Morgunblaðið - 26.06.1998, Síða 22
SS xcfii r/,fn. .9': íi:’o/.a'n>.ö'-i
22 FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Frjálsir demókratar í Þýzkalandi á báðum áttum
Formaðurinn vill
hollustu við
Bonn. Reuters.
212 farast
í flóðum
í Kína
AÐ minnsta kosti 212 manns
hafa farist af völdum víðtækra
flóða í Kína undanfarna daga og
er tjón vegna flóðanna metið á
hundruð milljóna Bandaríkja-
dala, að því er kínverskir emb-
ættismenn sögðu í gær. Flóð
sem þessi verða á hverju sumri
í Kína. Meðal þeirra staða sem
orðið hafa fyrir barðinu á flóð-
unum nú er borgin Guilin, en
hún er einn af viðkomustöðum
Bills Clintons, Bandaríkjafor-
seta, sem nú er í opinberri
heimsókn í Kína. Ekki hefur
orðið mannskaði vegna flóðanna
í Guilin.
200 heimili
yfirgefín
BJÖRGUNARSVEITIR á
Flórída hófu í gær að flytja fólk
frá um 200 heimilum á Daytona
Beach þar sem hætta stafar af
skógareldum er geisa um mið-
bik ríkisins. Tuttugu og fimm
heimili höfðu verið yfirgefin á
þriðjudag. Slökkviliðsmenn
höfðu í gær náð tökum á eldin-
um sumstaðar, en alls brann á
72 stöðum.
Tuttugu o g
þrír létust
TUTTUGU og þrír létust og 39
slösuðust þegar svalir á íþrótta-
leikvangi hrundu í borginni
Naltsjík í Suður-Rússlandi í
gær. Tvö böm vom meðal
þeirra sem fómst. Glímukeppni
stóð yfir á leikvanginum er slys-
ið varð.
Horfíð verði
frá Bosníu
ÖLDUNGADEILD bandaríska
þingsins fór á miðvikudag fram
á að bandarískir hermenn yrðu
með tíð og tíma kvaddir heim
frá Bosníu, og að forsetaemb-
ættið skyldi leggja fram skýra
stefnu um hvemig binda ætti
enda á hernaðaríhlutunina í
Bosníu. Þingið samþykkti
ályktun þessa efnis með níutíu
atkvæðum gegn fimm.
Samþykki fyrir
31. ágúst
BRESKA stjómin ákvað í gær
að flýtt skyldi afgreiðslu laga
um samþykki við alþjóðlegu
banni við notkun jarðsprengja.
Skal þingið hafa samþykkt lög-
in fyrir 31. ágúst, en þá verður
ár liðið frá þvi Díana prinsessa
lést í bílslysi.
Diplómata-
flótti „ögrun“
ALEXANDER Lúkasjenkó,
forseti Hvíta-Rússlands, sagði í
gær að fjöldaflótti erlendra
stjórnarerindreka frá landinu
vegna deilna um húsnæði væri
„ögrun“ af hálfu Vesturlanda.
Fulltrúar þeirra segja forset-
ann hafa þrotið Vínarsáttmál-
ann um meðferð á stjómarer-
indrekum, með því að reka þá á
brott frá tilteknu hverfi í höfuð-
borginni, Minsk. Sagði
Lúkasjenkó framferði Vestur-
landa „til skammar". Þetta er í
fyrsta sinn sem forsetinn tjáir
sig um deiluna.
FRJALSI demókrataflokkurinn í
Þýzkalandi (FDP) hyggst á flokks-
þingi um helgina reyna að bæta
stöðu sína í kosningabaráttunni fyr-
ir þingkosningamar í haust með því
að taka opinberlega af vafa um það
með hverjum flokkurinn vilji starfa
í ríkisstjórn eftir kosningamar.
Nokkrir áhrifamiklir forystu-
menn FDP hafa að undanfömu látið
í ljósi vilja til þess að flokkurinn
gangi óbundinn til kosninganna,
þ.e.a.s. að hann láti ekki skuldbinda
sig til að halda áfram samstarfi við
Kristilega demókrata og Helmut
Kohl, en skoðanakannanir benda til
að stjómarflokkarnir muni tapa
þingmeirihluta sínum í haust og
jafnaðarmenn (SPD) undir forystu
Gerhards Schröders muni standa
uppi sem sigurvegarar.
Wolfgang Gerhardt, formaður
FDP, setti spuminguna um holl-
ustuyfirlýsingu við Kohl á dagskrá
flokksþingsins nú um helgina í því
skyni að kveða niður þessar raddir
innan flokksins sem telja affara-
sælla að ganga óbundnir til kosn-
inga, en slíka stefnubreytingu telja
formaðurinn og fleiri í flokksforyst-
unni skaðlega fyrir trúverðugleika
flokksins og þar með fylgishorfur
hans í kosningunum.
Útlitið svart
Samkvæmt skoðanakönnunum
stendur fylgi FDP tæpt; það mælist
í kringum 5%, en það er lágmarks-
fylgið sem þarf til að hljóta þingsæti
á Sambandsþinginu, neðri deild
þýzka þingsins.
A undanfömum árum hefur FDP
verið í kreppu; honum hefur mistek-
izt að ná lágmarksfylgi í kosningum
til héraðsþinga 12 af 16 sambands-
löndum Þýzkalands. Flokkurinn
hefur hins vegar átt aðild að öllum
ríkisstjómum Sambandslýðveldis-
ins frá þvf 1969, fyrstu 13 árin í
samstarfi við SPD, en frá 1982 hafa
Kohl
fulltrúar hans setið í stjórn Helmuts
Kohls. Ef flokkurinn tapaði fulltrú-
um sínum á Sambandsþinginu yrði
útlitið svartara en nokkm sinni fyr-
ir flokkinn, sem þar með gæti jafn-
vel leyst upp. Þar með væm líka
dagar Kohls á kanzlarastólnum
endanlega taldir, þar sem útilokað
er að flokkur hans nái hreinum
þingmeirihluta.
En Kohl var sigurviss í gær.
Hann sagðist í þingræðu vera viss
um að hann muni bera sigurorð af
Gerhard Schröder í haust og gagn-
rýndi keppinaut sinn fyrir að hafna
boði um kappræður á þinginu.
Schröder á sem forsætisráðherra
Neðra-Saxlands ekki sæti í neðri
deild þingsins, en sagðist hafa
neyðzt til að hafna boði Kohls
vegna annarra skuldbindinga þenn-
an dag, sem ekki hefði verið hægt
að breyta. Kohl hafði áður hafnað
boði Schröders um sjónvarpskapp-
ræður.
---------------------------------- i
Stofnandi Hamas
snýr aftur til Gaza
Berst
áfram ;
i
Israel
Gaza. Reutcrs.
AHMED Yassin, stofnandi
Hamas, róttækrar hreyfingar Pal- j
estínumanna, kvaðst ætla að halda
áfram baráttu sinni gegn ísrael
eftir að honum var leyft að snúa
aftur til Gaza-svæðisins í fyrradag.
„Við emm staðráðin í að halda
áfram heilagri baráttu okkar þar
til þjóð okkar hefur unnið sigur og
flóttafólkið getur snúið aftur,“
sagði Yassin skömmu eftir kom-
una til Gaza.
Spáir endalokun (
Israelsríkis
Tugir forystumanna og stuðn- j
ingsmanna Hamas tóku á móti
Yassin við landamærin og fylgdu
honum til móttökuathafnar á
íþróttaleikvangi nálægt heimili
hans í Gaza-borg.
Yassin var dæmdur í lífstíðar-
fangelsi fyrir baráttu gegn Israels-
ríki en leystur úr haldi í október.
Hann fór á sjúkrahús í Egypta- j
landi í febrúar vegna sýkingar í
eymm og ferðaðist síðan til nokk-
urra múslimaríkja, sem em óvin- »
veitt ísrael og andvíg friðarsamn-
ingum Israela og Palestínumanna.
Þegar Yassin var í Sýrlandi ný-
lega spáði hann því að Ísraelsríki
myndi líða undir lok og palestínskt
ríki yrði stofnað á fyrsta fjórðungi
næstu aldar.
Sharon andvígur j
ferðafrelsi Yassins
Israelski ráðherrann Ariel Shar- j
on sagði að rangt hefði verið að
heimila Yassin að fara frá Gaza
eftir að hann var leystur úr haldi
og einnig að leyfa honum að snúa
aftur. Israelskir sérfræðingar telja
að Yasser Arafat, leiðtoga sjálf-
stjórnarsvæða Palestínumanna, og
ísraelum stafi hætta af Yassin
beiti hann sér jafn ötullega í þágu j
Hamas á Gaza-svæðinu og hann
gerði í múslimaríkjunum.
Yassin sagði í gær að fór sín ^
væri á engan hátt ógnun við stöðu
Arafats, og að Hamas-samtökin
kæmu „aldrei í staðinn fyrir
heimastjóm Palestínumanna“.
Kafbáturinn rannsakaður
Reuters
SUÐUR-KÓRESKIR hermenn rannsökuðu í gær
norður-kóreska kafbátinn sem sökk sl. þriðjudag er
verið var að draga hann til hafnar í Suður-Kóreu.
Lík átta norður-kóreskra hermanna fundust í bátn-
um í gær, að því er s-kóreska ríkissjónvarpið
greindi frá, en varnarmálaráðuneytið bar fregnirn-
ar til baka. Kafbáturinn fannst strandaður, hálfur á
kafi, um 18 km úti fyrir strönd S-Kóreu á mánudag.
13.000 sérfræðingar frá öllum heimshornum koma saman á alnæmisráðstefnu
London, Höfðaborg. Reutcrs.
UM 13.000 sérfræðingar hvaða-
næva úr heiminum koma saman í
Genf á sunnudag á alþjóðlegri ráð-
stefnu um alnæmi þar sem m.a.
verður fjallað um betri forvamir
til að stemma stigu við útbreiðslu
sjúkdómsins og rannsóknir á lyfj-
um, sem bera meiri árangur og
hafa minni eiturverkun.
Vísindamenn, læknar, embætt-
ismenn, alnæmissjúklingar og full-
trúar samtaka, sem hafa barist
fyrir aðgerðum gegn sjúkdómn-
um, verða á ráðstefnunni sem lýk-
ur á föstudaginn kemur. Talið er
að hartnær tólf milljónir manna
hafi þegar dáið af völdum sjúk-
dómsins og búist er við að um
aldamótin verði um 40 milljónir
manna smitaðar af alnæm-
isveirunni.
Aðgerðir til að brúa bilið milli
lækna og sjúklinga og ríkra og fá-
tækra landa heims verða helsta
umræðuefni ráðstefnunnar. Ný lyf
og betri forvarnaaðferðir hafa
borið góðan árangur í ríku löndun-
Ahersla lögð á
betri forvarnir
um en ekkert lát er á útbreiðslu
sjúkdómsins í mörgum löndum Af-
ríku og Asíu sem hafa ekki efni á
dýrum lyfjameðferðum.
70% alnæmissjúklinganna
búa í Afríku
70% allra alnæmissjúklinga
heimsins búa í Afríku þar sem
læknar og heilbrigðisyfirvöld
reyna enn að kveða niður ýmsar
sögusagnir um sjúkdóminn, svo
sem þá að mök við hreina mey
lækni menn af alnæmi. Afrískir
töfralæknar hafa t.a.m. haldið því
fram að dularfullt mauk, sem bor-
ið er á líkamann, verndi menn fyr-
ir alnæmi og ungir menn tnia því
að hættulaust sé að sofa hjá feit-
um konum vegna þess alnæmis-
sjúklingar horast áður en þeir
deyja.
En alnæmissjúklingunum held-
ur áfram að fjölga í álfunni. Af 31
milljón manna, er hafa smitast af
HIV-veirunni, sem veldur alnæmi,
býr 21 milljón sunnan Sahara í Af-
ríku, samkvæmt nýjustu áætlun
UNAIDS, stofnunar Sameinuðu
þjóðanna sem berst gegn út-
breiðslu alnæmis.
,Astandið er augljóslega verst í
Afríku," sagði Bemard
Schwartlander, faraldursfræðing-
ur hjá UNAIDS. „Rúmlega 10%
fullorðinna Afríkumanna hafa
HIV-veiruna en meðaltalið út um
allan heim er eitt prósent."
Schwartlander bætti við að Af-
ríkuríldn gætu ekki beðið eftir
bóluefni eða lækningu við alnæmi
og þyrftu að einbeita sér að því að
bæta forvamimar.
„Við verðum að horfast í augu við
þá staðreynd að næsta áratuginn
verður ekki hægt að þróa bóluefni
sem hægt er að dreifa í miklum
mæli. Þess vegna er mikilvægast að
rfldn einbeiti sér að fyrirbyggjandi
aðgerðum."
Heilbrigðismálastofnun Samein-
uðu þjóðanna, WHO, segir að á
degi hverjum smitist 7.500 Afríku-
menn af alnæmisveirunni. Flesth-
þeirra eru á aldrinum 15-40 ára og
hætta er á að sjúkdómurinn geri
efnahagsbata álfunnar síðustu árin
að engu, auk þess sem munaðar-
leysingjum fjölgar og álagið á heil-
brigðiskeifið eykst, en það á nú
þegar við mikinn vanda að stríða
vegna skorts á starfsliði og fjár-
magni.