungum í fram-
leiðslu fyrirtækisins kynntar á
Umhverfisdögum 1998 en þeir
verða haldnir hjá Sorpu í Gufunesi
um þessa helgi, 27. til 28. júní.
Kemur þetta fram í fréttatilkynn-
ingu frá fyrirtækinu.
A síðustu árum hefur baráttan
gegn blýmenguninni verið hert um
allan heim enda er hún afar skað-
sókna og hefur lokið gerð samn-
ings við MAR til eins árs.
Að þessu sinni er ætlunin að
kanna stærra svæði innan lögsög-
unnar en sl. tvö ár, á fimm skipum
í stað þriggja. Rannsóknatímabilið
verður nokkiu lengra en fyrr eða
ágúst-nóvember. Jafnframt verð-
ur hafið starf við rannsóknir á
stofngerð og vistfræði túnfisksins
við landið, m.a. í samstarfi við jap-
anska rannsóknaaðila. Fulltrúar
Hafrannsóknastofnunarinnar
munu verða um borð í skipunum
meðan á tilraununum stendur.
Gert er ráð fyrir að samstarf verði
milli japönsku tilraunaveiðiskip-
anna og íslenskra skipa sem
hyggjast gera tilraunir við túnfisk-
veiðar á þessu ári.
leg öllu lífríkinu.
Brennur það ekki síst á okkur
Islendingum sem matvælafram-
leiðendum og vegna þeirrar ímynd-
ar, sem fiskurinn hefur sem hrein
og holl afurð. Enginn skyldi þó
reyna að geta sér til um allt það
magn af blýi og blýsökkum, sem
liggur á grunnslóðinni kringum allt
land.
Landssamband smábátaeigenda
samþykkti fyi'ir nokkrum árum til-
mæli til félagsmanna sinna um að
hætta að nota blýsökkur en enn
vantar þó mikið upp á, að það hafí
verið gert.
Sameinuðu þjóðunum, Bagdad, London. Reuters.
RICHARD Butler, formaður
vopnaeftirlitsnefndar Sameinuðu
þjóðanna, sagði í fyrradag að eng-
inn vafi léki á þeirri niðurstöðu
rannsóknarstofu Bandaríkjahers
að Irakar hefðu sett banvænt
taugagas, VX, í eldflaugaodda fyr-
ir Persaflóastríðið 1991. írakar
neituðu þessum ásökunum í gær
og sökuðu eftirhtsmenn Samein-
uðu þjóðanna um að vera útsend-
arar Bandaríkjanna og ítrekuðu
viðvörun sína um að ef refsiað-
gerðum gegn írak yrði ekki aflétt
myndi það hafa alvarlegar afleið-
ingar.
Butler sagði að leifar af VX
hefðu fundist í eldflaugaoddunum
og sýnin yrðu send á rannsóknar-
stofur í Sviss og Frakklandi til að
ganga úr skugga um hvort niður-
staða rannsóknarstofu bandaríska
hersins í Maryland væri rétt.
Hann kvaðst sannfærður um að
niðurstaðan yrði staðfest.
Bandaríkjamenn og Bretar líta
svo á að rannsóknin sanni að Irak-
ar hafi blekkt eftirhtsnefndina og
velta því fyrir sér hvort þeir hafi
falið taugagas sem enn sé hægt að
nota í eldflaugaodda. Stjórnarer-
indrekar Rússlands, Kína og
Frakklands, sem hafa beitt sér
fyrir því að slakað verði á refsiað-
gerðunum sem fyrst, sögðust þó
ekki vera sannfærðir um að niður-
staða bandarísku rannsóknarinnar
Irakar saka
eftirlitsnefnd-
ina um „lygi og
falsanir“
væri óyggjandi.
Butler gerði öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna grein fyrir rann-
sókninni á fundi í fyrrakvöld og
ráðið samþykkti síðan að breyta
ekki refsiaðgerðunum. Ekki hafði
verið búist við breytingum og lík-
legt er að írakar reyni ekki aftur
að fá öryggisráðið til að slaka á
refsiaðgerðunum fyrr en í októ-
ber.
Butler sagði að eftirhtsmenn
sínir þyrftu nú að komast að því
„hversu mikið var framleitt af efn-
inu, hvar því var komið fyrir og
hvar það er núna“ þegar þeir hæfu
viðræður við yfirvöld í Bagdad í
júlí.
Irakar hafa viðurkennt að hafa
sett taugagasið sarín í eldflauga-
odda en ekki VX. Þeir segja að
þótt þeir hafi reynt að framleiða
VX sem hægt væri að nota í eld-
flaugaodda hafi það ekki tekist.
Irakar beittu ekki taugagasi í
stríðinu 1991 þegar hersveittf
þeirra voru hraktar frá Kúveit.
Irakar sögðust sannfærðir um
að „réttsýnar“ þjóðir myndu ekki
láta „lygar og falsanir" eftirlits-
nefndarinnar blekkja sig. Jevgení
Prímakov, utanríkisráðherra
Rússlands, sagði hins vegar í gær
að tilgangslaust væri fyrir Iraka
að neita því að þeir hefðu sett
taugagasið í eldflaugaoddana.
„Ekki ný uppgötvun"
Skýrslu bandarísku rannsóknar-
stofunnar var lekið í The Washing-
ton Post áður en hún var lögð fyrir
öryggisráðið og sendiherrar Rúss-
lands og Kína voru sagðir hafa
varpað fram þeirri spurningu á
fundinum hvort skýrslunni hefði
verið lekið af ásettu ráði til að
styrkja stöðu Bandaríkjamanna í
deilunni um refsiaðgerðirnar.
Fréttaskýrendur sögðu að nið-
urstaða bandarísku rannsóknar-
innar væri „ekki ný uppgötvun" og
töldu fréttalekann upphafið að
nýrri rimmu milli Bandaríkja-
manna og Iraka sem myndi ná há-
marki í október þegar eftirlits-
nefndin þarf að ákveða hvort halda
eigi áfram leitinni að gereyðingar-
vopnum í írak. Nokkrir frétta-
skýrendanna sögðu að eftirlits-
nefndin væri að færa sönnunar-
byi-ðina yfir á Iraka, þannig að
þeir þyrftu að gera fulla grein fyr-
ir vopnaframleiðslu sinni fremur
en að nefndin þyrfti að finna ný
sönnunargögn.
Umhverfísdagar 1998
Sökkur úr grájárni
Loðnan er dreifð
LOÐNUVEIÐIN gengur bærilega
um þessar mundir, en bræla á mið-
unum er til ama og svo er loðnan
enn talsvert dreifð. I gær voru 18
loðnuskip skráð úti hjá Tilkynn-
ingaskyldunni og voru þau dreifð á
stóru svæði, norðaustur og austur
af Langanesi og einnig sunnar, nið-
ur undir miðja Austfirði og 40 til 90
sjómílur frá landi.
Svo dæmi séu tekin um það sem
á sér stað á miðunum, þá sagði
Sveinn Sturlaugsson útgerðar-
stjóri hjá HB á Akranesi öll skip
fyrirtækisins vera á landleið, EOiði
með 850 tonn, Víkingur með 1150
tonn og Höfrungur með 850 tonn.
Þá voru Þórshamar og Súlan að
landa 800 tonnum hvor á Neskaup-
stað og Börkur var á landleið með
1000 tonn að sögn Haraldar Jörg-
ensen hjá Síldarvinnslunni á Nes-
kaupsstað. I gær hafði alls verið
landað 10.559,948 tonnum af loðnu
á fimm stöðum samkvæmt upplýs-
ingum frá Samtökum fiskvinnslu-
stöðva.
Enn verið að
landa síld
Samkvæmt upplýsingum frá
Samtökum fiskvinnslustöðva lönd-
uðu fjórir síldarbátar afla á mið-
vikudag, Þorsteinn rúmum 967
tonnum í Grindavík, Garðar rúm-
um 336 tonnum á Akureyri, Glófaxi
rúmum 513 tonnum á Neskaups-
stað og Beitir rúmum 483 tonnum
á sama stað. AIls hafði þá verið
landað 203.581,961 tonni hjá ís-
lenskum fiskvinnslustöðvum á ver-
tíðinni.
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
www.mbl.is/fasteignir
erhöfuðatriði
viljirþú
ífebrúar
1. júlí er höfuðatriði viljir þú góða greiðslu.
Stofn-félagar, og þeir sem ganga í Stofn
fyrir 1. júlí, geta átt von á endurgreiðslu
í febrúar á næsta ári sem nemur
allt að 10% af iðgjöldunum.
SJQVAnnTTALMENNAR
Traustur þáttur í tilverunni
Ovenjulegasta fjölskyldusýningin?
4
• Volvo glæsibifreið sem gengur fyrir gasl
• Sorpustrákurinn og Sorpustelpan gefa gjafir
• Kynning 40 fyrirtækja i endurvinnslu og umhverfisvernd
Velkomin á Umhverfisdaga 1998 í Gufunesi um helgina
S©RPA
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS b*
www.sorpa.is