Morgunblaðið - 26.06.1998, Side 24

Morgunblaðið - 26.06.1998, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Reuters Fíkniefnavandi hjá Amish-fólki Washington. Daily Telegraph Chirac í Namibíu Kinkel ræðir við leiðtoga Kosovo-Albana Utilokar sjálfstæði Bonn, Belgrad. Reuters. EITURLYFJAVANDINN hefur nú teygt anga sína til hins friðsæla samfélags Amish-fólks í Pennsyl- vaníu í Bandaríkjunum. Öldungar, sem njóta virðmgar- stöðu í samfélagi þeirra, staðfestu þetta við réttarhöld yfir tveimur 23 ára mönnum sem sakaðir eru um að hafa dreift kókaíni innan samfé- lagsins. Sögðu öldungamir að þrátt fyrir að margir teldu Amish-fólkið fullkomið hefði það sín vandamál og að þeir hefðu miklar áhyggjur af vaxandi eiturlyfjavanda. Sakbomingamir, Abner Stolfuz og Abner King Stolzfus, em sak- aðir um að hafa dreift efnum að andvirði 70 milljóna íslenskra króna meðal Amish-ungmenna. Saksóknarar segja þá hafa starfað með harðvítugu mótorhjólagengi frá árinu 1992. Gengið nefnist Pagans, eða heiðingjar, og er for- ingi þess þekktur fyrir að brjóta fætur manna með öxi og kýla framtennurnar úr hverjum þeim sem dirfíst að óhlýðnast fyrirmæl- um hans. Eiga erfitt með að skilja þetta Lögfræðingar tvímenninganna, sem neita ásökunum um dreifingu efnisins, segja foreldra piltanna mjög íhaldssama og eiga í erfiðleik- um með að skilja þetta. Freistingar leynist hins vegar alls staðar. Pilt- amir iðrist eigin neyslu og hafi nú snúið aftur til kirkjunnar. Amish-fólkið, sem hefur orð á sér íyrir einfaldan lífstíl, trúrækni, vinnusemi og strangan aga, er kom- ið af þýskum innflytjendum sem fluttu vestur um haf eftir klofning innan kirkjunnar árið 1693. Það af- neitar öllum tækninýjungum og yrkir landið á sama hátt og fyrir- rennarar þess gerðu á 17. öld. Biskup safnaðarins mun á næst- unni halda í fyrirlestraferð þar sem hann mun vara 2.530 fjölskyldur við þeim hættum sem fylgja eitur- lyfjum. SAM Nujoma, forseti Namibíu, heldur á leifuin elstu höfiiðkúpu sem vitað er um í landinu, en Jacques Chirac, Frakklandsfor- seti, tekur undir lófaklapp við vígslu fransk-namibísku menning- armiðstöðvarinnar í höfuðborg- inni Windhoek í gær. Franskir vísindamenn færðu Nujoma höf- uðkúpuna að gjöf. Namibía er fyrsti viðkomustaður Chiracs á sex daga ferð um suðurhluta Af- ríku. Frökkum er í mun að ýta undir frumkvæði í viðskiptum franskra fyrirtækja og fyrirtækja í suður- hluta Afríku, sem hafa áhuga á að færa út kvíarnar til vesturhluta álfunnar, þar sem hefð er fyrir frönskum áhrifum. „Það er ekki alþjóðleg samkeppni um Afríku. Því fleiri ríki sem hafa áhuga á álfunni, því betra,“ sagði franskur sljómarerindreki í gær. Frakkar vilja einnig sýna og sanna pólitísk ftök sín f suður- hluta álfunnar og kröfðust þess að Chirac yrði tekið með ná- kvæmlega sama hætti í Suður- Afríku og Bill Clinton var tekið er hann kom þangað fyrr á árinu. Olli krafan nokkmm titringi í s- afríska sljómkerfinu. KLAUS Kinkel, utanríkisráðheira Þýskalands, sagði í gær að leiðtog- ar Vesturlanda myndu reyna til þrautar að finna pólitíska lausn á deilunni um Kosovo en lagði áherslu á að ekki kæmi til greina að styðja kröfu albanska meirihlut- ans í héraðinu um sjálfstæði. Kinkel lét þessi orð falla eftir fund með Ibrahim Rugova, leið- toga Albana í Kosovo, og sagði að Atlantshafsbandalagið (NATO) væri tilbúið til hernaðaríhlutunar í því skyni að binda enda á hernað- araðgerðir Serba gegn Albönum í héraðinu. Hann bætti þó við að bandalagið hefði ekki gefið upp vonina um að hægt yrði að leysa deiluna með friðsamlegum hætti. Rugova, sem ræddi síðai- við Helmut Kohl kanslara, hvatti Vest- urlönd til að grípa til hernaðarað- gerða í því skyni að binda enda á „þjóðernishreinsanir" Serba í hér- aðinu. „Við hvetjum til meiri hem- aðarviðbúnaðar í Kosovo til að vernda fólkið þar. Og við vitum öll að besta lausnin væri sjálfstætt, hlutlaust Kosovo.“ Kinkel áréttaði hins vegar af- stöðu NATO og Evrópusambands- ins, sem hafa hvatt Rugova til að falla frá kröfunni um sjálfstæði og hefja þess í stað viðræður við í KJÖLFAR þess að brezka æsifréttablaðið The Sun sneri við blaðinu í afstöðu sinni til Tonys Blairs og kallaði hann „hugsanlega hættulegasta mann Bretlands" vegna þess að honum virtist liggja á að koma Bretlandi í Efnahags- og myntbandalag Evrópu, EMU, vís- aði hann ásökuninni um stefnu- breytingu á bug, en að sögn The Daily Telegraph kvað við nokkuð annan tón í mál- flutningi Blairs í tengslum við myntbandalagið en áður. Blair tjáði neðri deild þingsins að þessi gagnrýni blaðsins myndi ekki verða til þess að hann breytti stefnu sinni, en samkvæmt frásögn Daily Telegraph gætti meiri varúðar gagnvart EMU í máli hans en áður. Hann sagði stjórnina hafna því að útiloka aðild Bretlands að myntbandalaginu „af grundvallarástæðum" og lagði áherzlu á þau efnahagslegu skil- yrði sem stjómin hefði sett sér að yrðu að vera uppfyllt áður en til greina kæmi að skipta pundinu út fyrir evróið, hina sameiginlegu Evrópumynt. Þykir þetta nokkur áherzlu- breyting frá því sem Blair sagði á leiðtogafundi Evrópusambandsins (ESB) í Cardiff 17. júní sl. Þar lýsti hann myntbandalaginu sem „þáttaskilum" fyrir Evrópu og leiddi að því líkur að það myndi hjálpa álfunni til að upplifa langt serbnesk stjórnvöld um að héraðið fái sjálfstjórn. Kosovo hefur alltaf verið hérað í Serbíu, þótt það hafi notið vera- legra sjálfstjómarréttinda tO árs- ins 1989, og var ekki lýðveldi í júgóslavneska sambandsríkinu eins og Slóvenía, Króatía, Bosnía og Makedonía, sem hafa fengið sjálfstæði. Holbrooke ræðir við Milosevic Richard Holbrooke, sendimaður Bandaríkjastjórnar, ræddi í gær við Slobodan Milosevic, forseta Jú- góslavíu, í Belgrad í annað sinn á tveimur dögum. Ekki var búist við að skýrt yrði frá árangri fundarins. Gert var ráð fyrir að Holbrooke færi aftur til Kosovo í dag og héldi áfram að ferðast milli borga á Balkanskaga til að knýja fram frið- arviðræður eins og hann varð þekktur fyrir þegar hann ti-yggði friðarsamning í Bosníu 1995. Jevgení Prímakov, utanríkisráð- herra Rússlands, sagði í gær að friðarumleitanirnar réðust nú af því hvemig Albanar í Kosovo svör- uðu tilboði Milosevic þess efnis að samið yrði um sjálfstjórn héraðs- ins. „Boltinn er nú hjá Albönum,“ sagði hann. efnahagslegt styrkleikaskeið með stöðugum gjaldmiðli, svipað og hin sterka staða dollarans í heimsvið- skiptum hefði hjálpað Bandaríkj- unum. Hagsveiflan lykilatriði Um þessar mundir er hagsveifl- an í brezku efnahagslífi stödd allt annars staðar en tilfellið er í ráð- andi ríkjum meginlandsins, og því eru ráð- andi fylkingar brezkra stjóm- mála sammála um að það þjóni ekld brezkum hagsmunum að ger- ast aðildar að EMU sem stendur. Agreiningurinn stendur hins vegar um hversu fljótt talið sé líklegt að aðstæður í brezku efnahagslífi verði þannig að það þjóni hags- munum þess að taka þátt í EMU. Francis Maude, sem fer með fjármál í skuggaráðuneyti íhalds- flokksins brezka, nýtti fyrstu opin- bera ræðu sína í því hlutverki, sem hann flutti sama dag og The Sun sló upp gagnrýni sinni á Blair, til að tíunda ítarlegustu rökin gegn aðild Bretlands að EMU í bráð, sem flokkurinn hefur sett fram til þessa. Hann nefndi hærri vexti, gífur- legan kostnað við gjaldmiðilsskipt- in, of mikið stýringarbákn og meiri skattheimtu sem óhjákvæmilega ókosti við að gefa pundið upp á bát- inn. ÍSLENSKI HLUTABRÉFASJÓÐURINN HF. AÐALFUNDARBOÐ Aðalfundur íslenska hlutabréfasjóðsins hf. verður haldinn fostudaginn 10. júlí 1998, kl. 17.00 í Sunnusal, Hótel Sögu. Dagskrá auglýst síðar. § , LANDSBREF HF. SUÐURLANDSBRAUT 24, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 535 2000, BRÉFSÍMI 535 2001, landsbref.is. LÖGGILT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI, A0ILIAÐ VERÐBRÉFAÞINGIÍSLANDS. Blair bregzt við atlögu The Sun Segir stefnu sína óbreytta Lundúnum. The Daily Telegraph.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.