Morgunblaðið - 16.09.1998, Side 1
STOFNAÐ 1913
209. TBL. 86. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Friðsamleg
mótmæli í
Albaníu
Tírana. Reuters.
FATOS Nano, forsætisráðherra
Albaníu, ítrekaði í gær ásakanir
á hendur Sali Berisha, leiðtoga
stjórnarandstöðunnar, um að
flokkur hans, Lýðræðisflokkur-
inn, hefði reynt að ræna völdum
í landinu um helgina. Berisha
sagði fyrr í gær að staðhæfingar
um að átökin um helgina hafi
verið tilraun til valdaráns „al-
geran hugarburð".
Nano var afar harðorður í
sjónvarpsávarpi sínu og sagði að
sljórnvöld myndu einungis
ábyrgjast öryggi Berishas og
annarra sem sakaðir eru um
valdaránstilraun ef þeir afhentu
vopn sín. Kallaði hann Berisha
„leiðtoga vopnaðs gengis sem
ítrekað hefur framið lögbrot".
Nano virtist samt sem áður gefa
í skyn að viðræður við stjórnar-
andstæðinga væru mögulegar
svo fremi þeir afvopnuðust. „Eg
útiloka í grundvallaratriðum
ekkert þegar kemur að póli-
tískri lausn.“
Um þijú þúsund manns söfn-
uðust saman á Skanderbeg-torgi
í miðborg Tíraua í gær og hélt
fólkið síðan til höfuðstöðva Lýð-
ræðisflokksins, þar sem Berisha
flutti ávarp og kallaði Nano m.a.
„hryðjuverkamann". Höfðu
stjórnvöld bannað gönguna en
þótt íjölmennt lið lögreglu-
manna fylgdist með grátt fyrir
járnum hefði það ekki uppi til-
burði til að hefta för göngu-
manna. Á myndinni má sjá Ber-
isha gefa mótmælendum sigur-
merki.
Rauter
Clinton
Ný rikisstjórn Rússlands
Greiðslu lífeyris
og vangoldinna
launa lofað
Moskva. Reuters.
JEVGENÍ Prímakov, nýskipaður
forsætisráðherra Rússlands, sagði í
gær að ríkisstjórn hans yrði vænt-
anlega fullskipuð á morgun. I gær
var tilkynnt að Alexander Sjokín,
formaður flokks Viktors
Tsjernomyrdíns, fyrrverandi for-
sætisráðherra, myndi verða einn af
aðstoðarforsætisráðhernmum í
nýrri stjórn.
Prímakov átti í gær fund með
Borís Jeltsín Rússlandsforseta í
fyrsta sinn eftir að hann var skipað-
ur forsætisráðherra. Að fundinum
loknum sagði Prímakov að Jeltsín
styddi fyrirætlanir hans í efnahags-
málum. Hann skýrði ekki nánar í
hverju þær fælust, en ítrekaði að
greiðsla vangoldinna launa og líf-
eyris hefði algjöran forgang.
Prímakov hitti einnig Viktor
Gerasjenkó seðlabankastjóra að
máli í gær. Gerasjenkó tjáði frétta-
mönnum að nauðsynlegt væri að
prenta peninga til að greiða launa-
skuldirnar, en óttast er að það muni
leiða til óðaverðbólgu. Prímakov
fullyrti þó í gær að hann myndi ekki
líða að nýtt verðbólgufár tæki sig
upp í landinu.
Milli tveggja elda
Prímakov hefur undanfarna daga
ráðfært sig við umbótasinnaða hag-
fræðinga sem tóku þátt í að móta
efnahagsstefnuna í valdatíð Mik-
hafls Gorbatsjovs, og þykir það
benda til þess að stefnubreytinga sé
að vænta í efnahagsmálum. Stjórn-
málaskýrendur velta nú vöngum yfir
því hvernig Prímakov muni takast
að svara ólíkum kröfum um efna-
hagsráðstafanir. Þar er hann milli
tveggja elda, annars vegar komm-
únista, sem leggja áherslu á að
byrðar almennings verði léttar, og
vestrænna lánardrottna hins vegar,
sem eru líklegir til að draga úr fjár-
hagsaðstoð ef markaðsumbótum
verður ekki fram haldið.
njóti sál-
gæslu
Washington. Reuters.
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, mun framvegis njóta leið-
sagnar og handleiðslu kirkjunnar
manna við að feta einstigi dyggðar-
innar. Að sögn heimildamanna
Reuters mun forsetinn eiga viku-
lega fundi með prestum, þar sem
hann ræðir persónulegan vanda
sinn, „axlar ábyrgð gjörða sinna“ og
„glímir við freistingamar, sem hann
hefur hingað til átt erfitt með að
standast".
„Við viljum að hann skilji ástæð-
ur þess að hann syndgaði og spillti
fyrir lífi sínu og forsetaembættinu,“
sagði Tony Campolo, babtistaprest-
ur og prófessor í félagsfræði, sem
meðal annarra mun aðstoða forset-
ann. „Við munum veita honum þá
sálgæslu sem hann þarfnast, svo
hann falli ekki í freistni á ný.“
Síðastliðinn föstudag átti forsetinn
bænafund með trúarleiðtogum þar
sem hann sagðist iðrast þess að hafa
haldið framhjá með Mönicu Lewin-
sky og lofaði að slíkt myndi ekki end-
urtaka sig. Clinton hafði sjálfur
frumkvæði að því að fá stuðning og
handleiðslu með þessum hætti.
Astandið á landamærum
Irans og Afganistans
Iranski herinn í
viðbragðsstöðu
Teheran. Reuters.
ÆÐSTI trúarleiðtogi írana og yfir-
maður heraflans skipaði í gær
hernum að vera í viðbragðsstöðu
vegna „ástandsins" í Afganistan,
sem hann sagði vera mjög alvar-
legt. Ekki er þó talið líklegt, að ír-
anir ráðist inn í landið að sinni og
Talebanar, sem ráða þar ríkjum,
hafa hvatt þá til viðræðna.
Ali Khamenei erkiklerkur sagði á
fundi með yfirmönnum byltingar-
varðarins, að ástandið í Afganistan
væri mjög alvarlegt og hernum
bæri að afstýra þeirri hættu, sem
steðjaði að Iran og írönum. Sagði
hann þetta aðeins nokkrum klukku-
stundum eftir að komið var með til
Teheran-flugvallar lík sjö íranskra
sendimanna, sem drepnir voru í
Afganistan.
„Dauði yfir Talebönum"
Mohammad Khatami, forseti
Irans, sagði í ræðu, sem hann flutti
á flugvellinum, að staðinn yrði
vörður um íranska lýðveldið og ætt-
ingjar hinna látnu og aðrir syrgj-
endur kröfðust „dauða yfir Tale-
bönum“. Verða sendimennirnir
grafnir með viðhöfn á fóstudag.
Iranski byltingarvörðurinn,
sveitir, sem áttu mikinn þátt í að
steypa keisaranum af stóli fyrir 20
árum, lýsti í gær yfir, að hann væri
reiðubúinn til að koma „kúguðum
og auðmjúkum Afgönum til hjálp-
ar“.
„Glæpamenn Talebana og bak-
hjarlar þeirra skulu vita, að við er-
Reuters
BILL Clinton virtist í þungum
þönkum á fundi Bændasamtaka
Bandaríkjanna í gær.
Dómsmálanefnd Bandaríkjaþings
fundaði fyrir luktum dyrum í gær.
Þar var tekist á um hvort birta ætti
myndbandsupptöku af yfirheyrslu
Kenneths Starrs, sérstaks saksókn-
ara, yfir Bill Clinton 17. ágúst sl.
Nefndin hefur frest til 28. sept. nk.
til þess að komast að niðurstöðu um
birtinguna.
■ Lögfræðingar Clintons/20
um tilbúnir að hefna hinna kúg-
uðu,“ sagði í yfirlýsingu byltingar-
varðarins.
Boða miklar heræfíngar
Sérfræðingar í írönskum málefn-
um telja ekki líklegt, að Iranir ráð-
ist inn í Afganistan að sinni en úti-
loka þó ekki takmarkaðar árásir.
Þeir hafa hins vegar mikinn áhuga
á að hjálpa trúbræðrum sínum í
landinu, shíta-múslímum, en Tale-
banar eru sunni-múslímar. Segja
íranir, að Talebanar hafi komið
óorði á íslamska trú.
Iranir eru nú með um 70.000 her-
menn við landamærin að Afganist-
an og segja, að meira en 200.000
hermenn muni taka þátt í heræf-
ingum þar á næstunni.
Leiðtogi Talebana, Mohammad
Omar, hvatti í gær Irani til að koma
til viðræðna og kvaðst hann mundu
samþykkja milligöngu annan-a í því
skyni.
ftalía
Sjónvarps-
sápurnar
á útlensku
Róm. Reuters.
VERKFALL ítalskra leikara
sem vinna við hljóðsetningu
sjónvarpsefnis er nú farið að
reyna á þolrif unnenda sápu-
ópera en þeir þurfa nú að gera
sér að góðu að lesa þýðingar-
texta á sjónvarpsskjánum.
„Enn ber mikið í milli,“ seg-
ir Sandro Piombo, samninga-
maður leikaranna, sem lögðu
niður vinnu í júlí sl. Flestir
sem starfa við hljóðsetningu
erlends sjónvarpsefnis og
kvikmynda á Italíu eru leikar-
ar að mennt. Þeim er í mun að
tryggja gæði hljóðsetningar-
innar og segja það aðeins hægt
með því að gera allsherjar-
samning um kaup og kjör við
sjónvarpsstöðvar og fyrirtæki
sem dreifa erlendum kvik-
myndum.
Lesið með gamla laginu
ítalir eiga því ekki að venj-
ast að lesa texta á sjónvarps-
skjá og kunna því illa. Sjón-
varpsstöðin sem sýnir banda-
rísku sápuna Glæstar vonir til-
kynnti að þátturinn yrði lesinn
með gamla laginu þar til samn-
ingar næðust, sem þýðir að
þulur les allar raddir leikara
jafnóðum og þátturinn er
sendur út.
Leysist deilan ekki innan
skamms er viðbúið að nýjar
erlendar kvikmyndir fari
óhljóðsettar í almenna dreif-
ingu á Italíu, landsmönnum til
lítillar hrifningar.